Fréttablaðið - 08.01.2002, Page 11
FRÉTTABLAÐIÐ
11
PRIÐJUPAGUR 8. janúar 2002
Deila Indverja og Pakistana:
Enn skipst á skotum
ISLAMABAD. NÝJA-PEIHÍ. AP Skipst
var á skotum á landamærum Ind-
lands og Pakistans í gær og þrátt
fyrir tilraun Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, til að miðla
málum á för sinni til ríkjanna
þykir deilan ekki hafa tekið á sig
friðsamlegri blæ á undanförnum
dögum.
Á fréttamannafundi að lokn-
um fundi hans með Blair sagði
Pervez Musharraf, forseti
Pakistans, pakistönsk stjórnvöld
hafna hryðjuverkum og undan-
skildi ekki aðskilnaðarsinna í
Kasmír og boðaði hertar aðgerðir
gegn öfgamönnum. Blair fagnaði
yfirlýsingu Musharrafs og sagði
hana skýr skilaboð til hryðju-
verkamanna um að þeir gætu
hvergi leitað öryggis eða stuðn-
ings. Dýpra var á viðbrögðum
Indverja en þeir höfðu skömmu
fyrir fund Blair og Musharrafs
gagnrýnt Pakistana harkalega
fyrir að ganga ekki nógu hart
fram í að handtaka einstaklinga
sem tengjast hryðjuverkastarf-
semi. Jaswant Singh, utanríkis-
ráðherra Indlands, sagði til dæm-
is enga ástæðu til að hefja við-
ræður við Pakistani fyrr en hug-
arfarsbreytingar hefði orðið
vart. ■
BLAIR OG MUSHARRAF
Musharraf fordæmdi hryðjuverk en óvíst er hvort það dugi Indverjum.
plast í einangrun
Steinull mest notuð til einangrunar nú orðið. Viðurlögum er sjaldan
beitt sé brotið gegn byggingarreglugerð. Tveggja sentimetra múrhúð
þarf að vera yfir einangrunarefni úr plasti þar sem það er notað.
HÚSNÆÐI Að sögn Jóns Sigurjóns-
sonar, verkfræðings hjá Rann-
sóknarstofnun byggingariðnaðar-
ins, er langalgengast í dag að fólk
noti steinull til einangrunar, en
hún brennur ekki. „Flestir vita að
plastefnið polystyren, [það sem
var í lofti íbúðarinnar á Þing-
eyri], brennur eins og bíldekk
með miklum reyk og tilheyrandi
vandamálum," segir Jón. Sam-
kvæmt byggingarreglugerð frá
árinu 1998 er bannað að nota
plastefni til einangrunar nema
það sé múrhúðað með 2 sm múr-
húðun. Jón segir hins vegar að
viðurlögum sé mjög sjaldan beitt
sé brotið gegn byggingarreglu-
gerð. „Það sem er hættulegast í
þessu er þegar fólk er sjálft að
gera einhverjar breytingar án
þess að leita eftir upplýsingum.
En það er mín tilfinning að síðan
Steinullarverksmiðjan á Sauðár-
króki tók til starfa á níunda ára-
tugnum sé steinull langalgeng-
asta einangrunin."
Starfsmaður Timbursölu
Húsasmiðjunnar sagði í samtali
við Fréttablaðið að starfsmenn
þeirra verði töluvert varir við að
fólk sé að breyta eigin húsnæði.
Hann sagði að þeir bentu fólki
ávallt á hvaða einangrunarefni
ætti að nota, ef fólk spyrði ráða.
Stundum kæmust starfsmenn að
því að fólk ætlaði sér að nota
plastefni til einangrunar í loft og
þá bentu þeir fólki á það að slíkt
væri ólöglegt. Starfsmaðurinn
sagði oft best að eiga við kunn-
áttulítið fólk, það spyrði meira.
Það væri hins vegar ekki á könnu
starfsmanna að vera að yfirheyra
fólk um hvað það ætlaði sér að
gera við efni sem það væri að
kaupa. Starfsmenn vísuðu fólki
líka til byggingarfulltrúa ef ein-
hver vafaatriði kæmu upp, eða ef
kaupendur drægju í efa orð þeir-
ra.
Jón bendir á að ef plastefni séu
notuð á viðeigandi hátt til ein-
angrunar þá fylgi þeim engin
vandamál. Hins vegar sé mikil
hætta á ferð þegar það sé notað
vitlaust, eins og dæmin sanna. ■
BYGGINGAFRAMKVÆMDIR i GRAFARVOGI
Mesta eftirlitið með nýbyggingum er þangað til farið er að ganga frá þeim að innan segir Jón Sigurjónsson, verkfræðingur hjá Rannsókn-
arstofnun byggingariðnaðarins.
Bannað að nota
EFTIRSÓTTUR BANKl
Forstjórar Baugs og Samherja virðast vera að
komast nærri yfirráðum í íslandsbanka með
miklum kaupum á hlutafé í nafni ýmissa fé-
laga.
Aðrir hluthafar í bankanum virð-
ast ekki hafa náð að fylgjast með
gangi mála. „Mér sýnist sem þetta
siiúist um uppgjör í ORCA-hópn-
um“, sagði einn viðmælandi Frétta-
bíaðsins úr röðum annarra helstu
hluthafa og kvaðst óviss um hvort í
raun og veru væri um það að ræða
að eitthvert tilboð hefði borist. „Ég
hef engan rætt við sem hefur séð
tilboðið," sagði hann.
Innan ORCA-hópsins standa nú
örð Gunnars Jónssonar, hrl., og
Jóns Ólafssonar gegn orðum Jóns
Ásgeirs, en athygli vekur að Þor-
steinn Már hefur valið þann kost að
tjá sig ekki með nokkrum hætti um
m'álið.
matti@frettabladid.is
binni@frettabladid.is
45 banaslys í brunum á 24 árum:
Lægra hlutfall en í nágrannalöndum
brunar 45 manns létust í brunum
á Islandi á tímabilinu frá árinu
1979 til dagsins í dag. Það sam-
svarar því að 1,9 hafi látist að
meðaltali árlega. Ef banaslys eru
miðuð við íbúafjölda er meðaltal
tímabilsins 0,87 manns á hverja
100.000 íbúa.
Að sögn Guðmundar Gunnars-
sonar, lögfræðings Brunamála-
stofnunar, er þetta með því lægsta
sem gerist ef miðað er við ná-
grannalöndin. Guðmundur segii;
skýringu þessa vera margþætta. í
fyrsta lagi sé betri frágangur á
raflögnum hér á landi en annars
staðar, hér verði heldur ekki
brunatjón út frá kyndingu vegna
þess að hér á landi er kynt með
heitu vatni, einnig hafi ekki orðið
neinir stórbrunar á gististöðum
hér á landi allan þennan tíma sem
tölurnar ná yfir. Húsnæði sé ein-
nig almennt betra hér á landi en
gengur og gerist í nágrannalönd-
um, það sé minna og steypa aðal
byggingarefnið.
I skýrslu sem Guðmundur tók
saman á síðasta ári kemur í ljós að
manntjón á hverja 100 þúsund
íbúa er með því lægsta sem gerist
hér á landi. Á árunum 1994-1996
létust að meðaltali 0,75 árlega.
Einungis Svisslendingar koma
Skipting banaslysa i brunum
eftir notkun húsnæðis
Fangelsi 2,2%
Verbúð 2,2%
Iðnaður 2,2%
Sjúkrahús 6,7%
íbúðir 86,7%
betur út úr því tímabili með 0,55
dauðsföll á hverja 100 þúsund
íbúa. Meðaltal Norðurlanda í þeim
samanburði var 1,67 mannslíf á
hverja 100 þúsund íbúa sem sam-
svarar því að 2,5 mannslíf til við-
bótar myndu tapast í brunum hér
á landi árlega ef íslendingar væru
með sama meðaltal á þann íbúa-
fjölda.
í skýrslunni er dreifing slysa á
árið og vikudaga skoðuð á tímabil-
inu 1979-99. Þá sést að flest slysin
verða í skammdeginu. Þeim fer
fækkandi að sumri en fjölgar síð-
an að nýju með haustdögum. Aft-
ur fækkar þeim í nóvember og
desember. Mun fleiri slys eiga sér
síðan stað um helgar en á virkum
dögum. Langflest banaslys eiga
sér stað í íbúðarhúsnæði, eða nær
90% slysa.
sigridur@frettabladid.is
Áfall fyrir Microsoft:
Réttarhöldin
heíjast í mars
samkeppni Bandarískur dómstóll
hefur hafnað beiðni Microsoft um
frestun á réttarhöldum yfir fyrir-
tækinu sem er ásakað um að hafa
misnotað markaðsráðandi aðstöðu
sína. Microsoft hafði farið fram á
fjögurra mánuða frestun en nú er
ljóst að málið kemur til kasta
dómstóla í mars nk.
Bandarísk stjórnvöld og níu af
18 fylkjum sem upphaflega stóðu
að málsókninni sömdu við hug-
búnaðarrisann í nóvember en níu
fylki sætta sig ekki við það sam-
komulag og héldu málaferlunum
áfram. ■
Byggingafulltrúi segir
brunamál ekki vandamál
í ósamþykktum íbúðum:
Um700
ósamþykkt-
ar íbúðir í
Reykjavík
BYGGINGAEFTIRLIT Um 700 ÓSam-
þykktar íbúðir eru í Reykjavík er
ágiskun Magnúsar Sædal, bygg-
ingarfulltrúa Reykjavíkur. Magn-
ús segir margar þessara íbúða
vera í húsum sem byggð voru i
Reykjavík á ár-
unum 1937-57 en
þá fluttu margir
Reykvíkingar
inn í kjallara og
risíbúðir sem
ekki voru
þykkt
kvæmt
MAGNUS SÆDAL
Segir kröfur um
brunavarnir aukast í
sífellu, enda fylgi
talsverð brunahætta
tækjum eins og
sjónvarpi og tölvum
auk þess sem hús-
gögn í dag séu oft
byggð upp úr
svampi sem brenni
hratt.
sam-
sam-
þáver-
lögum.
segir
berast
andi
Magnús
árlega
um 50-60 um-
sóknir um sam-
þykkt á íbúðum
sem byggðar
voru á þessum
tíma, með til-
heyrandi breyt-
ingum. Magnús
segir að þrátt
fyrir að sífellt
harðara eftirlit sé með byggingar-
málum þá sé aldrei hægt að koma
í veg fyrir að fólk innrétti rými til
að búa í sem ekki er löglegt.
Magnús segir hins vegar að það sé
hans mat að brunamál séu með
skikkanlegum hætti í flestum
ósamþykktu íbúðum. „Það getur
verið verra ástand á samþykktri
eign sem byggð var árið 1904 en
ósamþykktri íbúð sem byggð var
á árunum 37-57. Þetta eru yfirleitt
steyptir kjallarar, eða múrhúðuð
ris, þannig að brunamál eru yfir-
leitt í lagi“
Magnús segir að þrátt fyrir að
erfitt sé að fylgjast með því hvort
fólk innréttar ólöglegar íbúðir í
húseign sína, þá komist þau svik
yfirleitt upp um síðir. „Þessi mál
lenda yfirleitt inni á borði hjá okk-
ur að lokum." Hann segir umsókn-
um um innréttingu íbúða, t.d. í bíl-
skúrum, sé alltaf hafnað, þannig
vistaverur raski nefnilega skipu-
lagi hverfa. „Það segir sig sjálft
að fjölgun íbúða í hverfi sem mið-
ar við ákveðið skipulag hefur
áhrif á fleiri þætti, t.d. skólarými
í hverfinu og þar fram eftir götun-
um. ■
1 INNLENT [
I^þróttafélagið Leiftur í Ólafs-
firði verður líklega lýst gjald-
þrota í vikunni og leitar í fram-
haldi af því nauðasamninga. Bæj-
arráð Ólafsfjarðar mun leggja
fram fjórtán milljónir í tengslum
við nauðasamningana. RÚV
greindi frá.
—4----
Framkvæmdir við jarðgöng
milli Siglufjarðar og Ólafs-
f jarðar verða boðnar út á Evr-
ópska efnahagssvæðinu í mars.
RÚV greindi frá.