Fréttablaðið - 27.08.2001, Qupperneq 13
MÁNUPAGUR 27. ágúst 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
13
Hópar á biðilsbuxum
um samstarf í vor
borgin Margrét Sverrisdóttir
framkvæmdastjóri Frjálslynda
flokksins vísar á bug þeim þráð-
láta orðrómi að R-listinn hafi rætt
þann möguleika að bjóða henni ör-
uggt sæti á framboðslista sínum
við næstu sveitarstjórnarkosning-
ar. Hún útilokar þó ekki að um
eitthvert samstarf gæti orðið að
ræða við einhverja hópa þegar
Frjálslyndi flokkurinn:
línur fara að skýrast í framboðs-
málum flokksins þegar nær dreg-
ur undirbúningi að framboði hans
í borginni. Hún vill þó ekki nefna
hvað hópar það séu sem hún vill
meina að hafi biðlað til flokksins
um hugsanlegt samstarf.
Hún segir aftur á móti að það
sé í sjálfu sér mjög eðlilegt af
hálfu R-listans að reyna að fá sig
til liðs við þá, enda segist hún hafa
gert það í þeirra sporum til að
reyna að koma í veg fyrir að
flokkurinn byði fram. Margrét
telur fulla ástæðu fyrir R-listann
og raunar einnig fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn að hafa áhyggjur af
framboði Frjálslynda flokksins í
borginni næstkomandi vor. ■
MARGRÉT SVERRISDÓTTIR FRAM-
KVÆMDASTJÓRI FRJÁLSLYNDA
FLOKKSINS
Segist hafa orðið vör við að orðrómur hafi
flogið fyrir
Eitraður grautur:
Tuttugu og
fimm létu lífið
ABIDJAN. FÍLABEINSSTRÖNDINNI. AP
Eitraður maísgrautur varð 25
manns að bana í Labokro, litlu
þorpi á Fílabeinsströndinni í Vest-
ur-Afríku nú um helgina. Áttatíu
manns að auki þurfu að fara á
sjúkrahús eftir að hafa borðað
grautinn, sem er hefðbundin
morgunverðarfæða þar í landi.
Fólkið fór fljótlega að finna fyrir
heiftarlegum magaverkjum eftir
að hafa borðað grautinn, sem kona
ein þar í þorpinu eldaði. Meðal
hinna látnu voru eiginmaður, móð-
ir og tvö börn konunnar sem eld-
aði grautinn. ■
als sonar hennar hefur hlotið dóm
fyrir að hafa haft fíkniefni í
vörslu sinni.
Vinsældir konungsfjölskyld-
unnar fóru jafnt og þétt dalandi í
skoðanakönnunum allt þangað til
örfáum dögum fyrir brúðkaupið,
þegar Mette-Marit kom fram í
fjölmiðlum, játaði bernskubrekin
með tárin í augunum og baðst af-
sökunar á framferði sínu.
Vinsældir hennar tóku sam-
stundis stökk upp á við í skoðana-
könnunum og augljóst virðist að
henni hefur verið fyrirgefið, þar
sem fjórðungur Oslóarbúa lagði
leið sína niður í miðbæ til þess að
fagna brúðhjónunum og megnið
af hinum sem heima sátu fylgdust
með í beinni útsendingu.
Um það bil 800 gestir voru
við athöfnina í fagurlega skreyt-
tri dómkirkjunni, þar á meðal
býsna stór hópur af kóngafólki
frá öðrum ríkjum Evrópu. Þarna
voru bresku prinsarnir Karl og
Játvarður, Filipus krónprins á
Spáni og kóngar og drottningar
frá Svíþjóð, Danmörku, Belgfu
og Lúxemborg, að ógleymdum
Ólafi Ragnari Grímssyni og
heitkonu hans Dorrit Moussai-
eff.
Fyrir þrjátíu og þremur árum
var síðast haldið brúðkaup í
norsku konungsfjölskyldunni, en
þá lék Haraldur konungur sama
leik og sonur hans nú, að kvænast
Sonju Haraldsen, sem eins og
Mette-Marit er ekki af neinum að-
alsættum. ■
KOSSINN
Hákon og Mette-Marit kyssast utan við dómkirkjuna í Osló að brúðkaupinu loknu.
Hópslagsmál í Reykjavík:
Hópur hvítra og
svartra í átökum
lögreglumál Til átaka kom milli
tveggja hópa manna við Þjóðleik-
húsið um sexleytið í gærmorgun.
Að sögn lögreglunnar var um að
ræða hóp hvítra manna og hóp
dökkra manna. Ekki er ljóst hver
kveikjan að slagsmálunum var en
talið er að síðarnefnda hópnum
hafi fundist að sér vegið. Fimm
voru handteknir og fluttur á lög-
reglustöðina en var síðan sleppt að
loknum viðræðum við varðstjóra.
Að sögn viðmælanda Frétta-
blaðsins hjá lögreglunni er ekki al-
gengt að svona mál komi til kasta
lögreglunnar og ekkert sem bendir
til að um skipulagða öfgahópa sé
að ræða. ■
Hollensku pari bjargað:
Höfðu verið innlyksa í heila viku
björgun Hollensku pari var
bjai'gað af bátnum Skutli frá ísa-
firði í gærdag en þau höfðu þá
verið innlyksa í Rekavík á Horn-
ströndum frá 18. ágúst. Þegar
parið fannst var það oi’ðið matar-
lítið og hrakið en kalt var búið að
vera á þessum slóðum undan-
farna daga. Báturinn Skutull
hafði vei’ið að veiðum í námunda
við Rekavík þegar parið varð
hans vart og gat látið vita af sér.
Þi’átt fyrir að vera orðin köld
ákváðu þau að synda áleiðis til
hans af ótta við að missa af hon-
um annars. Pai’ið var flutt til ísa-
fjarðar og að sögn Alberts Ósk-
arssonar sem skaut skjólshúsi
yfir það er það við bestu heilsu og
afskaplega ánægt að vera komin í
hlýjuna.
Parið lagði í ferð um Horn-
sti'andir frá Hesteyri 15. ágúst.
Höfðu þau farið um Hlöðuvík og
niður í Rekavík. Þegar þau hugð-
ust fara til Hafnar dettur konan í
HORNSTRANDIR
Ferðafólkið gerði þær varúðarráðstafanir að skammta við sig I mat þar sem þau voru óviss
skriðu sem þar er á leiðinni og
virðist sem þau hafa orðið skelk-
uð við að halda áfram. Þá var
ákveðið að fara til Hlöðuvíkur en
vegna vonskuveðurs urðu þau frá
að hverfa. Um það leyti sem þau
gátu gert vart við sig voru þau að
búa sig undir að ganga yfir i
Hlöðuvík og fara í skála sem þar
er. Að sögn Alberts átti parið
pantað far úr Aðalvík til ísafjarð-
ar á fimmtudag en engar athuga-
semdir voru gerðar þegar það
skilaði sér ekki en það mun ekki
vera óvanalegt að ferðamenn séu
ekki á áætlun á Hornströndum. ■
100%
Komdu í Brimborg og gerðu góð kaup
Frábærar viðtökur Frábærttilboð
Nú höfum við afhent á annað hundrað
Citroénbíla og í tilefni af þvi bjóðum við
þér frábært verð á Citroén. Komdu og
gerðu frábær kaup.
Citroen Xsata
Sérlega glæsilegur 5 dyraijölnotabill með
kraftmikilli 1,81 og 16 ventla vél.
Kaupir þú Citroén Xsara eða Xsara
Picasso fylgja álfelgur, litaðar rúður,
vindskeið og króm á pústið með í
kaupunum. Spáðu í verðið.
Frábærir aksturseiginleikar og þétt veg-
grip. 1,61 og 16 ventla vél.
1.579.000kr
A-
brimborg
Reykjavík
Brimborg
Bildshöfða 6
Sími 515 7000
Akureyri
Brimborg
Tryggvabraul 5
Sími 462 2700
Reyðarfjörður
Biley
Búðareyri 33
Sími 474 1453
Selfoss
Betri bllasalan
Hrísmýri 2a
Sími 482 3100
Rcykjancsbær
Bíiasalan Bílavik
Njarðarbraut 15
Simi 421 7800
www.brimborg.is
HORFÐU í NÝIA ÁIT-SJÁÐU OTROÉN
citroen