Fréttablaðið - 24.09.2001, Side 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
24. september 2001 MÁNUPAGUR
Markahæstu menn
Símadeildar:
Hjörtur
fær gull-
skóinn
Leikmaður Lið Mörk
Hjörtur Hjartarson ÍA 15
Ásmundur Arnarsson Fram 11
Crétar Hjartarson Grindavík 9
Þórarinn Kristjánsson Keflavík 9
Kristján Brooks Breiðabiik 7
Sinisa Kekic Grindavík 7
Guðmundur Steinarsson Keflavik 6
Grétar R. Steinsson lA 6
Haukur 1. Guðnason Keflavik 6
Sævar Þ. Gíslason Fylkir 6
Þjálfaramál FH:
Logitil
Lilleström
KNATTSPYRNA Logi
Ólafsson hefur
sagt starfi sínu
sem þjálfari FH
lausu en hann er
á leið til Lil-
leström þar sem
hann mun gegna
starfi aðstoðar-
þjálfara. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins eru nokkrar líkur á að Sig-
urður Jónsson taki við starfi
Loga en. Sigurður var í leik-
mannahópi Hafnarfjarðarliðsins
en gat ekki spilað með vegna
meiðsla. ■
(bróttir
áSýn
24. - 30. september
mán Southampto - Aston Villa
Enski boltinn kl. 18.50
þri DepoiUvo - Man. Utd.
Meistarakeppnin kl. 18.35
Leverkusen - Barcelona
Meistarakeppnin kl. 20.40
mið Liverpool - Dynamo Kylv
Meistarakeppnin kl. 18.35
Real Madrid - Anderiecht
Melstarakeppnin kl. 20.40
'lm HMIralll
kl. 21.00
lau ma Barrera • Enrique Sanchz
Hnetaleikarkl. 22.50
Feilx Trinldad - Bemhard Hopkins
Hnefaleikar kl. 01.00
sun italski boltlnn
kl. 13.45
Ipswich • Leeds
Enski boltinn kl. 15.55
Leikmenn Chelsea:
Eiður Smári sektaður fyrir óspektir
KNATTSPYRNA Eiður Smári Guðjohn-
sen og þrír samherjar hans hjá
enska úrvalsdeildarliðinu Chelsea
hafa verið sektaðir, sem nemur
tveimur vikulaunum, fyrir óspektir
og drykkjulæti á hóteli nálægt He-
athrow-flugvellinum í London dag-
inn eftir hryðjuverkaárásirnar í
New York og Washington. Fjöldi
óttasleginna Bandaríkjamanna
gisti á hótelinu og beið þess að fljú-
ga heim.
Auk Eiðs voru Frank Lampard,
Jody Morris og John Terry sektaðir
en þeir gistu á hótelinu þar sem
Evrópuleik liðsins við búlgarska
liðið Levski Sofia hafði verið
frestað í virðingar-
skyni við þá sem
létu lífið í hryðju-
verkunum.
„Þeir voru með
mikil læti, slógu í
hluti og æstu fólk
upp. Þeir voru
mjög drukknir."
sagði Antonio
Parisini, fram-
kvæmdastjóri hót-
elsins.
Colin Hutchin-
son, sem situr í
stjórn Chelsea, sagði að hegðun
leikmannanna væri engan veginn
EIÐUR SMÁRI
GUÐJOHNSEN
Var sektaður um
sem nemur
tveimur vikulaun-
um fyrir drykkju á
almannafaeri.
við hæfi og þeir yrðu sektaðir um
tveggja vikna laun. Upphæðin, sem
nemur um 100,000 pundum, mun
renna í styrktarsjóð fjölskyldna
þeirra sem misstu ættingja í árás-
unum. Eiður lýsti því yfir í fjölmiðl-
um í gær að hann hefði ekki tekið
þátt á látunum, hann hefði sagt skil-
ið við félaga sína áður en þeir fóru
á hótelið. Hann mun samt greiða
sekt fyrir að vera ölvaður á al-
mannafæri. ■
VANDRÆÐASEGGUR
John Terry sést hér í leik gegn Levski Sofia
I Evrópukeppninni. Hann var meðal þeirra
sem var með óspektir á hóteli í London.
Skagamenn
Islandsmeistarar
IA tryggði sér Islandmeistaratitilinn með jafnteíli í Eyjumí lokaumferð Símadeildarinnar.
KR slapp fyrir horn en Breiðablik tók Val með sér í fallinu. FH komst í Inter-Toto keppnina.
MEISTARAR
Skagamenn urðu meistarar I átjánda sinn þegar þeir gerðu jafntefli við ÍBV í Eyjum í gær. Mikill fögnuður braust út eftir leik enda hafði
enginn spáð liðinu slíkum árangri. Reynir Leósson hampar hér bikarnum eftirsótta.
knattspyrna Skagamenn tryggðu
sér íslandsmeistaratitilinn í
knattspyrnu með því að gera 2-2
jafntefli við ÍBV í Eyjum í gær.
Breiðablik sigraði Valsmenn 2-1
og tók Hlíðarenda liðið niður með
sér í fallinu. KR sigraði Grindvík-
inga 2-0, Fram sigraði Keflavík í
miklum markaleik í Laugardaln-
um og FH lagði Fylki 2-0.
ÍA nægði jafntefli til að trygg-
ja sér titilinn. Liðið byrjaði leik-
inn af miklum krafti og skoraði
tvö mörk á fyrstu tuttugu mínút-
um leiksins. Eyjamenn neituðu
hinsvegar að gefast upp. Tómas
Ingi Tómasson minnkaði muninn
þegar hann afgreiddi boltann
glæsilega í markið framhjá Ólafi
Þór markverði. Þannig var staðan
í hálfleik 2-1 fyrir gestina.
Eyjamenn voru með vindinn í
bakið í seinni hálfleik og sóttu af
miklum krafti. Tómas Ingi skor-
aði sitt annað mark í leiknum og
jafnaði metinn á 58. mín. Baráttan
hélt áfram með tilheyrandi pirr-
ingi leikmanna.
Umdeilt atvik átti sér stað und-
ir lok leiksins. Dæmd var auka-
spyrna á Eyjamenn á vallarhelm-
ingi Skagamanna. Pálmi Haralds-
son stillti boltanum upp, hugðist
láta Ólaf markvörð taka spyrnuna
og renndi knettinum til hans.
Tómas Ingi smeygði sér hinvseg-
ar inní sendinguna og renndi bolt-
anum í tómt markið við mikinn
fögnuð Eyjamann. Egill Már
Markússon, ágætur dómari leiks-
ins, dæmdi markið ekki gilt- taldi
spyrnuna ekki tekna á réttum
stað. ÍBV sótti stíft síðustu mínút-
LQKASTAPA SÍIVIADEILPAR
Lið Leikir u j T Mörk Stig
ÍA 18 11 3 4 29 16 35
fBV 18 11 3 4 23 15 35
FH 18 9 5 4 23 16 32
Grindavík 18 9 0 9 27 29 27
Fylkir 18 7 4 7 26 23 25
Keflavík 18 6 5 7 27 30 23
KR 18 6 4 8 16 20 22
Fram 18 6 2 10 28 28 20
Valur 18 5 4 9 19 26 19
Breiðablik 18 4 2 12 17 32 14
urnar enn Skagamenn vörðust vel
og tryggðu sér titilinn.
Spennan á botni deildarinnar
var ekki síður spennandi. Fram
þurfti að sigra í sínum leik og
varð að treysta á að Valur eða KR
töpuðu sínum. Safamýradrengirn-
ir voru líka ákveðnir í að skora
mörk og þurfti Gunnleifur Gunn-
leifsson markvörður Keflavíkur
að sækja knöttinn fimm sinnum í
netið. Keflavík skoraði einungis
þrjú og náði Fram því í þrjú stig.
KR-ingar mættu grimmir til
leiks í Grindavík líkt og heima-
menn. Leikurinn einkenndist af
mikilli baráttu en heimamenn
sóttu ívið meira. Sigurvin Ólafs-
son skoraði bæði mörk leiksins
fyrir Vestrubæinga, það fyrra á
10. mín og það seinna á lokamínút-
um leiksins. Aðdáendur KR liðs-
ins sem fjölmenntu í Grindavík
önduðu léttar enda úrvalsdeildar-
sætið tryggt.
Breiðablik mætti Valsmönnum
í Kópavogi og fór með sigur af
hólmi, þeirra fjórði sigur í deild-
inni. Ármann Smári Björnsson
skoraði fyrsta mark leiksins fyrir
Valsmenn en Kópavogsbúar vildu
enda veru sína í úrvalsdeildinni
með reisn og skoruðu tvö mörk á
síðasta fjórðungnum. Þorsteinn
Sveinsson með góðum skalla á 77.
mín og Hörður Bjarnason á 86.
mín. Valur spilar því með Breiða-
blik í 1. deild að ári.
FH lagði Fylki að velli með
tveimur mörkum gegn engu og
tryggðu Hafnfirðingar sér sæti í
Inter-Toto keppninni. ■
Toyota Corolla G6 árg. 2000
Grænn - ekinn 15 þús. - 6 gíra - 1600 vél -111 hö frábært
geislaspilari + 4 hátalarar - álfelgur - leðurstýri o.fl. ^PÚ!
■■
Tilboð: 1.200 þús. stgr. /*<
(Kostar 1,598 þús. nýr)
Upplýsingar i síma 6959522
Endurkoma í NBA:
Jordan svarar líklega í dag
körfuknattleikur Körfuknattleiks-
snillingurinn Michael Jordan mun
að öllum líkindum gefa svar um það
í dag eða á næstu dögum hvort
hann mæti á ný til leiks í NBA
deildina. Talið er að Jordan muni
senda svarið með símbréfi líkt og
hann gerði í mars árið 1995 þegar
hann sendi stuttorða tilkynningu
sem á stóð. „Ég er kominn aftur!“
Ef Jordan tekur skóna fram á ný
mun hann spila með Washington
Wizards en hann á hlut í liðinu.
Hvort sem svarið komi í dag eða á
næstu dögum er víst að það mun
koma fyrir 1. október þegar liðið
fer í æfingabúðir. Fyrir viku síðan
gaf Jordan það til kynna að hann
myndi koma aftur til leiks vegna
„ástar sinnar á íþróttinni," eins og
hann orðaði það. Orðrómurinn um
endurkomu leikmannsins hefur
MICHAEL JORDAN
Besti körfuknattleiks-
maður allra tíma gæti
verið á leið í NBA-
deildina á ný. Hann
mun þá spila með
Washington Wizard.
sett ákveðin svip á
skipulag liðsins. Þjálfari liðsins veit
til að mynda ekki hvort besti leik-
maður allra tíma verði með og gæti
endurkoma hans haft mikil áhirf á
miðasölu liðsins, sem hefur aðeins
selt 12.000 miða af þeim 20.000 sem
í boði eru. ■