Fréttablaðið - 27.08.2001, Qupperneq 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
27. ágúst 2001 MflNUDACUR
BESTA PLATAN
ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR
starfsmaður reykjavik.com
Gerir daginn
skemmtilegri
„Ég er að hlusta ILO þessa stundina.
Þetta er listamaður sem heitir Óli
Breiðfjörð og Thule gefur diskinn út.
Mjög svo áhugaverð og hugguleg tón-
list, sem líður í gegn og gerir daginn
skemmtilegri. Maður á alltaf að hafa
hann í." ■
AÐ JAFNA SIC
Carey er að jafna sig og vonast til að geta
fylgt nýju smáskífu sinni eftir sem ber
nafnið Never Too Fast/Don't Stop og kem-
ur út 24. september.
Mariah Garey opnar sig:
Tekst sjálf á
við vandann
Mariah Carey, söngkonan knáa,
hefur loks ákveðið að tjá sig opin-
berlega um sjálfsmorðstilraun
sem hún gerði fyrir nokkrum vik-
um. Hún bað aðdáendur að ör-
vænta ekki, hún væri að vinna í
sínum málum og sagðist takast
sjálf á við vandann. „Eg vil þakka
ykkur fyrir stuðningin, öll bréfin
sem þið hafið sent mér og allt sem
þið hafið gert fyrir mig,“ sagði
Carey m.a. í yfirlýsingu sinni.
„Um leið og ég læt þessi orð falla
horfi ég á fallegasta regnboga í
heimi sem klýfur himininn á stór-
kostlegan hátt, og ég vil að þið vit-
ið að ég elska ykkur öll.“ Carey
sendi þessi skilaðboð til aðdáenda
sinna á heimasíðu sinni. Hún var
útskrifuð af spítala fyrir tveimur
vikum og þetta er í fyrsta skipti
sem hún tjáir sig um málið opin-
berlega en talið er að hún hafi
fengið taugaáfall.
Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem Carey reynir sjálfsmorð því
slúðurtímaritið The Sun lýsti því
hvernig hún hefði reynt að skera
sig á púls fyrir þremur árum þeg-
ar hún hætti með kærasta sínum
Luis Miguel. Henni var bjargað af
móður sinni sem hringdi í skelf-
ingu á sjúkraliðið. ■
LOFTPRESSUR
MIKIÐ ÚRVAL
HAGSTÆTT VERÐ
HÁSKÓLABÍÓ
ÁLFABAKKft 8. SÍMI 587 8900 ______________________________________www.samnim.is
Sýnd m/ ensku tali kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd m/ íslensku tali kl. 4 og 6
íkiss of the dragotT
Sýnd kl. 3.45, 6, 8 og 10.10
ki.Bos lo-r'u
jJURASSlC PARK 111
kl. 4, 6, 8 og 10
SHREK m/islensku tali
kl.4og6jj
BRIDGET JONES DIARIES
Lífsgæðakapphlaupið
kom aftan að þeim
Hópurinn sem sneri baki við lífsgæðakapphlaupinu og kennir sig við
Lítinn heim, hefur búið í Lundúnum í tvo mánuði. Lífsgæðin komu
aftan að þeim þegar þau fengu fékk lánað 300 m2 hús með öllu.
ÁNÆGÐUR MEÐ LÍFIÐ
Hálfdán er ánægður með lífið og tilveruna í Lundúnum. Hann vill hvetja alla sem eiga
leið um borgina að koma í heimsókn enda leigan sama og enginn, aðeins eitt sígar-
ettukarton. Áhugasamir geta sent póst á litill@strik.is.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Robbie Williams hefur fengið
gömlu meðlimi hljómsveitar-
innar sem spilaði með Frank
Sinatra til að
koma aftur saman
og taka upp lagið
Swing When
You're Winning.
Lagið inniheldur
m.a. hljóðbúta úr
lögum Sinatra og
frá öðrum stór-
sveitum. Robbie
vinnur nú hörðum höndum í
Capitol hljóðverinu þar sem
Sinatra tók upp fyrstu lög sín.
„Ég hef elskað þessa tónlist frá
því ég var smástrákur í Stoke,“
sagði Robbie. „Að fá að syngja
með sömu hljómsveit og Sinatra, í
sama hljóðveri, er sannarlega
heiður fyrir mig.“ Eins og áður
hefur komið fram í Fréttablaðinu
mun ástralska leikkonan Nicole
Kidman syngja með Robbie á
plötunni, í laginu Something
Stupid.
Snyrtivörufyrirtækið Estée
Lauder neitar þeim ásökunum
að þeir hafi sniðgengið fyrirsæt-
una Elizabeth
Hurley og ráðið
Carolyn Murphy,
stúlku sem er tíu
árum yngri en
Hurley. Fyrirtæk-
ið segir að
Hurley, sem eitt
sinn var með leik-
aranum Hugh Gr-
ant, muni koma fram í auglýsing-
um þess. „Estée Lauder er ekki
hætt við samninginn sem það
gerði við Elizabeth Hurley og við
ætlum okkur að halda samstarf-
inu áfram," sagði m.a. í yfirlýs-
ingu frá fyrirtækinu. Hurley
skrifaði undir nýjan samning
sem metinn er á 2,15 milljónir
punda á síðasta ári.
Puff Daddy, P Diddy eða hvað
hann nú heitir skýtur þungum
skotum á bresku drottninguna í
nýlegu viðtali við þýska tímaritið
V. „Hún á að halda sig við jarðar-
litina og gráa eða svarta tóna og
hún þarf á klippingu að halda. En
ég kann vel við hattana hennar,"
sagði hann m.a. i viðtalinu. Puffy
er annálaður fyrir góða fatas-
mekk sinnog hannar meira að
segja sína eigin línu.
líferni „Það var svolítið skondið
að þegar við lentum þá settist ég
niður og fór að hugsa. Þarna var
ég með hóp af fólki, ekki með
húsnæði, engan bankareikning
og í raun ekki neitt,“ segir Hálf-
dán Steindórsson, sem fór fyrir
sjö manna hópi til Lundúna til að
reyna eitthvað nýtt. Fréttablaðið
hafði samband við Hálfdán og
félaga áður en þeir lögðust í vík-
ing, fyrir rúmum tveimur mán-
uðum, en Hálfdán var þá ný
hættur sem fasteignasali. Hann
kom til íslands, um síðustu
helgi, í stutta heimsókn en held-
ur aftur út von bráðar, á vit æv-
intýranna. „Ég varð svolítið
smeykur. Við vorum með eitt
hótelherbergi þar sem við
bjuggum öll saman í einu rúmi,“
segir hann þegar hann rifjar upp
fyrstu dagana í stórborginni.
Svo mundi ég allt í einu eftir því
að hafa hitt þennan breska mann
þegar ég vann á fasteignasöl-
unni. Hann lét mig fá nafn-
spjaldið sitt og bað mig að hring-
ja í sig þegar ég kæmi út.“ Hálf-
dán tók þennan kunningja sinn á
orðinu og hringdi í hann til að fá
smá hjálp. „Hann tók líka svona
vel á móti okkur og bauð okkur í
mat í Waybridge, sem er svona
sveitabær. Þegar við komum
þangað kom í ljós að þessi karl
er milljónamæringur, býr þarna
við hliðina á Tom Jones, Cliff
Richard og fleirum."
Hálfdán bað þennan breska
félaga sinn um að ráðleggja sér
hvernig ætti að stofna banka-
reikning og komst þá að því að
það ekki hægt að leigja íbúð í
London nema eiga bankareikn-
ing og ekki hægt að stofna
bankareikning nema hafa íbúð.
„Þetta var því hálfvonlaus
staða fyrir okkur en hann bauðst
til að lána okkur litla íbúð sem
hann á í London, á meðan við
leituðum að einhverju öðru.“
Hálfdán og félagar ákváðu að
taka tilboðinu og sáu ekki eftir
því.
„Síðan kom í ljós að þetta var
bara 300 m2 penthouseíbúð, með
sundlaug, heitum pottum, bryg-
gju og ég veit ekki hvað. Þannig
að þetta lífsgæðakapp-
hlaupsconcept breyttist svolít-
ið,“ segir Hálfdán hlæjandi.
Hópurinn, bjó þar í mánuð en
fann síðan íbúð í Melrose
Avenue sem þau kalla Melrose
Place. „Þetta er eiginlega svona
lítill kaupstaður. Það búa bara
Indverjar og svertingjar þarna,
alveg yndislegt fólk,“ segir
Hálfdán og ber fólkinu söguna
vel.
Hálfdán segir að nú sé komið
að þeim tímapunkti að hópurinn
þurfi að fara að leita sér að
vinnu, en tvær af stúlkunum eru
þegar byrjaðar að vinna. „Ann-
ars erum við í raun búin að vera
gera ansi lítið. Þetta er samt
búið að vera eins og við vildum
hafa það, draumurinn alla leið,“
segir Hálfdán.
kristjan@frettabladid.is
NABBI !