Fréttablaðið - 08.01.2002, Qupperneq 14
FÓTBOLTI
Hvernig fer Ísland-Kuwait?
„Ætli Island nái ekki að vinna leikinn 2-1.
Það eru að vísu leikmenn í misgóðu leik-
formi í liðinu þannig að þetta verður tap-
hætt á báða bóga."
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari KA
PRINSINN
Fær tækifæri til að hreinsa mannorðið.
Naseem Hamed:
Berst í mars
hnefaleikar Naseem Hamed,
Prinsinn, skrifaði undir samning
við bandarísku HBO sjónvarps-
stöðina fyrir helgi. Samningurinn
er upp á þrjá bardaga og gefur víst
vel í vasa.
Fyrsti bardaginn fer fram 23.
mars. Þar mun hann mæta Mexfjt-
ananum Marco Antonio Barrera,
sem vann hann í Las Vegas í fyrra
og sverti taplausan feril hans. Síð-
an þá hefur lítið farið fyrir Prins-
inum, sem er 27 ára gamall, en
hann er byrjaður að æfa á fullu.
Bardaginn fer fram í Bretlandi og
er prýðistækifæri fyrir hann til að
hreinsa mannorð sitt, en skömmu
eftir tapið í fyrra skildi hann við
þjálfara sinn til margra ára.
Barrera er hress með slaginn
og segist fara létt með Prinsinn.
Hann berst fyrst við samlanda
sinn Erik Morales, sem vann hann
fyrir tveimur árum, 2. mars. ■
—♦—
Fararsnið á Di Canio:
Bað ekki
um að losna
fótbolti Leikmaður West Ham, ítal-
inn Paolo di Canio, þvertekur fyrir
það að hann hafi beðið um að losna
frá liðinu. Þetta segir hann þegar
West Ham er búið að neita fyrsta
boði Manchester United í hann og
búist er við öðru. Talið er að di
Canio gangi til liðs við United á
næstu dögum.
Þangað til vill di Canio, sem lék
áður með AC Milan og Juventus,
undirstrika að hann sé tryggur
West Ham. „Ég vil bara að það sé á
hreinu að ég bað aldrei um að fara
frá West Ham United. Þar til félag-
ið segir annað er ég leikmaður
þess,“ sagði di Canio á heimasíðu
sinni. „Ég elska félagið og stuðn-
ingsmennina. Þess vegna kyssj ég
alltaf merkið þegar ég spila. Ég á
eftir að gera það líka hjá Manchest-
er United vegna þess að ég elska
það að spila fótbolta. Þar að auki er
þetta besta lið í heimi, ásamt Real
Madrid."
Alex Ferguson, stjóri Manchest-
er, segist sjá eftir því að hafa ekki
nælt í di Canio þegar Sheffield
Wednesday seldi hann fyrir þremur
árum. „Ég hef mikinn áhuga á hon-
um. Ég veit að hann er umdeildur
og að honum fylgir heilmikill pakki,
með vörtum og öllu, en hann elskar
að spila og sýnir mikinn áhuga.“ ■
14
FRÉTTABLAÐIÐ
8. janúar 2002 ÞRIÐJUDAGUR
Landslið íslands:
Spilar við Kuwait í dag
fótbolti Klukkan 15 í dag spilar
landslið íslands í knattspyrnu
gegn landsliði Kuwait. Leikið er á
aðalleikvangi Oman í borginni
Muscat í Oman. Dómarar leiksins
eru FIFA-dómarar frá Oman.
Fjórir nýliðar eru í leikmanna-
hóp Islands, Baldur Aðalsteinsson,
leikmaður ÍA, Hjálmar Jónsson,
leikmaður Keflavík, Stefán Gísla-
son, leikmaður Grazer og Atli
Knútsson varamarkmaður, leik-
maður Breiðablik. Á undan leik ís-
lands og Kuwait leika landslið
Oman og Rúmeníu vináttulands-
leik á sama velli. Liðið heldur síðan
til höfuðborgar Saudi-Arabíu, Ri-
GUÐNI KJARTANSSON
Aðstoðar Atla næstu tvö árin.
yadh, þar sem það leikur við
heimamenn. Sá leikur er liður í
undirbúningi Saudi-Araba fyrir
Heimsmeistarakeppnina í knatt-
spyrnu í Suður-Kóreu og Japan.
í gær var tilkynnt að Guðni
Kjartansson hafi verið ráðinn að-
stoðarmaður Atla Eðvaldssonar
landsliðsþjálfara. Hann gegnir
starfinu næstu tvö ár, ásamt því að
þjálfa U19 landslið karla. Guðni er
staddur með liðinu í Oman.
Guðni hefur síðastliðin tvö ár
gegnt starfi fræðslustjóra KSÍ.
Hann lætur nú af því starfi og-
starfar á nýjan leik með A landsliði
karla, en hann var landsliðsþjálf-
ari 1980-1981 og í einum leik 1989.
í þeim 16 leikjum, sem hann
stjórnaði liðinu, vann það sex leiki,
gerði f jögur jafntefli og tapaði sex
leikjum. ■
BYRJUNARLIÐ ÍSLANDS:
Markmaður
Árni Gautur Arason (fyrirliði)
Varnarmenn
Hjálmar Jónsson
Ólafur Örn Bjarnason
Gunnlaugur Jónsson
ívar Ingimarsson
Miðjumenn
Bjarni Guðjónsson
Jóhann B. Guðmundsson
Ólafur Stígsson
Framherjar
Helgi Sigurðsson
Andri Sigþórsson
Einar Þór Daníelsson
Varamenn
Atli Knútsson
Baldur Aðalsteinsson
Marel Baldvinsson
Sigurvin Ólafsson
Stefán Gíslason
Sævar Þór Gíslason
Valur F. Glslason.
Eiði líður vel í London
Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnumaður ársins á íslandi 2001, hefur farið mikinn með Chel-
sea í ensku úrvalsdeildinni í vetur og skorað hvert markið á fætur öðru. Arnór Guðjohnsen, faðir
hans, segir Eið vera hæstánægðan.
fótbolti „Ég bjóst við því að hann
myndi koma sér svona vel fyrir
hjá Chelsea en ekki svona fljótt.
Hann kemur manni sífellt á óvart,
er greinilega orðinn mjög góður,"
segir Arnór Guðjohnsen. Þeir tala
saman nær daglega og ræða mik-
ið um boltann.
Eiður Smári vakti athygli hér á
íslandi þegar hann spilaði með
Val í úrvalsdeildinni aðeins 15 ára
gamall. Stuttu seinna fékk hann
samning hjá PSV Eindhoven í
Hollandi, þar sem hann spilaði
m.a. með brasilíska framherjan-
um Ronaldo. Þá lenti Eiður í
slæmum meiðslum og var frá í
nokkurn tíma.
„Læknirinn hjá PSV sagði
hann myndi aldrei aftur spila fót-
bolta. Eiður var orðinn svartsýnn.
En það var aldrei spurning um að
hann myndi ná sér,“ segir Arnór.
Nú ganga hlutirnir betur og
Eiði líður vel hjá Chelsea í
London. „Hann vill ekki fara
neitt, er nýbúinn að kaupa sér
hús. Hann er ánægður með þá
sem hann umgengst og það er
góður mórall í liðinu. Hann og
Jimmy (Floyd Hasselbaink) eru
góðir vinir. Það gengur vel og allt
er í blóma. Þó skal hafa varann á
því það tekur velgengnina ekki
langan tíma að snúast í andhverfu
sína.“
Eiður og nokkrir samherjar
hans voru sakaðir um að vera
með drykkju- og skrílslæti á bar í
haust. Þeir voru sagðir hafa
móðgað nokkra Bandaríkjamenn,
en þetta var skömmu eftir
hryðjuverkaárásirnar í New
York.
„Það var gert allt of mikið úr
þessu. Fréttamenn hér heima
eiga að vita hvernig ensku sunnu-
dagsblöðin byggja upp frétta-
flutning sinn. Það er vitleysa að
reyna að segja svona fréttir. Blöð-
in bjuggu til drama úr engu. Þeir
voru á bar að fá sér drykk og þrír
eða fjórir urðu eftir þegar Eiður
og aðrir fóru. Það var sagt að þeir
væru að trufla Ameríkana, sem
voru ekki einu sinni nálægt. Þeir
bjuggu bara á hótelinu. Svona er
þetta, það er alltaf verið að slúðra
til að selja blöðin. Eins og það séu
ekki nógu margar fréttir fyrir. En
þetta er fyndið eftir á, eitthvað til
að læra af.“
Eiður hefur verið mjög áber-
andi hjá Chelsea í vetur. Hann er
búinn að skora stíft og liðið er nú
í sjötta sæti ensku úrvalsdeildar-
innar. „Ég held samt að liðið eigi
ekki eftir að gera neinar rósir í
deildinni. Það er með mannskap-
inn í verkið en vantar sjálfs-
traust. Það er allt annað að horfa
á t.d. Manchester United eða
Arsenal,“ segir Arnór.
Hann horfir á alla Chelsea leiki
sem hann getur séð. „Fótboltinn
er búinn að breytast mikið frá því
ég var að spila í Belgíu. Þá vissi
maður varla hvað leikmennirnir á
Englandi hétu, sá bara bikarúr-
slitin. Nú veit allur heimurinn ef
einhver á góðan leik. Ég á kunn-
ingja í Hollandi og þar er mikið
sýnt af Chelsea, enda Hollending-
ar í liðinu. Þar spyrja menn sig af-
hverju PSV seldi Eið á sínum
tíma.“
STÓRFJÖLSKYLDAN á góðri stund
Arnór segir son Eiðs, Svein Aron, vera rosa-
legan. „Hann er með sömu takta og pabbi
sinn, verður eflaust fótboltakappi. Hann
gerir allt með vinstri."
Arnór þjálfar Stjörnuna í
Garðabæ, sem spilar í 1. deild.
Hann lék einnig með liðinu síðasta
sumar en segist efa það að hann
endurtaki leikinn nú í ár. „Maður
æfir með þessum guttum í vetur.
En ég held örugglega ekki áfram
næsta sumar. Það er annar, sem
heldur nafninu uppi.“
halldor@frettabladid.is
Enski bikarinn:
Stuðningsmenn
Cardiff ekki vinsælir
VELSKUR FÖGNUÐUR
Stuðningsmenn Cardiff hröðuðu sér á völlinn með látum þegar lið þeirra vann Leeds 2-1 i
enska bikarnum á sunnudaginn. Fyrir miðju má sjá velska fánann.
fótbolti Líklegt þykir að Cardiff
City fái sektir eftir að stuðnings-
menn liðsins voru með óspektir á
sunnudaginn, þegar liðið sló Leeds
United út úr ensku bikarkeppn-
inni, öllum að óvörum. Lögreglu-
menn, sumir á hestbaki, þurftu að
hafa sig alla við til að halda aftur
að lýðnum þegar hann reyndi að ná
til stuðningsmanna Leeds. Fjórir
voru handteknir, mynt hent í haus
dómara og alls kyns rusli hent inn
á leikvanginn.
Eigandi liðsins, Sam Hammam,
er samt handviss um að hann verði
ekki sektaður fyrir að standa fyrir
aftan mark Leeds síðustu mínútur
leiksins. Hann segist hafa haft
skriflegt leyfi frá forráðamönnum
Knattspyrnusambandsins fyrir
því. Knattspyrnustjóri Leeds, Dav-
id O’Leary var ævareiður, bæði
yfir framkomu stuðningsmanna
Cardiff og stælunum í Hammam.
Þeir hnakkrifust eftir leikinn. „Ég
stend alltaf fyrir aftan markið. Það
er hefð fyrir því,“ sagði Hammam.
„Hann segist ekki ánægður með að
ég sé að ganga fyrir framan stuðn-
ingsmenn mína. Ég fór meira að
segja af hliðarlínunni þegar við
komumst yfir. Auk þess voru
stuðningsmennirnir ekki með nein
læti. Þeir komu á völlinn til að
fagna og baula aðeins á Leedsar-
ana. Það er líka hefð fyrir því. Ef
Knattspyrnusambandinu finnst
þeir hafa brotið af sér og vilja
sekta okkur er það í lagi ef það er
leiknum í hag.“ ■