Fréttablaðið - 27.08.2001, Qupperneq 12
FRÉTTABLAÐIÐ
27. ágúst 2001 MÁNUDAGUR
Við byrjum
Nató gefur upp vopnafjöldann:
Telur vopnin vera 3.300
september
á fimm stöðum í borginni
Haustdagskrá Planet Pulse hefst af fullum krafti mánudaginn 3. september.
Fjölbreytt úrval námskeiða og hóptíma við allra hæfi.
Bcxiy Pump Planet Sport/Ranet Pump * Pallatímar
Planet Sport/Planet Pump * Næringarráðgjöf
Pianet City/Planet Esja * Grenningamámskeið
Planet Sporl/Planet Pump * Bermúdahringur
Planet Gym 80 * Einkaþjálfun Planet Clty/Planet
Esja * Spinning Planet Gym 8o/Planet
Pump/Planet Sport * Dansnámskeið Planet
Pump, Unglingatímar Planet Sport * Kraftakariar
Planet Gym 80 * Body Combat * Planet Pump
Ptanet City
Planet Esja
Planet Gym 80
Ptanet Pump
Planet Sport
Austurstræti 8
Suðurlandsbraut 2
Suðurlandsbraut 6
Frostaskjóli 6
Faxafeni 12
sími 5111640
sími 588 1702
sími 588 8383
sími: 561 3535
sími 588 9400
20% afsláttur fýrir hjón og fjölskyldur
Upplýsingar og stundaskrár á www.planetpulse.is
/^M /.V <2*
I C E L A N D
skopje. ap Atlantshafsbandalagið
skýrði í gær frá því hversu mörg-
um vopnum hersveitir þess í
Makedóníu ætla að safna saman á
næstu fjórum vikum. Gunnar
Lange hershöfðingi sagði á blaða-
mannafundi í Skopje að Nató
hyggist taka í sína vörslu 3.300
vopn frá albönskum uppreisnar-
mönnum, en það er mun lægri tala
heldur en makedónsk stjórnvöld
telja að uppreisnarsveitirnar hafi
í fórum sínum.
Stjórnvöld í Makedóníu telja að
uppreisnarmennirnir hafi yfir að
ráða um 85.000 vopnum, en upp-
reisnarmennirnir hafa hins vegar
fullyrt að þeir séu ein-
ungis með um 2.000 vopn.
Fulltrúar stjórnvalda
segja ekkert hafa verið
ákveðið um það hvort
þessi tala, sem Nató birti
í gær, verði ofan á eða
hvort stjórnin fallist á
hana.
Vopnasöfnunin átti að
hefjast í dag, en fullvíst
þykir að Nató hefjist
ekki handa fyrr en allir
málsaðilar hafa komið
sér saman um hversu
mörgum vopnum eigi að
safna. ■
GÍSLAR LÁTNIR LAUSIR
Romeu Zivic faðmar tvo syni sína, en hann var í gær
látinn laus ásamt þremur öðrum gíslum sem albanskir
uppreisnarmenn höfðu haft i haldi í Makedóníu.
NÝJA PRINSESSAN OG SONUR HENNAR
Mette-IVIarit veifar til mannfjöldans á svölu konungshallarinnar í Osló með Maríus son sinn í fanginu. Hann fékk vænan skerf af athygl-
inni á brúðkaupsdaginn. Brúðarmeyjarnar tvær veifa líka.
Brúðkaup 21. aldarinnar:
Norðmenn fagna
nýju prinsessunni
osló. ap Nýja prinsessan í Noregi
hefur verið kölluð nútíma ösku-
buska. Einstæð, útivinnandi móð-
ir úr venjulegri fjölskyldu giftist
norska prinsinum á laugardaginn
og verður væntanlega drottning
Norðmanna þegar þar að kemur.
Og Norðmenn hafa greinilega
óskaplega gaman af tilstandinu.
Þegar Mette-Marit Tjessem
Hoiby sagði jáið sitt við hlið Há-
konar Magnúsar krónprins í dóm-
kirkjunni í Osló á laugardaginn
bergmálaðu í kirkjunni fagnaðar-
óp fjöldans sem fylgdist með
beinni útsendingu á stórum sjón-
varpsskjá fyrir utan. Sumir gátu
ekki varist tárum.
„Mér finnst hún yndisleg. Þau
eru konungspar okkar kynslóðar,"
sagði Ingeborg Theiman, 21 árs,
en hún var í f jöldanum og fylgdist
með eins og meira en hundrað
þúsund manns, flestir af yngri
kynslóðinni.
Sumir Norðmenn hafa þó átt
erfitt með að sætta sig að öllu
leyti við nýju prinsessuna, vegna
frétta af fíkniefnaneyslu hennar
áður fyrr. Faðir fjögurra ára gam-
Dulin verðbólga í Brasilíu:
Klósettrúllurnar styttast
sao paulo, brasilíU- ap Vörufram-
leiðendur í Brasilíu hafa gripið til
gamalkunnugs ráðs þar í landi til
þess að hækka vöruverð án þess að
íáta það sjást. Nýlega tóku neyt-
endur þar í landi eftir því að kló-
settrúllur voru orðnar 30 metra
langar, í staðinn fyrir 40 metra
eins og löng hefð er fyrir. Pakkn-
ingarnar breyttust hins vegar nán-
ast ekkert og verðið hélst óbreytt.
Fleiri vörur tóku í kjölfarið
áþekkum breytingum. Ostur, kex
og sápur voru allt í einu komnar á
markaðinn í sams konar pakkn-
ingum og áður, en innihaldið var
orðið rýrara þrátt fyrir sama
verð.
Alvarlegur samdráttur í efna-
hagslífinu veldur þessum undar-
legu tilfæringum framleiðenda,
en aðfarirnar minna Brasilíubúa
óþægilega á gömlu óðaverðbólg-
una sem var ein sú alversta sem
þekkst hefur í heimi hér.
Þrátt fyrir þessar aðgerðir
mælist verðbólgan í Brasilíu um
20%. ■
ÖFUG VERÐBÓLGA
Hún Maria Brasileira er þarna að kaupa
sér klósettpappír í stórverslun í Sao Paulo.
í stað þess að hækka verðið ákváðu fram-
leiðendurnir að stytta salernisrúllurnar.