Fréttablaðið - 24.09.2001, Síða 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
24. september 2001 IVIÁNUDACUR
LÖCRECLUFRÉTTIR
Tveir voru teknir ölvaðir við
akstur í Kópavogi aðfararnótt
Kópavogs. Að sögn lögreglunnar
var töluvert um ölvunarútköll,
bæði í heimahús og eins vegna
aksturs á götum úti. Lögreglan
segir þó ekki hægt að segja að
meira álag hafi verið um helgina
en venja sé til. Fyrir utan næt-
ureril var rólegt hjá lögreglunni
um helgina.
- —-
Lögreglan í Kópavogi býst hins
vegar við því að erillinn og
starfsálag aukist verulega þegar
Smáralindin opnar, sem verður
10. október eins og kunnugt er.
„Það verður óhemju mikil um-
ferð hér um bæinn og við sjáum
jú um löggæsluna á þessu
svæði,“ sagði lögreglumaður.
RÚSTIR
Rústir World Trade Center-byggingarinnar.
Hrun tvíburaturnanna mældist á jarð-
skjálftamælum i Bandaríkjunum.
Hrun World
Trade Center:
Mældist á
jardskjálfita-
mælum
árás Á ameríku Hrun World Trade
Center-tvíburabygginganna sem
varð skömu eftir hryðjuverka-
árásina þann 11. september,
mældist á jarðskjálftamælum á
þónokkrum stöðum í norðurhluta
Bandaríkjanna. Var skjálftinn
sem við það skapaðist af svipaðri
stærðargráðu og jarðskjálfti sem
mældist 2,4 á Richter og gekk yfir
austurhluta Manhattan og vestur-
hluta Queens-hverfisins þann 17.
janúar á þessu ári, að því er kom
fram á fréttavef BBC. ■
Það voru bandarískir og pakistanskir forn-
leifafræðingar sem fundu steingervingana.
Talið er að þessir forfeður hvala hafi verið
á stærð við úlf og hafi átt auðvelt með að
hlaupa.
Uppgötvun vísinda-
manna:
„Týndi
hlekkurinn“
fundinn
vísinpi Vísindamenn telja sig hafa
fundið „týnda hlekkinn" á milli
hinna frumstæðu hófuðu spendýra
og hvalastofnsins, en 50 milljón
ára gömul bein sem fundust fyrir
tæpu ári síðan í Pakistan eru talin
vera komin frá forfeðrum hvala
sem gengu á landi. Dýr þessi eru
talin hafa verið á stærð við úlf og
áttu auðvelt með að hlaupa. Að því
er kemur fram á fréttavef BBC
telja vísindamenn að dýrin hafi
þróað með sér áhuga á fiskmeti,
hafi lært að synda og loks hafi þau
farið að lifa í vatni. Vísindamenn
hafa lengi vitað að forfeður hvala
hafi verið landdýr með fjóra fæt-
ur, en þetta er í fyrsta sinn sem
steingervingar hafa fundist með
leifum beggja dýranna. Rannsókn-
in birtist í tímaritinu Nature. ■
Verkalýðsfélagið Hlíf:
Skelfilegur málflutnin gur
vextir Sigurður T. Sigurðsson for-
maóur Verkalýðsfélagsins Hlífar í
Hafnarfirði segir að það sé alveg
skelfilegt að heyra málflutning
Seðlabankans um að það sé ekki
hægt að lækka vexti nema að at-
vinnuleysi muni aukast. Hann
segist því vísa slíkum hugmynd-
um út í hafsauga, enda sé það fá-
heyrt að því skuli vera haldið að
almenningi að ekki sé hægt að
ræða einhverjar skynsemisað-
gerðir í efnahagsmálum fyrr en
fjöldi fólks sé búinn að missa
vinnuna. Hann telur brýnt að
vextir sem eru helmingi hærri en
víða annars staðar, verði lækkaðir
all verulega sem fyrst eða til sam-
ræmis við verðbólgustigið.
Hann vekur hins athygli á því
að þeir sem tala hæst um nauðsyn
á auknu atvinnuleysi séu þeir sem
eru búnir að tryggja sig í góðar
stöður og laun í ríkiskerfinu í
gegnum pólitík. Hann segir að
óbreytt ástand sé til marks um að
ráðamenn hugsi aðeins um eigið
skinn en ekki um hagsmuni al-
mennings og það sé vítavert. ■
SIGURÐUR T. SIGURÐSSON
FORWIAÐUR HLÍFAR
Vísar málflutningi Seðlabanka út
í hafsauga
Ökumenn í Reykjavík:
11 teknir
fýrir ölvun-
arakstur
lögreglumái Alls voru ellefu öku,
menn teknir fyrir ölvun við akst-
ur í Reykjavík aðfaranótt sunnu-
dags. Að sögn lög-
Wi reglunnar var fámennt í
miðbænum en eigi að
i síður var mikil ölvun.
Samkvæmt nýrri reglu-
gerð um viðurlög vegna
brota á umferðarlögum, sem
gekk í gildi 1. ágúst s.l., er lægs-
ta fjársekt vegna ölvunaraksturs
30 þúsund krónur og hæsta sekt
100 þúsund. ■
Siglum í núll í hagvexti
Fall krónunnar hefur einna mest áhrif á skuldir ríkissjóðs umfram áætlanir. Af 4,7 milljörðum
sem eru umfram eru 2 milljarðar vextir af erlendum lánum.
þessar tölur er að við séum mjög
nálægt botninum," sagði hann en
tiltók að nokkur óvissa væri um
framhaldið m.a. vegna hryðju-
verkanna í Bandaríkjunum. Bolli
segist vongóður um að skatta-
lækkunaráform ríkisstjórnarinn-
efnahagsmál Bolli Þór Bollason,
skrifstofustjóri efnahagsskrif-
stofu fjármálaráðuneytisins, seg-
ir útgjaldaaukningu ríkissjóðs
umfram áætlanir skýrast af liðum
sem ekki voru á fjárhagsáætlun.
Hann nefnir kjarasamninga, ör-
yrkjadóm, hækkun lífeyrisbóta
og gengislækkun krónunnar sem
dæmi. Kostnað vegna kjarasamn-
inga metur Bolli á 3 til 4 millj-
arða, en gengislækkun krónunnar
segir hann koma fram víða, t.a.m.
í auknum kostnaði vegna ferða-
laga erlendis. „Svo kemur hún
þungt fram hjá sendiráðunum, en
öll útgjöld til þeirra eru í krónum
talin. Þá kemur gengislækkunin
fram í vaxtakostnaði af erlendum
lánum. Af þessum 4,7 milljörðum,
sem eru frávik frá áætlun, eru
tveir milljarðar bara í vöxtum,"
sagði hann og bætti við að gengis-
lækkunin kæmi einnig óbeint
fram í hærra verðlagi.
Ástæðu þess að ekki var að
fullu gert ráð fyrir áhrifum kjara-
samninga í áætlanagerð ríkisins
segir Bolli vera að
þeir hafi færst yfir
áramót. „S.l. haust,
þegar samningar
voru lausir, var gert
ráð fyrir ákveðnum
hækkunum, en
vegna þess að þeir
færðust yfir áramót
kemur í raun inn
tvöföld áfanga-
hækkun sem ekki
var gert ráð fyrir í
fjárlagafrumvarp-
inu.“
Bolli segir það
mat ráðuneytisins
að frekar sé ástæða
til að óttast sam-
drátt í hagkerfinu
en þenslu. Hann vill þó fara var-
lega í að spá fyrir um hvenær við-
snúnings sé að vænta í efnahags-
lífinu því hagfræðingar spáðu
hvað oftast vitlaust fyrir um
tímasetningu viðsnúnings. „Til-
finningin eftir að hafa horft á
BOLLI ÞÓR BOLLASON
Bolli segir tímabil vaxtalækkunar nálgast enda sé botninum
að verða néð I hagsveiflunni.
ar hefðu góð áhrif
á væntingar í
efnahagslífinu,
gengju þau eftir.
„Svo eru menn almennt sammála
um að tímapunktur vaxtahækkun-
ar, sé hann er ekki þegar kominn,
nálgist mjög hratt. Eina vísbend-
ingin sem ekki styður vaxtalækk-
un er staðan á vinnumarkaði."
Bolli sagði þó varhugavert að ein-
blína á atvinnuleysisskráningu
sem mælikvarða á þenslu því
fólki væri ekki sagt upp fyrr en
allt annað þryti. „Það er mjög
hratt að draga úr eftirspurn og
við túlkum þetta þannig að við
séum jafnvel að sigla niður í núll í
hagvextinum, og þá fer nú að
nálgast tímabil vaxtalækkunar,"
sagði hann.
oli@frettabladid.ís
Uppgötvun bandarískra vísindamanna:
Bóluefni gegn
hrotum
heilsa Bandarískir vísindamenn
segjast nú hafa þróað ódýrt og
sársaukalaust bóluefni sem koma
á í veg fyrir hrotur. Er bóluefninu
sprautað í mjúkt svæði gómsins í
aftanverðum hálsinum, en hrotur
eiga sér stað þegar loftstreymi
titrar í gómnum, sem er í afslöpp-
un á meðan menn sofa. Bóluefnið
gerir það að verkum að aftanverð-
ur gómurinn stífnar upp með þeim
afleiðingum að hann titrar ekki
eins mikið og þ.a.l. dregur úr hrot-
unum.
Samkvæmt rannsóknum sem
gerðar hafa verið á virkni bóluefn-
isins getur það dregið úr hávaðan-
um sem stafar af hrotum úr 11
desibilum niður í tvö. Mun kostn-
aður við bóluefnismeðferðina
nema um 3500 krónum.
Formaður Svefnfræðistofnunar
Bretlands, Neil Douglas, tekur
þessu nýju bóluefni með fyrirvara
og segir að oft áður hafi svipaðar
meðferðir komið fram á sjónar-
sviðið og hefðu þær flestar einung-
is verið skammtímalausnir. í við-
HROTUR
Bóluefnið gæti gagnast mörgu fólki, en samkvæmt opinberum tölum í Bretlandi hrjóta
50% karla og 40% kvenna.
tali á fréttavef BBC segir hann að gi og notkun sérstaks tannvarnar-
hefðbundnar aðferðir eins og að góms, séu mun árangursríkari
losa sig við aukakíló, forðast áfen- leiðir til að vinna bug á hrotum. ■