Fréttablaðið - 27.08.2001, Síða 22
22
FRÉTTABLAÐIÐ
27. ágúst 2001 MÁNUDACUR
HRAÐSOÐID
LAUFEY STEINGRÍMSDÓTTIR
Manneldisráði
Matur
skiptir máli
HVAÐ finnst þér
lenskra barna?
um mataræði ís-
Það er sjálfsagt eins misjafnt og
börnin eru mörg. Hins vegar óttast
ég að þar sé oft ekki allt eins og best
verður á kosið. Við vitum t.d. að syk-
urneysla margra barna er blátt
áfram gífurleg. Neysla gosdrykkja
hefur aukist ár frá ári hér á landi og
ástæða er til að ætla að börn séu þar
stór neytendahópur. Einnig bendir
ýmislegt til þess að heita máltíðin í
heimahúsum sé á undanhaldi.
Skólar hafa hins vegar komið til
móts við þetta en nú er verið að bry-
dda upp á þeirri nýbreytni á höfuð-
borgarsvæðinu að bjóða, a.m.k.
yngstu börnunum upp á heita máltíð
í hádeginu. Margir skólar gera þetta
eiginlega af veikum mætti vegna
þess að það er léleg aðstaða til þess í
skólanum.
HVERNIG á nesti skólabarna að
vera samsett að mati Manneldisráðs?
Það fer auðvitað eftir því hvort um
er að ræða nesti sem er millibiti um
miðjan morgun eða nesti sem á að
vera hádegismatur. Ef ekki er boðið
upp á heitan mat í skólanum í hádeg-
inu þá mælum við með samloku með
góðu áleggi í nesti ásamt ávexti eða
gulrót og hugsanlega jógúrt eða
skyri. Það getur einnig verið gott að
breyta til og hafa stundum
kjúklingaleggi eða fiskibollur í nest-
inu. Magnið fer náttúrulega eftir því
hversu gamalt barnið er.
Ef boðið er upp á heitan mat í skól-
anum þá leggjum við til að börn
borði ávexti í nestistímanum sem er
á miðjum morgni. Við viljum helst
að skólinn hafi ávextina í boði gegn
miðum þannig að börnin þurfi ekki
að taka þá sjálf með sér.
HVAÐ með drykkjarföng?
Við leggjum áherslu á að börn fái
léttmjólk í skólanum eða vatn. Við
getum ekki skipt okkur af því sem
foreldrar senda börn sín með í skól-
ann en bendum á að sykraðir svala-
drykkir koma ekki staðin fyrir ávex-
ti. Því var haldið fram í bréfi sem
Vífilfell sendi foreldrum á dögunum
sem er mikil ósvífni. Þar var líka
tvisvar vísað í Manneldisráð og það
þannig bendlað við bréfið sem við
vorum mjög ósátt við.
HVERSU mikilvægt
er gott matar-
æði börnum?
Gott og reglulegt mataræði og
hreyfing eru þættir sem skipta
miklu máli fyrir þroska og heilsu
barna. Offita barna er að aukast hér
á landi. Það má eflaust rekja til þess
að þau hreyfa sig miklu minna en
áður. Þau spila mikið tölvuleiki, eru
keyrð ferða sinna og borða óreglu-
lega. Þetta hefur að sjálfsögðu áhrif
á skólanám þeirra. Matur, hreyfing
og svefn skipta miklu máli er kemur
að andlegu atgervi.
Laufey Steingrímsdóttir er forstöðumaður
Manneldisráðs. Á heimasíðu þess,
www.manneldi.is, er að finna ýmsar ráð-
leggingar um mataræði, m.a. ætlaðar
þeim sem útbúa mat í skólum.
Framsóknarmenn:
Ólafur
í Reykjavík
nyrdri
framboðsmál Ólafur Örn Haralds-
son, fyrsti þingmaður Framsókn-
arflokksins í Reykjavíkurkjör-
dæmi, hefur ákveðið að bjóða sig
fram í hinu nýja Reykjavíkurkjör-
dæmi nyrðra í næstu Alþingis-
kosningum. Ákveðið hefur verið
að skipta Framsóknarfélaginu í
Reykjavík í tvennt í vegna kjör-
dæmabreytinganna og verður að
sögn Ólafs farið í þá vinnu með
haustinu. Hinn þingmaður Fram-
sóknarmanna í Reykjavíkurkjör-
dæmi, Jónína Bjartmarz, tilkynnti
! FRÉTTIR AF FÓLKI “
Ingibjörg Sólrún Gísiadóttir
kvað upp úr með það í vor hún
vildi að það lægi fyrir þegar í
september hvern-
ig staðið yrði að
framboðsmálum
hjá Reykjavíkur-
listanum fyrir
borgarstjórnar-
kosningar á vori
komanda. Nú
þykir vera ljóst
að mjög ólíklega
verði um að ræða sameiginlegt
hólfaprófkjör hjá aðstandendum
listans eins og fyrir síðustu
kosningar, en þá tóku um 10 þús-
und manns þátt í prófkjörinu.
Miklu fremur er rætt um það að
Framsóknarflokkur, Samfylking-
in og Vinstri flokkurinn grænt
framboð komi sér saman um
skiptingu sæta á listanum en
flokkarnir ráði síðan sjálfir
hvernig þeir haga vali á fram-
bjóðendum í úthlutuð sæti. Lík-
legt er talið að þá verði lokað
prófkjör hjá Framsóknarflokkn-
um og Samfylkingunni en upp-
stilling hjá Vinstri flokknum
grænu framboði.
Skipting sætanna milli flokk-
anna er enn hitamál. Vinstri
flokkurinn grænt framboð held-
ur mjög fram
fylgi sínu í skoð-
anakönnunum, en
aðrir vilja ganga
út frá kjörfylginu
í síðustu kosning-
um. Deilt er um
hvort flokkurinn
eigi að fá tvö
vænleg borgar-
fulltrúasæti eða eitt vænlegt og
annað varamannasæti með til-
heyrandi loforðum um þunga
pósta í nefndakerfinu. Þá er ein-
nig um það deilt hvort borgar-
stjórinn í baráttusætinu eigi að
teljast utankvóta eða á kvóta
Samfylkingar. Ekki hafa heyrst
raddir um nýja einstaklinga sem
sækjast eftir setu á R-listanum,
nema hvað Stefán Jón Hafstein
er nefndur eins og venjulega en
heyrst hefur að hann stefni frek-
ar á þingið um þessar mundir.
Nýjustu tíðindin af fram-
boðsvangaveltum Reykja-
víkurlistans eru þau að um það
sé rætt í alvöru
að bjóða Frjáls-
lynda flokknum
sjöunda eða ní-
unda sætið á
Reykjavíkurlist-
anum. Þá er verið
að horfa til þess
að Margrét
Sverrisdóttir
verði í framboði fyrir Frjáls-
lynda flokkinn innan R-listans
og telja margir að hún yrði feng-
ur fyrir listann, enda forkur
duglegur og fylgin sér eins og
hún á ættir til. Það gæti einnig
verið ákveðin lausn á sætahlut-
fallinu milli flokka í flóknum
samningaviðræðum. Er þá ein-
ungis eftir að fullnægja utan-
flokkafólki sem margt hefur
stutt Reykjavíkurlistann en eins
og samtöl flokkanna hafa gengið
er ekki sýnt að pláss verði fyrir
ÓLAFUR ÖRN HARALDSSON
Mun biðla til Reykvikinga norðan Hring-
brautar, Miklubrautar og Vesturlandsvegs
fyrir næstu Alþingiskosningar.
sl. vetur að hún myndi bjóða sig
fram í Reykjavíkurkjördæmi
syðra. Ekki eru framsóknarmenn
farnir að huga að því hvernig valið
verður á lista í næstu Alþingis-
kosningum, enda tvö ár í þær að
öllu óbreyttu. ■
Stuðningsmaður Duncans Smiths:
Rekinn vegna
tengsla við öfgaflokk
LONPON. ap. Einn starfsmanna for-
mannsframboðs, Iains Duncans
Smiths, Edgar Griffin, var rekinn
úr íhaldsflokknum á föstudag eftir
að upp komst að hann tengdist
breska þjóðarflokksins, BNR
Griffin var rekinn úr teymi
Duncans Smiths á fimmtudag eftir
að í ljós kom að hann er faðir Nicks
Griffins leiðtoga BNP. Sá flokkur
er andsnúinn innflytjendum í Bret-
landi og hefur m.a. verið sakaður
um að eiga stóran þátt í kynþáttaó-
eirðum í Bretlandi í sumar. Einnig
kom í ljós að eiginkona Edgars
Griffins var í framboði fyrir BNP í
þingkosningunum júlí sl.
Þrátt fyrir að Duncan Smith
hafi ekki þekkt manninn þykir mál-
ið hið vandræðalegasta fyrir hann.
Griffin sagði í samtali við BBC að
hann vonaðist þrátt fyrir allt til
þess að verða framboði Duncans
Smiths að liði. Hann sagði einnig að
fjölmargir flokksmenn íhalds-
flokksins styddu þá stefnu BNP að
innflytjendur fái fjárstuðning til að
flytjast aftur til síns heima. ■
Er ein fyrir utan draugana
Bjartar nætur Kristínar G. Magnús hafa verid fastur liður í reykvísku
menningarlífi á sumrin í 30 ár. I kvöld er síðasta sýningin í bili.
leiklist í rúmlega þrjátíu ár hef-
ur sýning Kristínar G. Magnús,
leikkonu, Light Nights verið
fastur liður í borgarlífinu. í
kvöld er síðasta sýning Kristín-
ar í sumar en hún mun taka upp
þráðinn næsta sumar ef að lík-
um lætur. „Ég byrjaði á þessu
1970 fyrir hvatningarorð vin-
konu minnar. Ég lærði leiklist í
Englandi og er jafnvíg á ís-
lensku og ensku og því lítið mál
fyrir mig að semja á ensku en á
þessum tíma var lítið um að
vera fyrir ferðamenn á sumrin."
Sýning Kristínar leitar fanga
í íslenskum þjóðsögum og
sagnaheimi. Hún hefur tekið
miklum breytingum síðan hún
var sýnd fyrst. „Eg væri nú orð-
in alveg brjáluð ef að þetta hefði
alltaf verið eins,“ segir Kristín
sem í sumar hefur verið eini
leikarinn í sýningunni( ólíkt því
sem oft hefur verið. „Eg er auð-
vitað ekki alveg ein, því fjöl-
margir eru mér til aðstoðar en
ég er eini leikarinn, fyrir utan
draugana," segir Kristín og hlær
við. Hún segist nefnilega sprella
nokkuð í leiksýningunni, ekki
síst þegar sagan um Djáknann á
Myrká er flutt, en kannski er
betra að segja sem minnst frá
því.
Kristín segir erlenda ferða-
menn hafa verið í meirihluta
áhorfenda í gegnum tíðina en fs-
lendinga ávallt hafa slæðst með.
í fyrrasumar gerði hún hlé á
sýningarhaldinu í bili en tók upp
þráðinn í sumar og verða sýn-
ingarnar í ár alls nítján.
„Aðsóknin var ekki nægilega
góð í byrjun," segir Kristín sem
telur skýringu þessa vera margs
konar, m.a. séu starfsmenn í
ferðaþjónustu ekki nægilega
duglegir að benda á sýninguna.
Ágústmánuður kom þó betur út
en júlí að sögn Kristínar sem
segir skýringu þess m.a. vera þá
að sýningin spyrjist vel út með-
al ferðamanna .
Eins og margir íslendingar
hefur blaðamaður alltaf vitað af
sýningunni Light Nights en
aldrei séð hana og veit raunar
ekki hvað hún gengur út á. Krist-
ín segir tilkomumikla skyggni-
sýningu vera hluta af sýningunni
auk leikna hlutans. „Ég er leik-
kona og spinn út frá þjóðsögun-
um sem margar hverjar eru
mjög dramatískar og ég bý til
látbragðið líka.“ Þeir sem vilja
fá meira að heyra og sjá ættu að
bregða sér í Iðnó í kvöld, það er
ekki seinna vænna.
sigridur@frettabladid.is
beina aðkomu þess, enda hafa
ekki margir viðrað hagsmuni
þessa hóps upp á síðkastið.
Afdráttarlaus ummæli helstu
ráðamanna þjóðarinnar um
niðurstöðu Skipulagsstofnunar
vegna Kárahnjúkavirkjunar hefur
vakið athygli. Það verður ekki and-
skotalaust fyrir Siv Friðleifsdóttur
umhverfisráðherra eða dómstóla
að fjalla um skýrsluna á eðlilegan
hátt eftir allar þær ádrepur sem
hún hefur fengið. Hvað sem má
segja um þetta mál allt saman - má
leiða getunj að þyí að hygr sem
niðurstaða émbættismanna hefði
orðið - þá hefði 'allfaf vérið virkjað.
Það sem er kannski forvitnilegast
er að eftir áð DaviðDddsson reiö á
vaðið með sínar umvandanir hafa
aðrir ráðherrar komið á eftir og
jafnvel haft uppi stærri orð en for-
sætisráðherrann.