Kirkjublaðið - 01.06.1896, Blaðsíða 1

Kirkjublaðið - 01.06.1896, Blaðsíða 1
mánaðarrit handa íslenzkri alþýðu. VI. RVÍK, JÚNÍ, 1896. 7. Guðs forsjón. Það var svo opt á æfi rainni að engan veg jeg færan sá, en hulin von bjó hjá mjer inni: að hjálp mjer veittist ofanfrá. Og allt fór vel: Sú von ei brást. Það varð, sem ekki fyrir sást. Jeg var sem leiddur huldri hendi við hvert mitt spor, — það fann jeg víst. Og hver var það, sem hjálp mjer sendi — þá hjálp, er opt mig varði sizt? 0, Guð, minn faðir! þú varst það, frá þjer kom hjálpin, er jeg bað. Og enn vii jeg í auðmýkt biðja, að enn ei þú mjer vikir frá, en viljir enn mig vernda’ og styðja og veita hjálp, sem þörf er á. Og gef jeg enn þjer geti treyst: að gefir það mjer hentast veizt. Lát mig ei framar, Guð minn! gleyma því góða, sem þú veitir mjer. Kenn mjer í lireinu hjarta’ að geyma svo heita elsku’ og traust á þjer, að allt mjer bendi’ á einan þig, en ekkert frá þjer dragi mig. Br. J.

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.