Fréttablaðið - 06.02.2002, Side 22
1 FRETTIR AF F^LKI 1
Starfsfólk Símans er á köflum
undir ýmis konar álagi.
Heyrst hefur að starfsmenn inn-
anbúðar skrafi
sín á milli að
synd sé að hafa
Þórarin V. Þór-
arinsson á þess-
um ágætu laun-
um næstu árin
án þess að hann
verði að gagni í
fyrirtækinu.
Hafa menn rætt
það að maður með jafn mikla
samningatækni og sannfæringa-
kraft gæti sinnt ýmsum störfum í
notendaþjónustu. Sem dæmi hafa
menn nefnt almenna símsvörun
svo og innheimtur, Telja menn að
skuldarar Símans myndu greiða
reikninga sína að fullu og rúm-
lega það ef krafta Þórarins nyti
við.
Ífréttir af fólki i“
Grímur Valdimarsson hefur
fengið lausn frá starfi for-
stjóra Rannsóknastofnunar fisk-
iðnaðarins og hyggst einbeita sér
að starfi sínu sem forstjóri fisk-
iðnaðardeildar sjávarútvegssviðs
Matvæla- og landbúnaðarstofnun-
ar Sameinuðu þjóðanna, FAO, í
Róm. Forstjórastaðan í Rann-.
sóknastofnun fiskiðnaðarins
verður því auglýst laus til um-
sóknar á næstunni.
Ur innsta hring Samfylkingar-
innar heyrist nú að ekki sé
nokkur vafi á að Stefán Jón Haf-
stein, formaður
framkvæmda-
stjórnar flokks-
ins, sækist eftir
efsta sæti Sam-
fylkingarinnar á
R-listanum. Talið
er að hann muni
fyrst og fremst
nð Helga Hjörvar,
forseta borgarstjórnar, sem ætl-
ast til að verða fyrsti borgarfull-
trúi Samfylkingarinnar á næsta
kjörtímabili rétt eins og á þessu.
Framganga handboltalandsliðs-
ins hefur vakið athygli. Margt
hefur verið sagt og skrifað um
ágæta frammistöðu liðsins.
Handknattleikssambandið hefur
notið góðs af þar sem safnast
hafa margar
milljónir hér og
þar því til styrkt-
ar. Ríkisstjórnin
ákvað að setja 15
milljónir til sam-
bandsins - en þarf
ekki neinar sam-
þykktir aðrar en
ákvörðun ríkisstjórnar til að
borga út 15 milljónir króna? En
hvað um það, B jörn Bjarnason,
hefur gripið tækifærið og kemur
víða sem hinn frelsandi engill. Sá
galli er þó á rausnarskap hans að
hann fer með peninga þjóðarinn-
ar - en ekki sína eigin.
Það kom ekki á óvart þegar þau
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Hog Davíð Oddsson
tjáðu sig um
byggðastefnu að
þau voru eins
mikið ósammála
og hugsast getur.
Það sem henni
þótti ágætt þótti
honum vont og
svo framvegis. Sannkallaðir höf-
uðandstæðingar.
Heimildarmaður Fréttablaðs-
ins í utanríkisþjónustunni
segir að einn möguleikinn sem
Halldór Ásgríms-
son skoði þessa
dagana, í því
skyni að bæta
ásýnd flokksins,
sé að hrókera
með ráðherra í
ríkisstjórninni og
hleypa manneskju
á boró við Jónínu Bjartmarz þar
að. N li'sé tækifæri til að hrista
upp ' íherraliðinu, eins og
leng: .fur legið í loftinu, um leið
og B., .. n Bjarnason hverfi í
borp málin.
22
m „
FRÉTTABLAÐIÐ
Tvenn verðlaun á þremur dögum:
Christopher Lee heiðraður
leikari Christopher Lee hlaut
verðlaun Empire kvikmynda-
blaðsins fyrir framlag til leiklist-
arinnar í gær. Þetta voru önnur
slík heiðursverðlaun
kappans á þremur dög-
um. Chrisopher Lee er
79 ára gamall og á lang-
an feril í kvikmyndaiðn-
aðinum að baki. Hann
hefur slegið í gegn á
nýjan leik hjá kvik-
myndaunnendum i hlut-
verki sínu sem Sarúman
í Hringadróttinssögu.
Hann fer einnig með
hlutverk í næstu
Stjörnustríðsmynd.
Eldri áhorfendur minn-
ast hans sem greifans Drakúla og
illmennisins Scareamanga í Bond-
kvikmynd. Alls hefur hann leikið í
yfir 250 kvikmyndum, sem mun
vera heimsmet.
Það eru lesendur Emp-
ire blaðsins sem velja
verðlaunahafana. Meðal
annara sem hlutu verð-
laun voru Kate Winslet,
sem var kosin besta bres-
ka leikkonan og Ewan
McGregor, sem kosinn
var besti breski leikarinn.
Kvikmyndin Moulin Rou-
ge og Hringadróttinssaga
unnu þrenn verðlaun hvor
og sú síðarnefdna var kos-
in besta myndin. ■
CHRISTOPHER LEE
Tekur hér við verð-
launagrip fyrir framlag
til leiklistarinnar á Ev-
ening Standard hátíð-
inni sl. sunnudag.
HLUSTAÐ A FÓLKIÐ
Hver eru vandamálin, draumarnir og lausnirnar? - er meðal þess sem íbúar á Kjalar-
nesi spyrja sig þessa dagana þegar skipulagsmál ber á góma. Sigurborg segist oft
reka sig á í sínu starfi að fólk virðist ekki trúa því að á það sé hlustað. Með aðferða-
fræði samráðsskipulagsins sé ætlunin að sjónarmið íbúa fái notið sín.
Undir Esjuhlíðum:
Vistvæn byggð
skipulagsmál Hatt i eitt hundrað
manns komu saman á dögunum
til að ræða möguleika á vist-
vænni byggð undir Esjunni. Boð-
að var til fundar með íbúum á
Kjalarnesi og öðrum áhugasöm-
um um málefnið en þetta mun
vera í fyrsta skiptið sem að fullu
er notast við svokallað samráðs-
skipulag hér á landi þegar mál af
þessu tagi eru rædd.
„Samráðsskipulag er þýði
enska orðinu „community plann-
ing“ og sem meðal annars hefur
verið þróað í Bretlandi. Þetta er
aðferð við skipulag þar sem byrj-
að er með autt blað og haft er
samráð við íbúana allt frá fyrstu
stigum skipulagsins,11 segir Sig-
urborg Kr. Hannesdóttir, verk-
efnastjóri hjá Ráðgjafafyrirtæk-
inu Alta, sem hafði umsjón með
vinnuferli þingsins, en skipulags-
þátturinn var í höndum skipu-
lags- og byggingarsviðs Reykja-
víkurborgar.
„Fyrst var unnið með ákveðin
viðfangsefni í vinnuhópum þar
sem notaðir voru gulir miðar til
að taka fyrir vandamál, drauma
og lausnir. Síðan voru myndaðir
litlir hópar þar sem fólk settist
niður yfir kortum og loftmyndum
og setti hugmyndir sínar fram. I j
hverjum hópi var fagmaður en
það má segja að þarna hafi allar
hugmyndir notið sín til jafns við
aðrar.“
Sigurborg undirstrikar að þótt
fólk kunni að vera leikmenn í
skipulagsmálum þekki það sitt
umhverfi og viti hvaða óskir það
fi.
Hún nefnir að mikilvægt sé að
gæta að því að engin sjónarmið
vanti í umræðuna og að yfirvöld
séu reiðubúin að fylgja verkefn-
inu eftir ef á annað borð sé óskað
eftir tillögum frá íbúum.
En hvaða framtíðarsýn hafa
íbúar Grundarhverfis varðandi
skipulagsmál á Kjalarnesi?
„Þetta er auðvitað svæði sem
hefur þá sérstöðu að vera dreif-
býli í jaðri þéttbýlisins og það er
eitthvað sem fólk vill halda í. Það
vill að þarna verði aðstaða fyrir
útvist af ýmsu tagi, fólk vill sjá
miðbæjarkjarna, að ýmsar til-
raunir verði gerðar með vistvæn-
ar áherslur og að gróður verði
meira áberandi til að gera byggð-
ina vistlegri. Þá má nefna hug- ;
myndir eins og að reisa smábáta-
bryggju og fleira í þeim dúr.“
kristjangeir@frettabladid.is
Að sögn kunnugra í utanríkis-
ráðuneytinu er ein ástæðan
fyrir því að Sigrún Magnúsdóttir
hefur ekki gefið kost á sér til
áframhaldandi setu í borgar-
stjórn sú, að hún og eiginmaður
hennar eru á leið-
inni til Kaup-
mannahafnar þar
sem Sigrún verð-
ur sendiherra og
Páll Pétursson,
sendiherra“frú“.
Með þessu slær
Halldór tvær
flugur í einu höggi: Losnar ann-
ars vegar við Pál Pétursson á
smekklegan hátt og finnur þægi-
legt embætti fyrir hina dyggu
flokksmanneskju Sigrúnu og
hressir hins vegar svo um munar
upp á ásýnd flokksins í aðdrag-
andi þingkosninga. Sigrún sagði í
samtali við Fréttablaðið að þetta
hefði ekki verið nefnt við sig.
Fréttir herma að Davíð Odds-
son sé á leið í heimsókn til
Bandaríkjanna til að hitta
„flokksbróður"
sinn í NATO, Ge-
orge Bush
Bandaríkjafor-
seta. Hann fari
sem samherji í
Atlantshafs-
bandalaginu og
sá sem setið hef-
ur lengst allra
lýðræðiskjörinna forsætisráð-
herra.
Spá
í spásímanum 9086116 er
spákonan Sirrý og spáir í
ástir og örlög framtíðar.
Einnig tímapantanir fyrir
einkatíma í sama síma.
Andleg leiðsögn, miðlun, tarot, spilaspá,
draumaráðningar og huglækningar.
Leitum lausna við vandamálum.
Verðviðfrá kl.15-2
i síma 908-6040. Hanna
Tarotlínan sími 908 5050
tarotlestur, miðlun, draumráðningar.
Fínsvör um hjónabandið, ástina,
heilsuna, fjármálin, símatími 18-24
Sálarrannsóknarfélag íslands
stofnað 1918
Garðastræti 8, Reykjavík.
Miðlarnir og huglæknarnir
Birgitta Hreiðarsdóttir, Bjarni
Kristjánsson, Erna Jóhanns-
dóttir , Guðrún Hjörleifsdóttir,
Hafsteinn Guðbjörnsson, Krist-
ín Karlsdóttir, Lára Halla Snæ-
fells, María Sigurðardóttir,
Rósa Ólafsdóttir, Skúli Lórenz-
son og Þórunn Maggý Guð-
mundsdóttir starfa hjá félaginu
og bjóða upp á einkatíma.
Einig starfar Amy Engilberts
dulspekingur hjá félaginu og
býður upp á einkatíma.
Friðbjörg Óskarsdóttir heldur
utan um mannræktar-, þróun-
ar- og bænahringi.
Upplýsingar og bókanir eru í
s. 551 8130 alla virka daga frá
kl. 9.00 til 15.00 Einnig er hægt
að senda fax, 561 8130, eða
tölvupóst, srfi@isholf.id
SRFÍ.
Sálarrannsóknarfélag
íslands stofnað 1918
Frá Sálarrannsóknarfélagi íslands:
Eftir miðjan febrúar eru fyrirhuguð þrjú
ný námskeið hjá félaginu:
HUGLEIÐLUNÁMSKEIÐ þar sem
kennd verður MYNDRÆN HUG-
LEIÐSLA.
ORKUUPPBYGGING eða hvernig við
eigum að byggja upp orkuna okkar
með hjálp orkustöðvanna.
TILFINNINGAÚRVINNSLA hvernig
getum við unnið okkur út úr erfiðri til-
finningalegri reynslu
ATH! vegna takmarkað fjölda er fólk
beðið að bóka sig sem fyrst.
Sálarrannsóknarfélag ísiands
Garðarstræti 8
101 Reyjavík
s:551 -8130
Fax:561-8130
netfang: srfi@simnet.is
Laufey Héðinsd. miðill s-9085050
Tarotlestur, miðlun, draumaráðningar,
fyrri líf, fyrirbænir.
Sími9085050
Flokkaðar
auglýsingar
515 7500
Iðnaðui*
Námskeið
Námskeið í tré og
trérennismíði hefjast í
febrúar, lýkur fyrir páska
Kennari
Þórarinn Þórarinsson
Upplýsingar í síma
894 3715
www. simnet. is/inni
Acryl ehf
S: 561 1206 GSM: 8985457
Tökum að okkur alla almenna
málningavinnu.
Stór sem smá verk
Málun erfag
Helgi Gunnlaugsson
löggiltur málarameistari
TRÉVINNUSTOFAN e*f
Sími 8958763
fax 55461 64
Smiðjuvegur 1 1
200 Kópavogi
Sérsmíöi í aldamótastíl
Fulningahuröir. Stigar
Gluggar. Fög . Skrautlistar
Alhliða
byggingaþjónusta
Vanir menn og
vönduð vinna.
Meistaraskólagengnir
húsasmíðameistarar.
Sími: 894-9529 og 898 0771
Til sölu einnota
stillansaefni
1200 metrar af
1“ x 6“
153 metrar af
2« x 4«
sími 8972280
Parketslípun, Parket-
viðhald, Parketlögn
Gö/fi
stan
Júlíus Júlíusson GSM 847 I48I
Fagmennska í fyrirúmi
Ábyrgjumst öll okkar verk