Lögberg-Heimskringla - 19.12.1963, Side 5
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 19. DESEMBER 1963
5
Svipur í sjónvarpi
Frásögn þessi er eftir ensku
sjónvarpskonuna Ida Cook.
Hún er kunnur rithöfundur
og er höfundarnafn hennar
Mary Burchell. Eru til margar
skáldsögur frá hennar hendi,
en hér segir hún frá sönnum
atburði.
☆
Fyrir rúmum tveimur árum
barst mér vandi að höndum
að vera valin til þess að koma
fram í sjónvarpi, í þætti sem
nefnist: „Þetta er lífið“. Þessu
var þannig háttað að maður
veit ekki hvað á að gerast fyrr
en maður er kominn. „inn á
sviðið“. Þá byrjaði Eamonn
Andrews að segja ævisögu
þess, sem kominn var, og jafn-
harðan sem hann rakti sög-
una, komu inn á sviðið ýmsir
menn og konur, er viðkom-
andi hafði kynnzt um ævina,
gamlir vinir sem hann hafði
ekki séð í mörg ár og aðrir
sem hann hélt að þá væri er-
lendis.
Þegar efni var valið í þessa
þætti, var leitast við að finna
ævisögur, sem hefði einhvern
boðskap að flytja. Þeir völdu
mig vegna þess að ævisaga
mín hafði verið rituð.
Sagan hófst um 1920, þegar
við Louise systir mín vorum
enn skrifstofustúlkur og höfð-
um lágt kaup, en afréðum að
spara, svo að við gætum farið
til New York og hlustað á
uppáhaldssöngkonu okkar,
Galli Curci, syngja þar í
óperunni.
Við vorum alveg óreyndar,
höfðum ekki ferðast neitt og
ekki unnið okkur neitt til á-
gætis, en til New York fórum
við. Galli Curci varð svo hrif-
in af þessu, að hún gaf okkur
aðgöngumiða að öllum söngv-
um sínum og 'sá um að okkur
liði sem allra bezt. Þetta varð
til þess, að ég skrifaði fyrstu
blaðagrein mína og kom heimi
í kvennablað. Komst ég þá að
raun um að ég hafði nokkra
hæfileika til að skrifa.
Árið 1934 fórum við aftur
til Evrópu og hlustuðum á
fræga óperusöngvara á hátíða-
höldunum í Salzburg. Meðal
þeirra, sem við kynntumst þá
var Clemens Kraus, hinn
frægi söngstjóri óperunnar í
Vínarborg, og kona hans,
söngkonan Viorica Ursuleac,
en fyrir hana samdi Richard
Strauss þrjár af fjórum sein-
ustu óperum sínum. Þau voru
okkur ákaflega góð. Þau
kynntu okkur fyrir vinkonu
sinni, sem var Gyðingur, og
báðu okkur að reyna að hjálpa
henni. Við voru fúsar til þess
og okkur tókst að frelsa hana
frá nazistum og koma henni
úr landi. Þetta varð til þess að
hundruð annarra manna grát-
bændu okkur um að bjarga
lífi sínu.
Um þetta leyti fór ég fyrst
að hafa tekjur af ritsmíðum
mínum — og það kostaði ekki
nema 25 sterlingspund að
bjarga mannslífi. Þess vegna
réðumst við í það að nota
tekjur mínar til þess að stofna
leynilega flóttamannaskrif-
stofu, í því skyni að koma
mönnum burt úr Þýzkalandi
undan grimmd Hitlers. Og við
þetta starf nutum við stuðn-
ings Clemens Krauss og konu
hajis.
Þessi saga hafði þeim sjón-
varpsmönnum þótt gott efni.
Og þeir höfðu náð í marga
menn, sem voru mér þakk-
látir. Mér varð þessi stund til
Framhald á bls. 6.
Jólin hons Ugga
Framhald frá bls. 3.
ar er allt í einu hlaðin ósögð-
um tíðindum. Þú veizt líklega,
að Jesús fæddist í fjárhúsi og
var lagður í jötu? — — —
Það eru ekki mennirnir einir,
sem halda heilagan afmælis-
daginn hans, heldur einnig
skepnurnar. — — — Hefur
Begga gamla aldrei sagt þér,
að á jólanóttina klukkan tólf
fá kýrnar mannamál og taka
til að skrafa saman?---------
Hvað þæi; segja, vita menn
ekki, þær kunna því betur, að
enginn heyri til. Þess vegna
má maður ekki hafast við í
fjósi klukkan tólf á jólanótt-
ina. Sá, sem hefur heyrt kýrn-
ar tala, verður aldrei samur
maður eftir. Ef þær stanga
hann ekki til dauða, verður
hann að minnsta kosti svo
undarlegur upp frá því, að
hann veit hvorki í þennan
heim né annan.
Veit þá enginn, hvað þær
segja, mamma? hvíslaði ég
hugfanginn.
Móðir mín brosir til mín og
kyssir mig, — það vottar fyrir
tári í auga hennar, án þess ég
viti orsökina.
Hvað þær segja, þegar eng-
inn heyrir, — það veit maður
ekki, svarar hún, þrýsti mér
að sér og tekur að róa með
mig. En það eru til þulur um
það. Nú skaltu taka eftir.
Og um leið og hún lækkar
róminn og tekur að raula með
dreginni hrynjandi, er eins
og sígi gullið mistur yfir
„loftið“ okkar, þar sem ann-
ars ber hvergi skugga á.
aldrei þessu vant.
Sól skín á fossa,
segir hún Krossa.
Hvar á að tjalda?
segir hún Skjalda.
Suður við ána,
segir hún Grána.
Minn bás er breiður,
segir hún Reyður.
Minn bás er breiðari,
segir hún Blómakinn.
Ég vildi hann færi að hlána,
segir enn hún Grána,
svo ég fengi að drekka,
segir hún Flekka.
Ég skal snjónum spyrna,
segir hún Hyrna.
Ég vil töðuna tyggja,
segir hún Friggja.
Ég vil fylla mína hít,
segir hún Hvít.
Ég skal éta sem ég þoli,
segir hann stóri boli.
Ég skal éta sjálfur,
segir hann litli kálfur.
Þar sefur bolabarn
á bássteini
með moð fyrir múla,
og manngi iþað svæfir.
Úr Skipum heiðríkjunnar.
Gunnar Gunnarsson.
VIÐ KVIÐSLITI
Þjáir kviSslit ySur? Fullkomin
lækning og vellíSan. Nýjustu aS-
ferSir. Engin teygjubönd eSa viSj-
ar af neinu tagi.
SkrifiS SMITH MFG. Company
Dapt. 234. Praaton, Onl.