Lögberg - 28.07.1955, Síða 1
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
Transit - Sargent
Silverline Taxi
S Telephone Lines
20-4845
ÁRGANGUR
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
Transit - Sargent
Silverline Taxi
5 Telephone Lines
20-4845
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 28. JÚLÍ 1955
NÚMER 30-31
Hittumst heil í bústað guðanna á íslendingadaginn
íslenzk kvik-
•^yndasýning
Kjartan Ó. Bjarnason, kvik-
^yndatökumaður frá Reykja-
Vlk, hefur undanfarnar vikur
Verið á ferð með próf. Finn-
k°ga Guðmundssyni um ís-
lendingabyggðir í Minnesota,
Htah, á Kyrrahafsströnd, 1
Alberta og Saskatchewan.
Hafa þeir unnið að mynda-
töku meðal íslendinga hvar
Sern þeir hafa komið, en
Kjartan jafnframt sýnt lit-
kvikmynd sína af íslandi á
nokkrum stöðum. Stendur til,
þeir tvímenningar ferðist
nrn helztu Islendingabyggðir
1 Manitoba fyrri hluta ágúst-
^ánaðar og þá í ráði, að
Hjartan sýni Islandsmynd
Slna svo víða, sem við verður
komið.
Hefur Kjartan undanfarin
^ár sýnt mynd þessa um alla
anmörku eða rúmlega 300
S1nnum við mjög góðar undir-
ektir. Skulu hér til fróðleiks
J, SNORRI JÓNASSON
orseti Islendingadagsnefndaritin-
°e forseti á hátíðinni á Gimli
1. ágúst.
Fjalikona á Islendingadaginn MISS SNJÓRAUG SIGl'RDSON
birt ummæli tveggja stærstu
dagblaðanna í Kaupmanna-
höfn, eftir að Kjartan hafði
sýnt mynd sína þar:
Berlingske Tidende:
„Myndin var snilldarverk
og verðskuldar allt það lof, er
veitzt getur afbragðskvik-
mynd.“
Politiken:
„Myndin var unaðslegur
myndaóður um Island líkt og
flett væri blöðum í ævintýra-
bók skreyttri hrífandi falleg-
um myndum.“
Þar sem úr miklu efni er
að velja, mun Kjartan leggja
áherzlu á að sýna ýmislegt
það frá íslandi, er menn hér
vestra hafa lítt eða ekki séð
áður. Má nefna t. d. þátt um
bjargsig, eggjatekju og fugla-
líf í Vestmannaeyjum, lax-
veiðar og mjög góðan þátt
um íslenzkt sveitalíf, er endar
með göngum og réttum. Þá
eru myndir af ýmsum falleg-
um stöðum víðsvegar af
landinu.
Baínandi uppskeruhorfur
Að því er landbúnaðarráðu-
neyti sambandsstjórnar segist
frá, hafa uppskeruhorfur í
Saskatchewan og Manitoba
farið stórlega batnandi upp á
síðkastið og í mörgum bygðar-
lögum megi vænta afar mik-
illar uppskeru, þó sums
staðar hafi ormaplága valdið
skemdum.
AÐALSTEINN F. KRISTJANSSON
Mælir fyrir minni Canada á hátí6-
inni á Gimli 1-. ágúst.
JOANNE MARJA LAXDAL
Hirðmey
Cordell Hull lótinn
Cordell Hull, sem var utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna
lengur en nokkur annar, lézt
á laugardaginn 23. júlí, 83 ára
að aldri. Hann þjónaði í því
embætti í ráðuneyti Franklins
D. Roosevelts frá marz 1933
til nóvember 1944. Þá varð
hann að segja af sér sökum
vanheilsu.
Hann lagði sig allan fram
til að reyna að afstýra heims-
styrjöldinni síðari, og eins til
þess að reyna að finna veg til
þess að fyrirbyggja, að til
styrjalda leiddi í framtíðinni.
Þessi viðleitni hans til að
tryggja frið í heiminum í
framtíðinni átti mikinn þátt í
stofnun Sameinuðu þjóðanna.
Var hann nefndur faðir Sam-
einuðu þjóðanna og hlaut
Nobels-friðarverðlaunin 1945.
Mr. Hull var af mörgum tal-
inn einn mikilhæfasti maður,
er utanríkisráðherraembætti
Bandaríkjanna hefir skipað.
SÉRA BRAGI FRIÐRIKSSON
Heldur ræSu fyrir minni íslands
á íslendingadaginn á Gimli
1. ágúst.
íslendingum gcfið
Ijósprentað cintak af
#/Books of Kells"
í gær af henti próf. Delargy
forseta íslands ljósprentað
eintak af Book of Kells. Er
hún gjöf frá ríkisstjórn ír-
lands til íslendinga. Bókin
var rituð 770 e. Kr. og þykir
hin mesta gersemi. Munkarnir
á Jóna byrjuðu á bókinni, en
vegna ágengni norrænna vík-
inga urðu þeir að flýja til ír-
lands, og settu þeir á stofn
klaustur í Kells, ekki alllangt
frá Dyflinni. Þar var bókinni
svo lokið nokkru síðar.
Árið 1539 lagði Hinrik kon-
ungur 8. eign sína á bókina,
en þá hafði hún ýmist verið á
Jóna eða Kells og varðveitzt
þar.
Fegursta bókin
Próf Delargy sagði m. a.,
þegar hann afhenti forsetan-
um bókina, að hún hafi verið
nefnd fegursta bók heims —
og gætu írar ekki sýnt íslend-
ingum betur, hvern hug þeir
bera til þeirra en með þessari
gjöf.
Papar komu hingað m. a.
frá Jóna og Kells og fluttu
með sér fyrstu ritin til Is-
lands; gerðist það um svipað
leyti og þetta handrit var
skrifað, sagði prófessorinn
ennfremur.
— Með þessari gjöf færi ég
yður hjartanlegustu kveðjur
frá þjóð minni og ríkisstjórn
og vona að hagsæld og ham-
ingja fylgi hinni fornfrægu
þjóð, sem líkist okkur um svo
margt, — hefur þjáðst, en
haldið velli, eins og við.
—Mbl., 26. júní
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON,
tónskáld,
Spilar Islenzk kórlög af plötum og
segulbandi kl. 12.30 til 1.45 e. h.