Fréttablaðið - 06.02.2002, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 06.02.2002, Blaðsíða 1
26. tölublað - 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Miðvikudagurinn 6. febrúar 2002 MENNiNC Léttar heimspekilegar vangaveltur bls 18 BOX Sitfrekar bls 14 inni í 20 ár KÆRA Meintur stuldur á rödd Rúriks bls 13 FRETTAB RAFLAGNIR ÍSLANDS ehf. VERSLUN - HEILDSALA ÖRYGGISKERFI TÖLVULAGNAVÖRUR VINNUSTAÐABÚNAÐUR Hamarshöfða 1 - Sími 511 1122 www.simnet.is/ris Ný Heimasiða MIÐVIKUDAGUR Hvalir, hryðjuverk og fleira alþinci Þingmenn ræða á fundi Al- þingis í dag um hvalveiðimál, refs- ingar við hryðju- verkum, málefni útlendinga, hvort leyfa eigi hægri beygju á móti rauðu ljósi, hvort leyfa eigi bensínflutninga um Reykjanesbraut og margt annað. Hvernig gerast kaupin á eyrinni? KðNNUN Verslunarmannafélag Reykjavíkur hefur gert könnun á launum félagsmanna sinna og kynnir niðurstöðurnar í dag. Þar mun koma i ljós hvernig launa- greiðsiur til verslunarmanna hafa þróast undanfarið ár. VEÐRIÐ í PAC | REYKJAVÍK Norðlæg átt 5-8 m/s. Léttskýjað og kalt í veðri Frost 5 til 10 stig. VINDUR ÚRKOMA HITI Isafjörður O 5-8 Él 010 Akureyri 0 3-5 Él 09 Egilsstaðir O 2-5 Él 09 Vestmannaeyjar O 5-8 Léttskýjað O Sex plötu samningur við DreamWorks Hljómsveitin Leaves semur við Steven Spielberg og félaga áður en hún hefur lokið við fyrstu breið- skífu sína. Sveitin fékk mikla athygli í Bretlandi út á einu smáskífuna sem frá henni hefur komið. tónlist íslenska hljómsveitin Lea- ves hefur gert sex plötu samning við plötuútgáfu DreamWorks í Bandaríkjunum. Fyrirtækið var stofnað árið ‘94 og er í eigu David Geffen, Steven Spielberg og Jerry Katzenberg. Samkvæmt Árna Ben, umboðsmanni Leaves er samningurinn hefðbundinn miðað við það sem gengur og gerist í plötuútgáfu í Bandaríkjunum. Samningurinn tryggir Leaves möguleika á að gefa út breiðskífur sínar á Bandaríkja- og Englands- markað næstu árin. „DreamWorks hefur rétt til þess að gera sex plötur en gera það náttúrulega bara ef þetta gengur vel,“ segir Árni. Hann seg- ir einnig að mörg fyrirtæki hafi sent tilboð í hljómsveitina. Hljómsveitin á enn eftir að ganga frá samningi um framsal höfundarréttar. Árni segir um 10 armanninum Beck og hljómsveit- unum Radiohead og Travis. L i ð s m e n n Leaves eru Arn- ar Guðjónsson (söngur og gít- ar), Arnar Ólafs- son (gítar), Bjarni Grímsson (trommur) og Hallur Hallsson (bassi). Tveir þeir fyrstnefndu fyrirtæki hafi nú þegar boðið þeim slíkan samning og verið sé að skoða þá. Leaves vinna nú í hljóðveri í Reykjavík við það að hljóðrita fyrstu breiðskífu sína sem áætlað er að gefa út í Englandi í júní og í september í Bandaríkjunum og Evrópu. Hljóðmaður- inn Nigel Godrich kemur til með að hljóðblanda fyrstu smáskífu voru áður saman í hljómsveitinni Vínyl. Leaves hefur þegar gefið út eina prufusmá- skífu í 3000 ein- sveitarinnar en tökum af lagi sínu „Breathe" í hann hefur m.a. unnið með tónlist- Englandi og Bandaríkjunum sem LEAVES Strákarnir fengu fyrirframgreiðslu við und- irskrift sem þeir segjast geta notað til þess að greiða sér „verkamannalaun" næstu árin. Bjarni Grímsson, Hallur Hallsson, Arn- ar Guðjónsson og Amar Ólafsson. seldist upp á tveimur dögum. í kjölfarið hefur sveitin fengið mikla athygli bresku tónlistar- pressunar. DreamWorks hefur sinnt plötu- útgáfu með góðum árangri frá stofnári sínu og hefur m.a. á sín- um snærum tónlistarmennina Nellie Furtado, Alien Ant Farm, Eels og Jimmy Eat World. Útgáfu- samningurinn nær aðeins yfir Bandaríkin en í Bretlandi er samningurinn við óháðan útgef- anda B-Unique. Verið er að skoða tilboð frá nokkrum fyrirtækjum á mið-Evrópu svæðinu. „DreamWorks er að reyna að ná Evrópu líka, en við erum ekki sannfærðir um að það sé endilega besta leiðin. Við situm líka við samningaborðið hjá Virgin, Warn- er og Universal," segir Árni. biggi@frettabladid.is KENNSLUSTOFAN I ENGJASKÓLA Stórslys hefðu orðið á fólki ef nemendur úr 8. bekk og kennari þeirra hefðu ekki nýyfirgefð kennslustofuna þegar tveimur sprengjum var varpað inn um gluggann. Nemendur í Engjaskóla sendir heim eftir sprengingu: Sprengjuárás í kennslustofu Trúarstef í kvikmyndum kvikmyndir Fullorðinsfræðsla kirkj- unnar stendur ásamt kvikmynda- hópnum Deus ex Cinema næstu sex miðvikudaga fyrir námskeiði um trúarstef í kvikmyndum í aðalbygg- ingu Háskóla fslands kl. 20. Lesblinda og hreyfing MÁLSTOFA Hermundur Sigmundsson dósent í sálfræði við háskóla í Þrándheimi flytur erindi um hreyfivandamál og lesblindu á mál- stofu sálfræðiskorar HÍ í Odda stofu 201 klukkan 12.05. KVÖLDIÐ í KVÖLD Tónlist 18 Bíó 16 Leikhús 18 íþróttir 14 Myndlist 18 Sjónvarp 20 Skemmtanir 18 Útvarp 21 MEÐAILESTUR FÓLKS A ALDRINUM 25 TIL 80 ARA A HÖFUÐBORGARSVÆÐINU SAMKVÆMT FJÖLMIDLAKÖNNUN GALLUP í QKTÓBER 2001. löcreclumál Plata sviptist af kennaraborði og bækur brunnu í bókahillu þegar tveimur sprengj- um var varpað inn um glugga kennslustofu í Engjaskóla í gær- morgun. Dyrum kennslustofunn- ar hafði þá rétt verið lokað að baki nemendum og kennara sem voru á leið í frímínútur. Engan sakaði. Að sögn Guðrúnar Erlu Björg- vinsdóttur aðstoðarskólastjóra kom starfsfólk skólans öllum nemendum út úr byggingunni á örskotsstundu eftir að sprengjan sprakk rétt eftir klukkan hálftíu. Allir nemendur voru síðan strax sendir heim utan þeir sem eru í heilsdagsskóla í öðru húsi og þau af yngstu börnunum sem ekki áttu foreldra eða aðra heima við. Slökkvilið var talsverða stund að reykræsta bygginguna. „Það virðist sem talsvert öfl- ugum sprengjum hafi verið varp- að inn um rifu á glugga. Við gluggann er bókahilla og þar rétt við er borð kennarans. Platan á borðinu fauk af og grindin beyglaðist. Þá brunnu bækur í hillunni," sagði Guðrún Erla. Guðrún Erla sagði í gær að enn væri ekki vitað hver sprengjuvargurinn væri. „Það eru mörg nöfn á lofti en það hef- ur ekkert verið staðfest ennþá,“ sagði hún. Lögregla rannsakar málið. Guðrún Erla sagði snarráðan kennara hafa tekist að hefta út- breiðslu eldsins með því að sprauta á hann úr slökkvitæki. „Sprengingin heyrðist um alla bygginguna. Aðkoman var mjög dapurleg,“ segir Guðrún Erla. ■ Veðurfar í janúar: Hita- og rigningamet veður í Reykjavík var meðalhiti í janúar 1,4 stig, um 2 gráður yfir meðaltali. Hæst fór hitinn í 10,6 gráður og hefur aldrei mælst áður svo hár í janúar. Aðeins einu sinni fyrr hafa mælst meira en 10 gráð- ur í janúar og var það árið 1940. Úrkoma í Reykjavík var um þriðjungi meiri en í meðalári þótt ekki hafi rignt síðustu tólf daga mánaðarins. Aðeins einu sinni var alhvít jörð. Árin 1929, 1940 og 1961 var enginn alhvítur dagur í Reykjavík. Á Akureyri var meðalhiti 1,7 stigum yfir meðaltal í janúar. Úr- koma mældist þar 100 mm sem er nær tvöföld meðalúrkoma mán- aðarins. Mesta úrkoma, sem mælst hefur hér á landi, 293 mm., féll 10. janú- ar á Kvískerjum á Öræfum. ■ 1 ÞETTA HELST | Afleiðingar brots Flugmála- stjórnar á stjórnsýslulögum liggja ekki fyrir. Flugmálastjóri fær nokkurra daga frest til að gera samgönguráðherra grein fyrir viðbrögðum sínum. bls. 2 —♦— Samkeppnisstofnun braut gegn olíufélögunum segir í bréfi Verslunarráðs fslands til við- skipta- og iðnaðarráðherra. Ráð- herra segir málið hugsanlega verða tekið upp á ný. bls. 12 —♦— Delta keypti fimmtung í sjálfu sér af Búnaðarbankanum til að fjármagna yfirtöku á Omega Farma. Bankinn tilkynnti ekki yf- irtökuáformin strax. bls. 13

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.