Fréttablaðið - 08.01.2002, Page 10
10
FRÉTTABLAÐIÐ
8. janúar 2002 ÞRIÐJUPAGUR
FRÉTTABLAÐÍÐ
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson
og Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsimi: 515 75 00
Sfmbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Simbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: IP-prentþjónustan ehf.
Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Visir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og I gagnabönkum
án endurgjalds.
1 LÖGREGLUFRÉTTIR ~[
23 gamall maður, sem fannst
blautur og kaldur utan við
fyrirtæki við Ægisgarð í Reykja-
vík klukkan ellefu í gæmorgun,
var fluttur með sjúkrabíl á spít-
ala. Talið er að hann hafi farið í
sjóinn.
——
Jeppabifreið fór út af Hval-
fjarðarvegi á sunnudag. Talið
er að bifreiðin sem var með
hestakerru í eftirdragi hafi fokið
út af en mjög hvasst var um
þetta leyti. Engin slys urðu á
fólki en bæði bíllinn og kerran
skemmdust mikið.
-- JAFNVÆGl ---
INNRA SEM YTRA
Byrjendanámskeið
með Helgu Mogensen.
5 vikna námskeið
haidið þríðjudaga og fimmtudaga
kl. 17:30 að Dugguvogi 12.
Fyrsti tíminn þríðjudaginn 8. janúar.
Upplýsingar í síma 699 6287.
Túrbínu-
þjónusta
Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík
Sími: 577 4500
velaland@velaland.is
VELALAIMDl®
VÉLASALA • TÚHBIWUR
VARAHLUTIR • VIÐGERJ3IR
r
Þörffyrir Björn
/'’Vðum styttist í að sjálfstæðis-
Umenn í Reykjavík tilkynni að
viðhaft verði svokallað leiðtoga-
prófkjör. Þar með eru öll teikn á
lofti um að Björn Bjarnason
—4— menntamálaráð-
Það er einmitt
herra verði ekki í
það sem vant- framboðÍ við borg-
ar hjá sjálf- arstjornarkosmng-
arnar i vor. Því mið-
Þetta er ekki
einungis sagt vegna
þess að borgin geti
ekki án Björns ver-
ið. Þetta er frekar
sagt hér vegna þess að hann er
líklegastur, þeirra sjálfstæðis-
manna sem hafa verið nefndir
sem væntanlegir leiðtogar flokks-
ins í borginni, til að geta hleypt
stæðismönn-
um - sterkur
og óumdeild-
ur foringi.
—-
fjöri og kappi í kosningslaginn.
Fátt bendir til að Inga Jóna
Þórðardóttir, Júlíus Vífill Ingv-
arsson eða Eyþór Arnalds geti
unnið sigur á Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur. Og alls ekki er víst að
Björn Bjarnason geti sigrað borg-
arstjórann. Með fullri virðingu
fyrir hinum þremur er Björn
Bjarnason þeim fremri. Ef hann
leiðir listann og berst við Ingi-
björgu Sólrúnu mun kosninga-
slagurinn í borginni verða óhemju
fjörugur og spennandi. Hversu
illa hefur gengið að ákveða með
hvaða hætti valið verður á listann
er merki um hversu erfitt er að
ráða fram úr málum og ekki síst
er það merki þess að ekki er búist
við að neinn af núverandi borgar-
Mál.manna
Sigurjón M. Egilsson
skrifar um kosningar
fulltrúum eigi möguleika á að
leiða listann til sigurs.
Ekki eru vandræði minni hjá
Reykjavíkurlistanum. Það hefur
bara minna að segja - þeir hafa
Ingibjörgu Sólrúnu og þess vegna
skiptir minna máli hverjir skipa
hin sætin.
Það er einmitt það sem vantar
hjá sjálfstæðismönnum - sterkur
og óumdeildur foringi. Takist
stóru framboðunum í Reykjavík
ekki vel upp þá opna þeir leið fyr-
ir nýtt framboð - og kannski yrði
það borginni fyrir bestu að mynd-
uð verði samsteypustjórn. Því
miður virðist bíða okkar hundleið-
ing kosningabarátta þar sem tek-
ist verður á um reikningsskil - en
ekki borgina sem við lifum í og
þykir vænt um. Því getur Björn
Bjarnason breytt. ■
FRÉTTASKÝRING
Stefna að
yfirráðum
yfir Islands-
banka
Jón Asgeir Jóhannesson og Þorsteinn Már Bald-
vinsson hafa aukið hlut sinn í bankanum veru-
lega. Gunnar Jónsson, lögmaður Orca-hópsins,
staðfestir tilvist tilboðsins sem Jón Ásgeir Jó-
hannesson sagðist ekki kannast við.
Í5LANDSBANKI Jón Ásgeir Jóhannes-
son, forstjóri Baugs, og Þorsteinn
Már Baldvinsson, forstjóri Sam-
herja, tveir meðlima ORCA-hóps-
.._____ ins, hafa á undan-
Skiljamáaf förnurn mánuði auk-
viðbrögðum jf hlut sinn i íslands-
Jónsað hann £auka Veru!ega-
, . A Þeir raða nu hvor
sé osattur við sínum 6,87% hlut í
að vera skuld- gegnum FBA Hold.
bundinn af jng 0g sjtja auk
fyrirætlunum þess 5ddjr j stjórn
þeirra Jóns Tryggingamiðstöðv-
Ásgeirs og arinnar sem fjár-
Þorsteins Más. festi fyrir 1.200
milljónir í bankan-
um í byrjun desember sl. Þegar við
bætast tvö eignarhaldsfélög, Lant-
is Ltd. og Fjárfar ehf. má ætla að
þeir ráði yfir um 20% af hlutafé
bankans með beinum hætti.
Það rennir stoðum undir að Jón
Ásgeir og Þorsteinn Már ætli sér
yfirráð í bankanum þegar nýtt
bankaráð verður kosið á aðalfundi í
vor að sá fyrrnefndi hefur neitað
því að tilboð liggi fyrir frá erlend-
um aðila í allan hlut ORCA-hópsins
í bankanum. Þorsteinn Már hefur
kosið að tjá sig ekki um málið.
„Ég veit ekki hvernig stendur á
því,“ sagði Gunnar Jónsson, lög-
maður ORCA-hópsins, þegar hann
var spurður um ástæðu þess að
hann og Jón Ásgeir gerðust tví-
saga. Haft var eftir Jóni Ásgeiri í
Morgunblaðinu sl. laugardag að
ekkert tilboð hefði borist, honum
vitanlega.
„Það eina sem ég
get sagt er að mér
barst tilboðið
sunnudaginn 30.
desember og sendi
öllum það sama
kvöld, þar á meðal
Jóni Ásgeiri.“
Gunnar segist hafa
verið í sambandi
við alla innan hóps-
ins undanfarna
daga, þ.e. Jón Ás-
geir, Jón Ólafsson,
Þorstein Má Bald-
vinsson og Eyjólf
Sveinsson, en tók
fram að hann gæti
JÓN ÁSGEIR
Dúkur, Gaumur,
Fjárfar, FBA Hold-
ing SA og Baugur
eru meðal þeirra
félaga sem hann
kemur að Is-
landsbanka í
gegnum.
Jy íT't^tS i| liBffl
lá flgl
ekki svarað til um meinta óeiningu
eða jafnvel uppgjör þeirra á meðal.
„Ég hef haft mjög lítil afskipti af
hópnum hingað til.“ Gunnar segir
að tilboðið sé ekki háð þröngum
tímamörkum, og því enn í gildi.
Komið hefur fram í blaðinu að
Jón Ólafsson vilji selja sinn hlut,
enda sé tilboðið
hærra en núver-
andi markaðsvirði
bréfa í bankanum.
Gengi bankans var
við lok viðskipta í
gær 4,40 krónur,
en Jón fullyrti að
sölugengi bréf-
anna samkvæmt
tilboðinu væri mun
hærra. Skilja má
af viðbrögðum
Jóns að hann sé
ósáttur við að vera
skuldbundinn af
fyrirætlunum þeir-
ra Jóns Ásgeirs og
ÞORSTEINN
MÁR
FBA Holding SA ,
Samherji, Kald-
bakur og KEA eru
þeir hluthafar
sem hann sækir
m.a. styrk sinn til
innan íslands-
banka.
Þorsteins Más, en eign Jóns í
íslandsbanka er bundin innan
ORCA þar sem þeir Jón Ásgeir og
Þorsteinn fara nú með meirihluta.
ORCA-hópurinn hefur nú þrjú
stjórnarsæti í íslandsbanka.
Auk ofangreindrar eignar þeir-
ra í íslandsbanka er talið víst að
Þorsteinn Már hafi ítök í bankan-
um í gegnum Kaldbak, Samherja
og KEA og Jón Ásgeir í gegnum
Dúk, Gaum og Baug - auk þess sem
þeir eru báðir sterkir innan 'l'rygg;
ingamiðstöðvarinnar. Einnig hafi
þeir stuðning ýmissa annarra hlut-
hafa, þar á meðal Ilagkaupsfjöl-
skyldunnar, Saxhóls, eignarhalds-
félag Nóatúnsfeðga, og fjárfestin-
garfélag þeirra Hannesar
Smárasonar og Kára Stefánssonar
í deCODE. Með því að fylkja smær-
ri hluthöfum á bak við þau
hlutabréf sem Jón Ásgeir og
Þorsteinn Már greiða atkvæði
fyrir ætti þeim að verða fært að ná
yfirráðum í bankanum.
Framboð Sjálfstæðisflokks í Reykjavík:
Margir spá leiðtogaprófkjöri
framboðsmAi Vonir standa til
að skýrist á fimmtudag hvernig
stillt verður upp á framboðslista
sjálfstæðismanna fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar í vor, en þá
er fyrirhugaður fundur í fulltrúa-
ráði flokksins í Reykjavík. Telja
margir að fyrir valinu verði svo-
kallað leiðtogaprófkjör þar sem
kosið verði um hver skuli leiða
listann, en að öðru leyti raði kjör-
nefnd á listann. Tillaga fulltrúa-
ráðsins verður svo lögð fyrir kjör-
dæmisþing flokksins undir lok
mánaðarins.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
bogarfulltrúi, segist í gegnum tíð-
ina hafa verið hlynntur almennu
og opnu prófkjöri, en að þessu
sinni sé hann hlynntari leiðtoga-
prófkjöri. Hann hefur lýst yfir
stuðningi við Ingu Jónu Þórðar-
dóttur, oddvita sjálfstæðismanna í
borginni. Undir sjónarmið Vil-
hjálms um leiðtogaprófkjör tekur
Jóna Gróa Sigurðardóttir. „Ég
held það kunni að vera ákveðin
prófkjörsþreyta í gangi í flokks-
mönnum,“ sagði hún og benti á að
undanfarin 20 ár hafi alltaf verið
prófkjör utan kosninganna árið
1990. Sjálf sagðist Jóna Gróa ekki
vera búin að gera upp við sig
hvort hún bjóði sig fram áfram.
„Mér finnst nú alltaf gaman að
vinna að borgarmálunum en er
enn alveg róleg yfir þessu. Ef það
er þröngt um og góðir menn í boði
er ég alveg til í að draga mig til
baka,“ sagði hún og vildi bíða með
að lýsa yfir stuðningi við einhvern
einn þar til öll framboð væru
komin fram. ■
JÓNA GRÓA SIGURÐARDÓTTIR
Jóna Gróa fagna spennu í framboðsmálum
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og segir að
listi flokksins fyrir síðustu kosningar hafa
verið tilbúinn full snemma.