Fréttablaðið - 26.07.2001, Qupperneq 19
FIMMTUPAGUR 26. júli 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
19
Gönguferð um Þingvelli:
Gengu um í leiðslu
og sáu fornar hetjur
söguferð í seinustu fimmtudags-
kvöldgöngu sumarsins á vegum
þjóðgarðsins á Þingvöllum mun
Sumarliði ísleifsson fjalla um tilurð
Þingvalla sem ferðamannastaðar.
Rætt verður um komu fyrstu ferða-
manna til Þingvalla undir lok 18.
aldar, fjallað um það hvernig þeim
smáfjölgaði og hvað vakti áhuga
þeirra. í fyrstu var það einkum
náttúra Þingvalla sem laðaði ferða-
menn til sín en er líða tók á 19. öld
varð menning og saga staðarins
helsta aðdráttaraflið.
Stóraukinn áhugi á norrænni
menningu í Vestur-Evrópu og ekki
síður á Bretlandseyjum varð til
þess að töluverður fjöldi ferða-
manna leitaði hingað til lands til
þess að kanna söguslóðir og urðu
Þingvellir þá vitaskuld helsti við-
komustaðurinn. Þetta fólk gekk
undir nafninu sögupílagrímar og
leit nánast á staðinn sem mynd-
skreytingu við íslendingasögurnar
sem voru þýddar og gefnar út á
ensku og þýsku, hver á fætur
annarri, á ofanverðri 19. öld. Sumir
sögupílagrímanna lýstu því hvern-
ig þeir gengu um eins og í leiðslu og
þóttust sjá fyrir sér fornar hetjur á
gangi í Almannagjá.
PRESTURINN A ÞINGVÖLLUM
Myndin er teiknuð af J. Ross Browne sem
ferðaðist um landið árið 1862 og hitti
prestinn á Þingvöllum.
Gangan hefst klukkan 20.00 og
lagt verður af stað frá útsýnisskíf-
unni á Hakinu. Allir eru velkomnir
og aðgangur er ókeypis. Nánari
upplýsingar um gönguna má fá í
þjónustumiðstöð þjóðgarðsins og á
heimasíðu þjóðgarðsins www.thing-
vellir.is ■
DæmigerÖ bresk
löggusaga
Cold Is The Grave er ellefta
bók Peters Robinson. Sögur
hans um lögregluforingjann Alan
Banks gerast í Yorkshire en oft
berst leikurinn til nágranna-
byggða. Söguþráðurinn spinnst
hægt áfram, svona álíka hægt og
rannsóknarvinna lögreglumanna
gengur eflaust oft og tíðum. Það
sem bjargar bókinni frá því að
verða álíka spennandi og lög-
regluskýrsla eru augljósir hæfi-
leikar höfundarins. Hin hægfljót-
andi frásögn verður aldrei leiðin-
leg. Þegar lesandinn er um það
bil að styggjast vegna smámuna
PETER ROBINSON: Cold is the grave
MacMillan 2000 (harðspjalda) 464 bls.
eins og lýsinga á fatnaði, mat og
víni og fortíðarpælinga söguper-
sónanna gerist eitthvað áhuga-
vert og hin hægfara frásögn
gleypir athyglina á ný.
Alan Banks er kannski ekki eins
eftirminnilegur og Morse, Dal-
gliesh, Wexford eða Rebus en
hann ætti að falla sérlega vel í
kramið hjá þeim sem eru á sama
aldri og hann og voru unglingar í
kringum 1970.
Ingvi Þór Kormáksson
Á efri hæð Hafnarborgar stendur Þjóð-
minjasafn fslands fyrir sýningu á Ijós-
myndum eftir Hans Malmberg frá því
um 1950. Sýningin nefnist fsland 1951.
Sýningin er opin alla daga nema þriðju-
daga og henni lýkur 6. ágúst.
í Sverrissal Hafnarborgar er sýning á
vegum Þjóðminjasafns Islands á skotskíf-
um úr fórum Det Kongelige Kjoben-
havnske Skydeselskab og Danske
Broderskab. Sýndar eru um 15 skotskífur
frá árunum 1787-1928 með íslensku
myndefni eða frá íslenskum félögum
skotfélagsins. Sýningin er opin alla daga
nema þriðjudaga og henni lýkur 6. ágúst.
í Árbæjarsafni standa yfir nokkrar sýn-
ingar. í Lækjargötu 4 er sýningin Saga
Reykjavíkur - frá býli til borgar. í Kjöt-
húsi er sýningin Saga byggingatækn-
innar. í Likn er sýningin Minningar úr
húsi. Sýningin í Suðurgötu 7 ber yfir-
skriftina: Til fegurðarauka. Sýning á út-
saumi og hannyrðum. l'Efstabæ má sjá
hvernig tvær fjölskyldur bjuggu í húsinu
um 1930.
Í Ljósmyndasafni Reykjavíkur stendur
Ijósmyndasýning Henri Cartier-Bresson
I Grófarsal, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.
Sýnd eru verk franska Ijósmyndarans
sem nú er á tíræðisaldri. Sýningin er
opin virka daga frá kl. 12-17 og um
helgar kl. 13-17 og stendur til 29. júlí.
Arí n/lagg sýnir Ijósmyndir á Atlantic í
Austurstræti og er þetta er fyrsta einka-
sýning Ara. Þema sýningarinnar á Atlant-
ic er íslenski fáninn. Gengið er inn frá
Austurvelli.
i Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir
sýningarnar Blóðug vígaferli og Götulif
víkinganna í York . Um er að ræða
tvær sýningar, annars vegar endurgerð á
götu í vikingaþorpi og hins vegar sýn-
ingu þar sem má sjá beinagrind og
hauskúpur víkinga sem féllu í bardög-
um. Sýningarnar eru opnar alla daga frá
13 til 17 og standa til 1. október.
Ljósmyndasýning grunnskólanema
sem í vetur hafa unnið undir hand-
leiðslu Marteins Sigurgeirssonar
stendur yfir í Gerðubergi. Opnunartími
sýningarinnar er virka daga frá 12 til 17
og stendur sýningin til 17. ágúst.
MYNPLIST____________________________
Guðný Rósa Ingimarsdóttir heldur sýn-
ingu á galleri@hlemmur.is. Þetta er
hennar sjötta einkasýning. Sýningin ber
yfirskriftina Tognuð tunga en þar ferðast
listakonan á milli nokkurra augnablika
með aðstoð verka frá þessu og síðasta
ári.
Opnunartími galleri@hlemmur.is er frá
fimmtudegi til sunnudags, kl. 14-18.
Sýningunni lýkur 12. ágúst.
Ólöf Björk Bragadóttir, Lóa, hefur
opnað myndlistarsýningu í sal félagsins
Islensk grafík í Hafnarhúsinu,hafn-
armegin. Á sýningunni eru Ijósmyndir í
lit teknar á flóamarkaðnum í
borginniMontpellier í Suður- Frakklandi.
Á myndunum má finna hluti sem teknir
eru úr sínu vanalega samhengi.
Sýning franska myndlistarmannsins
Paul-Armand Gette Mind the volcano!
- What volcano? stendur nú i Ljósaklifi
vestast í Hafnarfirði. Aðkoma að
Ljósaklifi er frá Herjólfsbraut Sýningin
stendur til 6. ágúst og er opin daglega
frá kl. 14.00 til 18.00.
I Listhúsi Ófeigs að Skólavörðustíg 5,
stendur sýning á teikningum eftir Erlu
Reynisdóttur van Dyck. Erla notar auk
blýants ýmis óhefðbundin áhöld eins og
reyrstifti, fjaðrir og finguma Hún notai
einnig báðar hendur jafnt í listsköpun
sinni. Sýningin er opin á verslunartíma
og stendur til 8. ágúst.
Líf og dauði. Hvaðan komum við -
hvert förum við? Helga Birgisdóttir og
Olga Pálsdóttir sýna í listasalnum Man,
Skólavörðustíg 14. Listakonurnar hafa
nýlokið námi frá Listaháskóla íslands og
tengist yfirskrift sýningarinnar þema sem
þær unnu að í lokaverkefnum sínum.
Sýndir eru leirskúlptúrar og grafísk verk.
Sýningin er opin virka daga kl. 10 til 18
og kl. 14 til 18 um helgar. Henni lýkur
29. júlí.
Ungur Norðmaður, Stian Rönning, sýnir
nú í Gallerí Geysi við Ingólfstorg.
Sýningin hefur yfirskriftina Sérð Þú það
sem Eg sé. Hann sýnir Ijósmyndir sem
eru teknar á Thailandi, Laos, Noregi og
ísland á árunum 1999 til 2001. Sýningin
stendur til loka ágúsL
í Listasafni Reykjavíkur -Kjarvalsstöðum
er sýning sem ber nafnið Flogið yfir
Heklu. Sýningarstjóri er Einar Garibaldi
Eiríksson myndlistarmaður og prófessor
við Listaháskóla islands. Á sýningunni
getur að líta mismunandi myndir Heklu
sem sýndar eru hlið við hlið. Sýningin
stendur til 2. september.
í miðrými Kjarvalsstaða er sýning sem
ber yfirskriftina 1461 dagur. Þar sýnir
Grétar Reynisson vaxtarverkefni af
þeirri tegund sem á ensku væri kallað
„work in progress." Sýningin stendur til
19. ágúst.
áw (^ardpíöntustödin
/\ isaÆwcflosD ' '
Beygt 3 km austan viö Hverageröi
Fallegar og harðgerðar plöntur í úrvali
Tré og runnar ígarða, skógrœkt og skjólbelti. Einnig
alparósir, klifurplöntur, berjarunnar, sígrœnir
dvergrunnar og fjölœr blóm og sumarblóm.
??ÍZ.a\1« ?-f Sími: 483 4840
fra kl. 10 tll 19 Fax: 483 4802
Veffang: http://www.natthagi.is Netfang: natthagi@centrum.is
◄ReykjaviK
Afsláttur allt að
70%!
Útsalan í Byggt og búið er engri lík.
Þar er fjöldi góðra muna fyrir heimilið á frábæru verði.
Kringlunni
Gagnlegir munir fýrír heimilið á útsölu!
Utsala Utsala
20% aukaafsláttur
íounn
tískuverslun
v/Nesvegi, Seltjarnarnesi, sími 561 1680
Kringlunni, 2. hæð, sími 5881680