Lögberg - 28.07.1955, Side 9
Þið þekkið fold með
blíðri brá
og bláum iindi fjalla.
HögljErg
Og enn skín sól yfir
Ingólfsbygð
þó umhorfs sé dapurl víða.
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 28. JÚLÍ 1955
9
Prófessor dr. RICHARD BECK:
Þakkað fyrir síðast
Þegar við hjónin minnumst
atburðaríkrar heimfarar okk-
ar til aettjarðarstranda síðast-
bðið sumar, — og það gerum
við oft, — þá verður okkur
efst í huga þakklætið til allra
beirra, sem gerðu okkur þá
ferð svo ánægjuríka og eftir-
húnnilega, að minningin um
hana hitar okkur um hjarta-
r*tur til daganna enda. Og
sjómennirnir íslenzku áttu
sinn mikla og góða þátt í því,
að þetta ferðalag okkar var
lafn ánægjulegt og minnis-
staett eins og raun ber vitni.
^f heilum og heitum huga
getum við sagt með skáldinu,
þó að undir öðrum kringum-
stæðum væri: „Þökk fyrir
handslagið hlýja!“ Hitta þau
orð hans, hvað okkur snertir,
ágætlega í mark bæði í bók-
staflegri og táknrænni merk-
ingu.
Við sóttum ættþjóðina einn-
ig heim á óvenjulega söguríku
sumri, eins og alkunnugt er.
Hver stórhátíðin sigldi í kjöl-
far annarrar, og ber þar, að
vonum, hæst 10 ára afmæli
hins íslenzka lýðveldis og
vígslu dr. theol. Ásmundar
———■*—■■—■■—•■—■•—■■—■■—■—*•—H’
CONGRATULATIONS . . .
to the lcelandic People on the
Occasion of the 66th Anniversary
of their Annual Celebration Day
at Gimli, August 1 st, 1955.
SANDY BAR HOTEL
COMPANY LIMITED
G. ROMANIUK, Proprietor
PHONE 79 204 RIVERTON, MAN.
------------------------------------ •
Það greiðir fyrir firðtali ef þér skýrið síma-
stúlkunni frá því utanbæjarsímanúmeri,
er þér æskið að fá. Hripið niður þau síma-
númer, er þér þurfið iðulega að
ná í og hafið við hendi öll firð-
símanúmer yðar.
Þetta tryggir ySur greiðari og fullkomnari afgreiíslu!
M A N IT 9 B A TELEPHONE SYSTEM
Guðmundssonar til biskups
yfir íslandi.
Sjómannadagurinn síðast-
liðið sumar, er forseti íslands,
herra Ásgeir Ásgeirsson,
lagði hornsteininn að hinu
glæsilega Dvalarheimili aldr-
aðra sjómanna, að viðstödd-
um geysimiklum mannfjölda,
var einnig sá af merkisatburð-
um sumarsins, er alltaf mun
sveipaður miklum ljóma og
björtum í hugum okkar hjón-
anna.
Hafði mig, gamlan sjómann
af Austfjprðum, lengi langað
til þess að geta verið við-
staddur á þeim árlega hátíðis-
degi sjómannanna, starfs-
bræðra minna frá fornu fari.
Sá draumur minn rættist á
alveg ógleymanlegan hátt á
Sjómannadeginum í fyrra.
Skuldum við hjónin sjó-
mönnunum ómælda þökk
fyrir að vera boðsgestir þeirra
þann sögulega dag; og með
þátttöku minni í fjölbreytt-
um hátíðahöldum þeirra dag-
inn þann, tel ég mér hafa
verið hvað mestur sómi sýnd-
ur um ævina. Orð Kletta-
fjallaskáldsins, úr einu hinna
fögru heimfararkvæða hans
árið 1917, sungu mér í huga
þann dag, eins og raunar svo
oft á öðrum samkomum heima
á ættjörðinni:
Eg hvarf heim í hópinn þinna
drengja
hingað, móðir, til að fá með
þeim
aftur snerta upptök þeirra
strengja,
er mig tengdu lifi og víðum
heim.
Allt stuðlaði að því að gera
Sjómannadaginn síðastliðna
minnisstæðan, og átti veður-
fegurðin sinn drjúga þátt í
því. Mátti segja, að hin virðu-
legu hátíðahöld væru sett í
hina fegurstu umgerð, þar
sem var Reykjavíkurborg fán-
um prýdd og höfnin þakin
skipum flöggum skreyttum
stafna milli. Víkingaskipið
tilkomumikla, skjöldum skar-
að, sem fór á undan hópgöng-
unni, setti einnig sinn sér-
stæða svip á hátíðahöldin, og
munu flestum viðstöddum
lengi í minni geymast. Svo
fór mér, og okkur hjónum
báðum, að minnsta kosti.
En fleira gerðist, góðu
heilli, í heimför okkar hjóna,
er snerti sjómennsku og sjó-
ferðir. Aldrei fór það svo, að
ég drægi ekki fisk úr sjó í
ferðinni, þó að eigi væri eins
langt sótt á mið að því sinni
eins og löngum í gamla daga á
Austfjörðum. Eitt kvöldið,
sem við hjónin dvöldum á
æskuheimili mínu að Liltu-
Breiðuvík í Reyðarfirði, fór
ég, ásamt nokkrum öðrum, á
handfæri út á fjörðinn fram-
undan bænum, og drógum við
þar allmargt mjög sæmilegra
þyrskllnga á stuttum tíma. Þó
að sú sjóferð væri eigi á neinn
hátt merkileg, og hér aðeins
frá henni sagt til gamans, óf
hún engu að síður sinn hug-
stæða þátt í minningarnar um
heimförina, rifjaði jafnframt
upp endurminningarnar um
sjóferðir mínar frá yngri
árum, og treysti með þeim
hætti á ný tengslin við átt-
haga og erfðir, sem hollara' er
að muna en gleyma.
En þó að þessi stutta sjó-
ferð fram á hugumkæran
fjörðinn heima væri hin á-
nægjulegasta, og ég vildi
hreint ekki hafa farið hennar
á mis, ber samt hærra í minn-
ingunni sjóferð okkar hjóna
frá Islandi til Danmerkur.
Eftir hina framúrskarandi
ánægjulegu sjö vikna dvöl
okkar heima á íslandi, tókum
Framhald á bls. 10
Hamingjuóskir
til Islendinga í tilefni
af 66. þjóðminningardegi
þeirra á Gimli, Man.,
1. ágúst 1955
IMPERIAL
BANK
R. L. WASSON, Mgr.
GIMLI MANITOBA
CONGRATULATIONS . . .
to the Icelandic People on the Occasion of
the 66th Anniversary of their Annual
Celebration Day at Gimli, August 1, 1955.
Enderton, Brydges and Waugh Ltd.
INSURANCE
222 Portage Ave., Winnipeg Telephone 92-8411
Mrs. Violet Einarson
Local Agent
30—2nd Avenue, Gimli Telephone 72
Minnumst sameiginlegra erfða
ó íslendingadeginum 6 Gimli, 1. ógúst 1955.
PURITY ENRICHED FLOUR
PURITY OATS
PURITY CAKE MIXES
PURITY PIE CRUST MIX
PIONEER FOODS
Purlty Flour MIlls Ltd.