Alþýðublaðið - 04.06.1960, Qupperneq 8
KLUKKAN * SLO
Skalla-
mef
SKÖLLÓTTIR menn frá
mörgum þjóðlöndum komu
saman nýlega á ráðstefnu í
La Baule í Frakklandi.
ítalski iðjuhöldurinn Li-
vio Tamanini var kjörinn
heimsins sköllótti maður.
Hann var kosinn af kvið-
dómi, sem samanstóð af
þrem konum. Þær notuðu
stækkunargler til að rann-
saka með hinn gljáandi
skalla Livios.
Henri Breuil, 27 ára gam
all Frakki, var kjörinn bezt
sköllótti maður Frakklands.
SAMTÍNINGUR
ROBERT MITCHUM, hinn
„hættulegi maður“ banda-
rískra kvikmynda, getur
ekki Ieikið nema hann hafi
alltaf agúrkur að gæða sér á
meðan verið er að filma.
'u’
HILDEGARD KNEF, sem
ekki hefur gengið vel í
þýzkum kvikmyndum und-
anfarin ár, hefur verið í
Englandi um hríð, en er nú
komin til Berlínar og ætlar
að leika þar í leikhsúum. f
frístundum málar hún, en
ekki vegna listarinnar, held
ur af því, „að olíulitir róa
taugar mínar“.
'ú
ALLIR Hollywoodleikar-
ar, sem leika í biblíumynd-
um, verða að hafa brúnar
augnalinsur, ef þeir eru
ekki brúneygðir fyrir. —
Bandarískur fræðimaður
hefur sem sagt komizt að
því, að á tímum Móse voru
allir með brún augu.
☆
HVERS vegna viltu endi
lega giftast henni?
Af því að ég elska hana.
Ég spurði um ástæðuna,
en ekki afsökunina.
Þðgn og
UM þessar mundir er að
Ijúka í Cambridge í Eng-
landi töku kvikmyndarinnar
KLUKKAN SLÓ ÞRJÚ
(The Clock Struck Three).
Hér er um að ræða spenn-
andi brezka mynd, sem von
andi kemur I eitthvert kvik
myndahúsanna hér áður en
alltof langt um líður.
Á myndinni sjáið þið
brezka leikarann Dermont
Walsh, en einnig leikur í
myndinni Terrence Law-
þrjóska
■liiiiiiiiiliiiiiiiiliiiiiiiliiiiiliiiiiiiiimimiiiiiiiiiiiiiliiiilliiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiilllltiitiiiiiiiiiiiiiuiiiiB
EINU SINNI kom maður
nokkur í Englandi 40 mín-
útum of seint i hádegismat-
inn til konu sinnar. Hann
hafði verið að leika golf.
Konan varð svo móðguð að
hún talaði ekki aukatekið
orð við mann sinn NÆSTU
SJÖ ÁR. Maðurinn varð svo
móðgaður af þvi að kona
hans tók þessa smáyíirsjón
svona alvarlega, að hann
mælti heldur ekkí aukatek-
ið orð til hennar.
Hjónin bjuggu saman all-
an þennan tíma og ólu upp
tvö börn 1 þögn og þolin-
mæði.
Svo sættust þau loks. Það
var árið 1956. En tveim ár-
um síðar þögnuðu þau aftur.
Það var af því að hann
vakti hana eina nóttina með
því að reka olnbogann í síð-
una á henni og kvartaði und
an því að hún hryti.
Frá þeirri nóttu hraut
þeim ekki stakt orð af
munni og konan hætti alger
lega að gera handarvik í
húsinu. Eiginmaðurinn tók
það allt að sér en lét hana
hafa tæpar 500 kr. vikulega
sér til uppihalds.
Nú á dögunum fór konan
fyrir dómstólaná og sótti um
skilnað frá manni sínum á
þeim forsendum, að hann
hefði meðhöndlað hana
grimmdarlega. Dómur féll
á þann veg, að konan fengi
ekki skilnað, þar eð dómar-
inn kvaðst ekki geta talið
eitt olnbogaskot í margra
ára hjónabandi „grimmdar-
lega meðferð“.
En bæði eru sauðþrá, og
konan hefur lýst því opin-
berlega yfir að hún muni
aldrei víkja hænufet frá
sinni skoðun.
Úrslit málsins eru því ó-
útreiknanleg, en helzt virð-
ist sem þau muni þegja sam
an það sem eftir er ævinnar.
GREER GARSON var
eitt sinn fræg leikkona, en
hefur nú ekki um langt
skeið sézt á hvíta tjaldinu.
Nú hefur hún fengið hlut-
verk f myndinni Dagsbrún
í Campobello, en hún fjallar
um líf og starf Roosevelts
forseta. Greer Garson leik-
ur frú Eleanor Roosevelt.
Þær sjást hér hlið við hlið.
rence, sem lék í m;
Ben Hur, sem rnikiH
og athygli hefur vah
★
Þetta er alltof
hræsni ... Auðvitað
ur hjartanlega san
þessa leikara. Það ei
an, sem mestu máli
Það þekkja víst flest
ið hennar, Ragnheiðu
ín Jónasdóttir. Undai
sex vikur meðan
kvikmyndarinnar hei
ið hefur hún unnið
laust. Við höfum f
leikur i kvikmynd
ekki tekinn út með e
sitjandi sældinni,
þrotlaus vinna frá
til kvölds. Myndiri
úr kvikmyndinni, s
hefur verið að full
töku á, og án efa hefi
heiður leyst hlutve
vel af hendi.
Ragnheiður er, að
við bezt vitum, fy
lenzka stúlkan, sem
veigamikið hlutverk
mynd erlendis. Húi
til vill á leið upp til
anna____Hver veit?
er um slíkt að spá“
Við óskum hem
gengis.
g 4. júní 1960 — Alþýðuhlaðið