Fréttablaðið - 27.08.2001, Qupperneq 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
27. ágúst 2001 MÁNUPAGUR
Starfsmenn Rauða krossins:
Fengu að hitta
fangana átta
LOKUÐ SKRIFSTOFA
Þessi afganski drengur gengur þarna framhjá skrifstofum hjálparstarfs samtakanna Shelter
Now í Kabúl í Afganistan, en skrifstofunum var lokað og starfsfólk samtakanna handtekið
fyrir þremur vikum.
Tælenskir ferðamála-
fulltrúar:
Bjóða ferða-
mönnum upp á
kynskiptiaðgerð
bankok.ap Ferðamálafulltrúar á
Tælandi ætla á næstunni að kynna
fyrir erlendum ferðamönnum sér-
stakt pakkatilboð til eyjarinnar
Phuket þar sem boðið verður upp
á útsýnisferðir auk möguleika á
kynskipta- og lýtalæknisaðgerð-
um, en slíkar aðgerðir hafa aukist
gríðarlega á eyjunni undanfarið.
Þegar hefur verið ákveðið slagorð
fyrir ferðir á eyjuna; „Ef þú ert að
íhuga kynskiptiaðgerð, komdu þá
til Phuket.“ ■
kabÚl. afcanistan. ap Starfsmenn
Rauða krossins fengu í gær að
heimsækja átta erlenda hjálpar-
starfsmenn sem Talibanastjórnin
í Afganistan hefur haft í haldi í
þrjár vikur, en þeim er gefið að
sök að hafa notfært sér aðstöðu
sína sem hjálparstarfsfólk til þess
að boða Afgönum kristna trú.
Erlendu hjálparstarfsmennirn-
ir átta voru handteknir ásamt
sextán afgönskum starfsmönnum,
en ekki er vitað hvar Afganirnir
eru niður komnir.
„Þeir voru ánægðir að sjá okk-
ur,“ sagði Robert Monin, formaður
nefndar Rauða krossins sem fékk
að heimsækja fangana. „Við áttum
mjög gott samstarf við stjórnvöld
Talibana," sagði hann enn fremur,
en sagði ekkert um ástand fang-
anna. Nefndin fékk að ræða við þá
og athuga heilsufar þeirra.
í Afganistan er með öllu bann-
að, að viðlagðri dauðarefsingu, að
boða aðra trú en íslam, og skal ís-
lamskur Afgani sæta dauðarefs-
ingu en refsing útlendinga við
þessum glæp er fangelsi og brott-
rekstur úr landi. ■
Vél sem líkir eftir
mannslíkama:
Nýrað gekk í
sólarhring
CHICACO. BANDARÍKJUNUIVI. AP Vél
sem Iíkir eftir hlýjum mannslík-
ama hefur haldið nýra gangandi i
nærri sólarhring, en vísindamenn
við háskólasjúkrahúsin í Chicago
telja að þessi tækni geti auðveld-
að læknum alla meðferð gjafalíf-
færa vegna þess að hún haldi
þeim gangandi lengur en hingað
til hefur verið mögulegt.
Þeir telja einnig að þessi tækni
geti nýst við að prófa hvort gjafa-
líffæri séu nothæf, þegar vafi
leikur á því. Gjafalíffæri hafa til
þessa verið geymd í ís, en not-
hæfni þeirra hefur minnkað jafnt
og þétt eftir því sem þau bíða
ígræðslu lengur. ■
Ilöcreglufréttir
Ekið var á 11 ára stúlku á reið-
hjóli í Fannarfold í Grafar-
vogi um sexleytið á laugardag
Stúlkan var hjálmlaus en hlaut
ekki högg á höfuðið. Hún meidd-
ist hins vegar á hné og var flutt
með sjúkrabíl á slysadeild.
Leit var gerð að manni á laug-
ardag sem farið hafði einn út
á Þingvallavatn á litlum báti með
utanborðsmótor. Hafði leitin stað-
ið yfir á annan klukkutíma þegar
maðurinn fannst heill á húfi á
vatninu. Lögreglunni á Selfossi
barst tilkynning um þrjúleytið
frá félögum mannsins að hans
væri saknað. Var því kallað til að-
stoðar björgunarsveita og þyrlu-
sveit Landhelgisgæslunnar sem
fór á TF-Sif til leitar.
Þrjár lögreglustöðvar í rúst
ísraelsher hefnir í kjölfar dauða fimm ísralsmanna. Ehud Barak hrósar Bandaríkjaforseta.
Palestínumenn segja hiutdrægni Bandaríkjamanna augljósa.
caza, ap ísraelski herinn varpaði i
gær sprengjum á þrjár palestínsk-
ar lögreglustöðvar og lögðu þær
gjörsamlega í rúst. Um er að ræða
lögreglustöðvarnar í Gazaborg,
Dir al-Balah, sem er sunnarlega á
Gazasvæðinu og Salfit, sem er
þorp á Vesturbakkanum.
Israelski herinn notaði banda-
rískar flugvélar til þessara verka
og sagði árásirnar vera í hefndar-
skyni vegna þess að Palestínu-
menn myrtu fimm ísraelsmenn
daginn áður.
Einn palestínskur lögreglu-
maður lést og átján manns særð-
ust í sprengjuárásunum á lög-
reglustöðvarnar þrjár. Frekari
átaka varð enn fremur vart í gær
og urðu þau öðrum Palestínu-
manni og einum ísraelsmanni að
bana.
Á laugardaginn höfðu tveir
Palestínumenn ráðist á eina af
bækistöðvum ísraelska hersins á
Gazasvæðinu og myrtu þrjá her-
menn áður en þeir sviptu sjálfa sig
lífi. Þá lést ísraelskt par í skotbar-
daga sem varð á Vesturbakkanum.
Tvö ung börn þeirra særðust
einnig litillega og annar ísraels-
maður særðist alvarlega.
Alls hafa'því sex Israelsmenn
og fjórir Palestínumenn látist í
átökunum um helgina, og verður
það vart til þess að auka líkurnar á
því að Jasser Arafat leiðtogi
Palestínumanna og Shimon Peres
utanríkisráðherra ísraels hittist á
næstunni. Þeir höfðu nýlega sam-
þykkt að hefja friðarviðræður að
nýju, en engin ákveðin dagsetning
var nefnd.
Palestínumenn reiddust orðum
wr
> %
RÚSTIR EINAR
Palestínskir lögreglumenn virða tyrir sér rústirnar af höfuðstöðvum lögreglunnar í Gazaborg, sem israelsmenn eyðilögðu í gærmorgun.
George W. Bush á föstudag, en
hann krafðist þess að Arafat komi
í veg fyrir frekari árásir Palest-
ínumanna og virtist styðja kröfur
ísraelsmanna um að ofbeldinu
verði að linna áður en friðarvið-
ræður geti hafist á ný.
Hanan Ashrawi, málsvari
palestínskra stjórnvalda, sagði aug-
ljóst að Bandaríkin væru nú full-
komlega óhlutdræg og bætti því við
að stuðningur Bandaríkjanna við
ísrael sé kominn á það stig að þau
séu orðin „samsek um glæp“.
Ehud Barak, fyrrverandi for-
sætisráðherra ísraels, hrósaði
hins vegar Bush fyrir að hafa
sýnt fram á ótvíræða leiðtoga-
hæfileika með því „beina spjót-
um sínum að hegðunarreglum
Arafats.“ ■
Aðstoðarleikskólastjóri
og-delldarstjórar----
• Leikskólar Reykjavíkur óska eftir að ráða aðstoðarleikskólastjóra
i leikskólann Barónsborg við Njálsgötu.
UppLýsingar gefur Sjöfn Ólafsdóttir leikskólastjóri í síma 551 0196.
Stöður deildarstjóra eru lausar í eftirtöldum leikskólum:
• Brekkuborg við Hlíðarhús -
UppLýsingar gefur Guðrún Samúelsdóttir Leikskólastjóri í síma 567 9380.
• Öldukoti við Öldugötu
Upplýsingar gefur Edda Magnúsdóttir LeikskóLastjóri í síma 551 4881.
Laufskálum við Laufrima
UppLýsingar gefur Lilja Björk Ólafsdóttir leikskólastjóri í sima 587 1140.
Leikskólakennaramenntun er áskilin.
Umsóknareyðublöð má nálgast á ofangreindum leikskólum,
á skrifstofu Leikskóla Reykjavíkur og á vefsvæði www.teikskolar. is.
J íLe
Leikskólar
Reykjavíkur
|lögreglufréttir|
Bíll var stoppaður í Breiðholti
við hefðbundið eftirlit lög-
reglunnar um eittleytið í fyrr-
inótt. í bílnum fundust tæki og
tól til eiturlyfjaneyslu, eitthvað
magn af hassi og landa. Ökumað-
ur bílsins viðurkenndi að eiga
efnið og sagði það vera til einka-
neyslu. Manninum var sleppt að
lokinni yfirheyrslu.
Lögreglan hóf að veita bíl eftir-
för sem hafði neitað að sinna
stöðvunarskyldu lögreglu. Bíllinn
ók inn í Árbæjarhverfi og þá tók
lögreglan eftir því að einhverju
var kastað út úr bílnum. Við leit
fannst hvítt efni en óvíst er hvað
það er. Ökumaður bílsins stoppaði
að lokum og var handtekinn. Hann
er grunaður um ölvun við akstur.
Á heimili mannsins fundust kylfur,
hnífar og önnur vopn. Að lokinni
yfirheyrslu var manninum sleppt.
Vörubifreið með tengivagn ók
aftan á fólksbifreið á Suður-
landsvegi við Rauðavatn um fjög-
urleytið á laugardag. Við aðkomu
leit út fyrir að um alvarlegt slys
væri að ræða en betur fór en á
horfðist. Ökumaður fólksbifreið-
arinnar slapp lítið meiddur.