Fréttablaðið - 05.10.2001, Page 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
5. október 2001 FÖSTUDAGUR
RUGARTS IN PARIS
kl.6 BRIDGET JONES'S DIARY
FAST&THEFURIOUS
FRÍttTr AF FÓLKI I
HAGATORCI, SÍMI 530 1919
Þar sem allir salir eru stórir
Slúðurblöðin ytra halda því nú
stöðugt fram að söngkonan
Madonna hafi verið lögð inn á spít-
ala vegna kviðslits.
Talsmenn söngkon-
unnar segja að hún
hafi kíkt inn á spít-
ala eftir að tón-
leikaferðalagi
hennar um Banda-
rikin lauk, en það
hafi ekki verið af
þessum ástæðum
og hún sé við hestaheilsu. Það er að
frétta af stúlkunni núna að hún er
við tökur á endurgerð ítölsku ástar-
myndarinnar Swept Away, sem eig-
inmaður hennar Guy Ritchie leik-
stýrir.
Aldrei haft áhuga á gríni
Small Time Crooks er frumsýnd í dag í Sambíóum Álfabakka. Þetta
er þrítugasta kvikmynd Woody Allen í fullri lengd.
kvikmyndir Woody Allen er
reyndar búinn að gera nýja
mynd, The Curse of the Jade
Scorpion. Small Time Crooks var
frumsýnd í Bandaríkjunum 19.
maí í fyrra.
í myndinni leika Woody og
TVacey Ullman hjón. Hann er
Ray Winkler, fyrrum fangi með
stóra drauma. Hann starfar jafn-
an við diskauppþvott en er jafn-
an rekinn. Hún heitir Frenchy, er
handsnyrtir og á í fullu fangi
með að halda Ray niðri á jörð-
inni. Henni mistekst það þegar
honum dettur í hug að ræna
banka. Frenchy rekur smáköku-
búð við hliðina á bankanum til að
hylma yfir það að Ray og vinir
hans eru að grafa göng í bankann
í kjallaranum. Fljótlega rignir
yfir þau peningum en ekki úr
þeirri átt, sem þau bjuggust við.
Hugh Grant, Michael Rapaport,
Jon Lovitz og Elaine May leika
einnig í myndinni. Barbra
Streisand var upprunalega boðið
hlutverk Frenchy en hún neitaði.
Eins og venjulega tók Woody
upp á Manhattan. Þetta er ærsla-
full gamanmynd og finnst sum-
um skrýtið að sjá hann í hlut-
verki þjófsins. „Eg er takmark-
aður leikari, get bara leikið
aumkunarverða menn og
menntamenn. Það er mér eðlilegt
að leika þjófa og svindlara.
Einnig menntamenn vegna þess
að ég lít þannig út,“ sagði Woody
í viðtali um myndina. Þá var
hann ekki viss um að halda áfram
á léttum nótum í næstu myndum.
„Það fer eftir því hvaða hug-
mynd ég fæ næst. Ef ég fengi
góða hugmynd um Helgönguna
myndi ég nota hana.“
Woody horfir aldrei á mynd-
irnar sínar eftir frumsýningu.
„Það er satt. Ég hef ekki séð Take
the Money and Run síðan ég
gerði hana 1968. Mér myndi finn-
ast þær ömurlegar. Það slæma
myndi standa upp úr, öll mistök-
in, það sem ég hefði einu sinni
getað lagað. Að horfa á myndir
annarra er hinsvegar ánægju-
legt.“ Woody horfir heldur aldrei
á nýtt grín, t.d. South Park og
myndir Farelly bræðra. „Ég er
ekki hrifinn af markaðsvænum
myndum. Ég horfi sjaldan á
myndir og hef aldrei haft áhuga á
gríni, þó ég starfi við það. Ég hef
oft óskað þess að ég hefði hæfi-
leika Tennessee Williams eða
Arthur Miller í stað minna. Ég
hef gaman af alvörugefnu efni.
Ef ég sé mynd, leikrit eða les bók
vil ég það.“
Staða Allen í bandarískum
listum er sterk en hann segist
aldrei finna fyrir áhrifum sínum.
Hann segist vera minnst fyrir að
vanmeta áhorfendur. „Mér hefur
alltaf fundist áhorfendur vera
jafngáfaðir eða gáfaðri en ég. Ég
hef aldrei gert mynd, sem gerir
lítið úr þeim eða fullnægir ein-
hverjum, ímynduðum þörfum
þeirra. Ég ber virðingu fyrir
áhorfendum." ■
Sýnd kl. 5.45, 8, 10.15 og 12.15 Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.15
llSNTSHEGREAT kl 6,8oglo| |DOWNTOEARTH kll0ogl2j
WOODY í FENEYJUM
Nýjasta mynd hans, The Curse of the Jade Scorpion, var sýnd á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum á dögunum.
HÁSKÓLABÍÓ
HUGSADU STÓRT
kl. 3.45, 5.50, 8, 10.10 og 12.15 vm<9 kl. 3.45, 5.45, 8, 10.10 og 12.15 vrrin
|A.I. kLSogll jgTH ICATS&DOGSm/istlali kl4og6|
THECROWD 545,550,8,íaio0gl2Í5l gjl| SHREK m/ísLlali kL4 og6 |gHl
ÍSWORDFISH ‘ ’
HENCO
Álpex rör
»5*
Sérlega meðfærileg
rör til vatns- og
hitalagna.
Val um presstengi
eða skrúfuð tengi
^ VATNSVIRKINN ehf.
Ármúla 21, Simi: 533-2020
Stórmynd leikstjórans Martin
Scorsese Gangs of New York,
sem Leonardo DiCaprio fer með
aðalhlutverkið í,
verður líklegast
frestað yfir ára-
mótin. Astæðan er
sú að myndin er nú
| rúmlega 3 klukku-
stundir á lengd en
framleiðendur
myndarinnar hjá
Miramax vilja alls
ekki að myndin fari yfir tvo og
hálfan tíma á lengd. Þannig að nú
ert best að draga fram skærin.
Stúlknatríóið vinsæla Destiny’s
Child ætla að vera í jólaskapi í
ár því væntanleg er frá þeim jóla-
plata. Um er að ræða nýstárlegar
útgáfur af nokkrum af vinsælustu
jólalögum allra tíma. Platan heitir 8
days of Christmas og henni verður
m.a. hægt að heyra stúlkurnar syn-
gja lög á borð við „Jingle Bells“,
„Santa Claus is Coming to Town“
og „Frosty the Snowman".
Björk Guðmundsdóttir hefur nú
tilkynnt að næsta smáskífa
plötunnar Vespertine verði lagið
„Pagan Poetry".
Smáskífan kemur
út eftir mánuð, eða
þann 5. nóvember.
Myndbandið við
lagið vann hún
með Nick Knight,
| en hann er þekktur
| tískuljósmyndari
sem hefur m.a.
gert plötukápur fyrir Massive
Attack, Björk og David Bowie.
V
NABBI