Fréttablaðið - 06.02.2002, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 06.02.2002, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 6. febrúar 2002 FRÉTTABLAÐIÐ Kvikmyndaklúbburinn Filmundur: Kvenleg kvikmyndaveisla kvikmyndir Filmundur býður í kvöld til kvenlegrar kvikmynda- veislu. Tilgangurinn er að vekja athygli á kvikmyndum íslenskra kvenna og verða sýndar myndir frá síðastliðnum 10 árum. Segja má að um sé að ræða þverskurð að því sem konur í „stuttmynda- bransanum" hér á landi hafa verið að aðhafast undanfarið. Keðja (1992) og Lokasjóður (1993) eru hreyfimyndir eftir Kristínu Maríu Ingimarsdóttur sem hún gerði í upphafi ferils síns. Slurpinn & co (1998) eftir Katrínu Olafsdóttur og Örsögur úr Reykjavík (2000) eftir þær Sveinbjörgu Þórhallsdóttur, Mar- SLURPINN & CO. Ein myndanna sem sýnd verður í kvöld er Slurpinn & co. eftir Katrinu Ólafsdóttur. gréti Söru Guðjónsdóttur og Rögnu Söru Jónsdóttur eru dans- stuttmyndir. Höfundarnir eru all- ar dansarar. Falskar tennur (1998) eftir Bjargeyju Ólafsdóttur er lít- ið leikið listaverk. í draumi sér- hvers manns (1995) eftir Ingu Lísu Middleton er leikin mynd. Brot (2001) eftir Helenu Stefáns- dóttur er einnig leikin mynd, held- ur lengri en hinar myndirnar. Kvenleg kvikmyndaveisla verð- ur frumsýnd miðvikudaginn 6. febrúar kl. 20:00 í Háskólabíói. Jafnframt verða sýningar fimmtu- daginn 7. febrúar kl. 22:30, sunnu- daginn 10. febrúar kl. 18:00 og mánudaginn 11. febrúar kl. 22:30. ■ Árni Ingólfsson hlaut Ullar\'ettlingana: Staðfestir kæfð og vanmetin gildi íslenskrar myndhugsunar VINNINGSHAFI ULLARVETTLINGANA Benedikt Gestsson, formaður MAÍ afhenti Árna Ingólfssyni viðurkenningu Myndlistaraka- demíu íslands. iviyndlist Ullarvettlingar Myndlist- arakademíu íslands í samvinnu við gallerí Áhaldahúsið voru af- hentir Árna Ingólfssyni myndlist- armanni l.febrúar sl. Vettlingarn- ir voru afhentir á veitingastaðn- um Næstabar og voru nú afhentir í annað sinn, en í fyrra hlaut Birg- ir Andrésson myndlistarmaður viðurkenninguna. Afhending Ull- arvettlinganna fór hið besta fram og einkendist af þjóðlegu látleysi og kindarlegum helgisvip hinnar íslensku landnámsrollu. Þótti Árni vel að vettlingunum korninn aö þessu sinni, hafandi átt eitt at- hygliverðasta framlag á íslensk- um myndlistarvettvangi síðastlið- ið ár. í ræðu Benedikts Gestssonar, formanns MAÍ, við afhendinguna kom m.a. fram: „Á téðri sýningu opinberaði Árni 15 smáskúlptúra mótaða í leir sem hann stillti upp á klassíska stöpla, þó í þeirri hæð að hver meðalmaður mætti líta niður á þá úr persónulegri flugsýn sinnar náttúru. Má hverjum manni vera ljós sú ádeila sem slík- ur horisónt er á meðalmennskuna. Með skúlptúrum sínum afhjúpar Árni myndlistarsögulega ofskynj- unarglíju hins íslenska rétttrún- aðar gegnum aldirnar (les póst- modernista allra tíma) og stað- festir um leið kæfð og vanmetin gildi íslenskrar myndhugsunar og þátt hennar í menningarsögunni." Markmiðið með viðurkenning- unni er að efla vitund þjóðarinnar um gildi myndlistar íslendinga og gildi hennar fyrir íslendinga í for- tíð, nútíð og framtíð. Einnig er við- urkenningunni ekki síst ætlað að vekja athygli á þeim myndlistar- manni sem hefur dug, þor og frum- leika til þess að ausa af þeim gnægt- arbrunni sem geymir forn og ný sannindi um eðli þeirrar þjóðar sem kallar sig íslendinga. ■ menia cerrrpa plkjs Eru myndir í tölvunni? Má auka notagildi þeirra? Lausnin er Anokee PLUS! netalbum.nct % frjg pfcttÍW* Anokee forritið hentar jafnt í stóru og smáu umhverfi. Meðal notenda eru: Ráðhúsið í Reykjavík, Hönnun hf., Skógrækt ríkisins, MS, RALA, tækni- og kynningarsvið sveitarfélaga, skólar. Bjóöum námskelð i notkun stafrænna myndavéla. TILBOÐ TIL 15. FEBRÚAR! Eitt þú ávatlt muna skalt: Erfitt er að leita. Allir finna alttaf allt ef Anokee þeir beita Frekari upplýsingar: www.netalbum.is Net-Album.net s. 580 8200 info@netalbum.net <réjÍ!FFTN % B'jc»7rTý?‘ Yerd- sprenging Iqúldingabittf POPEYES við Smáratorg er opið kl.l 1-22 alla daga vikunnar. Beint » borðað as Betra bragð á betra verði Tilboðið gildir frá 1. febrúar til og með 11. febrúar 2002. popeyes@mrc.is http://popeyes.com POPEYES Kringlunni 104 Reykjavík sími: 5682900 POPEYES Smáratorgi 200 Kópavogur sími: 5682902

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.