Fréttablaðið - 06.02.2002, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 06.02.2002, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 6. febrúar 2002 FRÉTTABLAÐIÐ 15 Stangastökk innanhúss Nýtt heimsmet stancastökk Svetlana Feofanova frá Rússlandi setti nýtt heims- mett í stangastökki innanhúss í Stuttgart á sunnudaginn. Hún stökk yfir 4,71 metra. Feofanova er oftast sögð önnur best í heimi á eftir Bandaríkjamanninum Stacy Dragila. Dragila átti metið sem hún sló, 4,70 metra. Feofanova, sem er 21 árs göm- ul, setti fyrir aðeins viku síðan nýtt Evrópumet innanhúss. Þá stökk hún 4,66 metra í Dortmund í Þýskalandi. Hún og Dragila hafa lengi att kapp saman. Feofanova var í öðru sæti á eftir Dragila á Heimsmeistaramótinu 1999. Þá GERÐI GOTT MÓT Feofanova slp met Sta--y Dragila með einum sentímetra. stukku þær reyndar yfir sömu hæð en Dragila felldi sjaldnar. Dragila á ennþá heimsmetið utan- húss, 4,81 metra. ■ SIR ALEX OG STRÁKARNIR Búinn að stjórna United í 15 ár, Þegar hann tilkynnti í fyrra að timabilið í ár væri hans síð- asta sagði hann starfið hafa komið mikið niðri á fjölskyldulífinu. Ferguson áfram á Old Trafford: Getur ekki slitið sis frá liðinu FÓTBorn Búist er við því að Sir Alex Ferguson stjórni Manchester Umled í að minnsta kosti eitt ár í viðbót. Hann tilkynnti í fyrra að tímabilið í vetur væri hans síðasta. Hann ætlaði að einbeita sér að fjöl- skyldunni, reyna að ganga börnum sínum í föðurstað. Nú virðist Ferguson hafa skipt um skoðun. Hann er búinn að stjór- na United í 15 ár og ætlar að bæta einu ári við. Talsmaður félagsins segir viðræður við Ferguson vera hafnar. Það er alkunna að hann sagði stjórninni nýlega að hann væri reiðubúinn til aðstjórna liðinu næsta tímabil. Hann heimtaði ein- nig að vandræðin með David Beck- ham yrðu fljótlega leyst. Liðið er búið að reyna að semja við hann í marga mánuði, án árangurs. Talið er að Ferguson vilji jafnvel sítja lengur en eitt ár í viðbót við stjórnyölinn, áður en hann sest í þægilega stjórnunarstöðu hjá United. Ottmar Hitzfield, Fabio Capello hjá Roma ög Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Eng- lands, voru nefndir sem arftakar Ferguson. Leitinni að arftakanum hefur hinsvegar verið frestað á meðan félagið reynir að tryggja sér einn sigursælasta stjóra þess áfram. Sagt er að Ferguson hafi komið stjórninni á óvart með yfir- lýsingu sinni eftir glæstan 4-1 sig- ur á Sunderland. Leikmennirnir eru ánægðir. Ryan Giggs, sem hef- ur hvatt Ferguson til að sitja áfram, lét hafa eftir sér að aldurinn skipti engu máli. Reynslan skipti sköpum. ■ Þrek- og æfingatæki Aerobic fatnaður Reiðhjól Golf og golffatnaður ísskautar - línuskautar Skíði og skíðafatnaður Bretti og brettafatnaður Sportfatnaður og skór Þúfærðmikið adidas fsláttur a 40 • Sími: 555 www.markid.is purnn SALOMOm LOOK í nýjum og glæsilegum sal i Ræktinni eru að hefiast boxnámskeið fyrir unglinga (10-14 ára) og fuUorbna. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Sigurjón Gunnsteinsson og Ólafur Guðlaugsson. Þeir eru stofnendur Hnefaleikafélags Reykjavíkur og hafa margra ára reynslu af boxþjálfun. Þeir bjóða nú nýja og gamla nemendur sína velkomna á námskeiðið. Box er toppíþrótt fyrir þá sem vilja styrkja sig og stunda hámarks brennslu • Útrás - Brennsla - Skemmtun Skráning í s/ma 551-2815 eða i afgreiðslu Ræktarinnar, Suðurströnd 4, Seltjarnarnesi. Boxútbunaður í Ræktinni. I Ræktinni er nú hægt að kaupa allan útbúnað til boxþjálfunar eins og vafninga, æfingahanska (sekkhanskar), hringhanska (sparring hanskar) góma (munnstykki), sippubönd ofl. RÆKTIN Suðurströnd 4, Seltjarnarnes miðvikudaginn 6 J| .llíÍJ/Í/iUÍ'Á Odlii 113/ Ú.L J /1 H/iU bL4d uo lltUUU ÍB/ .AU-itO LL Hú

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.