Fréttablaðið - 06.02.2002, Blaðsíða 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
6. febrúar 2002 MIÐVIKUDAGUR
26 ára gamall kennari á Englandi:
Sýknuð af ákæru um
kynmök við nemendur
Fótalaus innbrotsþjófur:
Lofar bót
og betrun
LONDON. ap. Það reyndist breskum
húseiganda lítið mál að bera kennsl á
innbrotsþjófinn Robert William Bate
sem gert hafði tilraun til að brjótast
inn hjá honum. Bate er nefnilega
fótalaus og sá eigandinn þegar verið
var að bera hann af vettvangi glæps-
ins. Hann slapp hins vegar vel, dóm-
ari ákvað að sleppa honum við refs-
ingu eftir að verjandi hans sagði að
Bate ætlaði sér að taka upp nýja lifn-
aðarhætti. Bate hefur áður hlotið
dóma fyrir innbrot og búðarhnupl.
Hann hafði þær málsbætur að hafa
drukkið 16 stóra bjóra áður en vinir
hans öttu honum til verksins. ■
GUILFORD.ENCLANDI.AP Kviðdómur á
Englandi sýknaði í gær kennar-
ann Amy Gehring af ákæru um að
hafa átt kynmök við tvo tánings-
pilta, sem jafnframt voru nem-
endur hennar. Gehring, sem er 26
ára gamall líffræðikennari frá
Kanada, var ákærð fyrir að hafa
dregið piltana, sem voru 15 og 16
ára gamlir þegar atburðurinn átti
sér stað, á tálar og ráðist á þá á
ósæmilegan hátt. Voru þeir báðir
undir lögaldri. Réttarhöldum í
málinu, sem staðið hefur yfir í
tvær vikur, lauk á mánudaginn. í
yfirheyrslum neitaði Gehring öll-
um ásökunum og sagði drengina
hafa logið upp á sig sök og komið
sér saman um sögu gegn sér.
Gehrig játaði í yfirheyrslu í síð-
ustu viku að hafa átt óviðeigandi
samskipti við nokkra nemendur
skólans, þar sem hún starfaði sem
forfallakennari. Sagðist hún hafa
drukkið sig fulla eitt sinn í partýi
með nemendum skólans, en neit-
aði því aftur á móti að eitthvað
kynferðislegt hefði átt sér stað.
Viðurkenndi hún að sér hefði liðið
illa eftir að hafa flutt til Englands
frá Kanada og þess vegna hafi
hún farið að umgangast nemend-
ur utan skólatíma og farið með
þeim í nokkur partý. ■
GEHRING
Amy Gehring mætir til Guilford-réttarsalar-
ins í Englandi ( gær. Hún var ákærð fyrir að
hafa dregið tvo táningspilta á tálar í skóla í
Surray á Englandi.
Kvikmyndasjóður íslands:
Allar styrktar myndir
hafa endað á tjaldi
KVIKMYNDAIÐNAÐUR Þor-
finnur Ómarsson fram-
kvæmdastjóri Kvik-
myndasjóðs segir að til
tals hafi komið að
Kvikmyndasjóður
borgaði út styrki í sam-
ræmi við reikninga.
„Þetta er gert víða á
Norðurlöndunum. Þá
eru ekki borgaðir út
styrkir nema að sann-
anlegur kostnaður liggi
fyrir,“ segir hann.
Hann segir þessu fyrir-
komulagi fylgja mikil
skriffinnska sem lítil
stofnun eins og Kvik-
myndasjóður ráði illa
við. „Hver einasta bíó-
mynd sem við styrkj-
um hefur skilað sér upp
á tjald og peningunum
hefur verið varið eins
og til stóð.“
Þorfinnur segir að Kvikmynda-
sjóður greiði ekki út styrki nema
fyrir liggi samframleiðslusamn-
NÆGJANLEGT EFTIRLIT
Þorfinnur Ómarsson lítur ekki
á það sem hlutverk Kvik-
myndasjóðs að fylgjast með
kjörum starfsmanna við Kvik-
myndir.
vera með
hægt er án
fa eftirlit
vegna." ■
ingar. „Okkar aðalskil-
yrði er staðfest fjár-
mögnun frá öllum að-
ilum. Þá eru mjög litl-
ar líkur á að eitthvað
fari úrskeiðis." Hann
segir Kvikmyndasjóð
ekki geta fylgst með
því hvort styrkur frá
sjóðnum sé notaður í
þá mynd sem hann
hafi verið fenginn til.
Hins vegar þurfi fyrri
verkefni styrkþega,
sem hafa hlotið styrk
úr Kvikmyndasjóði,
að vera komin á tjald
til að styrkur fáist.
Þorfinni finnst skipta
höfuðmáli að faglega
sé staðið að úthlutun
styrkja frá Kvik-
myndasjóði. „Mér
finnst að við eigum að
eins mikið eftirlit og
þess að vera með óþar-
eða eftirlit eftirlitsins
lí
ooniyf, doío og ooífa
100% án ilm og litarefna
Henta viðkvæmustu húðgerðum
Heilbrigður lífsstíll
Cb lyfja Kynning 20% afsláttur frá kl. 14-18
Miðvikudag Laugavegi • Finrimtudag Setbergi Hfj. • Föstudag Smáratorgi
LÝSIR EFTIR STEFNU
Einar Þór Gunnlaugsson er kvikmyndagerðarmaður og er með mastersgráðu í stjórnunarfræði innan menningar- og listgreina.
Fólk þarf ad ganga á
eftir launum sínum
Engar reglur gilda um kaup og kjör þeirra sem starfa í íslenskum kvik-
myndaiðnaði. Starfsmenn hafa ekki með sér stéttarfélag. Samið er um
kaup og kjör á einstaklingsgrunni. Algengt er að fólk vinni kauplaust
meðan það er að kynna sig en krafan um að fólk vinni fyrir lítil sem
engin laun er að aukast.
KVlKlvtYNDAlÐNADUR Einar Þór
Gunnlaugsson kvikmyndagerðar-
maður telur að fyrir komi að farið
sé af stað í kvikmyndaverkefni
sem ekki er búið
..-♦..■ að fjármagna að
„Þetta er ekki fullu. Hann segir
nógu gott og að sögusagnir séu
ég held að í gangi um að ekki
það sé vegna sé alltaf innistæða
þess að það fyrir þeirri er-
vantar alla lendu fjármögnun
stefnu. Það er sem framleiðend-
engin heildar- ur sýna fram á og
hugsun í er skilyrði fyrir
pakkanum." Því að fjármagn
ív fáist frá Kvik-
myndasjóði og að í
sumum tilvikum sé styrkur frá
Kvikmyndasjóði notaður til að
greiða niður skuldir frá eldri
myndum.
Einar Þór segir að það sé eins-
dæmi hér á íslandi að engar regl-
ur gildi um kvikmyndamarkað-
inn. Hann telur mikilvægt að unn-
ið sé eftir ákveðnum reglum í
þessari atvinnugrein eins og öðr-
um, að minnsta kosti þegar um er
að ræða verk sem styrkt eru af
Kvikmyndasjóði íslands. „Víða
erlendis er búið að setja mikinn
tíma og fé í að búa til stefnu í
kringum þennan flókna málaflokk
þannig að stjórnmálamenn geti
hvílt sig á honum." Reglurnar
snúast um samskipti aðila, stofn-
ana á vegum hins opinbera annars
vegar og þeirra sem framleiða
kvikmyndirnar hins vegar.
Einar er á þeirri skoðun að tími
sé kominn til að jafnvægi og
reglufesta komist á íslenska kvik-
myndabransann, nýgræðingstím-
inn sé liðinn. Sömuleiðis telur
hann eðlilegt að þeir sem starfa í
geiranum myndi með sér stéttar-
félag. „Það getur líka verið hagur
fyrir framleiðandann að vera með
stéttarfélag, til að standa ekki
alltaf í einhverjum smástríðum og
vera óöruggur með vinnukraft-
inn,“ segir hann og bendir líka á
að mikill tími fari í að semja við
hvern og einn.
Einar Þór telur þetta stjórn-
leysi öllum í óhag. „Þetta er ekki
nógu gott og ég held að það sé
vegna þess að það vantar alla
stefnu. Það er engin heildarhugs-
un í pakkanum." Einar vísar bæði
til þess að stefnu skorti af hálfu
hins opinbera og einnig frá Kvik-
myndasjóði, til dæmis um hvers
konar myndir beri að styrkja. Ný
kvikmyndalög voru samþykkt í
desember og taka gildi um næstu
áramót. „Lögin eru ágæt. Hins
vegar skiptir meira máli að búa
til reglugerð og stefnu því lögin
fara ekki nema hálfa leið.“
steinunn@frettabladid.is
irn Armirsson cr málcfnalej'ur stjórnmálaniaður sem liefur vaxið nieó liverjti íiýju verkefni 0|» aflart séi
al síuiistarfsmanna óg boWárlnia. Hann er anuálaðiir fyrir Ijúfnicnnsku og er |)ekktur fvrir að reyha
rs maiins vanda. Hrannar lljtirn hóf kjiirlíinabilið nveð stormiim i fánj*ið en jiað er Ijóst að hann nýtnr
lærrar frammistöðu sinnar í þjónustq Kcýkvíkinj
wmm
Stuðningsmenn Hrannars Björns Arnarssonar í prófkjöri
Samfylkingarinnar fyrir frantboð Reykjavíkulistans.