Fréttablaðið - 27.08.2001, Síða 15
MÁNUPAGUR 27. ágúst 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
15
Cole ekki til Newcastle:
Shearer
til í slaginn
KNATTSPYRNA Bobby Robson,
framkvæmdastjóri Newcastle,
segir að liðið hafi aldrei gert
Manchester United tilboð í Andy
Cole, en á fimmtudaginn greindu
breskir fjölmiðlar frá því að
hann væri hugsanlega á leiðinni
til Newcastle fyrir tæpar 10
milljónir punda.
„Þessar sögusagnir komu mér
mjög á óvart - það er ekkert hæft í
þeim,“ sagði Robson. „Alan Shear-
er verður tilbúinn í slaginn á
næstu dögum og Carl Cort er topp-
leikmaður." Shearer kom inná sem
varamaður í gær gegn Sunderland.
Coca-Cola bikarkeppni kvenna:
Breiðablik og Valur í úrslitum
knattspyrna Breiðablik
og Valur eru komin í úr-
slit í Coca-Cola bikar-
keppni kvenna. Valur
fór í heimsókn til Hafn-
arfjarðar og mætti FH í
Kaplakrika á föstudag.
Um sannkallaðan bikar-
leik var að ræða þar
sem hart var barist.
Gestirnir voru betri að-
ilinn í leiknum en það
tók þær 67 mínútur að
skora fyrsta markið, en
Soffía Ásmundsdóttir
kom boltanum yfir
STÁLIN STINN
Erkifjendurnir í KR og Breiðablik mættust i Kópavogi á laugardaginn og
höfðu heimastúlkur betra að þessu sinni. Þær mæta Völsurum í úrslitum.
marklínuna. Þar með opnuðust all-
ar flóðgáttir og á 17 mínútna kafla
skoruðu gestirnir þrjú mörk til við-
bótar og voru þar að verki Kristín
Yr Bjarnadóttir, Vilborg
Guðlaugsdóttir og Dóra
Stefánsdóttir. Guðrún
Sveinsdóttir minnkaði
muninn fyrir FH en þar
við sat.
Breiðablik tryggði sér
einnig sæti í bikarúrslita-
leiknum með því að sigra
KR, 1-0, í Kópavogi.
Bryndís Bjarnadóttir
skoraði sigurmarkið á 64.
mínútu. KR var betri að-
ilinn í leiknum en Dúfa
Ásbjörnsdóttir átti stór-
leik í marki Breiðabliks.
Úrslitaleikurinn fer fram þann
15. september. ■
Góður kostur
að fara til
Hollands
Fylkir mætir hollenska liðinu Roda JC í fyrstu
umferð í Evrópukeppni félagsliða. „Reynum
að ná hagstæðum úrslitum þar ytra,“ segir
Bjarni Jóhannsson þjálfari Fylkis.
TIL HOLLANDS
Fylkir sigraði Pogon frá Póllandi i undankeppni fyrir Evrópkeppnina. Næst liggur leiðin
til Hollands þar sem liðið mætir Roda JC, sem endaði í fjórða sæti í hollensku
deildinni í fyrra.
knattspyrna Fylkir dróst gegn hol-
lenska liðinu Roda JC í fyrstu um-
ferð Evrópukeppni félagsliða.
Auk Roda átti Fylkir möguleika á
að dragast á móti ítalska stórlið-
inu Inter Milan, sem og Slavia
Prag, AEK Aþenu, Bröndby,
Crvena Zvezda, Halmstad, Inter
Bratislava. Víst er að Roda var
ekki svo slæmur kostur fyrir
Fylki fyrst liðið dróst ekki á móti
Inter Milan.
„Á þessari stundu veit ég afar
lítið um Roda liðið. En mér líst
ágætlega á þennan drátt,“ sagði
Bjarni Jóhannsson, þjálfari Fylk-
is, í samtali við Fréttablaðið í gær.
„Það voru tvö lið sem maður
hefði helst viljað fá, Inter Milan
og AEK Aþena, en það er alltaf
gott að vera laus við að fara til
Austur-Evrópu í löng ferðalög,
þannig að þetta er góður kostur."
Bjarni segist vita lítið um lið
Roda annað en að þetta sé hol-
lenskt atvinnumannalið sem end-
aði í fjórða sæti á síðustu leiktíð.
„Það hefur farið mjög illa af stað í
deildinni í ár. En það gerði jafn-
tefli við ekki ómerkara lið en
Ajax. Ég held að leikmannahópur-
inn þeirra sé frá fimmtán þjóð-
löndum en ég er ekki alveg viss.
Þetta er fjölbreytt flóra sem er
þarna til staðar.“
Bjarni segir að Fylkir muni
reyna að ná hagstæðum úrslitum í
fyrri leiknum sem leikinn verður
úti, eftir tæpan hálfan mánuð, og
þar muni liðið spila öflugan varn-
arleik.
Aðspurður hvaða möguleika
hann teldi Fylki eiga á að komast í
aðra umferð svaraði Bjarni:
„Meðan staðan er 0-0 eigum við
alltaf helmingsmöguleika."
Roda lenti í fjórða sæti holl-
ensku deildarinnar á síðasta leik-
tímabili á eftir PSV, Feyenoord og
Ajax. Liðinu hefur hins vegar ekki
gengið sem skyldi á þessari leik-
tíð, hefur leikið fimm leiki, tapað
þremur, gert eitt jafntefli og unn-
ið einn. Nokkrir góðir leikmenn
leika með liðinu m.a. nígeríski
vinstri kantmaðurinn Garba
Lawal, sem hefur leikið fjóra
landsleiki með Nígeríu, kamer-
únski landsliðsmaðurinn Bernard
Tchoutang og Grikkinn Ioannis
Anastasiou, sem skoraði 18 mörk í
34 leikjum á síðasta tímabili. ■
Evrópukeppni félagsliða:
Alltaf hætta
á vanmati
knattspyrna Gunnar Einarsson,
varnarmaður úr KR, var eitt sinn í
herbúðum Roda JC. „Ég var keypt-
ur til liðsins tímabilið '96-'97, en
var síðan lánaður frá því ég kom til
ársins 1998. Síðan var ég lánaður til
WWJ árið 1999 og
spilaði með Roda í
eitt ár. Ég spilaði þó
nokkra leiki með
þeim en aldrei í
deildinni, spilaði að-
allega með varalið-
inu og æfingaleiki.
gunnar Ég held að ég hafi
einarsson setið svona fjórtán
leiki á bekknum. Það var hrika-
legt,“ segir Gunnar um dvöl sína
hjá liðinu. Hann segir hollenska lið-
ið vera sterkt. „Þetta er mjög takt-
ískt lið eins og flest lið í hollenskum
fótbolta."
Gunnar segir liðið hafa skorað
flest mörk, tvö síðustu leiktímabil,
úr föstum leikatriðum. „í liðinu er
grískur framherji sem var keyptur
frá Anderlecht. Hann var þriðji
markahæsti leikmaður deildarinn-
ar. Hann er' mjög hættulegur,
hleypur ekki mikið en fær boltann í
lappirnar og snýr á menn á staðn-
um.“ Gunnar segir erfitt að spá um
úrslitin. „Roda er með þannig lið að
það á að klára leikinn en það er
alltaf hætta á vanmati í þessu. Ef
Fylkismenn halda jöfnu úti, 0-0,
verður mjög erfitt fyrir Roda að
koma hingað og vinna■
/
Geqnheitar útifíisar frá kr. 990. - m
Afqanqar frá kr. 600.- m2
Knarrarvogi 4 » S. 568 6755