Fréttablaðið - 06.02.2002, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 06.02.2002, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 6. febrúar 2002 FRETTABLAÐIÐ 13 Delta keypti fimmtung í sjálfu sér af Búnaðarbankanum til að fjármagna yfirtöku á Omega Farma: Bankinn tilkynnti ekki yfirtökuáform viðskipti Nokkrir starfsmenn Bún- aðarbankans unnu með Delta hf. í síðustu viku að undirbúningi vegna kaupa félagsins á Omega Farma. Guðmundur Guðmunds- son, forstöðumaður Fyrirtækja- ráðgjafar bankans, staðfesti þetta við blaðið. Greint var frá kaupun- um með tilkynningu til Verðbréfa- þings sl. mánudag. Fjármögnunin felst að stórum hluta í kaupum Delta á 20% hlut í sjálfu sér af Búnaðarbankanum sem greint var frá sama dag. Þar er um sama hlut að ræða og Búnaðarbankinn keypti af Jóhanni Óla Guðmunds- syni fyrir milligöngu Kaupings á fimmtudaginn í síðustu viku. Áframsalan til Delta var þó ekki tilkynnt fyrr en á mánudeginum. I 24. grein verðbréfalaga segir að gera verði „þegar í stað opin- berar allar upplýs- ingar um öll atriði sem máli skipta og telja verður að geti haft áhrif á verð bréfanna." Helena Hilmars- dóttir, starfandi framkvæmda- stjóri VÞÍ, sagði aðspurð að þingið hafi haft vitneskju um fyrirhugaðar tilkynningar. Aðil- ar hafi verið upplýstir um viðeig- andi reglur, en það sé hins vegar á ábyrgð þeirra sem í hlut eiga að meta aðstæður og tilkynna í sam- ræmi við reglurnar. Að öðru leyti vildi hún ekki tjá sig um málið. Guðmundur sagði seinkunina BUNAÐARBANKINN Var með í ferlinu sem leiddi til kaupanna á Omega. DELTA Kaupir eigin bréf af Búnaðar- bankanum fyrir 2.150 milljónir. hafa komið til af ýmsum ástæð- um. Einkum hafi það spilað inn í að tveir stjórnarmanna Omega Farma hafi verið erlendis fram á föstudag og því ekki hægt að ljúka samningsgerð fyrr en um helgina. Verðbréfaþinginu hafi auk þess verið haldið upplýstu um, fram- gang mála. Róbert Wessmann, forstjóri Delta, tók undir þetta og fullyrti að ákvæði verðbréfalaga hafi ekki verið brotin. Gengi Delta hélst stöðugt í síð- ustu viku eftir að Búnaðarbank- inn keypti af Jóhanni Óla. Eftir til- kynningu mánudagsins hefur það hækkað um rúm 20%. mbh@frettabladid.is RÓBERT WESSMANN Verðmaeti Omega Farma felst að miklu leyti í starfsfólkinu, segir forstjórinn. Delta frá 1998: Veltan hefur tífaldast lyfiacrein Gert er ráð fyrir að áreiðanleikakönnun vegna sam- einingar Delta og Omega Farma taki rúman mánuð og að samning- ur verði formlega undirritaður um miðjan næsta mánuð. Fari sem horfir mun greiðslan til eig- enda Omega nema rúmum fjórð- ungi hlutfjár Delta sem í dag reiknast á um 3.700 milljónir að markaðsvirði. Áætlanir gera ráð fyrir að velta samstæðunnar á yf- irstandandi ári verði um 10.500 milljónir. Um 90% tekna munu koma erlendis frá. „Delta hefur verið að fram- leiða samheitalyf fyrir innlendan og erlendan markað og við erum að styrkja þá starfsemi verulega með sameiningunni við Omega,“ segir Róbert Wessmann, forstjóri Delta. Rekstrartekjur Delta hafa tífaldast frá árinu 1998 miðað við áætlun ársins. Róbert segir ár- angurinn til þessa að miklu leyti byggjast á jákvæðu sjóðstreymi og hagnaði, en félagið hefur hing- að til ekki fjármagnað vöxt sinn með hlutafjáraukningum. Mark- aðsverðmæti hefur vaxið úr 2.700 milljónum haustið 1999 í rúma 14 milljarða í dag. ■ Meintur stuldur á rödd Rúriks Haraldssonar Rúrik Haraldsson vill fébætur frá Saga Film og Flugleiðum. Rúrik segir fyrirtækin hafa notað upptöku með upplestri sínum á Hávamálum í „hryllilega lélega“ auglýsingu á CNN án sinnar heimildar. Saga Film segir munnlegan samning hafa verið gerðan við leikarann og Flugleiðir hafna aðild að málinu. pómsmál Rúrik Haraldsson leikari hefur stefnt Saga Film og Flug- leiðum til að greiða 750 þúsund krónur í bætur og miska. Rúrik segir fyrirtækin hafa nýtt rödd sína án heimildar sinnar í auglýs- .ingu sem birt var á Fjárkrafa Rú- sjónvarpsstöðinni riks er byggð á höfundar- . Rurik segist svo lögum. Hún fra að hann hafl skiptist í 500 elnu Slnnl sem °ft’ , , ,, , ar verið staddur þusund kron- s pilm Þá urvegnafjár- hJafi s6tarfsmaður hag'e|s h°ns þar beðið hann að og 250 þus- lesa brpt úr Háva- und krona málum í enskri miskabætur þýðingu inn á vegna heim- hljóðband. ildarlausrar og Rúrik segir ólögmætrar starfsmanninn birtingar á lis- hafa sagt að upp- flutningi. lesturinn hafi að- —♦ eins verið til prufu. Rúrik segist ekki hafa ætlað að krefjast greiðslu sérstaklega fyrir þetta viðvik sem slíkt. Hins vegar hafi hann talið að haft yrði sam- band við sig aftur ef styðjast ætti við hljóðupptökuna eða þá til að lesa textann inn að nýju. Það næsta, sem Rúrik segist hafa frétt af málinu, var þegar stúlka í þjónustuhúsi fyrir aldr- aða, þar sem leikarinn býr, benti honum á að auglýsing fyrir Flug- leiðir með upplestri hans væri í birtingu á CNN. Auglýsingin var birt á fyrri hluta ársins 2000. Rú- rik sá auglýsinguna hins vegar eltki sjálfur fyrr en nú í janúar hjá lögmanni sínum. „Mig rak í rogastans að sjá hvernig þetta hafði verið útfært. Auglýsingin var hreinn og beinn hryllingur því hljóðsetning var svo illa unnin. Óllum mínum texta var bókstaflega drekkt í músík svo það RÚRIK HARALDSSON „Þeir sögðu að ég hefði skrifað undir samning. Þegar ég bað um að fá að sjá hann var hins ekkert að sjá enda hafði ég ekki skrifað undir neitt," segir Rúrik Haraldsson. heyrðust nánast ekki orðaskil. Þáð er alveg áreiðanlegt að ég hefði aldrei hleypt þessu frá mér svona svona illa unnu,“ segir Rúrik. Fjárkrafa Rúriks er byggð á höfundar lögum. Hún skiptist í 500 þúsund krónur vegna fjárhaglegs tjóns og 250 þúsund króna miska- bætur vegna heimildarlausrar og ólögmætrar birtingar á listflutn- ingi: „Þeir sögðu að ég hefði skrifað undir samning. Þegar ég bað um að fá að sjá hann var hins ekkert að sjá enda hafði ég ekki skrifað undir neitt,“ segir Rúrik. Listamaðurinn segir að sér hafi síðar verið boðin greiðsla eins og um vinnu við venjulega innlenda auglýsingu væri að ræða. „Það kom hins vegar alls ekki til greina enda er verið að útvarpa þessu í alheimssjónvarpi," segir Rúrik, sem krefst margfalt hærri upp- hæðar í bætur. Mál Rúriks var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrra- dag. Saga Film hafnar kröfum Rú- riks. Fyrirtækið segist hafa gert munnlegan samning við leikarann um innlesturinn. Flugleiðir hafna því að eiga aðild að málinu. Búist er við að aðalmeðferð þess verði með vorinu. gar@frettabladid.is Héraðsdómur: Fíklar játuðu innbrot dómsmál Héraðsdómur Reykjavík- ur dæmdi í gær tvo menn, 22 ára og 25 ára, til þess að sæta sex og tíu mánaða fangelsis. Þeir voru m.a. sakfelldir fyrir fíkniefnabrot og sjö innbrot í fyrirtæki og bíla. Dómur þess sem fékk sex mán- aða fangelsi var skilorðsbundinn til þriggja ára. Mennirnir tveir geng- ust við brotum sínum. Alls stálu þeir fyrir um 2,3, milljónir króna sem þeir ætluðu til fíkniefnakaupa. Smáræði af hassi og amfetamíni sem þeir áttu var gert upptækt. Annar mannanna var að auki fund- inn sekur um hafa stolið um 420 þúsund krónum í tveimur innbrot- um með þriðja manninum. ■ Starfsgreinas amb andið: Jákvæðir með viðbrögð ASÍ verðbólca Á funm framkvæmda- stjórnar Starfsgreinasambands- ins í gær kom fram að menn voru almennt jákvæðir með þau við- brögð sem ASÍ hefur sýnt til að ná tökum á verðbólgunni á síðustu vikum. Þetta var fyrsti fundur stjórnarinnar frá því átak ASÍ hófst. Halldór Björnsson formað- ur sambandsins telur þó að þeir sem vildu segja upp launalið kjarasamnings á sínum tíma hafi ekki breytt um skoðun. Þá hefði einnig verið ljáð máls á nauðsyn þess á fundinum að skoða nánar starfsemi fjármálastofnana og banka með tilliti til verðlagningu þeirra á sinni þjónustu. Halldór segir að það sé útilok- að að spá nokkru um það hvort einhver skriða af verðhækkunum muni koma fram eftir 1. maí ef mönnum tekst að halda verðbólg- unni innan rauða striksins fram að þeim tima. Hann segist þó vona að svo verði ekki. í því sambandi bendir hann á að í glímunni við verðbólguna sé ekki verið að tjal- da til einnar nætur heldur til frambúðar. ■ DDðnuveiðar: 305 þúsund tonn að landi loðnuveiðar Rétt rúmum 13 þúsund tonnum var landað af loðnu í gær. Þetta kemur fram í tölum frá Sam- tökum fiskvinnslunnar. Loðnuafl- inn á vetrarvertíð er því kominn í 160 þúsund tonn og þar af hafa er- lend skip landað um 3 þúsund tonn- um. í allt hefur verið landað 305 þúsund tonnum en á sumar- og haustvertíð var landað 147 þúsund tonnum. Eftirstöðvar úthlutaðs loðnukvóta eru 663 þúsund tonn. ■ Fj jarl ’Pers kenns ónuleg tölvu la. ikenn is isla Upplýsingar • í síma 511-4510 og 698 6787

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.