Fréttablaðið - 24.09.2001, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 24. september 2001
FRETTABLAÐIÐ
Bandaríkjamenn:
Afléttu þvingunum gegn
Pakistan og Indlandi
WASHINCTON.AP Bandaríkin afléttu
í gær viðskiptaþvingunum og
banni við hernaðaraðstoð gegn
Pakistan og Indlandi sem komið
var á árið 1998 vegna tilrauna
þjóðanna með kjarnorkuvopn.
Ástæðan er talin vera aðstoð þjóð-
anna í baráttunni gegn hryðju-
verkum, sem Bandaríkjamenn
hafa staðið fyrir. Að sögn George
W. Bush, Bandaríkjaforseta, töld-
ust þvinganirnar ekki lengur vera
í þágu þjóðaröryggis Bandaríkj-
anna.
Maleeha Lodhi, sendiherra
Pakistana í Bandaríkjunum lofaði
ákvörðunina og sagði að hún muni
tryggja Pakistönum fjárhagsað-
stoð í framtíðinni og væri því afar
mikilvæg fyrir þjóðina. Þrátt fyr-
ir að þvingunum þessum hafi ver-
ið aflétt geta Pakistanar ekki
fengið lán frá Bandaríkjunum og
mega ekki senda hermenn sína til
Bandaríkjanna til æfinga, sökum
annars konar þvingana sem sett
voru á landið árið 1999 vegna
valdatöku pakistanska hersins. ■
AGANGI
Pakistanskur maður gengur í átt
að afgönsku landamærunum
skammt frá Peshawar í Pakistan.
Bjórkvöld framhaldsskólanema:
Eru á ábyrgð skemmtistaða
SKÓLAMÁL Bjórkvöld á öldurhúsum
bæjarins virðast hluti af félagslífi
sumra framhaldsskólanema í
Reykjavík. Móðir ungs pilts sem
er að hefja nám í framhaldsskóla
hafði samband við blaðið og lýsti
áhyggjum sínum af þeirri þróun
að skemmtanir þar sem áfengi
væri haft um hönd væru auglýst-
ar í nafni skólanna. Þá taldi hún að
bjórkvöld þessi væru talin upp í
kynningarefni til 10. bekkinga
þegar fjallað væri um félagslíf
framhaldsskólanna.
Haukur Hrafn Þorsteinsson,
ÖL ER BÖL
Formaður nemendafélags Kvennó
segir að „bjórkvöld" séu hvorki
haldin f nafni skólanna né
standi nemendafélögin fyrir þeim.
formaður nemendafélagsins
Keðjunnar í Kvennaskólanum í
Reykjavík, segir áhyggjur móður-
innar á misskilningi byggðar því
bjórkvöldin séu á vegum einkaað-
ila en ekki skóla eða nemendafé-
laga. „í raun er samt ekkert ólög-
legt við þetta. Þegar svona kvöld
fara fram hleypir einhver
skemmtistaðurinn 18 ára inn en
selur ekki þeim áfengi sem eru
undir tvítugu. Svo veit maður
kannski ekki hvað fer fram, en
það er á ábyrgð skemmtistaðar-
ins,“ bætti hann við. Haukur taldi
að bjórkvöldin væru ekki kynnt
10. bekkingum sem hluti af fé-
lagslífi skólans en vera mætti að á
þau væri minnst í skólablaðinu
eða fréttapésum sem þau fengju
gefins. ■
8 A
13 ICuMIEGA
( Krakkar þurfa kalk
og tennur
Krakka Kalk eru bragðgóðar
og freyðandi tuggutöflur með D-vítamíni.
Ein tafla af Biomega Krakka Kalki inniheldur sama
kalkmagn og eitt glas af mjólk.
Fæst í apótekum
vegna aukinna umsvifa vantar okkur fólk til starfa.
adlib var stofnað á fyrri hluta ársins 2001 til að sameina
kunnáttu, krafta og reynslu hóps manna sem hafa undanfarin
ár starfað að smíði, mótun og rekstri net- og skjámiðla.
adlib hefur tileinkað sér þekkingu á þeim búnaði sem er
ákjósanlegastur við smíði og hönnun vef- og skjámiðla. við
getum því hæglega komið til móts við allar óskir
viðskiptavina um ferska og frumlega framsetningu lifandi
miðla á borð við sjónvarp, vefi og farsíma. einnig býr adlib
til samskipta- og markaðsefni fyrir skjámiðla. tölvu- og
sjónvarpsskjáir eru nú vinsælustu skjámiðlarnir en notkun
annarra skjámiðla á borð við farsíma, handtölvur, gagnvirkt
sjón-varp og skjástanda færist sífellt í aukana. nýir
möguleikar á þessu sviði koma stöðugt fram á sjónarsviðið
og leggja starfs-menn adlib þunga áherslu á að kynna sér
nýjustu tækni og framfarir.
hjá adlib starfa 10 manns.
verkefnastjóri
verkefnastjóri sér um öll samskipti milli viðskiptavina
fyrirtækisins og starfsfólks þess. við leitum að aðila sem á
auðvelt með að vinna í hóp og hefur frumkvæði. einnig þarf
verkefnastjóri að vera vel upplýstur um allt það sem er að
gerast á markaðinum hverju sinni. verkefnastjóri sér einnig
um ráðgjöf til viðskiptavina.
viðmótshönnuðir
vefsvæði eru andlit fyrirtækja á netinu. Útlitshönnun
vefsvæða er því mikilvæg og hún þarf að falla vel að ímynd
fyrirtækisins. Höfuðmáli skiptir að táknmál síðunnar sé
hnitmiðað og skiljanlegt og að notandinn eigi auðvelt með
að nota viðmótið og rata um svæðið.
Við leitum að grafískum hönnuðum sem hafa mikla reynslu
af hönnun fyrir vef.
flash - margmiðlun
macromedia flash gefur kost á aukinni gagnvirkni og opnar
möguleika á notkun hreyfimynda og hljóðs á vefnum. adlib
stendur mjög framarlega þegar kemur að vinnslu í flash
og leitar nú liðsauka í hæfum flash hönnuðum/forriturum.
kunnátta í activescript og tengingu flash við gagnagrunna
skilyrði.
við leitum að fólki með mikla reynslu og þekkingu á forritun
fyrir vef og þekkingu á kerfisstjórnun. um er að ræða
vefmiðlarana apache og iis á windows og apache á linux
og forritunarmál á borð við perl og javascript/activescript
og umhverfi á borð við asp, cgi og mod_perl. viðkomandi
þurfa að vera bæði hugmyndaríkir og sjálfstæðir í
vinnubrögðum og vera tilbúnir til að tileinka sér nýjungar
á þessu sviði eftir því sem þörf kerfur.
allar umsóknir skal senda á adlib@adlib.is.
adiib - hverfisgata 14a -101 reykjavik - www.adiib.is
adlíb@adlib.ís - s :540 4900 - f:540 4901