Fréttablaðið - 27.08.2001, Side 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
27. ágúst 2001 MÁNUPAGUR
AFRÍSKUR SKÓGARFÍLL
Þessi fertugi fill heitir Coco og er til heimil-
is í dýragarði rétt hjá París.
Erfðarannsóknir á fílum:
Tvær tegundir
fíla í Afríku
washington. ap Nýjar rannsóknir
á afrískum fílum leiða í ljós að í
álfunni eru tvær erfðafræðilega
aðskildar tegundir fíla, en ekki
ein eins og hingað til hefur verið
talið. Rannsóknirnar sýna fram á
að afrískir skógarfílar og afrískir
gresjufílar eru jafnóskyldir
erfðafræðilega eins og ljón og
tígrisdýr. Gresjufílarnir eru með
stór, skörðótt eyru og bognar
tennur en skógarfílarnir eru held-
ur minni, með tiltölulega beinar
tennur og kringlóttari eyru. Rann-
sóknin er byggð á erfðaefnis-
greiningu 195 afrískra fíla og sjö
fíla frá Asíu, en niðurstöður rann-
sóknarinnar birtust í tímaritinu
Science á föstudag. ■
LÖGREGLUFRÉTTIRl
Lögreglan stöðvaði akstur
flutningabifreiðar á Reykja-
nesbraut við Mjódd í Breiðholti
um hádegisbil á fimmtudag. Bif-
reiðin dró festivagn sem innihélt
22.500 lítra af hreinni tjöru. í ljós
kom við skoðun lögreglu að
hættumerkingar vantaði á bif-
reiðina og einnig varúðarmerk-
ingar á festivagn. Þá vantaði
bæði slökkvitæki í bifreið og á
festivagn. Ökumaðurinn haföi
auk þess ekki ADR-réttindi sem
tilskilin eru til að flytja hættuleg-
an farm. Ökumaðurinn má vænta
sektar.
Slökkviliðinu barst tilkynning
um eld í geymsluskúr við
gamla bóndabæinn Lund við Ný-
býlaveg í Kópavogi um klukkan
þrjú í fyrrinótt. Þegar slökkvilið-
ið kom á staðinn var skúrinn al-
elda en greiðlega tókst að slökk-
va eldinn. Var talin hætta á að
eldurinn bærist í önnur hús.
Skúrinn er talinn ónýtur.
Alblóðugur erlendur ferðamað-
ur leitaði til lögreglunnar í
Reykjavík í fyrrinótt. Að sögn
mannsins hafði ókunnugur maður
slegið hann í höfuðið með flösku.
Maðurinn var fluttur á slysadeild
þar sem gert var að sárum hans.
Árásarmaðurinn er enn ófundinn.
Fangageymslur:
Fækkun fangaklefa ekki Vcindamál
ÚTTEKT Á NÝTINGU FANGAKLEFA Á TÍMABILINU
1. SEPTEMBER 2000 TIL 10. FEBRÚAR 2001:
Fjöldi daga með 16 fanga aðfararnótt laugardags: ............2
Fjöldi daga með 16 fanga aðfararnótt sunnudags:..............1
Fjöldi daga með 17 fanga aðfaranótt laugardags: .............1
Fjöldi daga með 17 fanga aðfaranótt sunnudags: ..............0
fangageymslur Lögreglan í
Reykjavík hefur breytt hluta af
fangaklefum í skrifstofuhúsnæði.
Eins og kunnugt er gagnrýndi fé-
lagsmálaráð borgarinnar þær að-
gerðir fyrir þær sakir að heimilis-
lausum yrði vísað frá vegna pláss-
leysis. Lögreglan hefur sent frá
sér tilkynningu þar sem aðgerð-
irnar eru útskýrðar og kemur m.a.
fram að hagvæmnisástæður hafi
ráðið og að réttlætanlegt hafi ver-
ið að breyta fangaklefunum þar
sem nýting þerra er ekki mjög
mikil. Fram kemur að embættið
hafi 14 fangaklefa yfir að ráða eft-
ir breytingar í fangageymslu auk
tveggja í kjallara samtals 16
klefa. Skoðaðir voru 88 helgidag-
ar og voru aðeins í fimm skipti
fleiri en 16 fangar vistaðir í
fangageymslum. Þykir því ljóst
að fækkun fangaklefa skapi engin
vandmál. Hins vegar geti fanga-
geymslan orðið full eina og eina
nótt og þá þurfi að bregðast við
því hverju sinni.
Lögreglaii segir fangaklefa
fyrst og fremst þjóna þeim til-
gangi að hýsa menn sem teknir
hafa verið höndum. Ekki á að
koma til þess að fleiri en einn sé
settur í klefa þrátt fyrir að nota
þyrfti alla fangaklefana. Hugsan-
lega kæmi þá upp sú staða að vísa
þyrfti frá heimilislausum sem
óskuðu gistingar. Lögreglan vísar
algerlega á bug þeim fullyrðing-
um að heimilislausum hafi verið
úthýst. ■
FRÆÐSLUMÁLIN KYNNT
Sigrún Magnúsdóttir, formaður fræðsluráðs, og Cerður G. Óskarsdóttir, fræðslustjóri þær breytingar sem hafa orðið á fræðslumálum borgarinnar frá því sem var á síðasta ári. Meðal
þess sem kom fram var að einsetning skóla gengur stónrel og einungis tveir af 40 skólum borgarinnar eru enn tvísetnir. Allir skólar Reykjavíkur verða einsetnir á næsta ári. Með
Sigrúnu og Cerði er á myndinni Runólfur Birgir Leifsson forstöðumaður fjármálasviðs Fræðslumiðstöðar.
F ás er fróðum vant
Fjárveitingar til grunnskóla Reykjavíkur auknar um 1,8 milljarð frá síðasta skólaári. Stefnt er að
því að hver nemandi fái sitt eigið netfang. Nemendur skortir í Ingnnarskóla í Grafarholti.
suva. fípjíeyjum. ap Innfæddir eyja-
skeggjar á Fídjí-eyjum og íbúar af
indverskum uppruna eru þessa
dagana að greiða atkvæði um nýtt
þing, en kosningarnar hófust síð-
astliðinn laugardag og sþanda
fram á næsta laugardag. í gær
var þó gert hlé á þeim á hvíldar-
deginum.
Spenna hefur verið lengi milli
innfæddra eyjaskeggja og að-
fluttra Indverja, en fyrstu ríkis-
stjórninni sem mynduð var með
meirihluta Indverja var steypt af
stóli í valdaráni þjóðernissinna
vorið 2000. Leiðtogi valdaránsins
var George Speight, sem tók for-
sætisráðherrann og ríkisstjórnina
í gíslingu en situr nú í fangelsi
sakaður um landráð. Engu að síð-
ur er hann í framboði, þar sem
ekki hefur enn verið dæmt í máli
hans og hann hefur því hreint
sakavottorð.
Mahendra Chaudhry, forsætis-
ráðherrann sem Speight steypti af
stóli, vonast til þess að endur-
heimta embættið.
Herinn setti Laisenia Qarase í
embætti forsætisráðherra eftir
að uppreisn Speights var afstað-
in. ■
Netvæðing skóla í höfuð-
borginni gengur prýðisvel og
eru nú allir skólarnir tengdir
ljósleiðarakerfi sem hundrað-
faldar flutningsgetu tölva miðað
við það sem áður var. Inn í skól-
ana voru keyptar 662 nýjar tölv-
ur og eru nú um 10 nemendur
um hverja vél.
Að sögn Sigrúnar Magnús-
dóttur, formanns fræðsluráðs, er
stefnt að því að einungis fimm
nemendur séu um hverja tölvu
fyrir næsta skólaár. Þá sagði
Sigrún að stefnt væri að því að
hver nema í grunnskólum borg-
arinnar fái sitt eigið netfang og
nú þegar hafa nokkrir skólar
hafið útdeilingu netfanga til
nemenda sinna.
Fjárveitingar til skólanna í
höfuðborginni hafa verið auknar
um 28,2 prósent frá því í fyrra
og nemur það 1,8 milljarði í
krónum talið. Stærsti hluti upp-
hæðarinnar er veitt í launa-
greiðslur samkvæmt nýjum
kjarasamningi kennara.
Alls er velta grunnskóla
Reykjavíkur um 10 milljarðar og
skiptist upphæðin á milli rek-
strar, byggingaframkvæmda,
kaupa á búnaði og viðhalds.
omarr@frettabladid.is
menntun Töluverðar
breytingar verða í
grunnskólum Reykjavík-
ur á skólaárinu sem gekk
í garð á föstudag. Nem-
endum hefur fjölgað um
400 frá síðasta ári, meðal
annars vegna þess hver-
su margir hafa flutt til
höfuðborgarinnar á ár-
inu. Sérstaka athygli
vekur að þrisvar sinnum
fleiri börn flytja til bor-
garinnar frá útlöndum
en utan af landi. Kennur-
um fjölgaði einnig á
skólaárinu. Þeir eru nú
Stefnt er að
því að einung-
is fimm nem-
endur séu um
hverja tölvu
fyrir næsta
skólaár. Þá er
stefnt að því
að hver nem-
enda í grunn-
skólum borg-
arinnar fái sitt
eigið netfang.
—
1.425 og er það fjölgun
um 36 kennara frá því á
síðasta skólaári.
Tveir nýir skólar voru
teknir í notkun á föstu-
daginn, Ingunnarskóli í
Grafarholti og Víkur-
skóli. Heldur óvenjulegt
ástand hefur skapast í
Ingunnarskóla þar sem
þar skortir í raun nem-
endur - nokkuð sem
aldrei hefur áður gerst í
sögu fræðslumála
Reykjavíkur. Skólann
sækja nú um 30 nemend-
ur í átta árgöngum.
Vika eftir af kosningum á Fídjí:
Prófraun lýðræðis
LEIÐTOGI VALDARÁNSINS
George Speight, t.v., heilsar bróður slnum og kosningastjóra á föstudag. Speight var þarna
að koma úr réttarsal þar sem hann fór fram á leyfi úr fangelsinu til þess að geta farið í
kjördæmi sitt að greiða atkvæði.
AP/ROB GRIFFITH