Fréttablaðið - 24.09.2001, Page 23
?íbí wébrtotj*.*. >;
MÁNUDAGUR 24. september 2001
5IGUR ROS
„Einkennileg tilfinning þegar ókunnugt fólk gengur upp að manni úti á götu i útlöndum
og kannast við mann," segir Georg Hólm.
Sigur Rós sigrar heiminn:
Engan áhuga á að
verða frægir og ríkir
tónlist Sigur Rós, bjartasta von ís-
lenska tónlistariðnarins, spilaði á
laugardagskvöldið fyrir 1.200
manns í einum af virtasta tónlistar-
háskóla heimsins, Berklee College í
Boston. Tónleikarnir voru þeir
þriðju í röðinni af tólf tónleikum í
Ameríkutúr bandsins og var upp-
selt á þá tveimur dögum áður en
þeir fóru fram. Óhætt er að segja
að tónleikarnir hafi tekist einstak-
lega vel.
Á meðan hljómsveitin spilaði
var myndbandsupptökum sem
meðlimimir höfðu tekið upp varpað
á vegg fyrir aftan þá og jók það
óneitanlega stemmninguna í hús-
inu. Samspil myndanna, ljósa á
sviðinu og tónlistarinnar plús söng-
ur Jóns Þórs Birgissonar virkaði
mismunandi á áheyrendur. Sumir
klökknuðu, aðrir táruðust og enn
aðrir hölluðu aftur augunum og létu
sig dreyma um hvað það í ósköpun-
um það væri sem verið var að syn-
gja um.
Georg Hólm, bassaleikar glottir
út í annað þegar blaðamaður
Fréttablaðsins spyr hvort
hljómsveitin sé orðin heimsfræg.
„Það kemur fyrir að fólk í borgum
sem maður hefur aldrei komið til
áður spyrji mann hvort að maður sé
„ekki alveg örugglega" að spila
með Sigur Rós.“
Hljómsveitin hefur verið á nán-
ast stanslausu tónleikaferðalagi sl.
tvö ár en Georg segir að þeir félag-
ar séu ekki orðnir þreyttir á ferða-
laginu og á hver öðrum. „Við erum
allir svo góðir vinir."
Georg kannast ekki við það að
leiðin á toppinn sé vörðuð af stans-
lausum partýum, kynlífi með
súpermódelum og helling af pen-
ingum. „Nei, þetta er misskilning-
ur. Fólk heldur gjaman að það sé
mikill glamúr í kringum þetta en
eins og ég sé þetta þá erum við
mjög mikið að bíða eftir því að
komast á áfangastað, á meðan verið
er að gera klárt og eftir því að kom-
ast í sándtékk. Síðan þegar loksins
kemur að því að við förum að spila
þá er þetta gríðarlega mikil vinna
þar sem við leggjum okkur alla
fram við tónlistina," segir Georg og
er síðan fljótur að svara þegar hann
er spurður af því hvað þeir félagar
hyggjast fá út úr því að vera tónlist-
armenn.
„Við höfum engan áhuga á því að
verða frægir eða ríkir. Við ætlum
okkur fyrst og fremst að breyta
tónlistariðnaðinum og hvernig fólk
upplifir tónlist. Og við erum á góðri
leið með að gera það.“
omarr@frettabladid.is
ÁMAT
v/Nesvegi, Seltjarnarnesi,
sími 561 1680
Kringlunni, 2. hæð,
simi 588 1680
tiskuverslun
Hý og
glæsileg
scnding
af yfir-
höfnum!
unn
Toycita
Nissan
Range Rover Ford
Chevrolet
Simiki
Cherokee
JeepWillys
Land Rover
Musso
Isuzu
IC www.«tmJS!liSiplMt
ALLT PLAST
Kaanuvogl 17 • Slmi 588 6740
Framleiðum brettakanta, söskyggni ag txidöWuti é fleslar
einnigbodcftilutiívöitWaogvaiiMa. Séfsmði og
íeppa,
Drepur bæði lús og nit
Prioderm lúsasjampóið losar þig
og alla fjölskylduna við lús og nit
á fljótlegan og öruggan hátt.
Þú færð Prioderm [ næsta
apóteki án lyfseðíls.
y
T n * A * »K » k N Hf
Fnoderm (mateöitcm 100 m^g) drepur twtuðlús og nit.
TB að hindra eretursmit á að endurtaka meðferðéta eftir 1-2 wkur.
Berist fyfið í augu skal skotað «rxfiega með vatre. lyfið er ekki ætíað
bömum undtr 2ja ára aldri nema undir eftelití læknis. Þeir sem
eru oft i snertingu við Pnoderm skulu nota gánmí- eða
ptasthanska. Varúð - Geyirtst {w sem böm hvorkí ná til né sjá.
Líaðbemtfigar «n notkiai fyfgja hverri pakkningu tyfsins.
MUNUM!
Barn má aldrei vera í framsæti
bíls með örygglspúða, hvorki í
barnabílstól né í sætinu.
UMFERÐAR
ilPRAÐ j
^ skemmta
fiimntudagiim 27. september
og föstudaginn 28. september
Eftirminnilegir og frábærir skemmtikraftar
sem stanslaust kitla hláturtaugamar.
Leikhúskjallarinn • Hverfisgötu 19 • Sími 551-9636 *Fax 551-9300 •www.leikhuskjallarinn.is
Ki i fFir m wiJ-lÍiSiSí
If&íf 1 k 1 ilRK! ki lil 3