Lögberg - 28.07.1955, Side 6
6
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 28. JÚLÍ 1955
Fréttir fró ríkisútyarpi íslands
Framhald á bls. 6
'gera þyrfti ýtarlegri tilraunir
með notkun hraungrjóts, og
hefði sænska sambandið fall-
ist á að taka við heilum farmi
héðan til vinnslu. Sá farmur
yrði bráðlega sendur og úr
honum unnar hrauntexplötur,
er væntanlega yrðu seldar
hérlendis. Jafnframt yrði
unnið að frekari undirbúningi
málsins hér heima. Hér gæti
verið um að ræða nýja iðn-
grein, sem væri mikilsverð
fyrir atvinnulíf þjóðarinnar.
☆
Slys urðu mörg hér á landi
í vikunni, sem leið. Um s.l.
helgi drukknuðu bændurnir í
Fljótstungu í Hvítársíðu,
Bergþór Jónsson og tengda-
sonur hans Hjörtur R. Jó-
hannsson, er þeir voru við
veiði í Úlfsvatni á Tvídægru.
Ungur piltur, Hólmsteinn
Valdimarsson, frá Steintúni,
drukknaði í Jökulsá í Austur-
dal í Skagafirði, og annar
ungur maður, Gylfi Kristins-
son, Reykjavík, drukknaði í
Þingvallavatni. Á Barða-
strönd varð það slys, að bif-
reið hvolfdi og einn farþeg-
anna, Ólöf Guðmundsdóttir,
Hvammi, beið bana.
☆
Sigurjón Rist vatnsmælinga
maður hefir safnað upplýsing-
um sjónarvotta um jökul-
hlaupið úr Mýrdalsjökli 25.
fyrra mánaðar, og mælt þver-
snið og halla á farvegum
jökulsánna Skálmár og Múla-
kvíslar. Þessar athuganir
benda til þess, að Múlakvísl
hafi flutt fram 20 miljónir
teningsmetra af hlaupvatni,
og rennslið hafi verið að
minnsta kosti 2500 tenings-
metrar á sekúndu, þegar mest
var. Magn hlaupvatnsins um
Skálmá var hins vegar um 7,7
miljónir teningsmetra. Sigur-
jón athugaði einnig ketilsigið
í jöklinum á Kötlusvæðinu,
og eru þar tvær hringmynd-
aðar kvosir, önnur 15 metra á
dýpt, hin 80, og eru ferlegar
jökulsprungur umhverfis þá
skál. Rúmtak ketilsigsins er
28. miljónir teningsmetra.
☆
Hin árlega Skálholtshátíð
er í dag, en hún er ávallt
haldin á þeim sunnudegi, sem
næstur er Þorláksmessu á
sumrin. Skálholtsfélagið hefir
gengizt fyrir slíkri hátíð í
Skálholti undanfarin ár til
þess að vekja áhuga á endur-
reisn staðarins og skapa sam-
hug um hana.
☆
Norsk stjórnarvöld hafa á-
kveðið að veita íslenzkum
stúdent 3200 króna styrk til
háskólanáms í Noregi næsta
vetur, og er æskilegt að um-
sækjandi hafi stundað há-
skólanám erlendis í eitt ár.
Umsóknir skal senda Mennta-
málaráðuneytinu fyrir 15.
ágúst.
☆
íslenzk hjúkrunarkona —
Ingunn Gísladóttir, var fyrir
nokkru ráðin til starfs við
sjúkraskýli íslenzku trúboðs-
stöðvarinnar í Konsó í Suður-
Eþiópíu. Ingunn lagði af stað
frá Reykjavík fyrra laugar-
dag og var komin til Addis
Abeba á miðvikudaginn.
☆
Skáksamband Islands send-
ir keppendur á tvö skákmót
CONGRATULATIONS . . .
to the lcelandic People on the
Occasion of the 66th Anniversary
of their Annual Celebration Day
at Gimli, August Ist, 1955.
THE TORONTO GENERAL
TRUSTS CORPORATION
1902— 53 Years in Winnipeg —1955
Við enda
línunnar
Rafleiðsla yðar eigin stofnunar
hófst árið 1945
og nú hefir lokamarki
verið náð.
Nú í dag - njóta 496 borgir,
bæir og þorp, 42,000
bændabýli og
101,000 einstakir viðskipta-
vinir hagnaðarins
og ábyggilegri og ódýrari
raforku.
W THE
í MANITOBA
' POWER
COMMISSION
erlendis í sumar. Hið fyrra er
heimsmeistaramót unglinga,
sem hefst á miðvikudaginn í
Antwerpen, og fer Ingi R.
Jóhannsson þangað. Hin
keppnin er skákþing Norður-
landa, sem hefst í Osló 14.
ágúst. Meðal íslenzkra skák-
manna þar verða þeir Friðrik
Ólafsson, Norðurlandameist-
ari í skák, Ingi R. Jóhannsson
og Guðjón M. Sigurðsson.
☆
í þessari viku, á miðviku-
daginn og fimmtudaginn,
þreyta Islendingar lands-
keppni í frjálsum íþróttum
við Hollendinga, og fer sú
keppni fram á Iþróttavellin-
um í Reykjavík.
☆
S æ n s k t knattspyrnulið
dvaldist í Reykjavík s.l. viku
í boði K.R. Það var Hacken
frá Gautaborg, lið í annari
deild í Svíþjóð. Svíarnir unnu
K.R„ Val og úrvalslið Reykja-
víkurfélaganna, en töpuðu
fyrir Akurnesingum.
☆
Út er komin Árbók Ferða-
félags íslands 1955, og fjallar
um Austfirði sunnan Gerpis.
Höfundur er Stefán Einarsson
prófessor, er einnig hefir
safnað efni í bók um firðina
norðan Gerpis.
Taugaveikluð stúlka, sem
ætlaði að fara að ferðast á sjá,
fór beina leið til skipslæknis-
ins þegar hún kom um borð
og sagði:
— Ó, hvað á ég að gera, ef
ég verð sjóveik?
— Það er .óþarfi að segja
yður það, þér gerið áreiðan-
lega og ósjálfrátt það rétta.
Húsbóndinn: — Hefurðu
séð vestið mitt.
Þjónninn: — Þér eruð í því,
herra.
Einu sinni gerði Albert
Belgakóngur þessa pátningu:
Mig langa ralltaf til að dýfa
brauðinu ofan í kaffibollann
minn á morgnana, en drottn-
ingunni mislíkar það og ég fæ
ekki að gera það nema enginn
ókunnugur sé.
BLOOD BANK
Jjuefyxeeeuwt
S P A C E
CONTRIBUTED
B Y
ÖREHfRYS
MANITOBA
DIVISION
WESTERN
CANADA
BREWERIES
LIMITID
MD-366
MINNUMST SAMEIGINLEGRA ERFÐA
á íslendingadeginum
á Gimli, 1. ágúst, 1955
Noiið
HAPPY GIRL HVEITI
í alla yðar bökun
SOO LINE MILLS LIMITED
Higgins og Suiherland WINNIPEG
CONGRATULATIONS . . .
to the lcelandic People on the
Occasion of the 66th Anniversary
of their Annual Celebration Day
at Gimli, August lst, 1955.
RUSSELL MOTORS LTD.
Your
PLYMOUTH-FARGO DEALER
730 PORTAGE AVE. WINNIPEG