Fréttablaðið - 05.10.2001, Síða 24
FRÉTTABLAÐ
SIMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20
VlÐ SECJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á 1fÍSÍi*-ÍS Fyrstur með fréttirnar
Aáctegáriu
?ZZÖ
Kr. 1090
Grensásvegur 10
Sími 553 88 33
m*,.:
H U SIÐ
ALLAR
nýjar spólur um helgina
á 350 kr.
STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR
Kort á góðum
kjörum
Nú er nýliðinn sá tími ársins sem
fólk flykkist í líkamsræktar-
stöðvarnar til að nýta sér gylliboð
þeirra um árskort á góðum kjörum.
Ég er ein þeirra sem fyllti þennan
flokk í ár. Upphæðin sem reiða þurfti
fram var vissulega allnokkur en ef á
það er litið að ég get gengið inn og út
úr líkamsræktarstöð frá því í logabít-
ið á morgnana og fram eftir öllu kvöl-
di f heilt ár þá tel ég mig hafa gert
sannkölluð reyfarakaup. Þarna eru í
boði allskyns tímar, allt frá brjálaðri
brennslu til tíma með andlegu ívafi.
Þá er ótalinn tækjasalurinn sem bíður
manns hvenær sem er og ekki síður
gufubað og pottur þar sem maður get-
ur flatmagað og látið sér líða vel.
—♦—
KYRRSETUFÓLK verður að hreyfa
sig, það er ljóst, og þess vegna ákvað
ég að fara út í þessa skynsamlegu
fjárfestingu sem líkamsræktarkortið
hlýtur að vera. Ég hélt því að vísu
lengi fram að líkamsrækt af þessu
tagi bæri vott um firringu. Nær væri
að ganga út í búð og í vinnuna í heil-
næmu útilofti en á sama stað á bretti
inni í húsi. í stað þess að lyfta lóðum
lyfti maður ungviði sínu svo ekki sé
minnst á innkaupapokana. Nú hef ég
hins vegar beygt mig undir líkams-
ræktarstöðvamenninguna. Ég á ekki
ungviði lengur til að iyfta og heimilis-
kettirnir taka ekkert í. Þess vegna
ætla ég að fara að stunda líkamsrækt.
—♦—'
EINU SINNI ÁÐUR hef ég átt lík-
amsræktarkort. Þetta var fyrir
nokkrum árum og var líka árskort
sem ég fékk á góðum kjörum. Gallinn
var bara sá að þrátt fyrir allt urðu
kjörin ekki svo góð þegar upp var
staðið. Mér reiknast nefnilega til að
hver ferð mín í líkamsræktarstöðina
um árið hafi kostað um 2.500 krónur.
Þessar ferðir voru vissulega bæði
ánægjulegar og gagnlegar en kannski
ekki alveg svona mikils virði.
—♦—
AÐ ÞESSU SINNI hef ég ákveðið
að láta fyrri reynslu mér að kenningu
verða og láta góð kjör að minnsta
kosti ekki verða vond. Þegar ég fer í
líkamsræktarstöðina í kvöld verður
hver tími kominn niður í 7.300 krónur.
Þannig ætla ég að halda áfram að
telja sjálfri mér til aðhalds fram í
septemberbyrjun á næsta ári þegar
kortið rennur út. Eina spurningin er
hvernig mér skyldi ganga að finna
tíma til að fara í stöðina, ég sem hef
hvorki tíma til að ganga í vinnuna né
út í búð! ■
Kynningarverd á Hversdagsís
í 1 lítra umbúðum!
Féðu þér Hversdagsís með jarðarberja-,
súkkulaði-, vanillu- eða karamellubragði
HUERSDAGSIS - góður aila daga!
Hvað sem þú kaupir
- þá verdur það ódýrt!