Fréttablaðið - 06.02.2002, Síða 2
KJÖRKASSINN
VARLA
VERÐLÆKKUN
Kjósendur á visi.is eru
hóflega bjartsýnir á að
nýjar reglur um bílavið-
skipti á Evrópska efna-
hagssvæðinu leiði til
lægra verðs í bílavið-
skiptum hér á landi.
Munu nýjar Evrópureglur skila
sér í lægra bílverði hérlendis?
Niðurstöður gærdagsins
á vwwv.visir.is
Spurning dagsins í dag:
Á flugmálastjóri að segja af sér vegna
mistaka við stjórnsýslu í máli Arna C.
Sigurðssonar flugstjóra?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þlna skoðun
FRÉTTABLAÐIÐ
6. febrúar 2002 MIÐVIKUDAGUR
Alþingi:
BORGARUMFERÐIN
Margir ökumenn telja að nagladekkin
auki á öryggi þeirra í umferðinni yfir
vetrartimann.
Gatnamálastj óri:
Um 63-65%
bíla á nagla-
dekkjum
umferð Talningar starfsmanna
gatnamálastjóra á notkun nagla-
dekkja benda til þess að 63-65%
þeirra bíla sem aka um í borginni
séu á nöglum. Þessar talningar
eru framkvæmdar í hverjum
mánuði á stórum bílastæðum í
borginni. Sigurður Skarphéðins-
son gatnamálastjóri segir að það
sem af er vetri sé notkun á nagla-
dekkjum í svipuðu horfi og var sl.
vetur. Hann segist þó telja að
þetta sé eitthvað að minnka. Áætl-
að er að nagladekkin kosti borgina
í viðhaldi gatna um 150 - 200 millj-
ónir króna á ári. Þess utan valda
nagladekk umtalsverðri ryk-
mengun sem verður einna mest í
langvarandi frostaköflum. Gatna-
málastjóri segir að þessi notkun
sé ekki endilega til marks um það
að átak borgaryfirvalda gegn
þeim hafi misheppnast.
í því sambandi bendir hann á
að átak borgaryfirvalda gengur
m.a. út á það að reyna að ná fram
hugarfarsbreytingu meðal öku-
manna til þess að nota aðrar gerð-
ir af hjólbörðum en þeim sem eru
negldir. Þá sé þetta einnig spurn-
ing um það að þeir sem nota
nagladekk setji þau ekki undir
fyrr en frá og með 1. nóvember ár
hvert og taki þau af eigi síðar en
15. apríl eins og kveðið er á um í
lögum. ■
ERLENT
Oldungadeild ítalska þingsins
samþykkti í gær tillögu sem
gerir meðlimum ítölsku konungs-
fjölskyldunnar kleyft að stíga
aftur á ítalska grundu. Fjölskyld-
an var gerð útlæg fyrir 56 árum,
fyrir stuðning sinn við fastista-
stjórn Benito Mussolini. At-
kvæðagreiðslan í gær var ein-
ungis fyrsta skrefið í átt að því
að breyta lögunum um konungs-
fjölskylduna. Sonur og sonarson-
ur síðasta konungs Ítalíu hafa
báðir lýst yfir stuðningi sínum
við lýðveldi á Ítalíu.
Pakistanar teljar að þeir séu
mjög nálægt því að leysa ráð-
gátuna um bandaríska blaða-
manninn sem rænt var fyrir sex
dögum í Pakistan. Lögreglan þar
í landi telur hún sé á spori mann-
ræningjanna og að blaðamaður-
inn, Daniel Pearl, sé enn á lífi.
Sala Símans sögð klúður
stjórnmAl Stjórnarandstæðingar
deildu í gær hart á hvernig staðið
hefur verið að sölu á Landssíman-
um.
Össur Skarphéðinsson, formað-
ur Samfylkingar, tók til máls í
upphafi þingfundar í gær og vildi
fá á hreint hvort verið væri að
selja Símann eða ekki. Vísaði hann
til ummæla Henning Dyremose,
forstjóra TDC, um að ekki kæmi
til greina að kaupa fyrirtækið
nema verð hans lækkaði. „Þetta er
fullkomið klúður hjá hæstvirtum
samgönguráðherra", sagði Össur
sem taldi ábyrgðina þó liggja hjá
einkavæðingarnefnd.
RÆTT VIÐ FLEIRI BJÓÐENDUR
Einkavæðingarnefnd opnar fyrir að ræða
við aðra en TDC um Landssímann.
Sturla Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra sagði samningaviðræður
enn í gangi. Niðurstöðureikningar
Símans á síðasta ári væru vænt-
anlegir og yrðu ræddir á næsta
fundi einkavæðingarnefndar og
TDC. Einkavæðingarnefnd áskilji
sér rétt til að ræða við fleiri aðila
en TDG um sölu Símans.
Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra, sagði umræðuna undar-
lega. Gagnrýndi hann Össur sér-
staklega. Sagði hann hefja mál sitt
með því að fara með fleipur og
halda svo áfram að byggja út frá
þeim.
Einnig bls. 6.
Suðurhlíðar 38:
Borgarráð
lætur undctn
þrýstingi
skipulac Borgarráð frestaði í gær
ákvarðanatöku vegna deiliskipu-
lags fyrir Suðurhlíðar 38 í Foss-
vogi. Fjöldi íbúa á svæðinu hefur
mótmælt fyrirhugaðri byggingu
blokkar sem standa á við göngu-
brúna yfir Kringlumýrarbraut.
„Við teljum fulla ástæðu til þess
að fara vandlega yfir þetta með íbú-
unum,“ sagði Hrannar B. Arnars-
son borgarráðsfulltrúi. „Við reikn-
um með því að þær tillögur sem lig-
gja fyrir núna verði afgreiddar, en
maður á aldrei að segja aldrei." ■
Flugmálastjóm fær
umhugsunarfrest
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort einhver verði dreginn til
ábyrgðar fyrir brot Flugmálastjórnar á stjórnsýslulögum. Lögmaður
flugmannsins, sem brotið var á, segir niðurstöðurnar í samræmi við
hans málflutning. Þær varpa engu ljósi á málið segir trúnaðarlæknir.
flucmAlastjórn Flugmálastjóri,
Þorgeir Pálsson, fær nokkurra
daga frest til að gera Sturlu Böðv-
arssyni, samgönguráðherra, grein
fyrir viðbrögðum sínum við niður-
stöðu nefndar sem fjallaði um
stjórnsýslu og opinberar yfirlýs-
ingar trúnaðarlæknis Flugmála-
stjórnar, Þengils Oddssonar, vegna
útgáfu heilbrigðisvottorðs flug-
mannsins Árna G. Sigurðarsonar.
Nefndin komst að þeirri niðurstöðu
að stjórnsýslulög hefðu verið brot-
in við meðferð á máli flugmanns-
ins.
Jakob Falur Garðarson, aðstoð-
armaður samgönguráðherra, segir
ljóst að niðurstaðan sé nokkuð al-
varleg ádrepa á stjórnsýslu flug-
málastjórnar. Aðspurður hvort að
niðurstaðan feli í sér að flugmála-
stjóri ætti hugsanlega að segja af
sér sagði Jakob ekki rétt að stilla
málinu upp þannig. „Ef það gerist
að stjórnsýslulög eru brotin þá er
einþyerju ábótavant hjá þeirri
stöfnun. Það eru brotalamir íþess.u
kerfi hjá flugmálastjórn," sagði
Jakob. /
Þorgeir Pálsson, fliigmálastjóri,
segir íSkýrsluna alvárlega áminh-
ingu varðandi stjórnsýslu Flug-
málastjórnar. Hann segir hana vera
„flókið mál“ en ekki þoli langa bið .
að bregðast við niðurstöðum henn-"'
ar, þó að ekki liggi fyrir með hvaða
hætti það verði gert. Þorgeir segir
ljóst að niðurstöður nefndarinnar
verði notaðar til að bæta verklag
flugmálastjórnar í framtíðinni. Þor-
Arni c. SIGURÐARSON
Er tilbúinn til þess að gangast undir allar
hugsanlega læknisskoðanir segir lögmaður
hans.
geir er hins vegar ekki tilbúinn til
að tjá sig um hvort að einhver verði
látinn axla ábyrgð í tilefni af niður-
stöðum nefndarinnar, það eigi eftir
að taka afstöðu til þess.
Þorgeir segir mál flugmannsins,
sem er kveikjá skýrslunnar, vera í
sérstökum farvegi hjá sérskipuð-
um trúnaðarlækni og skýrslan ekki
hafa bein áhrif á framgang þess.
Hann vænti þess þó að niðurstaða í
því liggi fyrir innan tíðar. Lögmað-
ur hans, Atli Gíslason, fundaði með
flugmálastjóra í gær. Hann segist
hafa farið fram á að flugmaðurinn
sætti ekki lengur sérmeðferð, held-
ur fengi að fljúga á ný. Atli segir
niðurstöður nefndarinnar nákvæm-
lega í samræmi við það sem hann
hefði barist fyrir síðan sl. maí.
Hann segir Þorgeir ætla að veita
ATLI GÍSLASON
Segir mál að sér-
meðferð á skjól-
stæðing sínum
linni.
ÞORGEIR
PÁLSSON
Segir skýrslu
nefndarinnar verða
notaða til þess að
bæta verklag Flug-
málastjornar.
Nýjar ESB-reglur um aukna samkeppni í bílasölu sem gilda munu hér á landi:
Lágvörumarkaður með bíla?
bílasala „Nýju reglurnar eru að
nokkru sniðnar eftir því sem ger-
ist í Bandaríkjunum. Framleið-
endurnir verða að selja hverjum
sem getur borgað fyrir bílinn,“
segir Stefán Ásgrímsson ritstjóri
FÍB blaðsins, um reglur sem ESB
kynnti í gær og er ætlað að auka
samkeppni bæði í bílasölu og -
þjónustu. Reglurnar munu gilda á
EES-svæðinu, og þar með á ís-
landi. Með tilkomu þeirra verður
einfaldara að kaupa bíla milli
landa og á Netinu. Hið sama gildir
um varahluti í bíla en verð á þeim
hefur rokið upp á undanförnum
árum að sögn Stefáns.
Verð á bílum og aðflutnings-
gjöld eru hvorki sérstaklega há né
lág hér á landi í samanburði við
Evrópu. Þvi er ekki líklegt að nýj-
ar reglur muni hafa áhrif hér á
landi ef bílasala verður áfram
fyrst og fremst í höndum bifreiða-
umboða vegna þess að verð á bíl-
um frá framleiðendum mun lík-
ÓLJÓST HVENÆR BREYTINGAR VERÐA
Fyrirkomulag dreifingar á bílum er í stórum dráttum þannig að söluaðilar sitja einir að
dreifingu tiltekinnar bílategundar á ákveðnu svæði. Þessu verður breytt I nýjum sam-
keppnisreglum sem unnið er að hjá Evrópusambandinu.
honum svör í dag eða á morgun.
Þengill Oddsson, trúnaðarlækn-
ir Flugmálastjórnar, sem vikið var
tímabundið frá störfum í byrjun
janúar, segir það sitt mat að niður-
staða nefndarinnar varpi engu ljósi
á málið. Hún fjalli ekki um aðalat-
riði þess, sem hljóti að vera heil-
brigðismál flugmannsins og flugör-
yggi. Þengill sagðist ekki hafa
heyrt neitt frá Flugmálastjórn og
því að öðru leyti ekki tilbúinn til
þess að tjá sig um málið.
sigridur@frettabladid.is
lega lítið breytast. Hins vegar
gætu íslenskir neytendur eygt
möguleika á verðlækkunum ef
nýir innflytjendur koma til sög-
unnar og hefja sölu á bílum og
varahlutum í lágvöruverðsum-
hverfi.
Núgildandi reglur renna út í
lok september á þessu ári og
stefnt er að því að hinar nýju
öðlist þá þegar gildi. Brynja Haf-
steinsdóttir hjá Samkeppnis-
stofnun segir þó algengt að éldri
reglur séu framlengdar meðan
komist sé að samkomulagi um
nýjar. Hún á því ekki sérstaklega
von á að nýju reglurnar taki gildi
strax í haust. ■
Valgerður Sverrisdóttir:
Við viljum
vanda okkur
ráðherra Valgerður Sverrisdóttir,
viðskipta- og iðnaðarráðherra,
sagði að verið væri að fara yfir er-
indi Verslunarráðs íslands, sem tel-
ur Samkeppnisstofnun hafa farið út
fyrir valdheimildir sínar. Ákvörðun
um það hvernig því yrði svarað yrði
tekin í dag eða á morgun
Aðspurð sagðist Valgerður ekki
geta svarað því hvort starfshættir
Samkeppnisstofnunar í tengslum
við húsleitina hjá olíufélögunum
yrðu kannaðir sérstaklega eins og
Verslunarráð hefði farið fram á.
„Við erum að fara yfir erindið og
þurfum að átta okkur á lögfræðinni
í þessu öllu saman," sagði Valgerð-
ur. „Við viljum vanda okkur við
þessi svör og gerum ekki lítið úr
þessu erindi."
Valgerður sagði einnig hugsan-
legt að það væri ekki hlutverk ráðu-
neytisins að bregðast við erindinu.
Ef svo væri væri það ekki hennar
að benda á hver hefði það hlutverk.
Einnig bls. 12.
Miklabraut í Reykjavík:
Nýtt hús-
næði fyrir
heimilislausa
heimilislausir Ákveðið hefur verið
að hefja undirbúning að opnun nýs
heimilis fyrir heimilislausa að
Miklubraut 20. Heimilið er fyrst og
fremst ætlað þeim mönnum sem
lengst hafa gist í Gistiskýlinu við
Þingholtsstræti án þess að hægt
hafi verið að útvega þeim annan
samastað. Áætlaður stofnkostnaður
er 3 milljónir króna en áætlaður
rekstrarkostnaður er um 20 millj-
ónir á ári.
f september samþykkti borgar-
ráð að fela félagsmálastjóra að
hef ja viðræður við heilbrigðisráðu-
neytið og félagasamtök um rekstur
heimila fyrir heimilislaust fólk í
Reykjavík. í kjölfar viðræðanna
óskaði Samhjálp eftir því að reka
tvö heimili. í fyrstu verður einung-
is eitt opnað í húsi Skipulagssjóðs
að Miklubraut 20.
Þegar reynsla hefur fengist af
rekstri heimilisins við Miklubraut
mun verða athugað hvort grund-
völlur verði fyrir opnun á öðru
heimili fyrir heimilislausa. Hug-
myndin er að það gæti tekið við
fólki sem búið er að fá viðhlýtandi
meðferð og undirbúning fyrir
verndaða búsetu. ■
ERLENT I
Farið hefur verið fram á sex ára
fangelsi yfir meintum leiðtoga
starfsemi Osama bins Ladens í
Evrópu. Réttarhöld yfir honum
eru hafin á Ítalíu. Farið er fram á
fjögurra og hálfs árs fangelsi yfir
samverkamönnum hans. Mennirn-
ir fjórir sem allir eru frá Túnis,
éru gakaðir um að tilheyra hópi
hryðjúverkamanna sem falsað
hefðu vegabréf og reynt að nálg-
ast sprengiefni. Mennirnir voru
handteknir á síðasta ári.