Lögberg - 28.07.1955, Page 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 28. JÚLl 1955
Lögberg
Gefið út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA
J. T. BECK, Manager
Utanáskrift ritstjðrans:
EDITOR LÖGBERG, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram
The ‘'Lögberg” ls printed and published by The Columbia Press Ltd.
695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada
Authorized as Second Cláss Mail, Post Office Department, Ottawa
PHONE 743 411
Árshát'íðin norður við Winnipegvatn
Telja má víst af fyrri ára reynslu, að næsta mánudag
verði gestkvæmt í hinum fagra og friðsæla skemtigarði
Gimlibúa við Winnipegvatn, því þá halda Vestur-íslendingar
norður þar hinn sextugasta og sjötta Islendingadag sinn;
þessar hátíðir eiga hvorki að vera né mega heldur vera tildurs-
hátíðir einskorðaðar við einn dag á ári; þær eiga að vera
hátíðir hjartans, samfagnaðarhátíðir yfir sameiginlegum upp-
runa og þakkarhátíðir fyrir þá sigra sem fámennur þjóð-
flokkur hefir unnið í harðsnúinni baráttu við andvíg öfl.
Heiðra skaltu föður þinn og móður; næst Guði, sem gaf
okkur landið, er það okkar helgasta skylda, að minnast á Is-
lendingadögum landnemanna íslenzku, sem með sigg í lófum
breyttu villimörk í frjóvan og arðberandi akur; ræktar-
semin við minningu feðra og mæðra er engin dygð; hún er
siðferðisleg skylda.
Bjarni Thorarensen var skáld hins mikla manndóms;
hann var föðurlandsvinur og hetja, sem hataðist við hvers
konar veimiltítuhátt; hann þorði að elska þjóð sína og hvatti
hana sýknt og heilagt til dáða; ljóð hans Herhvöt er eggjandi
og holt til íhugunar:
„Skalat halur hræðast dauða
helgan, fyrir föðurláð,
afla geði ei skal nauða
að aldri gamals ei fær náð.
Halur lifað hefir nóg
hver, sá föðurlandi dó;
minning hans hjá mönnum lifir
þá mold er komin bein hans yfir.“
Og þótt nú sé komin mold yfir bein hinna íslenzku
frumherja í þessari voldugu álfu, vísar þó minning þeirra
veginn í aldir fram. íslendingadagarnir hafa frá öndverðu
haft mikið þjóðræknislegt og menningarlegt gildi og þess
vegna ber okkur að standa um þá dyggilega vörð, því þjóðar-
brot okkar er nú ekki sterkara á svellinu en það, að það má
ekki við afkvistun, harmatölum og hrakspám.
Karlmenskan í kvæðum Bjarna Thorarensen er lærdóms-
rík, íslenzk og hánorræn í senn, og væri þá vel ef sem flestir
tæki hana sér til fyrirmyndar.
„Fjör kenni oss eldurinn, frostið oss herði,
fjöll sýni torsóttum gæðum að ná,
bægi sem Kerúb með sveipanda sverði,
silfurblár ægir oss kveifarskap frá.“
Við megum hvorki við því, að verða lítilsigldir menn né
heldur lítilþægir um of; hollur metnaður er nauðsynlegur
og sjálfsagður hverjum, er verða vill samkepnisfær í lífs-
baráttunni; fyrir þeim málum, er menn unna, verður hver
og einn að berjast sem hetja, og í þessu efni eru þjóðræknis-
mál okkar engin undantekning.
íslendingur og maður! Aldrei verður of oft vitnað í orð
hins spaka manns, séra Kjartans Helgasonar, er féllu af
vörum hans, er hann dvaldist meðal okkar Vestmanna: Þá er
vel, er íslendingur og maður táknar eitt og hið sama.
Gildi sannrar þjóðrækni grundvallast á manngildinu.
Hittumst heil að Gimli á mánudaginn kemur.
☆ ☆ ☆
Ráðstefnan í Geneva
Fjórveldastefnunni í Geneva lauk síðastliðinn föstudag
og mun naumast annað réttilega verða sagt, en að hún
væri um margt hin merkasta, þótt eigi yrði þar margar
ákvarðanir teknar, enda fyrirfram vitað, áð í ýmissum efnum
væri þar við raman reip að draga, því á milli samningsaðilja
voru staðfestar miklar fjarlægðir.
Vestur-veldin fóru fram á sameiningu Þýzkalands eins
fljótt og því framast yrði viðkomið og töldu það öldungis
óhjákvæmilegt vegna framtíðaröryggis Norðurálfuþjóða í
heild. Rússar töldu málið eigi nægilega rannsakað og kröfðust
frests, og varð það að ráði, að utanríkisráðherrar fjórveld-
anna ættu með sér fund í næstkomandi októbermánuði til
frekari aðgerða.
Eisenhower forseti varð hetja fundarins; hann kom
meðal annars fram með þá hugmynd að Rússar og Banda-
ríkjamenn skiptust á upplýsingum um herbúnað hvorrar
þjóðar um sig og að myndataka úr lofti yrði leyfð yfir báðum
löndum, en um það vildu Rússar ekki taka neina ákveðna
afstöðu fyrst um sinn og kröfðust frekari umhugsunartíma.
Tekjur Eimskips af siglingum
Fossanna ískyggilega lágar 1954
Aldrei meiri siglingar og
flulningar það árið — Úr
skýrslu stjórnarformanns
Á laugardaginn fór fram
hér í bænum aðalfundur Eim-
skipafélags Islands.
Formaður félagsstjórnar,
Einar Baldvin Guðmundsson
hæstaréttarmálaflutnings-
maður, flutti skýrsluna. — 1
upphafi máls síns minntist
hann látinna starfsmanna fé-
lagsins og Benedikts Sveins-
sonar fyrrum alþingisforseta.
1 virðingarskyni við hina
látnu risu fundarmenn úr
sætum sínum.
Skipakaupin
1 skýrslu sinni kom formað-
ur fyrst að skipabyggingar-
málinu.
En sem kunnugt er af fyrri
fregnum af aðalfundinum
hefir félagið sótt um leyfi til
byggingar tveggja vöruflutn-
ingaskipa 3000—5000 lesta, en
skipasmíðar þessar eru mjög
aðkallandi og á það lagði for-
maður sérstaka áherzlu.
Vörugeymsluhúsin
Um vörugeymsluhúsaþörf-
ina sagði formaður, að nauð-
synlegt væri að leysa mál
þetta þannig að til frambúðar
sé, svo fljótt sem auðið er.
Kvað hann yfirvofandi að
Eimskip myndi þurfa að víkja
úr Hagastöðinni, þar sem
geymslur félagsins standa án
lóðaréttinda. — Eimskip hefir
fengið ágæta lóð við höfnina
þar sem núverandi birgða-
skáli er, sem byggður var á
stríðsárunum. Er útlitsteikn-
ingum lokið en eftir eru járna
og raflagnir. Þá hefir félagið
fengið til umráða lóð við
Borgartún fyrir geymslur.
Skýrði formaður frá því, að
nauðsynlegt sé að dómi
stjórnar og framkvæmda-
stjóra að hefjast handa fyrst
um byggingu vöruskála við
Borgartún.
Hlutabréf ekki innkölluð
Formaður gerði ítarlega
grein fyrir hlutabréfum og
skattamálum félagsins. Á aðal
fundi 1954 kom fram tillaga,
er samþykkt var, að heimila
stjórn félagsins að innkalla öll
hlutabréf í félaginu og hlut-
hafa fái ný hlutabréf, sem
verði að fjárhæð tífallt nú-
gildandi nafnverð hlutabréf-
anna. — Formaður kvað
stjórnina hafa rætt málið við
ríkisstjórnina, og formann
þingnefndar þeirrar, er fjallað
hefir um skattamál félaga.
Niðurstaðan varð sú, að með
tilliti til þeirrar óvissu, er nú
ríkir um skattgreiðslur Eim-
skipafélagsins í framtíðinni,
og þar sem verulegur hluti
hluthafa hefir talið sig and-
vígan aukningu hlutafjársins,
telur félagsstjórnin ekki tíma-
bært að hreyfa þessu máli.
Verður það að bíða unz séð
verður hvaða lausn skattamál
félagsins fá í framtíðinni,
sagði Einar B. Guðmundsson.
Aldrei meiri siglingar
og flulningar
Mikið af skýrslu stjórnar-
formanns á fundinum fjallaði
um afkomu félagsins og fram-
tíðarhorfur. Gat hann þess að
aldrei fyrr í sögu Eimskipa-
félagsins hefðu verið farnar
eins margar ferðir milli landa
og voru þær alls 118. Þá hefir
strandferðum einnig fjölgað
mjög og voru þær alls 81. —
Vöruflutningar hafa aldrei
orðið eins miklir og með skip*
um félagsins voru alls sendar
237,000 lestir af hvers konar
vörum,
Stöðugl minnkandi tekjur
Formaður kvað fjárhag fe-
lagsins góðan og má það vera
öllum Islendingum sannkall-
*------------------------"i'
Hamingjuóskir
til íslendinga í tilefni
af 66. þjóðminningardegi
þeirra á Gimli, Man.,
1. ágúst 1955
★
GIMLI
THEATRE
HARRY GREENBERG
eigandi
CONGRATULATIONS . . .
to the lcelandic People on the
Occasion of the 66th Anniversary
of their Annual Celebration Day
at Gimli, August lst, 1955.
THOR'S GIFT SHOP Ltd.
PHONE 4161 SELKIRK, MAN.
Gætið mikilvægra skjala
Fæðingarvottorð, vegabréf, borgarabréf og önnur verðmæt skjöl,
ættu að vera geymd annars staðar en í heimahúsum, því þar er
hætta af eldsvoða og þjófnaði of mikil. Geymið slík skjöl í yðar
eigin öryggishólfi hjá The Royal Bank of Canada, en það kostar
innan við 2 cent á dag. Spyrjist fyrir hjá næsta útibúi.
Viðskipti yðar eru kærkomin
THE ROYAL BANK OF CANADA
Sérhvert útibú nýtur trygginga allra eigna banlcans,
sem nema yfir $2,675,000,000