Alþýðublaðið - 05.10.1960, Síða 1
cwrm
41. árg. — Miðvikutlagur 5. október 1960 — 225. tbl.
ÞÓTT Alþýðublaðið viti, að
allt eiits geti svo farið, að það
verði að greiða einhverjar sekt
ir til þeirra er hafa haft stó.rfé
úi; úr rnönnum í bílaviðskipt-
um, áf því íslenzk meiðyrða-
löggjöf er harla viðkvæm, tel-
ur blaðið ófært annað en birta
hér á eftir og svo næstu daga
. frásagnir manna, sem hafa selt
bíla sína og fengið þá greidda
að miklum hluta með víxlum,
sem hafa síðan reynzt gagns-
lausir pappírar, Er hér um að
ræða stórfelld Pg víðtæk svik,
og hefur ótrúlegur fjöldi
nianna tapað frá þrjáitlíu upp í.
hundrað þúsund krónum á við
skiptum við tillitslausa bíla-
braskara, sero hafa notað sér
hrekkleysi seljanda út í yztu
æsar#
Síðan Alþýðublaðið birti
fréttina af bílabraskinu síðast
liðinn sunnpdag hafa stöðugt
verið að berast upplýsingar til
þess frá mönnuro, sem hafa
tapað stórfé á því að taka ó-
nýta víxla sem greiðslur f.vrír
bíla. Blaðið þakkar þessum
mönnum trúnaðinn, en frá-
sagnir þeirra hljóta að vekja
til alvarlegrar umhugsunar um
það ófremdarástand, sem ríkir
í þessuni málum. Þeir menn,
sem blaðið hefur talað við,
gera sér að vísu ljósltl, að fé
þeirra er að öllum likindum
tapað, en þeir vilja ekki láta
sitt eftir liggja, að v;ekja at-
hygli á svikunum, til þess að
aðrir geti varað sig, og einnig
ef frásagnir þeirra yrðu til
þess lað löggjafinn rumskaði.
Einn af þe»m fyrstu, sem
snei'i sér til blaðsins, var mað
ur hér í bæ, sem seldi bíl sinn
fyrir þrem mánuðum. Hann
skýrði Alþýðublaðinu frá eft-
irfarandi:
Bifreið mín var seld í bíla-
sölunni Aðslfoð við Laugaveg
fyrir hundroð tuttugu og fimm
þúsund krónur. Ég fékk f jö.rU-
tíu þúsund krónur greiddar út
í bílnum, en áttatíu og fimm
þúsund í víxlum. Gjaldáagj
fyrsta víxilsins var eftir mán-
uð frá söludegi bílsiiis, en
gjalddagar síðan mánaðarlega
unz upphæðin væri að fullu
greidd. Nú eru þrír fyrstu
víxlarnir fallnir í gjahldaga án
þess að nokkur groiðsla hafi
b 'rizf í mínar hendur.
Samþykkjandi á víxlunum
er Jón BenedikHUson, sem tcl-
ur sig hafa skrifað á víxlana i
einhverri vitleysu. Krefst
hann þess nú að málið verðitek
ið fyrir, svo hann geti hreins-
að sig af samþykktinni.
Sá sem keypti bílinn heitir
Reynir Leósson, og mpn þetta,
eftir því sem ég bezt veit, ckki
vera fyrsAi bíllinn, sem hann
kaupir með þessum hætti.
Ég gaf Reyni afsal fyrir bíln
um, sem er Ford Station, ár-
gerð 1955, en bíllinn hefur
aldrej verið skráður á nafn
Reynis, og er nú í höndum
annars nianns. ~r
Víxlarnir eru gefnir út af
tveim mönnum. Er annar
þeirra hálfbróðir Reynis Leós-
sonar, en hinn félagi.
Eins og aðrir, sem í þéssu
hafa lent, hefur seljanái þessa
bíls, sem Aðstoð annaftlst sölu
á með þessum hætti, snúið sér
til sakadómarans í Reykjavík.
Sakadómari hefur talið að
hann geti ekki tekið málið fyr
ir, þar sem þetta sé ekki saka-
mál samkvæmt lögum, heldur
skuldamál.
í skuldamáli eru vixlar eins
Oj, þessir ónýt plögg, nema
annað tveggja að samþykkj-
andi eða útgefendur eigi ein-
hverjar eignir, eða einhver
baktrygging, veð, hafi verið
fyrir víxlunum. Þar sem um
hvorugt mun vera að ræða í
þessu tilfelli, eru ekki líkur á
öðru en áttatdu og fimm þús-
und krónur séu tapaðar.
Og cnginn skyldi halda að
þessir fuglar hafi ekkj vitað
hvaða leik þeir voru að leika,
því:
Annar maöur sneri sér til
Alþýðublaðsins í fyrradag og
sagði eftirfarandi:
Ég seldi bil í bílasölu Da-
víðs Sigurðssonar við Ingólfs-
stræti. Bílinn seldi ég á fjöru-
tíu og sjö þúsund krónur og
greiddi kaupandi lallt. verð bíls
ins í víxlum, sem féllu mán-
aðarlega í gjalddaga, og hljóð-
aði hver þeirra upp á þrjú þús
und krónur.
Ég tók víxlana tryggingar-
lausa og lét bílasöluna sjá um
þcrtta. Nú . eru f jórir víxlar
fallnir í gjalddaga og ekki ból-
lar á greiðslum.
Samþyklcjandi er Reynir
Leósson.
Alþýðublaðið vilf að lokum
segja þetta: Við erum rétt að
byrja. Næstu daga höldum við
áfram tað birta frásagnir
manna, sem hafa verið hhmn-
farnir í viðskiptum með fyrr-
greindum hætti. AlþÉðublaðið
vill jafnframt hvetja alla R
sem hafa verið sviknir mcð
Framhald á 2. síSu.
ÞEGAR fasteignasali selur íbúð, ber hann ábyrgð á, að þær greiðslutrygg
ingar, sem seljandi tekur gildar, séu ekki verðlausir pappírar.
Fasteignasalinn ábyrgist, að seljandinn sé ekki svikinn í kaupunum.
Ástandið á bílamarkaðnum hefur mánuðum saman kallað eftir löggjöf um
bílasölu.
ÞAÐ ÞARF AÐ LÖGGILDA BÍLASALA.
Alþýðublaðið segir: Málið þolir enga bið. Dómsmálaráðuneytið verður nú þegar að skipa nefnd,
sem undirbýr löggjöf um bílasölu, til þess að sú lö ggjöf geti fengið gildi strax og þing kemur saman.
Eins og fram kemur í meðfylgjandi frétt, hefur blaðið í höndunum gögn um stórfellt misferli í
bílasölu, m. a. vegna þess að bílasalarnir sjáKir eru ekki ábyrgir sem skyldi.
Þessi plögg leggur blaðið á borðið í dag og næ stu daga.
og almenn vixla-
svik! bílabraskara