Fréttablaðið - 24.09.2001, Síða 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
Flutriingur sjóslysanefndar í Stykkishólm:
tilkostnaður
SPURWfHC PACSINS f
Ætlar þú í hdgarferð til
útlanda I haust?
Nei ég ætla ekki í helgarferð til útlanda.
Aftur á móti ætla ég i mánaðarferð til
Bandaríkjanna. ■
Jóhann Waage, grafískur hönnuður
rIkisstofnanir Ingi Tryggvason,
formaður rannsóknarnefndar sjó-
slysa, segir ekki mikinn tilkostnað
fylgja flutningi nefndarinnar úr
Hafnarhúsinu í Reykjavík í Flug-
stöðina á Stykkishólmi. Þá segir
hann ekki komna endanlega dag-
setningu á flutninginn en það
verði væntanlega fyrir áramót.
„Nefndin hefur leigt skrifstofu-
húsnæði í Hafnarhúsinu," sagði
hann og áréttaði að þótt einhverj-
ar endurbætur hafi þurft að gera
á flugstöðvarbyggingunni á
Stykkishólmi við að koma þar fyr-
ir fundaherbergi og skrifstofum
hafi sá kostnaður ekki verið mik-
ill. „Hugsanlega kemur svo líka á
móti einhver sparnaður, ódýrara
húsnæði, eða eitthvað slíkt,“ bætti
hann við og vísaði þar með til þess
að flugstöðvarbyggingin heyrði í
raun undir Samgönguráðuneytið.
Ingi segir að fundað sé að jafnaði
24. september 2001 MAWUPACUR
Rannsóknarnefnd sjóslysa fundar að jafnaði mánaðarlega.
mánaðarlega í nefndinni en „Þannig að það breytir í sjálfu sér
starfsmaður hennar sjái yfirleitt ekki miklu hvar nefndin er til
um skýrslutökur og annað slíkt. húsa,“ sagði hann. ■
Kópavogur:
Lát unga-
bamsí
rannsókn
rannsókn Rannsóknardeild lögregl-
unnar í Kópavogi hefur nú til rann-
sóknar andlát níu mánaða gamals
drengs sem lést á Landspítalanum í
Fossvogi 4. maí síðastliðinn. Niður-
staða krufningsskýrslu, sem skilað
var 6. september, bendir til þess að
barnið hafi látist af völdum hrist-
ings, tilfelli sem kallast einnig
„shaken baby syndrom.“ í kjölfar
skýrslunnar beindist grunur lög-
reglu að þeim sem önnuðust dreng-
inn 2. maí, sem voru karlmaður og
kona sem önnuðust daggæslu í
heimahúsi.
Fólkið var handtekið þann 10.
september. Konan var látin laus
daginn eftir en karlmaðurinn var
úrskurðaður í gæsluvarðhald af
Héraðsdómi Reykjaness til 17.
september. Kröfu lögreglunnar um
framlengingu þess var hins vegar
hafnað og maðurinn var látinn laus.
Játning á meintu broti liggur ekki
fyrir.
Að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu rannsóknardeildar lög-
reglunnar í Kópavogi var drengur-
inn fluttur meðvitundarlaus á spít-
alann 2 maí, sl. Við rannsókn lækna
komu fram einkenni sem gáfu vís-
bendingu um að skemmdir á heila
gætu stafað af utanaðkomandi
áhrifum, t.d. hristings. Vegna þessa
var farið fram á ítarlega rannsókn
á dánarorsök barnsins. ■
IlöcreclufréttirI
Brotist var inn í tvo sumarbú-
staði í Öndverðarnesi í Árnes-
sýslu á laugardagsmorgun.
Þjófarnir höfðu m.a. á brott með
sér hljómflutningstæki og annað
lauslegt. Svo virðist sem veislu
hafið verið slegið upp í öðrum bú-
staðnum. Lögreglan á Selfossi
vinnur að rannsókn málsins.
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði
hjólreiðamann á Suðurlands-
brautinni í fyrrinótt. Maðurinn var
ölvaður og lagði lögreglan hald á
hjólið. Lögreglan vill minna á að
hún lítur jafn alvarlegum augum
jegar menn hjóla eins og þegar
)eir aka er undir áhrifum.
Tilboð
Barnamyndatökur
Verð frá
Líknarsjóður stofnaður
rir utangarðsmenn
Siðfræðilegar klípusögur:
Tilfinningar ráða meiru en rökhugsun
kr. 5.000
Innifalið 1 stækkun
30x40 cm í ramma,
aðrar stækkanir að
eigin vali, með allt að
50% afslætti
Ljósmyndastofan Mynd sími 565 4207
Ljósmyndastofa Kópavogs sími 554 3020
Stofnar sjóðinn til minningar um son sinn sem lést fyrir aldur fram.
Segir marga foreldra hafa svipaða sögu að segja.
washincton. ap Flestu fólki finnst
réttlætanlegt að bjarga fimm
mönnum, sem standa grandalaus-
ir á járnbrautarteinum, með því
að beina járnbrautarlest af braut
sinni yfir á aðra braut þar sem
líknarsjóður „Ég hef forgöngu um
stofnun þessa líknarsjóðs því ég
hef trú á að margir vilji leggja
honum lið og eins til minningar um
son minn sem var í hópi utangarðs-
manna,“ sagði Ása Gunnarsdóttir,
um nýstofnaðan líknarsjóð sem
hugsaður er til aðstoðar fólki sem
orðið hefur undir í þjóðfélaginu og
fengið á sig viðurnefnið utangarðs-
maður. Ása segist hafa hugsað sér
sjóðinn til þess að koma upp hús-
næði fyrir fólk sem á hvergi höfði
sínu að halla. Sér hún fyrir sér að
þar verði til staðar fólk sem búi
yfir sérfræðikunnáttu til aðstoðar.
Þá væri möguleiki að nota sjóðinn
til að styrkja stoðir Hlaðgerðar-
kots, Byrgisins eða annarra hjálp-
arstofnanir sem hingað til hafa
hlúð að þessu fólki.
Líknarsjóðurinn er stofnaður til
minningar um son Ásu, Valgeir
Magnússon, sem lést £ fyrra langt
fyrir aldur fram vegna lifnaðar-
hátta sem tengdust drykkju og
fíkniefnum. „Valgeir komst snem-
ma á lífsleiðinni í óreglu og var
komin á fullan skrið um tvitugt.
Hann tók aldrei neinu tiltali og agi
var eitthvað sem honum var fjarri.
Valgeir kom heim þegar hann var
gjörsamlega búinn að vera en þess
fyrir utan hafðist hann við í tjaldi í
Öskjuhlíðinni, kofum og skúma-
skotum. Hann kom hvenær sem
var sólarhringsins til að sofa og
ÁSA GUNNARSDÓTTiR
„Þrátt fyrir að ekkert sé hægt að gera fyrir son minn í dag er sá möguleiki fyrir hendi að
hægt sé að bjarga syni eða dóttur einhvers annars sem eru að ganga í gegnum það sama
og ég gerði,"
nærast og lét sig hverfa jafnharð- skaddast á höfði í bílslysi og það
an aftur.“ Ása sagði Valgeir hafa hafi breytt honum mikið. Hann
hafi sífellt verið reiður og hefði
verið svo komið að hún hefði
hræðst hann. Þurfti hún oft að
kalla til aðstoðar
lögreglunnar og
hann verið ósátt-
an við þá með-
höndlun og jafnan
kennt henni um
hvernig komið
væri fyrir honum.
Valgeir lést
þrjátíu og fimm
ára gamall eftir
að hafa flúið af
geðdeild Land-
spítalans og
fannst hann Iátinn
á Snorrabraut
vegna inntöku á of
stórum lyfja-
skammti. „Það
eru margir for-
eldrar sem hafa svipaða sögu að
segja og ég. Þrátt fyrir að ekkert
sé hægt að gera fyrir son minn í
dag er sá möguleiki fyrir hendi að
hægt sé að bjarga syni eða dóttur
einhvers annars sem eru að ganga
í gegnum það sama og ég gerði,“
sagði Ása að endingu.
Þeir sem vilja leggja fjárfram-
lag til líknarsióðsins er bent á að
snúa sér til Islandsbanka, reikn-
ingsnúmer 602350, Minningarsjóð-
ur Valgeirs M.
kolbrun@frettabladid.is
VALGEIR
MAGNÚSSON
Valgeir taldist til
hóps utangarðs-
manna. Hann lést
22. desember árið
2000, 35 ára
gamall.
hún verður aðeins einum manni
að bana. Flestum finnst hins veg-
ar siðferðilega rangt að bjarga
fimm mannslffum með því að
hrinda einum manni fyrir járn-
brautarlestina og ná þannig að
stöðva hana áður en hún skellur á
hinum fimm.
Þessar niðurstöður hafa feng-
ist út úr fjölmörgum spurninga-
könnunum, sem siðfræðingar
hafa lagt fyrir fólk. Siðfræðingar
hafa hins vegar lengi spurt um
rökin fyrir því, hvers vegna flest-
um finnst fyrri atburðarásin sið-
ferðilega réttmæt en sú seinni
ekki.
Vísindamenn í Bandaríkjunum
þykjast nú hafa komist að því að
rök ráði næsta litlu um svör fólks
við þessum og ámóta spurningum,
heldur ráði þar tilfinningarnar
mestu. Niðurstöðurnar birtust í
vísindatímaritinu Science á föstu-
daginn var.
Við háskólann í Princeton voru
átján manns látnir svara sextíu
spurningum um ýmis siðfræðileg
eða rökfræðileg álitamál. Á með-
an var fylgst með því sem gerðist
í heila þeirra. í ljós kom að þau
SKYNSEMI TILFINNINGANNA
Eftir árásirnar á Bandaríkin í slðustu viku brutust tilfinningarnar vlða fram. Vlsindamenn
telja sig loks hafa sýnt fram á að tilfinningar ráði meiru um mat okkar á siðfræðilegum
álitamálum heldur en rökhugsun.
svæði í heilanum, sem hafa með
tilfinningar að gera, urðu mjög
virk þegar siðferðilegu spurning-
arnar voru lagðar fyrir. Þegar
rökfræóilegar spurningar voru
lagðar fyrir, var hins vegar lítið
að gerast á þessum svæðum í heil-
anum heldur var virknin mest á
öðrum svæðum sem sinna kaldri
rökhugsun. ■
|