Fréttablaðið - 08.01.2002, Síða 4
FRETTABLAÐIÐ
8. janúar 2002 ÞRIÐIUPAGUR
SVONA ERUM VIÐ
AFLAVERÐMÆTI
sjAvarútvecsfyri RTÆKJA
Nasdaq og Dow Jones:
Ellefu fiskiskip Samherja voru með um
6.500 milljóna aflaverðmæti árið 2001 og
var akureyrska félagið í sérflokki eins og
nokkur undanfarin ár. Aflaverðmæti sjö
stærstu sjávarútvégsfyrirtækjanna var um
26 milljarðar.
(Upphæðir i milljónum króna )
Stöðug hækkun frá
septembermánuði
Samherji 6.500
Þorbjörn F. 3.800
Þormóður R. 3.600
HB 2.800
Grandi 2.500
ÚA 2.000
Síldarvinnsian 1.900
Gunnvör 1.900
Hraðfr. Esk. 1.500
HEIMILD: BÚNAÐARBANKINN
markaðir Næstkomandi fimmtu-
dag er von á tölum frá helstu
verslanakeðjum í Bandaríkjun-
um um jólasöluna í desember
sem margir sérfræðingar á Wall
Street búast við ráði miklu um
hvort framhald verði á stöðugri
hækkun hlutabréfavísitalna að
undanförnu. Frá 21. september
sl. hefur Nasdaq-vísitalan hækk-
að um 45% og Dow Jones um
fjórðung eftir lækkun á árinu
2001 fram yfir hryðjuverkin 11.
september. Fjárfestar munu ein-
nig horfa til þess að nú styttist í
uppgjör fyrirtækja fyrir síðasta
ársfjórðung og eru því væntan-
legar afkomuviðvaranir frá þeim
ÞRÓUN NASDAQ
SÍÐSTU SJÖ MÁNUÐI:
Júlí 2200
Ágúst 2100
September 1800
Október 1400
Nóvember 1700
Desember 1900
Janúar 2050
fyrirtækjum sem sjá fram á að
áætlanir gangi ekki upp.
Vikulegar tölur hafa sýnt
nokkru meiri neyslu fyrir jólin
en verslanir bjuggust við, en
talið er að Wall Street taki meira
mark á opinberum tölum. Meiri
jólasala gæti skýrst af því að
óvenju mikið var um að verslanir
byðu afsláttarkjör í desember. Þá
hafa opinberar tölur um minnk-
KAUPHÖLLIN i NEW YORK
Hlutabréf í Kmart, stærstu verslanakeðju
heims, skipta um hendur. Eitt ráðgjafafyrir-
tæki hefur lækkað mat sitt á félaginu úr
„halda" í „selja."
andi vöxt atvinnuleysis glætt
vonir um að hagkerfið nái að
rétta úr kútnum. Atvinnuleysis-
hlutfallið var 5,8% í desember og
hafði aukist um 0,2% frá fyrri
mánuði. ■
Margfalda kaupið
í heimalandinu
Hlutfall erlendra ríkisborgara er hæst á Tálknafirði. Flestir eru frá
Póllandi og sambúðin við heimamenn gengur vel. Erlenda vinnuaflið
fær borgað í þeim gjaldmiðli sem það kýs.
Samkeppnispróf lækna-
deildar:
Einkunnir
góðcir
NÁM Birtar hafa verið niðurstöð-
ur samkeppnisprófs læknadeild-
ar, en fjörutíu efstu nemendurn-
ir fá að halda námi sínu áfram
við deildina. Samkvæmt Krist-
jáni Erlendssyni, kennslustjóra,
voru einkunnir góðar í ár. Um
173 nemendur þreyttu prófið en
aðeins 40 fá að halda námi
áfram. Það væri því ljóst að
margir góðir nemendur þyrftu
að reyna aftur til að fá inngöngu.
Sá fjöldi, sem fær að halda
áfram, hefur verið að aukast
undanfarin tvö ár, en áður var
miðað við 36 nemendur. Kristján
segir stefnt að því að fjölga
læknanemum enn frekar á næstu
árum.
Aðspurður hvort einhverjar
athugasemdir hefðu komið sagði
Kristján að nemendur hefðu rétt
á að láta fara yfir prófið aftur og
rökstyðja mál sitt, ef þeim þykir
eitthvað mætti betur fara við
einkunnagjöf. Komi til þess að
einkunn hækki þá er þeim nem-
anda bætt við þann hóp sem áður
náði prófinu þannig að enginn,
sem nú hefur náð, fellur út. ■
1 LÖGRECLUFRÉTTIR [
Rúða var brotin á pitsastaðn-
um Eldsmiðjunni á Braga-
götu um hálfimm í fyrrinótt.
Þjófavarnarkerfi fór í gang og
samfélag „Flestir eru hér að vinna
í fiski,“ segir Pétur Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Hraðfrysti-
húss Tálknafjarðar, um hátt hlut-
fall erlendra ríkisborgara á
Tálknafirði. Hann segir flesta
vera frá Póllandi og eins frá
Portúgal. „Svo frá ýmsum lönd-
um.“
Samkvæmt tölum frá Hagstof-
unni eru tæp 20 prósent allra íbúa
á Tálknafirði með erlendan ríkis-
borgararétt. Pétur segir að það
hafi verið lítið um að fólkið sæki
um íslenskan ríkisborgararétt
ekki nema þeir sem hafi gifst ís-
lendingum.
„Það eru sumir sem eru búnir
að vera hér í mörg ár og allt upp í
tíu til tólf ár,“ segir Pétur. Fólk
dvelji hér mestanpart ársins og
heimsæki kannski heimalandið í
stuttan tíma á hverju ári. Jafnvel
kemur einn fjölskyldumeðlimur á
undan öðrum og kannar aðstæður.
Ef fleiri úr fjölskyldunni vilja
koma segir Pétur að það fólk fái
forgang til vinnu ef aðrir eru dug-
legir.
Pétur segist auðvitað ekki
fylgjast með hvað fólkið geri við
kaupið sitt en veit af því að það
sendir heim peninga. „Fólkið fær
útborgað í dollurum, pundum eða
þeim gjaldmiðli sem það kýs og
selur í heimalandinu. Þannig
margfaldar það kaupið sitt sem
það fær hér á landi.“
Pétur segir allt þetta fólk sam-
lagast þessu litla samfélagi vel og
FISKVINNSLUFÓLK
Útlendingar halda víða um land uppi
öflugri starfsemi fiskvinnslufyrirtækja með
vinnuafli sínu.
engir árekstrar séu á milli manna.
Kaþólskur prestur komi reglulega
að sunnan til að spjalla við þá sem
það vilja en annars sæki allir þær
samkomur sem haldnar eru í bæn-
um. „Fólkið er afskaplega reglu-
samt og vinnusamt. Það kemur til
að vinna og þéna peninga og halda
svo heim til að kaupa íbúð og bíl
eftir ákveðinn tíma.“ ■
Vandi Kirkjugarða
Hafnarfjarðar óleystur:
Uppi-
skroppa með
legstaði eftir
tvö ár
sveitarstjórnir Skipulagsnefnd
kirkjugarða vill að bæjarstjórn
Hafnarfjarðar beiti sér fyrir því
að fjölgun grafarstæða hjá Kirkju-
görðum Hafnarfjarðar verði flýtt.
Fréttablaðið hefur áður greint
frá því að Kirkjugarðar Hafnar-
fjarðar vilja útiloka þá sem ekki
eru búsettir í bænum frá því að
vera greftraðir þar. Skipulags-
nefndin segir sér ekki vera heimilt
að veita slíka heimild því lögum
samkvæmt eigi menn rétt til leg-
staðar þar sem þeir óska. Kirkju-
garðsstjórnin geti þó fengið heim-
ild til lokunar hjá dóms- og kirkju-
málaráðneytinu að fenginni um-
sögn nefndarinnar.
í erindi til bæjarstjórnar segir
skipulagsnefndin að gengið hafi
hraðar á legstæði í garðinum en
búist var við og að mikið sé um
greftranir fólks sem ekki eigi lög-
heimili í Hafnarfirði. „í mörgum
tilfellum má reikna með að þetta
fólk hafi einhvern tíma átt lög-
heimili í Hafnarfirði eða hafi
sterkar taugar til bæjarins," segir
skipulagsnefndin og bendir á að
verði ekki gripið til aðgerða verði
öll nýgrafarsvæði að fullu frátekin
innan tveggja til þriggja ára. Til að
forða því að koma þurfi til kasta
nefndarinnar eða ráðuneytisins
verði Hafnarfjarðarbær að upp-
fylla lagaskyldur sínar og hraða
framkvæmdum við ný grafar-
stæði. ■
vegiaranui sa inann a narua-
hlaupum frá staðnum með þung-
an svartan plastpoka. Tólf eða
þrettán eins líters bjórflöskum
hafði verið stolið en ekkert hef-
ur spurst til þjófsins.
Brotist var inn á heimili við
Grjótaþorp á sunnudags-
kvöld á meðan húsráðendur
brugðu sér af bæ. íbúarnir telja
að stolið hafi verið hljómflutn-
ingstækjum, tölvu, myndavélum
og sjónvarpi að verðmæti 700 til
800 þúsund krónur.
HLUTFALL erlendra
ríkisborgara af íbúum
T álknafjarðarhreppur /8.80%
Skeggjastaðahreppur 16.23%
Ásahreppur 11.03%
Þórshafnarhreppur 9.840/0
Hrunamannahreppur 8.56%
Gerðahreppur 8.29%
Hvolhreppur 8.20%
Eyrarsveit 7.80%
Raufarhafnarhreppur 7.65%
Austur-Landeyjahreppur 7.43%
Breiðdalshreppur 6.91%
HEIMILD: HAGSTOFA jSLANDS 2001
Þorrinn í fjöilunum
Nesbúð á Nesjavöll■
um er sta&urinn
fyrir þorrablótin.
• Hin landsþekktu
þorrahlaðborð Jóru.
• Gistirými fyrir 120 manns
• Heitir pottar úti við
• Mikil náttúrufegurð
I
• Sérstakt tilboð á þorramat
og gistingu
Vslkomin í U; w
j y
r i r' r ' I r~ ■
•J
Nesbúð, Nesjavöllum,
Sím i: 482 3415.
Bandarísk rannsókn:
Andlitin koma
upp um lygara
INPIANAPOLIS.AP Myndavél með sér-
stökum hitaskynjara sem sér-
hönnuð er til að rannsaka andlit
fólks hefur tekist að greina í sund-
ur lygara frá heiðarlegu fólki, að
því er kemur fram í niðurstöðum
nýlegrar rannsóknar. Vonast er til
að hægt verði að nota tæknina til
að koma auga á hugsanlega
hryðjuverkamenn á flugvöllum.
Hjá sex manns af þeim átta sem
tóku þátt í rannsókninni og lugu að
vísindamönnum, tókst myndavél-
inni að greina örlítinn roða í kring-
um augu þeirra. Segja vísinda-
mennirnir sem framkvæmdu
rannsóknina að þessar upplýsing-
ar sýni fram á lygar hjá fólki og
bæta þeir því við að slík tækni geti
komið að góðum notum bæði á
flugvöllum og við landamæra-
vörslu. Aðrir vísindamenn hafa
dregið í efa niðurstöður rannsókn-
arinnar þar sem aðeins 8 manns
tóku þátt í henni. Samt sem áður
taka þeir margir hverjir fram að
niðurstöðurnar séu áhugaverðar,
en þörf sé á frekari rannsóknum
til að renna styrkari stoðum undir
þær. ■
SKYNJARINN
Myndavélin með hitaskynjaranum
gat komið auga á lygara í rannsókninni.
Sá sem er á myndinni var spurður hvort
hann hefði stolið 20 dollara peningaseðli.
Neðri myndin sýnir andlit hans eftir að
hann laug. Útdrættir augnanna eru sýndir
með hvítum lit.