Fréttablaðið - 27.08.2001, Page 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
27. ágúst 2001 MÁNUPAGUR
HVERJU MÆLIR ÞÚ MEÐ?
Björn Magnússon,
starfsmaður Bílastæðasjóðs
Ég mæli með málbandi. Af því að það er ein-
faldlega best.
Japanskt góðgæti:
Loksins hægt
að taka heim
veitincastaðjb Japanski veitinga-
staðurinn Sticks’n’Sushi hefur
opnað „takeaway” veitingastað í
Nýkaupi í Kringlunni. Nú er loks-
ins hægt að sækja þangað óvið-
jafnanlegt japanskt góðgæti og
taka með heim eða borða það á
staðnum. Boðið er upp á fjölda
tegunda af sushi ásamt misó súpu.
Einnig verður hægt að kaupa á
staðnum fyrsta flokks hráefni
sem notað er til japanskrar matar-
gerðar. ■
Farfuglarnir hópast til
hrottfarar:
Kveðjast
með djassi
tónleikar Með haustinu eru það
ekki bara farfuglarnir sem hópast
saman og fara utan með fjaðraþyt
og söng. Þeir Andrés Þór Gunn-
laugson gítarleikari og Árni Heið-
ar Karlsson píanóleikari eru að
fara utan til náms í haust og munu
halda kveðjutónleika á Húsi Mál-
arans. Meðleikarar þeirra á tón-
leikunum eru þeir Tómas R. Ein-
arsson kontrabassaleikari og Erik
Qvick trommuleikari. Andrés er á
leið til Hollands, en Árni Heiðar
til Bandaríkjanna.
MÁNUDACURINN
27. ÁCÚST
Siðustu forvöð___________________________
Á efri hæð Hafnarborgar stendur sýning á
Ijósmyndum eftir Hans Malmberg frá því
um 1950. Sýningin nefnist ísland 1951
og er í samvinnu við Þjóðminjasafn (s-
lands. Sýningunni lýkur í dag.
í Hafnarborg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar, stendur yfir sýning á Ijós-
myndum sænska Ijósmyndarans Hans
Malmberg, en hann var á sinni tíð í hópi
fremstu blaðaljósmyndara Svía. Ljós-
myndasýningin fsland 1951 sýnir íslend-
inga við leik og störf jafnt í sveit sem í
borg á árunum 1947-1951. Sýningin er í
samvinnu Hafnarborgar og Þjóðminja-
safns íslands. Sýningunni lýkur í dag.
Margrét Reykdal sýnir málverk I Sverris-
sal Hafnarborgar, menningar- og lista-
stofnunar Hafnarfjarðar. Sýningunni lýkur
í dag.
Kristín Sigfríður Garðarsdóttir sýnir leir-
verk í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5,
Reykjavík. Verkin á sýningunni eru úr
postulíni steyptu í gifsmót, einnig hand-
mótuð form úr postulini og grófum stein-
leir. Opið virka daga frá 10 til 18 og laug-
ardaga 11 til 16. Sýningunni lýkur á mið-
vikudag.
Ungur Norðmaður, Stian Rönning, sýnir
nú í Gallerí Geysi við Ingólfstorg. Sýningin
hefur yfirskriftina Sérð Þú það sem Ég sé.
Hann sýnir Ijósmyndir sem eru teknar á
Thailandi, Laos, Noregi og ísland á árun-
um 1999 til 2001. Sýningin stendur út
mánuðinn.
fHeildarnám
A - hluti 1. stig
CRANIO nóvember
FÉLAQ HÖFUOBEINA-
OQ SPJALDHRYOGSJAfNARA
www.cranio.simnet.is
Gunnar Margeir
699 8064 867 7469
Flugslysið Skerjafirði.
Söfnunarsímar
Ef hringt er í eftirtalin númer
gjaldfærist af reikningi símans,
sem hringt er úr, sem hér segir:
Sími 907 2007 - 1.000,-kr
Sími 907 2008 - 2.500,- kr
Sími 907 2009 - 5.000,- kr
Bankar. er no. 1175-05-409940
SÝNINGAR______________________________
Forn tré í Eistlandi er yfirskrift sýningar á
Ijósmyndum sem eistneski Ijósmyndarinn
Hendrik Relve hefur tekið. í Norræna
húsinu eru 18 Ijósmyndir til sýnis í and-
dyri hússins. Sýningin er sett upp í tengsl-
um við Menningarhátíð Eystrasaltsríkjanna
á Norðurlöndum sem stendur yfir frá 1.
september til 1. nóvember 2001. Sýningin
er opin daglega kl. 9 til 17, nema sunnu-
daga kl. 12 til 17. Sýningin stendur til 23.
september.
í Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir
sýningarnar Blóðug vígaferli og Götulíf
víkinganna í York. Um er að ræða tvær
sýningar, annars vegar endurgerð á götu í
víkingaþorpi og hins vegar sýningu þar
sem má sjá beinagrind og hauskúpur vík-
inga sem féllu í bardögum. Sýningarnar
eru opnar alla daga frá 13 til 17 og standa
til 1. október.
Á ferð um landið með Toyota er yfirskrift
sýningar Fókuss, Ijósmyndaklúbbs áhuga-
manna. Sýningin er í salarkynnum nýrra
bíla Toyota við Nýbýlaveg í Kópavogi. Ljós-
myndir á sýningunni voru teknar á ferð
klúbbsins um Suðurlandshálendið, í Þjórs-
árdal, Veiðivötnum, Dómadal, Land-
mannalaugum og viðar. Sýningin er opin
á opnunartíma söludeildar Toyota.
Áhaldafimleikar,
almennir fimleikar, hóp-
fimleikar og íþróttaskóli.
Innritun verður 27., 28. og 29. ágúst
frá kl: 16:00 til 19:00
í símum: 561 2504, 698 8824, 862 0065
eða á staðnum
Góð fimleika aðstaða og reyndir þjálfarar.
Æfingar hefjast 3. september
Andrés segir að þeir hafi spilað
saman bæði tveir saman og með
fleirum, bæði meðan þeir voru
saman í Tónlistarskóla FÍH og
eins eftir að því námi lauk. Andr-
és segir að efnisskráin sé hefð-
bundinn djass. „Við verðum þarna
með frumsamið efni eftir okkur
báða og einnig gamla húsganga
djassins. Svo gerist alltaf eitthvað
óvænt þegar menn koma saman.“
Tónleikarnir verða eins og áður
segir í Húsi málarans í kvöld kl.
21. ■
Listasafnið á
Kjarvalsstöðum:
Minningar um ey
myndlis Kanadíski listmálarinn
Louise Jonasson opnar sýningu í
miðrými Listasafns Reykjavíkur
Kjarvalsstöðum í dag kl. 17.00.
Sýningin ber yfirskriftina Minn-
ingar um ey eða Island Souvenir.
Tilefni sýningarinnar má rekja
til heimsóknar forsætisráðherra
Manitóba, Gary Doer, til íslands
en að hans ósk sýnir Louise verk
sín hér á landi sem fulltrúi þeir-
ra íslendinga sem flutt hafa
vestur um haf. Myndir Louise
eru sterk sjálfstæð listaverk og
fer hún ótroðnar slóðir við gerð
verka sinna. Lpuise kemur í
fyrsta skipti til íslands í tilefni
sýningarinnar. Sýningin stendur
til 9. september. ■
Páll Ásgeir Ásgeirsson hefur gefið út tvær bækur í sumar:
Líkar bækur en
ólík viðfangsefni
bækur Óhætt er að fullyrða að
Hálendishandbók Páls Ásgeirs
Ásgeirssonar sé metsölubók
sumarsins enda mun vera langt
síðan bók hefur selst jafnmörg-
um eintökum utan vertíðar. Páll
Ásgeir er umsjónarmaður helg-
arblaðs DV og hefur gefið út all-
nokkrar bækur.
Á dögunum kom út önnur bók
sumarsins eftir hann, Fóst-
bræðralag, saga Karlakórsins
Fóstbræðra í níutíu ár. „Það er
sérkennileg tilviljun að bækurn-
ar skuli koma báðar út sama
sumarið,” segir Páll Ásgeir en
Fóstbræðralag skrifaði hann fyr-
ir nokkrum árum þótt útgáfan
hafi dregist fram á þetta ár. „Það
er skemmtilegt að sagan skuli
koma út á þessu ári þegar kórinn
hefur unnið merka sigra,“ segir
Páll en kórinn hefur þrisvar tek-
ið þátt í alþjóðlegum kórakeppn-
um og nú í sumar vann hann gull-
verðlaun í keppni í Prag.
Hálendishandbókina skrifaði
Páll Ásgeir á árinu 2000.
„Ákvörðunin um að skrifa bókina
var tekin í ársbyrjun. Við notuð-
um veturinn til þess að lesa og
sumarið til að ferðast en erum
þarna að draga saman áratuga
ferðareynslu.”
Páll segir að í Hálendishand-
bókinni sé gengið út frá því að
drifkraftur ferðalangsins sé að
skoða náttúruna og koma á
merka sögustaði en ekki löngun-
in til að geta sagst hafa farið
langan og torfarinn slóða á jepp-
anum sínum. „Markmið bókar-
innar er öðrum þræði að reka
fólk út úr bílunum og fá það til að
skoða sig um.“
Fólk hefur tekið Hálendis-
handbókinni fagnandi og greini-
legt er að mikil þörf var fyrir bók
sem þessa. „Við trúðum auðvitað
á hugmyndina en við reiknuðum
alls ekki með að hún myndi
ganga eins og hún hefur gengið."
Fjöldi jeppa á landinu mun vera
um 25.000 þannig að markhópur
Hálendishandbókarinnar er
vissulega stór. Af sjálfu leiðir að
markhópur Fóstbræðralags er af
annarri stærðargráðu. „Eigum
við ekki að segja að ég treysti því
að hún muni njóta mikilla vin-
sælda í þröngum hópi,“ segir Páll
Ásgeir.
Páll segir bækurnar í raun
vera líkar. „Það er verið að fjalla
um fyrirbæri sem býður upp á ít-
arlega umfjöllun og sparðatíning
en við kjósum að velja úr og
segja ekki allt,“ segir Páll Ásgeir
Ásgeirsson.
steinunn@frettabladid.is
MYNPLIST__________________________
Gluggasýning Ingibjargar Þ. Guðmunds-
dóttur stendur í Gallerí Sneglu. Sýningin
ber heitið Himinn og jörð og stendur til 7.
september.
Sýning Bjarna H. Þórarinssonar sjónhátt-
arfræðings stendur nú í ReykjavíkurAka-
demíunni í JL-húsinu Hringbraut 121 en
hann er meðal þeirra listamanna sem
hljóta starfslaun Reykjavíkurborgar á
þessu ári. Bjarni sýnir úrval af verkum sín-
um undanfarin ár. Sýning Bjarna er opin
kl. 9 til 17 virka daga og stendur til 1.
október.
Gunnar Gunnarsson sálfræðingur og
myndlistamaður sýnir í Lóuhreiðrinu í
Kjörgarði. Sýningin er opin virka daga frá
kl. 9 til 18 og stendur út september.
Árni Rúnar Sverrisson opnaði um helg-
ina málverkasýningu í Galierí Reykjavik
sýningarsal Skólavörðustíg 16. Yfirskrift
sýningarinnar er Land og landbrot. Á
sýningunni eru olíumálverk, unnin á
síðastliðnum tveimur árum, nokkur þeirra
máluð í vinnustofu í Palermo á Sikiley.
Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 10
til 18 og laugardaga frá kl. 11 til 16.
Sýningin stendur til 5. september. ■
101 Reykjavik genr
víðreist:
Góðar
viðtökur
kvikmynpir Kvikmyndin 101
Reykjavik eftir Baltasar Kormák
var frumsýnd í Danmörku á dög-
unum. Myndin var sýnd á hátíð-
inni A Taste of Iceland og fékk
einróma lof gagnrýnenda. Mynd-
in er sýnd í Kaupmannahöfn, Ár-
ósum og Óðinsvéum og hefur
fengið góða aðsókn. Danskir
blaðamenn hafa sýnt myndinni
og leikstjóra hennar mikinn
áhuga.
Myndin var einnig frumsýnd
um helgina í Los Angeles og hafa
gagnrýnendur tekið henni vel. ■
Light Nights:
Draugar og forynjur
leikhús í kvöld verður síðasta sýn-
ing sumarsins á Light Nights í
Iðnó. Á efnisskránni eru 14 atriði
byggð á íslensku efni. Draugar og
forynjur og margs konar kynja-
verur koma við sögu og síðari
hluti sýningarinnar fjallar að stór-
um hluta um víkinga. Skyggnur
eru sýndar milli atriða og tengjast
þær leikhljóðum, tónlist og tali.
Kristín G. Magnús leikur öll
hlutverkin í sýningunni að undan-
skildum ónafngreindum draugum
sem birtast í Djáknanum á Myrká.
Sýningin er flutt á ensku og hefst
kl. 20.30. ■
VÖLVAN
Kristín G. Magnús leikkona í
hlutverki völvunnar f Ragnar-
rökum Völuspár.