Fréttablaðið - 08.01.2002, Blaðsíða 22
r r
I HRAÐSOÐIÐ
22
GIGA IflATT^yn 1 "00C I5i’:nsi 3 1*.i3MOI«W
FRÉTTABLAÐIÐ 8. janúar 2002 þriðjudacur
HERDÍS SVEINSDÓTTIR
Formaður Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga
Undrast fyrirhug-
aðar uppsagnir
HVERNIG horfa fyrirhugaðar breyt-
ingar á árinu á Landspítala-háskólasjúkrahúsi
(LSH) við hjúkrunarfræðingum?
Það eina sem búið er að segja er að
starfsemin verði dregin saman á
næsta ári samkvæmt fjárlögum og
gefið hefur verið út að segja eigi upp
bæði hjúkrunarfræðingum og lækn-
um án þess að það komi niður á þjón-
ustunni. Okkur finnst það náttúru-
lega skjóta skökku við ef á að fara að
segja upp hjúkrunarfræðingum á
sama tíma og vantar mjög hjúkrunar-
fræðinga til starfa. Hjúkrunarfræð-
ingar á LSH hafa verið að vinna mjög
gott starf og tveir hjúkrunarfræðing-
ar starfa hér þar sem eru þrír annars
staðar á Norðurlöndunum.
KOMA fyrirhugaðar uppsagnir
á óvart?
Núna í vor greindi LSH frá því að
vantaði um 100 hjúkrunarfræðinga á
stofnunina þannig að það kemur okk-
ur mjög á óvart ef það á að fara að
segja upp hjúkrunarfræðingum án
þess að það eigi að koma niður á
þjónustunni. Við erum með skýrslu
sem félagið vann varðandi vinnuálag,
en þar kemur skýrt fram að stór hluti
hjúkrunarfræðinga kemst ekki,
vegna álags, heim úr vinnu á þeim
tíma sem þeir hefðu viljað, þeir fá
ekki frí á þeim tíma sem þeir óska
eftir, þeir komast ekki matartíma í
vinnunni og fleira slíkt. Það hefur
farið mikil vinna í sameininguna á
síðasta ári og þrátt fyrir það hefur
kostnaöur ekki aukist og verkefnin
spítalans eru að aukast þannig að ég
sé ekki hvemig þeir eiga að komast
af með færri hjúkrunarfræðinga.
HAFA
hjúkrunarfræðingar áhyggjur af
þróun mála?
Auðvitað hefur verið mikill órói með-
al hjúkrunarfræðinga eftir samein-
inguna því fyrirkomulagið til fram-
tíðar hefur ekki verið nógu skýrt. Það
eru tilfærslur á milli stofnana og auð-
vitað hefur það áhrif á starfsfólk. Það
hefur ekki verið atvinnuleysi hjá
hjúkrunarfræðingum og við horfum
ekki fram á það. Þetta er kannski
frekar spurning um hvort þú færð
það starf sem þú vilt starfa við.
Herdís Sveinsdóttir er formaður Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Árni G. Sigurðsson, flugstjóri, segist hvorki fengið heilablóðfall né hjartaslag:
Þjóðin álítur mig farlama
flug „Þetta hefur ekki verið góð
tilfinning. Fjallað hefur verið um
mín mál á þann hátt að almenning-
ur heldur að ég sé farlama mað-
ur,“ segir Árni G. Sigurðsson,
flugstjóri, en töluvert hefur verið
fjallað um heilsufar hans í fjöl-
miðlum þar sem Flugmálastjórn
hefur neitað að endurnýja flug-
skírteini hans og hefur það mál
verið nokkuð til umfjöllunar.
„Verst finnst mér að því sem am-
aði að mér hafa ekki verið gerð
rétt skil. Ég fékk hvorki heilablóð-
fall, né hjartaslag." Árni segir að
hann hafi fengið öræðasjúkdóm,
en blætt hafi út frá lítilli æð í
höfðinu. „Ég lagðist aldrei inn á
spítala vegna sjúkdómsins. Eftir
að hans varð vart, fór ég í viða-
miklar rannsóknir, en þær sýndu
að ég var við góða heilsu," segir
Árni. ILann segir að samt sem
áður hafi Flugmálastjórn ákveðið
að hafna endurnýjun flugskírtein-
is hans, en honum hafi verið bent
á að hann ætti þess kost að skjóta
málinu til nefndar. Niðurstaða
þeirrar nefndar yrði endaneg á
sviði stjórnsýslu. „Það gerði ég,
og beið í nærri því ár eftir niður-
stöðum nefndarinnar. Það var
mjög magnþrungið tímabil," segir
Árni. „Ég hætti að fljúga í október
1998, enda eðlilegt á meðan að ég
er að gangast undir rannsóknir
vegna sjúkdómsins. Um ári síðar
var ég kominn með hreint læknis-
vottorð. Búið var að segja mér að
ég mætti hefja störf að nýju, en á
síðustu stundu tók málið aðra
stefnu. Það segir sig sjálft að að-
gerðarleysið og spennan síðan þá,
getur farið illa með marga.“ Hann
hafi ákveðið að berjast og hafi
margir staðið með honum í þeirri
baráttu. Ekki síst hafi samgöngu-
ráðuneytið staðið sig vel í málinu,
en samgönguráðherra hafi orðið
fyrir ómaklegum árasum vegna
málsins. „Það getur hver maður
ÁRNI G. SIGURÐSSON
Það getur hver maður sett sig I mín spor.
Heilsa mín hefur verið góð, en hefur verið
gerð vafasöm gagnvart þjóðinni.
sett sig í mín spor. Heilsa mín hef-
ur verið góð, en hefur verið gerð
vafasöm gagnvart þjóðinni. Ég
trúi því, samt sem áður, að sann-
leikurinn eigi eftir að koma í ljós.“
arndis@frettabladid.is
FRÉTTIR AF FÓLKI
Búist er við að mörg fyrirtæki
eigi eftir að leita sameininga
það sem eftir er vetrar. Gangi það
eftir er líklegt að
fjölgi í hópi at-
vinnulausra for-
stjóra. Þó það
verði er ólíklegt að
nokkur þeirra nái
að gera betur í
samningum en
Þórarinn Viðar
Þórarinsson fyrrverandi forstjóri
Landssímans. Samningur hans við
fyrrverandi vinnuveitenda mun
tryggja honum bestu kjör fyrrver-
andi forstjóra um langan tíma.
Glöggir fréttafíklar tóku eftir að
Davíð Oddsson, formaður
Sjálfstæðisflokks, setti pressu á þá
sem verða að
ákveða með hvaða
hætti þeir ætla að
velja á framboðs-
lista flokksins í
Reykjavík. í einu
af mörgum viðtöl-
um við Davíð um
áramótin fór hann
ekki leynt með að tíminn er að
renna út. Þess vegna er ljóst, að
þessa erfiðu ákvörðun verða menn
að taka. Á fimmtudag er reiknað
með að Margeir Pétursson og aðrir
sem sitja í fulltrúaráði flokksins í
Reykjavík tilkynni að leiðtogapróf-
kjör verði haldið innan fárra vikna.
að er kosið víðar en í Reykja-
vík. í Kópavogi er ekki gert ráð
fyrir að Kópavogslistinn, eða Sam-
fylkingin eða hvað sem framboðið
kemur til með að heita, eigi
nokkurn möguleika gegn núver-
andi meirihluta, það er Sjálfstæð-
isflokki Gunnars I. Birgissonar og
Framsóknarflokks Sigurðar Geir-
dal. Þeir félagar hafa haldið um
stjórnvölinn í þrjú kjörtímabil. Þar
í bæ er varla nokkur sem gerir ráð
fyrir öðru en þeir haldi meirihlut-
anum. Sagt er að innan bæjar-
stjórnarflokks sjálfstæðismanna
Sé ekki alltaf einhugur, en takist
hafi að halda sæmilega sátt og
menn verið tregir til að bera harm
sinn á torg.
Fjölskyldur æfi áætlun
ef til eldsvoða kemur
Sídan 1998 eru reykskynjarar lögbundnir í íbúðum og sumarhúsum.
MANNSLÍFIN SKIPTA MESTU
Björn Karlsson brunamálastjóri segir að yfirgefa beri húsnæði umsvifalaust ef eldur er
orðinn einn metri á hæð.
brunavarnir Eldsvoðinn á Þing-
eyri í vikunni sem leið og af-
leiðingar hans hafa snortið alla
þjóðina og fólk veltir fyrir sér
hvernig hægt sé að koma í veg
fyrir að jólahald taki slíkan
toll. „Logi af kertaskreytingu
getur staðið allt upp í einn
metra getur þá náð í gardínu
eða eitthvað slíkt,“ segir dr.
Björn Karlsson brunamála-
stjóri og bendir á að hægt sé að
kaupa úðaefni í blómaverslun-
um sem geri slíkar skreytingar
tregbrennanlegar.
Mikið öryggi felst í reyk-
skynjurum en þeir eru lögboðn-
ir í íbúðum hér á landi síðan
1998, að sögn Björns. Reglur
um klæðningar og einangrun í
íbúðarhúsnæði eru einnig mjög
skýrar. „Klæðningar verða að
vera tregbrennanlegar og ein-
angrun óbrennanleg. Sé ein-
angrunin brennanleg verður að
þekja hana eða klæða með
óbrennanlegu efni, svo sem
múrhúð eða gifsplötum, og
verður uppsetning að vera þan-
nig að klæðningin haldi í að
minnsta kosti 10 mínútur við
bruna.“ Björn segir að plastein-
angrun sé ákaflega hættuleg
við bruna og að slík einangrun
þekkist varla í byggingariðnaði
í dag. Þeir sem búi í eldra hús-
næði þurfi að huga vel að því
hvernig einangrun og klæðn-
ingum sé háttað, þar sem
ákvæði um tregbrennanlegar
klæðningar komu ekki inn í
byggingareglugerð fyrr en
1978.
Viðbrögð við eldi skiptir
gríðarlegu máli. „Ef eldur er
orðinn einn metri á hæð á að
fara út strax, ekki að hugsa um
að slökkva hann,“ segir Björn
og leggur áherslu á að fjöl-
skyldur æfi neyðaráætlun ef til
eldsvoða kemur. Þetta getur
skipt miklu máli vegna þess að
í neyð geri fólk það fyrsta sem
í hugann kemur. „Svo eru bara
ljósin slökkt og farið í leik og
áætlunin æfð.“
Eldur nærist á súrefni þan-
nig að mikilsvert er að auka
ekki flæði þess að eldinum.
„Maður á að reyna að hafa allar
dyr lokaðar, eins og hægt er, og
alltaf að reyna að loka eldinn
... .. , . ■
inni.“ Ef fólk er statt í lokuðu
herbergi þegar ljóst er að eldur
hefur komið upp á alls ekki að
opna dyrnar á herberginu ef
hurðin er orðin mjög heit, held-
ur að freista þess að komast út
um gluggann. Samkvæmt
byggingareglugerð eiga að
vera manngengir gluggar í öll-
um herbergjum í íbúðarhús-
næði. Á efri hæðum í fjölbýlis-
húsum er mikilvægt að freista
þess loka eldinn inni, komast út
á gang eða vekja athygli á sér á
svölum eða út um glugga.
steinunn@frettabladid.is
NOVUS MASTER.
Gatar 25 blöð.. Verð 382 kr
BIC Atlantis penni
á 91 kr/stk
múlalundur www.mulalundur.is
TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 274 KR / STK.
Tilboðið giidir til 31. janúar 2002
10c • Sími: 562 8500 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is
ÞRUÐA
h2<
hefði nú bara
haldið að svona stór
banki eins og þið eruð
ætti að hafa efni á
nroiLningunum