Fréttablaðið - 06.02.2002, Síða 10
FRÉTTABLAÐIÐ
FRETTABLAÐIÐ
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson
og Jónas Kristjánsson
Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson
óg Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsímí: 515 75 00
Sfmbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Slmbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf.
Prentun: isafoldarprentsmiðja hf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgarsvæðinu. F/rirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta alft efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
| BRÉF TIL BLAÐSINS~
Mannvonska
hjáLÍN
Sigriður skrifar:
Mikið var ég sorgmædd þegar
ég las frétt í blaðinu ykkar
um að Lánasjóður námsmanna
sýndi engan skilning á aðstæðum
MS sjúklings sem er í skuld við
sjóðinn. Það er skelfilegt til þess
að vita að forsvarsmenn sjóðsins
séu slíkir reglupésar að taka ekk-
ert tillit til aðstæðna fólks. Mér
finnst ekki skipta höfuðmáli hvort
þessi einstaklingur var kominn í
skuld við sjóðinn áður en aðstæð-
ur hans breyttust. Margir hafa
lent í vandræðum en getað unnið
sig út úr þeim. Forsenda þess að
geta unnið sig úr slíku er að menn
séu heilir heilsu. Ég trúi því ekki
að í málskotsnefnd sjóðsins sé svo
harðbrjósta fólk að það finni ekki
leið til að létta þessari byrði af
skuldaranum. Mér finnst afar
ókristilegt að níðast á neyð fólks,
jafnvel þótt það hafi ekki staðið
algjörlega sína plikt. ■
10
6. febrúar 2002 MIÐVIKUDACUR
Árekstur stjórnsýslu o
NÓVEMBER 1998
Árni G. Sigurðsson flugmaður
fær blóðþurrðarsjúkdóm í heila.
Hann leitar sjálfur læknis og fær
meðferð sem beinist að áhættu-
þáttum sjúkdómsins. Þengill
Oddsson, trúnaðarlæknir Flug-
málastjórnar fær málið inn á sitt
borð. Þengill taldi Árna ekki upp-
fylla skilyrði reglna Flugöryggis-
samtaka Evrópu um útgáfu flug-
skírteina. Forsenda þeirra niður-
stöðu byggðist á að ekki mætti
vera meira en 1% líkur á að sjúk-
dómur af því tagi sem skerðir
hæfni manna endurtaki sig.
Árni áfrýjaði síðar niðurstöðu
Þengils til sérstakrar áfrýjunar-
nefndar sem skipuð var þremur
læknum.
MAÍ 2001
Nefndin úrskurðaði að Árni upp-
fyllti skilyrði reglugerðar flug-
málastjórnar. í framhaldi af því
gaf Þengill út takmarkað heil-
brigðisvottorð. Heilbrigðisvott-
orðið þýddi að Árni mátti ekki
fljúga nema í fjölskipaðri áhöfn
og varð að gangast undir læknis-
skoðun á 4 mánaða fresti. Árni
undi ekki þessum úrskurði. Hann
vísaði málinu til samgönguráðu-
neytis og krafðist þess að tak-
markanirnar yrðu teknar út. Deil-
an virtist snúast um hvort ætti að
fylgja reglum evrópsku flugör-
yggissamtakanna eða íslenskum
reglum. Leiðbeiningarhluti evr-
ópsku reglnanna hafði ekki verið
þýddur og birtur hér á landi og
JEocsaga
Nefnd sem samgönguráðherra skipaði um
stjórnsýsiu í máli Árna G. Sigurðssonar,
flugstjóra, hefur skilað áliti. Niðurstaðan
er að stjórnsýsla hafi verið ámælisverð.
Málið er hins vegar flókið og hefur fleiri
en eina hlið.
því ekki öðlast gildi. Því var ósam-
ræmi milli íslenskra og evrópskra
reglna.
JANÚAR 2002
Sturla Böðvarsson skipar nefnd
til að fara yfir vinnubrögð Flug-
málastjórnar í máli Árna. Nefndin
var skipuð tveimur lögfræðingum
auk landlæknis. Niðurstaða
nefndarinnar er að stjórnsýsla
Þengils og Flugmálastjórnar hafi
verið ámælisverð. Þengli hefði
' (.
>■ ‘
...
...
borið að bera ákvörðun sína um
takmarkað heilbrigðisvottorð
undir áfrýjunarnefnd og leita
skýringa hafi hann talið eitthvað
óskýrt í úrskurði hennar. Land-
læknir skilar viðauka við skýrslu
nefndarinnar, þar sem hann telur
að jafnvel þótt áfátt hafi verið
góðri stjórnsýslu, hafi niðurstaða
Þengils byggst á læknisfræðileg-
um rökum. ■
JÓNAS SKRIFAR:
Leppríki ísraels
íran á ekki heima á því, sem bardagaglaður Bush
Bandaríkjaforseti nefnir „illan öxul“ frá írak til
Norður-Kóreu. Afturhaldsöfl klerkastéttar og
lýðræðisöfl forseta írans takast á um völdin í
landinu. Við þær aðstæður er mikilvægt, að ekki
sé verið að stimpla ríkið sem óargadýr.
Það er hreinn tilbúningur Bandaríkjastjórnar,
að íran hafi komið Talibönum og liðsmönnum al
Kaída undan sigurvegurum stríðsins í Afganistan.
íran hefur alltaf verið andvígt báðum þessum öfl-
um af trúarástæðum og var næstum komið í stríð
við Talibana fyrir þremur árum.
Talibanar og liðsmenn al Kaída flúðu hins veg-
ar til Pakistans, þar sem þeir eiga öruggt grið-
land, þar á meðal helztu liðsoddarnir. En Pakistan
er í bandalagi við Bandaríkin, svo að ekki má_tala
um þá staðreynd, heldur skella skuldinni á íran,
sem ekki kemur neitt við sögu í málinu.
íran hefur hins vegar stutt uppreisnarhópa
gegn hernámi ísraels í Suður-Líbanon og Palest-
ínu, meðal annars með hergögnum. Þetta er eðli-
legur stuðningur við þrautkúgað fólk og felur
ekki í sér ógnun við Vesturlönd eða Bandaríkin,
aðeins við hryðjuverkaríkið ísrael.
Staðreyndin er sú, að það er ísrael, sem hefur
komið íran á lista Bandaríkjastjórnar yfir þrjú
hættulegustu ríki heimsins, hinn illa öxul frá Irak
til Norður-Kóreu samkvæmt orðalagi Bush
Bandaríkjaforseta. Hagsmunir ísraels ráða
þessu, en ekki hagsmunir Bandaríkjanna.
ísrael hefur hreðjatök á utanríkisstefnu
Bandaríkjanna. Enginn forsetaframbjóðandi í
Bandaríkjunum þorir að láta hjá líða að lýsa yfir
eindregnum stuðningi við ísrael. Og enginn getur
náð sæti á Bandaríkjaþingi gegn andstöðu þrýsti-
hópanna, sem gæta hagsmuna Israels.
Þessir þrýstihópar stuðningsmanna ísraels
eru svo öflugir í Bandaríkjunum, að enginn
stjórnmálamaður kemst til áhrifa þar í landi án
þess að fylgja þeim að málum. Víðast annars stað-
„Þessir þrýstihópar stuðningsmanna
Israels eru svo öjlugir í Bandaríkjunum,
að enginn stjórnmálamaður
kemst til áhrifa þar í landi án þess að
fylgja þeim að málum. “
ar væru þetta talin landráð, en í Bandaríkjunum
virðast kjósendur vera sáttir.
Hér er ekki rúm til að skýra, hvernig stuðn-
ingsmenn lítils hryðjuverkaríkis hafa komizt í þá
stöðu að stjórna utanríkisstefnu Bandaríkjanna
og tefla því á brún styrjaldar við ríki, sem hefur
það eitt sér til saka unnið að styðja þrautkúgað
fólk á hernámssvæðum ísraels.
Afleiðingarnar eru hins vegar ljósar. Banda-
ríkjastjórn er svo upptekin af þjónustu við hags-
muni ísraels, að hún fórnar í staðinn hagsmunum
sínum af góðu samstarfi við Evrópu, til dæmis í
Atlantshafsbandalaginu, og bakar sér almennt
hatur fólks í löndum íslamskrar trúar.
Blind þjónusta Bandaríkjanna við hagsmuni
lítils hryðjuverkaríkis hefur leitt til aukinna áhri-
fa laustengdra hryðjuverkahópa á borð við al
Kaída, sem eiga einkum trúarlegar rætur sínar í
Sádi-Arabíu, en ekki í íran, og beina spjótum sín-
um gegn Bandaríkjunum.
Hryðjuverkin á Manhattan og árásin á
Afganistan eru þættir í vítahring, sem byggir til-
veru sína á því, að Bandaríkin hafa hafnað evr-
ópskum sjónarmiðum í garð íslams og leggja ut-
anríkisstefnu sína í sölurnar fyrir eitt mesta
vandræðaríki heims um þessar mundir.
Segja má, að rófan sé farin að veifa hundinum
of hastarlega, þegar Bandaríkin koma fram á al-
þjóðavettvangi sem leppríki ísraels og eru í því
hlutverki farin að stofna heimsfriðnum í voða.
Jónas Kristjánsson
| INNHERJAR
Frá svart-
sýni til ofur-
væntinga
I^hvaða sæti verðum við á EM?“
spyr einn á Innherjum á vísi.is í
upphafi keppninnar. Eftir
nokkurn tíma kemur mæðulegt
svar: „Ég held því miöur aö við
komust ekki í milliriðla." Al-
mennrar svartsýni gætir í svörun-
um. Tónninn breytist strax eftir
leikinn við Spánverja. „Stórgóð-
um leik við Spánverja lauk með
jafntefli og nú getum við svo
sannarlega sagt Spánverjar voru
meiriháttar heppnir að ná jöfnu,“
hljóðar eitt innleggið og sömu
spurningu og í upphafi er varpað
fram. „Hvaða sæti á EM gera
menn sig ánægða með úr þéssu?
Ég yrði hæstánægður með 5. sæt-
ið,“ segir einn og innherjar eru al-
sælir með það. Einn laumar þó inn
fjarlægum draumi um að liðið nái
í undanúrslit.
í framhaldinu vaxa vænting-
arnar og þegar liðið er komið í
undanúrslit eru innherjar sann-
færðir um að leiðin á verðlauna-
pallinn sé greið. Annað kemur á
daginn og menn eru ekki lengi að
leita skýringa „Því miður varð
samspil afspyrnulélegra dómara
og góðs dansks markvarðar til
þess að íslendingar misstu af
bronsinu," segir einn vonsvikinn.
Innherjar eru umræðuvettvangur á
vefnum visir.is.
; "C* r’:-.
% ' T
GARÐABÆR
www.gardabaer.is
Garðaskóli - Studningsfulltrúí
Ert þú þroskaður einstaklingur á góðum aldri sem
hefur reynslu og ánægju af að umgangast unglingá?
Garðabær auglýsir laust til umsóknar starf
stuðningsfulltrúa í Garðaskóla. Um er að ræða 75%
starf við aðstoð við ofvirkan nemanda.
Upplýsingar um starfíð veita Ragnar Gíslason,
skólastjóri í símum 565 8666 og 820 8594 og Þröstur
V. Guðmundsson, aðstoðarskólastjóri í síma 820 8595.
Umsóknarfrestur er til 12. febrúar nk.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga við Starfsmannafélag Garðabæjar.
Starfið er einnig auglýst á vef Garðabæjar
http://www.gardabaer.is
m
Grunnskólafulltrúi
Fræðslu- og menningarsvið
ORÐRÉTT
PILLA Á R-LISTANN
„Ef doði og kyrr-
staða grípur um
sig í einu sveitar-
félagi um hríð get-
ur annað sveitar-
félag gefið tóninn
og sýnt hvað öflug
og djörf stjórnun
getur skilað."
Davíð Oddsson á ráðstefnu um Ríki,
borg og sveitarfélög. DV, 5. febrúar.
HEIMSPEKINGAR
f HÚSASMÍÐI
„Hann reyndi að
kenna mér að
hugsa og ég-reyn-
di að kenna honum
að naglhreinsa.
Hvorugt heppnað-
ist.“
Eiríkur Jónsson rifj-
ar upp samstarf við
Stefán Snævarr heimspekiprófessor í
bygg*ngavinnu. DV, 5. febrúar.
VIÐURKENNINCARNAR BÍÐA
„í dag lít ég fyrst
og fremst fram á
veginn. Eftir
kannski tíu ár lítur
maður til baka og
nýtur afraksturs-
ins. Maður hefur
engan tíma í dag
til þess að láta ein-
hverjar viðurkenningar hafa
áhrif á sig.“
Ólafur Stefánsson handknattleiksmaður
um það að vera valínn í úrvalslið EM.
VIDKVÆMUR VARNARJAXL
„Maður stóð þarna
á pallinum eins og
kjáni með tárin í
augunum, kökkinn
í hálsinum og
brjálaða gæsa-
húð.“
Sigfús Sigfússon línu-
maður og varnarjaxl
lýsir upptifun sinni af móttökuathöfn i
Smáralind þar sem þúsundir fögnuðu
. •. iandsliðinu.
HÓPÍÞRÓTT
„Þetta var einstak-
ur hópur og það
hefur verið frá-
bært aö vinna með
þeim. Ég hef
reyndar aldrei
fyrr eða síðar unn-
ið með jafn sam-
stiíltum hóþi.“
Guðmúndur Guðmundsson, landsliðs-
þjálfari. DV, 5. febrúar.
SÁRSAUKAFULLT EN
ÓPERSÓNULEGT
„Jón Axel [...]
sagðisf ekki muna
nákvæmlega hver-
su mörgum hefði
verið. sagt upp.
„Það er alltaf sárs-
aukafullt að horfa
á eftir góðu fólki,“
sagði Jón Axel.
Jón Axel Ólafsson, yfirmaður útvarpssviðs
Norðurljósa um uppsagnir starfsmanna
hjá útvarpsstöðvum fyrirtækisins. Frétta-
blaðið, 5. febrúar.
HEIMA í KARTÖfLuCARÐINUM
„Hús hér eru undirlögð af mold,
maður nær varla andanum og það
liggur við að maður geti sett niður
kartöflur á gólfinu í versluninni.“
Björn B. Jóhannsson, verslunareigandi
á Lyngási í Rangárvallasýslu um moldrok-
ið um helgina. Mbl. 5. febrúar.
FÉLAG ÁHUCAMANNA UM
KÓNGAFÓLK
„Steinunn Jóhann-
esdóttir rithöfund-
ur setur sig í stell-
ingar frétta-
skýránda [...] og
kemst að þeirri
niðurstöðu, að
málverk af föður
mínum í bakgrunni ljósmyndar af
Ingu Jónu Þórðardóttur, þegar
hún tilkynnti stuðning við mig
sem borgarstjóraefni sjálfstæðis-
manna, sé til marks um einhvern
óbærilegan þrýsting á Ingu Jónu,
þegar hún tók ákvörðun sína. ÖIl
er. þessi frásögn Steinunnar hin
sérkennilegasta, en R-listafólk
virðist viðkvæmt fyrir málverk-
um af föður mínum. [...] Steinunn
ræðir framboð í Reykjavík með
sama líkingamáli og Ingibjörg
Sólrún, þegar hún raeðir um
krúnuröð og erfðaptinsa. Ég sagði
á fundi sjálfstæðismánna, að R-ið
í heiti R-listans stæði fyrir ráð-
leysi en ekki Reykjavík. Áf tali R-
listafólksins um hátignir vegna
framboðsmála mætti ætla, að R-ið
standi fyrir Royal - eða konung-
legt. „
Björn Bjarnason á bjorn.is
JiLt liiiJ iJiliJi