Fréttablaðið - 26.07.2001, Page 17
FIMIVITUDACUR 26. júlí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
17
Hliðarspor Boris Becker:
Líkir ást-
manninum
við hraðlest
SKYNDIKYNNI Angela Ermakova,
rússneska módelið sem átti í
fimm mínútna ástarsambandi við
þýska tennisleikarann Boris
Becker segir að það hafi verið
rómantískasta stund lífs síns.
Hún líkir Þjóðverjanum við hrað-
lest. Ermakova, sem er 34 ára,
sagði í viðtali við þýska tímaritið
Bunte, að sú stutta stund sem þau
eyddu saman inní kústaskáp
hefðu verið sem draumi líkast og
henni hefði liðið eins og Ösku-
busku. Ermakova varð ólétt í
kjölfarið og vann nýlega mál sem
hún höfðaði gegn Becker, sem
verður að borga henni og dóttur
þeirra 3,300 pund á mánuði í
framfærslu. Becker segist hafa
gert mikil mistök með því að fara
inní í kústaskápinn en Ermakova
lítur ekki sömu augum á málið.
„Boris dró mig inní kústaskáp-
inn og varð æstari með hverri
sekúndu. Það var ómögulegt að
reyna að stoppa hann, því hann
var orðinn svo æstur. Það hefði
verið eins og að stöðva hraðlest,"
sagði Ermakova, í fyrsta skipti
sem hún tjáir sig opinberlega um
málið. „Mér leið eins og Ósku-
busku í fallegum draumi. Boris
var eins þýskur riddari."
Ermakova vonast til að mynd-
ir sem birtust af 16 mánaða gam-
alli dóttur þeirra í þýska tímarit-
inu verði til þess að hann muni
hafa samband við þær. „Ég vona
að þegar Boris sjái þessar mynd-
ir af Önnu muni hjartað hans taka
kipp. Fyrir hann verður það eins
og að sjá sína eigin spegilmynd á
unga aldri."
Að sögn The Evening Standard
er Becker að byggja hús handa
mæðgunum í London. í upphafi
neitaði hann þó að vera faðir
Önnu og bar það fyrir sig að rúss-
neska mafían hefði stolið sæði úr
sér. Það var ekki fyrr en hann
hafði gengist undir DNA próf að
hann viðurkenndi að hafa verið
með fyrirsætunni. Fyrr í þessum
mánuði samþykkti hann að greiða
þeim meðlag, í það minnsta
næstu 17 ár. ■
HRAÐLESTIN
Þýska tennisstjarnan Boris Becker fór mik-
inn í kústaskápnum að sögn barnsmóður
hans (innfelda myndin). Hann hefur loks
gengist við barninu.
E CROCODILE DUNDEEIN LA kt 6,8 og 10! "'Jj
Ipeárl harbour kl.6og9.3Ö10
|SPOT
|dr. DOOLITTLE 2 yjLiQ
COLDPLAY
ásamt sénstökum gestum
Laugandalshöll 22. ágúst 2001
Miðasala hePst í SkíPunni
Laugavegi & Kringlunni og á
www.val.is mánudaginn 30. júlí
kl. 10:00.18 ára aldunstakmank.
IroBORa)
" RAD 10X103.7
LAUGAVEGI 94, SIMI 551 6500
EVOLUTION
Sýnd kl. 6, 8 og 10