Fréttablaðið - 24.09.2001, Page 17
MÁNUPAGUR 24. september 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
17
EÍCl^CKizlM
SWORDFISH
jCATS & DOGS m/ Islensku tali kiej^j
|PLANET OF THE APES kl 8 og 10.10[KI!|
HVERFISCOTU SIMI 551 9000
LAUGAVEGÍ 94. SIMI 551 6500
SIMI 555 2075
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15
jPLANET OF THE APES kl. 5.30, 8 og 10.301
iHEARTBREAKERS kl. 5.30, 8 og 10.30 [
Ihedwig kl. 6, 8ogl0|
/V ■T-ír f ; v - * _ K Ai 1
Sýnd kl 6 og 9 v„ 170
fCRAZY BEAUTIFUL kl. 6, 8 og 10|j“'Tí
IRUGARTS IN PARIS m/islensko tali 4 og
MSWORDFISH kl. 8 og lO.lojjy"!
ICATS & DOGS m/ íslenLkTtaTi ÍdTO
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
jHEARTBREAKERS kl. 5.30, 8 og 10.301
Jimmy Gulzar, fyrrverandi eigin-
maður uppáhalds kryddpíu
landsmanna, Mel B, hefur verið
kærður fyrir að líkamsárás á þrig-
gja ára barn. Atvikið átti sér stað í
dýragarði Lundúnarborgar, þar
sem hann var ásamt dóttur sinni,
en hann er sagður hafa í reiðiskasti
rifið þriggja ára strák af tívolítæki.
Gulzar neitar allri sök.
Bandaríksa rokksveitin The
Strokes, sem gagnrýnendur
halda ekki vatni yfir þessa dag-
anna, hefur tekið lagið „New York
City Cops“ af breiðskífu sinni „Is
This It?“ í kjölfar hryðjuverka-
árásarinnar. Lagið verður þó enn
að finna á evrópsku útgáfu plöt-
unnar en lagið, sem er fyrir lög-
regluna, þótti ekki lengur við hæfi
þar sem að lögreglan í New York
hefur staðið í ströngu síðustu
tvær vikur við uppbyggingu og
björgunarstarf.
Gatatonia hætt:
Söngkonan
í medferð
tónlist Plöturisinn Warners hefur
gefið út dánartilkynningu rokk-
hljómsveitarinnar Catatonia. í til-
kynningunni kemur fram að sam-
starfsslitin hafi farið fram í mesta
vinskap og að liðsmenn og kona
sveitarinnar hafi ekki ennþá gert
neinar ráðstafanir fyrir framtíðar-
verkefni. Cerys Matthews, söng-
kona og andlit sveitarinnar, var á
dögunum lögð inn á betrunarheim-
ili vegna „kvíða og ofþreytu" eftir
óhóflega neyslu áfengis og annara
vímugjafa. Catatonia starfaði í tíu
ár og gerði m.a. lögin „Road Race“
og „Mulder & Scully" vinsæl fyrir
nokkrum árum síðan. Sögusagnir
um samstarfserfiðleika innan
hljómsveitarinnar hófust eftir að
sveitin aflýsti tónleikaferðalagi til
þess að kynna nýútkomna breið-
skífu sína, Paper Scissor Stone, en
þá vísuðu talsmenn sveitarinnar
þeim frá sem „tómum þvætting". ■
ENSÍMI OG ÚLPA
Sýnið styrk í verki og þeir hækka styrkinn í hljóðkerfinu.
Styrkjum íslenska tónlist
Rokkhljómsveitirnar Ensími og Ulpa eru við það að leggja í kynningar-
ferð til Bandaríkjanna. Slíkt er dýrt spaug og því halda sveitirnar ijáröfl-
unartónleika á Gauk á Stöng í kvöld.
tónlist „Þetta eru styrktartónleik-
ar fyrir íslenska tónlist," segir
Franz Gunnarsson gítarleikari
Ensíma. Sveitirnar leggja í hann 3.
október og er ferðin m.a. hugsuð
sem kynning fyrir Airwaves tón-
listarhátíðina sem fer fram í
Reykjavík dagana 17. - 22. október.
„Hugmyndin kviknaði upphaflega
hjá manni sem heitir Túri, Nor-
maður sem býr í Bandaríkjunum.
Hann stakk upp á þessu á síðustu
Airwaves hátíð. Þetta var lengi á
teikniborðinu en það var ekki fyrr
en í sumar sem sú hugmynd kom
að blanda þessu saman við Airwa-
ves. Þegar það gerðist fór boltinn
að rúlla. Nú er búið að bóka allt og
við erum bara á leiðinni! Nú vant-
ar bara smá pening upp á til þess
að við getum leigt okkur hljóðfæri
og borðað þarna úti. Við spilum á
fjórum tónleikum í þremur borg-
um, New York, Washington og
Baltimore. Þarna ætlum við að
leika okkar tónlist fyrir stríðs-
hrjáða Ameríkubúa, og hugsan-
lega gefa blóð í leiðinni." Franz
segir að hryðjuverkaárásin hafi
sett svip sinn á ferðina þar sem
fimmtu tónleikarnir duttu út.
Hljómsveitunum til mikillar mæðu
þar sem þær áttu að leika á hinum
víðfræga tónleikastað CBGB’S. Sá
staður er nú lokaður þar sem hann
er staðsettur í suður hluta Man-
hattan. „Manni skilst að allir fánar
séu uppseldir. Það er víst engin
leið að fá fánann nema að prenta
hann út af Netinu. Við vonum að
við getum lyft Könunum aðeins
upp.“ Ensími hefur ekki gefið út
breiðskífu síðan síðla árs ‘99, en
síðan þá hafa þeir slitið samstarfi
sínu við Skífuna. „Við ætlum ekki
að koma með plötu fyrir jólin
núna. Við erum komnir í góða að-
stöðu til þess að vinna hana og ætl-
um að byrja strax eftir Airwaves-
hátíðina. Við stefnum að því að
gefa hana út á næsta ári. Eg veit
ekki alveg hvernig eða hvenær, en
hún mun koma.“ Útgáfa fyrstu
breiðskífu Úlpu, Culpa Me, sem
beðið hefur verið eftir í þónokkurn
tíma, er áætluð 12. október. Báðar
sveitir hyggjast leika nýtt efni á
Gauknum í kvöld en húsið opnar
um kl. 21.
biggi@frettabladid.is
( I N
Glæsilegir klefar
Sterkip og auðveldir í uppsetníngu.
82 x 82, 92 x 90 og 72x92.
VA TNSVJRKINN ehf.
Ármúla 21 Sími: 533 - 2020
__________________y
Útiljós Classica
úráli, IP 43.
Verð áður: 6.329 kr.
Æ-345 kr.l
Ljósadagar
15-50% afsláttur
Þrefaldur kastri
til í hvítu og gráu
Verð áður: 4.913 kr.
Einfaldur kastari
til í hvítu og svörtu
Verð áður: 1.645 kr.
Útiljós Derby
til í hvítu og svörtu, IP 54
Verð áður: 2.245 kr.
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
3.665 kr
1,295 kr.
1.695 kr.