Fréttablaðið - 24.09.2001, Síða 4
SVONA ERUM VIÐ
FRETTABLAÐIÐ
24. september 2001 MÁNUPACUR
Mosfellsbser:
SELVEIÐAR
Hér að neðan má sjá hversu margir sel-
ir hafa verið veiddir við ísland á síðustu
árum.
LD LO co 01 o
01 Ol Ol 01 01 o
01 01 Ol Ol 01 o
P“ r— r— r— r— (N
Fjöldi íbúða
mun þre-
faldast
svæðaskipulac í tillögum að gerð
sameiginlegs svæðaskipulags á
höfuðborgarsvæðinu til ársins 2024
er gert ráð fyrir að byggðar verði
3.260 íbúðir í Mosfellsbæ. Þröstur
Karlsson formaður bæjarráðs segir
ef þessi uppbygging gengur eftir
sem menn eru hóflega bjartsýnir
um, þá mun fjöldi íbúða þrefaldast
á þessu tímabili, en þær voru um
1600 um sl. áramót. Þetta þýðir að
árleg fjölgun íbúða verði um 4,4%.
og íbúum fjölgi úr rúmlega 6 þús-
und í 15 þúsund. Stefnt er að því að
kynna endanlega niðurstöðu þessa
sameiginlega svæðaskipulags í
Ráðhúsi Reykjavíkur í byrjun
næsta mánaðar. Tímamót urðu í
umhverfisvænum samgöngum í
Mosfellsbæ á bíllausa deginum sl.
laugardag þegar formleg opnun var
á hjólreiða- og göngustígum sem
unnið hefur verið að um skeið. Með
tilkomu þeirra geta íbúar bæjarins
gengið og hjólað út á Seltjarnarnes
en búið er að malbika um 10 kíló-
metra af göngu- og hjólreiðastígum
í bænum. ■
——
Leikur í A og ÍBV:
Margir
misstu af
leiknum
KNATTSPYRNfl Fjöldi stuðningsmanna
ÍA, rúmlega 75 manns, komst ekki
til Eyja í gær til að fylgjast með
leik ÍBV og ÍA þar sem ekki var
flogið til Vestmannaeyja vegna veð-
urs. Fjöldi Skagamanna safnaðist
saman á Skagabarnum á Akranesi
til að fylgjast með leiknum og ein-
hverjir fóru á Playersbarinn í
Kópavogi. Svartaþoka var í Eyjum í
gær og lá allt flug niðri auk þess
sem slæmt var í sjóinn. Knatt-
spyrnulið ÍA fór með Herjólfi til
Eyja á laugardag en dómarar leiks-
ins fóru ásamt forráðamönnum
með flugi. ■
—
Þingkosningar í Póllandi:
V instrimenn
unnu meiri-
hluta
vflRSJÁ.PÓLLflNDi.flP Þingkosningar
fóru fram í Póllandi í gær. Sam-
kvæmt útgönguspám náði Lýðræð-
islega Vinstribandalagið meirihluta
í kosningunum með aðstoð Verka-
mannabandalagsins. Þetta er í fyrs-
ta sinn frá því kommúnisminn
hrundi árið 1989 sem samsteypu-
stjórn verður ekki við völd í Pól-
landi. Úrslit kosninganna eru mikið
áfall fyrir Samstöðuflokkinn, því
samkvæmt útgönguspám fær
flokkurinn engan þingmann. ■
Ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs:
Israelar hætta við vopnahlésviðræður
JERÚSALEM.AP ísraelar hættu í gær
við þátttöku í vopnahlésviðræðum
við Yasser Arafat, leiðtoga Pajest-
ínumanna, sem fyrirhugaðar voru
í gær. Sögðu þeir að Palestínu-
menn hafi ekki hætt ofbeldisverk-
um sínum þrátt fyrir bráðabirgða-
vopnahlé sem komið var á í síð-
ustu viku. Yasser Abed Rabbo,
ráðherra í ríkisstjórn Palestfnu-
manna, sagði ákvörðunina vera
„óábyrga" og kvartaði yfir því að
Palestínumönnum hafi ekki verið
greint formlega frá henni. „Þess-
ar viðræður geta ekki farið fram
fyrr en öllum ofbeldisverkum
ljúki,“ sagði Ariel Sharon, forsæt-
arabaríkja í baráttunni gegn
hryðjuverkum. „Ég er ennþá von-
góður um að viðræður muni fara
fram innan skamms," sagði Colin
Powell, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna í gær í viðtali á sjón-
varpsstöðinna ABC.
Israelar sögðust í gær hafa
handtekið tvo meðlimi úr frelsis-
hreyfingu palestínumanna þann 7.
ágúst sem grunaðir eru um að
hafa fyrirhugað að sprengja upp
bíl við tvær af hæstu skrifstofu-
byggingunum í ísrael, sem standa
hlið við hlið í Tel Aviv. Átti
sprengingin að vera lokahnykkur
í fjölmörgum árásum á ísraela. ■
ANDSPYRNA
Meðlimir Norðurbandalagsins í Afganistan hlusta á útvarpið og ræða saman á herflugvelli við Panjshir-dal í Afganistan, um 160 km norður af Kabúl, höfuðborg landsins. Mikil átök áttu
sér stað í gær milli bandalagsins og hersveita Talibana.
Segjast ekki vita hvaj*
bin Laden heldur sig
Bandaríkin vísa ummælunum á bug. Bandaríkjamenn vígbúast af kappi.
Andspyrnuhreyfing í Afganistan stækkar ört.
iSLflMABflD.PAKiSTflN.flP Leiðtogar
Talibana í Afganistan sögðust í
gær ekki vita hvar Osama bin
Laden, sem grunaður er um að
hafa staðið á bak við hryðjuverkin
í Bandaríkjunum, væri niðurkom-
inn. Sögðu þeir að reynt hafi verið
að hafa upp á honum til að til-
kynna honum ákvörðun klerka-
ráðsins um að hann skuli yfirgefa
landið, en án árangurs. Ráðamenn
í Bandaríkjunum vísuðu ummæl-
unum hins vegar á bug og sögðu
þau vera lélega aðferð til að kom-
ast undan ábyrgð vegna kröfu
Bandaríkjamanna um að bin
Laden verði framseldur.
Bandaríkjamenn undirbúa nú
hernaðaraðgerðir í Afganistan.
Fulltrúar bandaríska varnarmála-
ráðuneytisins komu í gær til
Islamabad í Pakistan. Ætla þeir að
fullklára áætlun í samvinnu við
Pakistana sem felur í sér að
Bandaríkjamenn geti nýtt sér
pakistanska lofthelgi, að þjóðirn-
ar getir skipst á upplýsingum, auk
þess sem Bandaríkjamönnum
yrði veitt hernaðaraðstaða sem
notuð yrði í fyrirhuguðum hern-
aðaraðgerðum. í síðustu viku
samþykktu Pakistanar að heita
Bandaríkjunum fullri samvinnu í
baráttunni gegn hryðjuverkum
þrátt fyrir mótmæli heima fyrir.
Norðurbandalagið, afgönsk
andspyrnuhreyfing gegn stjórn
Talibana í landinu, átti í hörðum
átökum við hersveitir Talibana í
norðurhluta Afganistan í gær.
Sagðist bandalagið hafa lagt undir
sig Zari-svæðið í Balkh-héraðinu
og hafi að minnsta kosti 80 tali-
banskir hermenn látist í átökun-
um. Norðurbandalagið segist hafa
verið í sambandi við Bandaríkja-
menn og vilji hjálpa þeim í fyrir-
huguðum aðgerðum gegn stjórn
Talibana í landinu. Að sögn
Bandaríkjamanna gætu nákvæm-
ar upplýsingar Norðurbandalags-
ins reynst bandarískum hersveit-
um ómetanleg aðstoð í fyrirhug-
aðri árás gegn bin Laden og fylg-
ismönnum hans. ■
Kosningaskrifstofa vegna pólsku þingkosninganna í Ánanaustum:
♦ 1 1 J1 X*
/1 nicUiiis greiuuu d.LKVct:ui
kosnincar Sjötíu og sjö pólskir
ríkisborgarar, sem búsettir eru
hér á landi, nýttu sér tækifærið
og greiddu atkvæði í pólsku
þingkosningunum sem fram
fóru í gær. Kosningaskrifstofa
var sett upp í húsnæði Vélasöl-
unnar í Ánanaustum en þetta er í
fyrsta skiptið sem slíkt fyrir-
komulag er haft á hér á landi. Að
sögn Friðriks Gunnarssonar,
kjörræðismanns Póllands, fóru
kosningarnar fram með hefð-
bundnum hætti og eins og
tíðkast í þingkosningum. Sjö Pól-
verjar eiga sæti í kosninga-
nefnd, sem sér um framkvæmd
kosninganna, enl02 manns höfðu
skráð sig til þátttöku. Meðal
þeirra sem nýttu sér kosninga-
rétt sinn voru Karmelsystur í
Iíafnarfirði. Fyrirfram var talið
fullvíst að Lýðræðislega vinstri-
bandalagið, sem er skipað fyrr-
um kommúnistum, færi með sig-
ur af hólmi í kosningunum og
gæti jafnvel náð meirihluta á
þingi ásamt litlum stuðnings-
flokki, Verkalýðsbandalaginu.
Samkvæmt tölum frá Hagstofu
íslands eru tæplega 1500 Pól-
verjar búsettir hér á landi og eru
þeir langfjölmennasti hópur er-
lendra ríkisborgara á Islandi.
Sendiráð Pólverja á íslandi er í
Osló og þar hefur sendiherra ís-
lands í Póllandi, Kristinn Árna-
son, einnig aðsetur. ■
Á KJÖRSTAÐ
Samkvæmt tölum frá Hag-
stofu íslands eru tæplega
1500 Pólverjar búsettir hér á
landi. Sendiráð Pólverja á is-
landi er í Osló en hér á landi
er aðeins einn kjörræðis-
maður og fulltrúi Pólverja.
isráðherra ísrael. Hefur hann lýst
því yfir að ekkert verði af vopna-
hlésviðræðum nema 48 klukku-
stunda ró komist á á svæðinu.
Bandaríkjamenn hafa undan- n
farið hvatt ísraela og Palestínu- |
menn til að hefja viðræður, sem \
myndi gera það að verkum að auð-
veldara yrði að koma á bandalagi
ARAFAT
Yasser Arafat Jeiðtogi Palestínu-
manna, glaður i bragði eftir að hafa
skipað löndum sínum að leggja
niður vopn sín í síðustu viku. Ekkert
varð í gær af fyrirhuguðum vopna-
hlésviðræðum hans við flriel Shar-
on, utanríkisráðherra Israels.