Fréttablaðið - 06.02.2002, Qupperneq 14
FÓTBOLTI
SEX LEIKJA BANN
Lee Bowyer og Danny Mills gengu niður-
lútir frá yfirheyrslu enska knattspyrnusam-
bandsins í gær. Bowyer fékk sex leikja
bann og 10.000 punda sekt fyrir að gefa
Gary McAllister hjá Liverpool olnbogaskot í
leik og að rífast við dómara í öðrum leik
við Arsenal. Mills fékk tveggja leikja bann
og 7500 punda sekt fyrir að rífast við dóm-
ara, einnig (leiknum við Arsenal.
Aston Villa:
Taylor rád-
inn þjálfari
fótbolti Graham Taylor hefur
verið ráðinn knattspyrnustjóri
Aston Villa. Hann tekur við af
John Gregory, sem fór til Derby
County, öllum að óvörum, í síð-
ustu viku. Taylor þjálfaði Villa frá
1987 til 1990. Þá lenti liðið m.a. í
öðru sæti í úrvalsdeildinni. Hann
þjálfaði enska landsliðið í byrjun
tíunda áratugarins. Því gekk ekki
vel á ÉM 1992 og komst ekki í úr-
slitakeppni HM 1994.
Helsta markmið Taylor er að
koma Villa í Evrópukeppni. Hann
sagðist ætla að koma sterkur inn
og sigra Chelsea á laugardaginn. ■
Smur
stöð
VELALAIMD
VÉLASALA ♦ TÚRBÍNUR
VARAHLUTIR • VIÐGERÐIR
Vagnhöföi 21 • 110 Reykjavík
Sími: 577 4500
velaland@velaland.is
Wavín
Göturennur
Rennur til nota í
gólf, við veggi -
fyrir framan bíl-
skúra o.m.fl.
VATNSVIRKINN ehf.
Ármúla 21, Sími: 533-2020
14
FRÉTTABLAÐIÐ
6. febrúar 2002 MIÐVIKUDAGUR
Michael og Juanita
Jordan:
Lappa upp á
sambandið
körfubolti Michael Jordan og Ju-
anita Jordan hafa ákveðið að gefa
hjónabandinu annað tækifæri. Ju-
anita sótti um skilnað í síðasta
mánuði, vildi forræði yfir börnun-
um og helming eigna Michael. Hún
sagði árangurslaust fyrir þau hjón-
in að reyna að halda sambandinu
gangandi. Allar tilraunir hefðu
verið árangurslausar. Þegar Jord-
an var spurður um þetta virtist
hann alltaf bjartsýnn. „Þetta er
eitthvað sem við þurfum að vinna í.
Ég ætla ekki að sitja aðgerðalaus.
Við eigum börn,“ sagði hann í síð-
asta mánuði.
JORDAN HJÓNIN
Vilja fá frið á meðan þau reyna að kveikja (
gömlu glóðunum.
í gær gáfu hjónin út sameigin-
lega yfirlýsingu. „Við ætlum að
láta reyna á sættir. Ef einkalíf okk-
ar fær frið frá almenningi eru mun
meiri líkur á að markmiðið takist.“
Juanita dró einnig til baka skilnað-
arumsóknina. Jordan hjónin eiga
þrjú börn saman, 13,11 og níu ára.
Þau eru búin að vera gift í 12 ár. ■
AÞENA 2004
Grikkir eru ( óðaönn að undirbúa Ólympíuleikana árið 2004. Alþjóðlega ólympíunefndin
er dugleg að koma með athugasemdir við ýmsan viðbúnað. Ljóst er að Grikkir þurfa að
taka mikið til áður en allt verður samþykkt. Spænski arkítektinn Santiago Calatrava sýndi
nýlega líkan af Ólympíusvæðinu og vakti það mikla lukku.
„Sit frekar inni í 20 ár“
Islenska hnefaleikafélaginu BAG hefur verid boðin þátttaka á stærsta áhugamannamóti heims.
Frumvarp um lögleiðingu hnefaleika hefur verið lagt fyrir Alþingi í þriðja sinn. BAG vill senda
landslið á mótið.
hnefaleikar íslenska boxklúbbn-
um BAG hefur verið boðið að
senda keppendur á Ringside mót-
ið, sem er stærsta áhugamanna-
mót heims í hnefaleikum.
Ringside fyrirtækið er stærsta
boxfyrirtæki heims og hefur
marga fræga hnefaleikakappa á
sínum snærum s.s. Fernando Var-
gas, Floyd Mayweather, Evander
Holyfield og Felix TFinidad. Mótið
hefst þann 28. ágúst n.k. og stend-
ur í fjóra daga. Um 400 keppend-
ur, frá Puerto Ríkó, Jamaíka og
Bandaríkjunum, taka þátt í mót-
inu.
„Við höfum verið í sambandi
við þá undanfarin ár og gefið þeim
upplýsingar um stöðu mála hér
heima. Þeir hafa sýnt þessu rosa-
legan stuðning og nú eru þeir að
gefa íslandi kost á að taka þátt,“
BOXARAR
Tólf Islendingar fóru til Bandaríkjanna á seinasta ári þar sem þeir öttu kappi við þarlenda
boxara. Líklegt er að einhverjir af þeim fari á Ringside mótið.
SNORRI JÓNSSON
Einn af aðstandendum Bag boxklúbbsins
segist frekar vilja sitja inni ( 20 ár en
hætta að boxa.
segir Snorri Jónsson, einn af að-
standendum BAG. Fyrir ári síðan
sendi BAG tólf keppendur á mót í
Bandaríkjunum og.stóðu þeir sig
allir vel.
Á Alþingi liggur nú fyrir frum-
varp, í þriðja sinn, um lögleiðingu
ólympískra hnefaleika. Líklegt er
að þriðja og síðasta. umræöan um
það fari fram á finttntudaginn
kemur. Snorri segist ætla að halda
áfram að boxa þó frumvarpið nái
ekki fram að ganga.
„Þá höldum við áfram með
sama afli og hefur knúið okkur
áfram hingað til. Það er ekkert
sem getur bannað okkur að boxa.
Ég mun frekar sitja inni í 20 ár en
hætta því. Það er fáránlegt að
banna okkur þetta enda hefur eng-
inn meiðst á æfingum hjá okkur.
Safnað var saman læknisvottorð-
um sem voru lögð fram á Alþingi
til að sýna fram á það. Það er auð-
vitað einhver meiðslatíðni í grein-
inni en þetta er ekkert í líkingu við
það sem sést á Sýn. í áhugamanna-
boxi eru rothögg t.a.m. mjög óal-
geng. Það er ekki slegið jafn fast
því það er eingöngu stigaskor sem
gildir í þessari íþrótt. Til að skora
sem flest stig þarftu að vera hrað-
ur en ekki fastur.“
Félag áhugamanna um lögleið-
ingu ólympískra hnefaleika fékk
styrk frá íþróttasambandi íslands
(ÍSÍ) upp á 150 þúsund krónur til
að kynna íþróttina hér á landi.
Snorri segir að BAG muni einnig
reyna að fá styrk frá ÍSÍ vegna
ferðarinnar.
„Við viljum gera þetta í sam-
vinnu við ÍSÍ, en sem komið er
heimila lögin okkur ekki slíkt. Við
viljum að liðið sem fer þarna út
verði eiginlegt landslið íslend-
inga. Það er ekkert sem segir til
um hversu margir mega fara en
við viljum að þetta sé landslið ís-
lands. Við munum velja úr þá sem
við teljum keppnisfæra. Við von-
um að þessi lög detti inn sem fyrst
svo þessir drengir geti fengið ein-
hverja keppnisreynslu áður en
þeir fara þangað."
kristjan@frettabladid.is
Roberto Baggio
hættir að spila
Baggio breytir um lífsstíl, 34 ára gamall.
I síðustu viku reif hann upp þrálát hnémeiðsli.
Utlitið ekki bjart eftir uppskurð.
fótbolti Umboðsmaður
ítalska fótboltasnill-
ingsins Roberto
Baggio tilkynnti á
mánudagskvöld . að
Baggio hafi ákveðið að
hætta að spila knatt-
spyrnu. Hann var' ný-
búinn að ná sér eftir
hnémeiðsli þegar hann
lenti í samstuði. „Við
vorum að vonast eftir
betri útkomu eftir
slysið á fimmtudaginn.
Nú vill Roberto hætta
að spila fótbolta. Hann
ætlar að breyta um
lífsstíl," sagði Vittorio
Petrone umboðsmaður.
Petrone vildi ekki
gefa upp vonina að sjá
A SJÚKRABÖRUNUM
Roberto Baggio gnísti tönn-
um þegar hann var borinn
af leikvelli í bikarleik Brescia
og Parma á fimmtudaginn.
Parma vann leikinn 2-0.
Seinni leikur liðanna fer
fram (dag.
Baggio, sem oft er kallaður Guð-
dómlega taglið, aftur á vellinum.
„Við ætlum að reyna að tala hann
til. Minn æðsti draumur er að sjá
hann spila aftur. Þó hann sé búinn
að missa af HM á hann skilið að
spila aftur.“
Baggio hefur upp á
síðkastið ekki farið
leynt með það að hans
heitasta ósk var að
taka þátt með ítalska
landsliðinu á HM í fót-
bolta í Suður-Kóreu og
Japan í su'mar. Hann
hefur ekki spilað mik-
ið með landsliðinu
undanfarin. ár og vill
breyta því. Fyrst ítals-
ka deildiri ,er rúmlega
hálfnuð visái Baggio
að hann hafði ekki
mikinn tíma til að
sannfæra Giovanni
Trapattoni landsliðs-
þjálfara um ágæti sitt.
Aldurinn, sjúkrasagan
og sífellt fleiri og
yngri ítalskir fótboltasnillingar
unnu á móti honum í vali lands-
liðsins. Trapattoni sagðist hins-
vegar fylgjast grannt með hon-
um. Hann kæmi sterklega til
greina í hópinn.
Baggio var ekki búinn að spila
í ítölsku deildinni í þrjá mánuðr
vegna hnémeiðsla. Hann dreif sig
snemma á fætur og spilaði með
liði sínu, Brescia í síðustu viku.
Þar lagði harih upp tvö mörk í 3-1
sigri á Lecce. Fyrsti leikur
Baggio eftir meiðslin átti að vera
á móti Parma í fjórðungsúrslitum
ítalska bikarsins fyrir tveimur
vikum. Þegar fréttir bárust rétt
fyrir leik af láti eins leikmanns
Parma í bílslysi var leiknum
frestað fram til síðastliðins
fimmtudags. Þá lenti hann í
slæmu samstuði sem reif upp
hnémeiðslin. Hann fór í uppskurð
á mánudaginn. Eftir hann var
Ijóst að Baggio gæti ekki spilað í
nokkra mánuði.
Baggio hefur staðið sig með
ágætum í deildinni í vetur, fyrir
utan meiðslin. Hann skoraði átta
mörk í níu leikjum og var með
guðdómlega taglið
Baggio laumar boltanum framhjá Spán-
verjanum Zubizarreta í'tjórðuhgsúrslitum
HM 1994. Markið tryggði Itölum þáttöku-
rétt ( undanúrslitum. Hann hefur spilað 55
landsleiki fyrir Ítalíu.
markahærri mönnum. Brescia
gekk betur þegar hann var í hópn-
um. Fyrir meiðslin fékk liðið 13
stig í átta leikjum og var í sjötta
sæti. í fjarveru Baggio fékk það
éinungis sex stig í 11 leikjum og
nálgast botninn óðfluga.
Baggio hefur mikla reynslu af
stórmótum, tók þátt á HM 1990,
1994 og 1998. Frægt er þegar
hann klúðraði heimsmeistaratitl-
inum fyrir Ítalíu með því að bren-
na af í vítaspyrnukeppni á móti
Brasilíu 1994. Hann fékk ekki að
vera með á EM 2000. Þá töpuðu
ítalir úrslitaleiknum á móti
Frökkum. ■