Fréttablaðið - 24.09.2001, Page 2
KJÖRKASSINN
FRÉTTABLAÐIÐ
24. september 2001 MÁNUPACUR
LÆCRI SKATTAR
Mikill meirihluti
landsmanna vill að
skattar á einstak-
linga verði lækkaðir.
Á að lækka skatta á einstak-
linga?
Niðurstöður gærdagsins
á vww.visir.is
|Já 87
LBM 13%
Spurning dagsins í dag:
Er rétt af islenska ríkinu að taka svona
mikla ábyrgð fyrir flugfélögin?
Farðu inn á vlsi.is og segðu
þina skoðun ___J
___________CQH3
Alþjóðleg tryggingafélög:
Imynd í skelfi-
legu ljósi
SAMGðNCUR Össur Skarphéðinsson
formaður Samfylkingar segist
velta því fyrir sér hvernig í
ósköpunum það sé hægt af hálfu
alþjóðlegra tryggingafélaga að
fara þessa „níðangurslegu leið“
gagnvart flugfélögum eins og
raun hefur orðið á. Hann segist
ekki sjá mikla borgarlega lið-
veislu og skilning á samborgar-
legum skyldum hjá þeim. Enda
telur þingmaðurinn að þessi fram-
koma alþjóðlegra tryggingafélaga
gagnvart flugfélögum setji þau í
alveg skelfilegt ljós. ■
—♦—
Ríkisábyrgðin:
Langmest hjá
Atlanta
SAMGÖNGUR Tryggingaupphæðirn-
ar í ábyrgð ríkisins eru mjög mis-
jafnar eftir stærð flugfélaga.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir að ábyrgðin gagnvart Atl-
anta væri t.d. um 16 milljarða
bandaríkjadala og um 6,7 millj-
arða vegna véla Flugleiða. Hjá
Bláfugli nemur ábyrgðin um 750
milljónum dala, hjá Flugfélagi ís-
lands væri þetta um 600 milljónir
dollara og 3,3 milljarðar hjá ís-
landsflugi svo dæmi sé nefnt.
Samtals nemur þessi ábyrgð um
27,5 milljörðum dala, eða 2.700
milljörðum íslenskra króna. ■
—♦—
Olæti á réttarballi í
Bjarnaríirði:
Hald lagt á
Fyrsti áfangi í sölu Landssíma íslands:
Vonbrigði hve lítið seldist
Síminn Sturla Böðvarsson, sam-
gönguráðherra, segir að slakur
árangur í fyrsta áfanga einkavæð-
ingar Símans hafi vissulega verið
vonbrigði. Hann sé þó ánægður
með hversu vel almenningur
brást við, miðað við ýmsar úr-
töluraddir ýmissa sérfræðinga.
Hins vegar sé ekki að neita að
hann hafi búist við því að stærri
fjárfestar yrðu atkvæðameiri,
ekki síst stærri lífeyrissjóðir.
Sturla segist telja að Búnaðar-
bankanum hafi mistekist að hluta
við útboð Símans. „Mér sýnist ár-
angurinn í sölu til starfsmanna
hafi verið prýðilegur. En þegar
kemur að lífeyrissjóðum er ár-
angurinn slakari. Það þurfa allir
að líta í eigin barm hér.“
Gagnrýni Sturlu kom fram
þegar á föstudag og sendi Búnað-
arbankinn frá sér athugasemd í
tilefni hennar þar sem segir að
ákvörðun um þá þætti sem fjár-
festar gagnrýndu, verð, tímasetn-
ingu og sölufyrirkomulag hafi
verið í höndum ráðherra og hann
hafi því verið að víkja sér undan
ábyrgð með ummælum sínum.
Sturla vísar því og á bug og
segir sérkennilegt að bankastjór-
ar gefi slíkar yfirlýsingar gagn-
vart stjórnmálamönnum. „En það
gætir engrar örvinglanar af minni
hálfu. Síminn er mikil og góð eign
sem ekki verður seld á útsölu."
í sölunni sl. föstudag seldist
samtals hlutafé fyrir um tvo
milljarða króna af þeim tíu sem
voru í boði, eða um 20% af því
sem í boði var. Það gera um 5% af
heildarhlutafé Símans sem er
ekki nóg til að hægt sé að skrá
fyrirtækið á Verðbréfaþingi ís-
lands. Um 2600 manns skráðu sig
fyrir hlut í fyrirtækinu, samtals
að upphæð 1.200 milljóna króna.
19 kauptilboð bárust frá fagfjár-
festum, fyrir um 879 milljónir
króna. ■
STURLA
BÖÐVARSSON
Segir hugsanlegt að alheimsástandið hafi
haft einhver áhrif á söluna. Þeir sem þekk-
ja best til Símans hefðu hins vegar ekki átt
að láta það hafa áhrifa á sig.
Dræm
sala hefur
engin áhrif
Forsætisráðherra hefur engar áhyggjur vegna
dræmrar sölu í hlutabréfum Símans. Segir ekki
koma til greina að lækka verðið. Engin ástæða
var til að fresta sölu vegna hryðjuverkanna.
Asakanir Ossurar um að frestun sölunnar sl.
vor hafi átt sér pólitískar rætur eru dapurlegar.
síminn Davíð Oddsson, forsætis-
ráðherra, segist engar áhyggjur
hafa vegna dræmrar sölu hluta-
bréfa í fyrsta áfanga í einkavæð-
ingu Símans sl.
föstudag. „Ef
markmiðið var að
selja öll þessi
bréf þá mistókst
það en það hefur
engin áhrif. Var-
an er fyrir hendi
davíð odds- áfram.“ Davíð
son segir ekki hafa
Sannfærður um að komið til greina
þeir sem keyptu i)Vegna einhverra
hlut, Símanum i atvjka e5a rnikils
^ínkavæðingu k°rs útsöluradda
hans eiga ekki eftir a9 verðlð a
að tapa pening Símanum."
þegar til lengri S Ö m u 1 e i ð i S
tíma er litið. segir Davíð að
ekki hafi verið ástæða til að fres-
ta sölu Símans vegna hryðjuverk-
anna í Bandaríkjunum. Síminn
hafi verið boðinn innlendum aðil-
um, sem þekkja Símann og ekkert
bendi til þess að Síminn eigi eftir
að verða fyrir áföllum í kjölfar
árásanna.
„Mér finnst þegar að fjárestar
hér innanlands eru að tala um
hinn hræðilega atburð í Banda-
ríkjunum þá finnst mér það af-
skaplega broslegt, þó að þeir at-
burðir séu ekki broslegir, því þeir
þekkja Símann þessir menn og
vita hvað það er gott og öflugt fyr-
irtæki. Þeir eru að kaupa margir
hverjir í erlendum fyrirtækjum
sem þeir þekkja ekki haus né
sporð á og tapa peningum á því.“
Davíð segir dræma sölu sl.
föstudag ekki hafa nein áhrif á
áframhaldandi einkavæðingará-
form ríkisstjórnarinnar. „Það er
enginn bilbugur á okkur. Þessar
eignir eru góðar og þær verða
seldar á góðu verði. Við látum
ekki hrópa okkur niður. Ég er
SÍMINN
Einungis seldust 20°/o þeirra bréfa sem í boði voru sl. föstudag, eða hlutafé fyrir um tvo
milljarða af þeim tæpu tíu milljörðum sem i boði voru.
sannfærður um að þeir sem keyp-
tu í þessum áfanga þeir eiga ekki
eftir að tapa á þeim kaupum þeg-
ar til lengri tíma er litið."
Davíð segir gagnrýni Össurar
Skarphéðinssonar, formanns Sam-
fylkingarinnar, á frestun sölunnar
sl. vor sem Össur segir vera
vegna tengsla Sjálfstæðisflokks-
ins við hluthafa Íslandssíma, vera
mjög dapurlega. „Það var eitt af
atriðunum sem nefnt var hjá hin-
um erlenda ráðgjafa að það væri
ekki skynsamlegt að vera með tvö
fyrirtæki í gangi í einu. Þarna var
eitt fyrirtæki farið af stað og það
gat skaðað sölu Símann. Þetta
kemur fram hjá erlendu fyrirtæki
sem ég býst ekki við að sé að
hygla einum né neinum. Össur
getur fundið þetta út og þrátt fyr-
ir að hægt sé að nota slík rök í
skólakappræðum verður Össur að
koma sér upp úr þessu ef hann
ætlar að njóta einhverra virðing-
ar einhvers staðar." ■
Skútustaðahreppur:
Skipulagskæra
veldur óánægju
fíkniefni
lögreglumál Töluvert var um
ryskingar og læti á réttarballi á
Laugarhóli í Bjarnarfirði aðfara-
nótt sunnudags. Að sögn lögregl-
unnar á Hólmavík var nokkuð um
slagsmál og þurfti að handtaka
einn. Eitt fíkniefnamál kom upp
og er það til rannsóknar. Um 250
manns voru á dansleiknum og
hafði lögregla á orði að menn
hefðu augljóslega verið orðnir
þreyttir eftir smölunina í síðustu
viku. ■
skipulag Kæra nokkurra landeig-
enda í Reykjahlíð vegna gildis-
töku deiliskipulags í Reykjahlíð
hefur valdið nokkurri óánægju
meðal heimanna. Fyrirhugað er
að reisa verslunarhús og bensín-
afgreiðslu við veg 87 í Reykjahlíð
en nokkrir landeigendur sem bú-
settir eru á höfuðborgarsvæðinu
hafa kært fyrirhugaða byggingu.
íbúar í Reykjahlíð sem Frétta-
blaðið ræddi við voru ósáttir við
kæruna og sögðu að ef hún næði
fram að ganga yrði það áfall fyrir
samfélagið. Sigbjörn Gunnarsson
sveitarstjóri í Skútustaðahreppi
sagði að svo virtist helst sem þeir
sem legðu kæruna fram vildu
ekki að neitt yrði framkvæmt. Það
væri hins vegar nauðsynlegt fyrir
sveitarfélagið að ráðast í fram-
kvæmdir. Verslunarhúsnæði á
svæðinu væri að hruni komið og
blikur á bensínþjónustu og fyrir-
huguð verslunarbygging væri
nauðsynleg til að tryggja þessa
þjónustu áfram.
Fulltrúar kærenda vildu ekk-
ert tjá sig um málið þegar Frétta-
blaðið leitaði til þeirra. ■
HEIMAGÆSLA
afs 24 tíma
á sólarhrlng
Síuii s;u) 2400
Pólitískur greiði að fresta sölu Símans sl. vor:
Hollvinabandalag að
hjálpa gælufyrirtæki
si'minn Össur Skarphéð-
insson, formaður Sam-
fylkingarinnar, telur að
fresta hefði átt hluta-
fjárútboði Símans í ljósi
hryðjuverkanna í
Bandaríkjunum. „Mark-
aðirnir erlendis voru í
frjálsu falli og það er
dómgreindarskortur hjá
einkavæðinganefnd að
hafa ekki frestað þessu
og þar með ríkisstjórn-
arinnar."
Össur segir einnig
ámælisvert að sölu Sím-
ans hafi verið frestað
síðastliðið vor. „Það lá
fyrir að hefja ætti sölu
Símans fyrir þjóðhátíð-
ardag. Síðan var sölunni frestað
fram á haust þrátt fyrir að flestar
vísbendingar bentu til að markað-
ir myndu áfram halda að falla,"
segir Össur og segir ummæli
Hreins Loftssonar, formanns
stjórnar einkavæðinganefndar, í
síðustu viku um að söl-
unni hafi verið frestað af
tillitssemi við íslands-
síma vera mikilvæg.
„Þá liggur fyrir að
stjórnvöld tóku pólitíska
ákvörðun að hliðra sölu
Símans inn á árið til að
Íslandssími ætti greiðari
leið inn á markað. Allir
vita hvernig því ævin-
týri lyktaði. Ég held því
fram að þetta hafi verið
pólitískur greiði. Þarna
var hollvindabandalagið
að hjálpa gælufyrirtæki
sem það hefur tekið upp
á sína arma. Þetta kalla
ég spillingu."
Össur segir að í kjöl-
far sölunnar mislukkuðu geti ver-
ið að semja þurfi við kjölfestu-
fjárfesta um lægra verð. „Ef sá
möguleiki kemur fram
þá hefur þessi pólitíski greiði
kostað skattgreiðendur sem nem-
ur verðfalli á Símanum." ■
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
Össur segir augljóst
hvaða hlutahöfum Is-
landssíma Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi verið að
gera greiða með frest-
uninni. „Ég er að tala
t.d. um Eyþór Arnalds."