Alþýðublaðið - 05.10.1960, Síða 3
Helsingfors, 4. okt. (NTB).
BORGARAFLOKKARNIR
unnu verulega á í bæjar- og
sveitastjórnarkosningunum,
sem fram fóru í Finnlandi á
Meðlimaríki
SÞ 99
NÍGERÍA, fyrrum nýlenda
Breta, sem hlaut sjálfstæði 1.
október síðastliðinn, verður á
föstudag tekin í samtök Sam-
einuðu þjóðanna og eru aðild-
arríkin nú 99.
Öryggisráðið mun fjalla nm
málið á næsta fundi sínum og
búist er við að Allsherjarþingið
samþykki Nígeríu á föstudag.
sunnudag. Er eftir var að telja
í um 30 sveitarfélögum, höfðu
þeir bætt við sig 151 sæti. —
Kommúnistar höfðu einnig
unnið á, bætt við sig 136 sæt-
um. Jafnaðarmenn höfðu tapað
talsverðu fylgi, en nýr smá-
bændaflokkur hafði lilotið 136
sæti.
Kosningaþátttakan var mjög
mikil, eða um 75 af hundraði,
en það er meira en nokkru
sinni áður í bæjarstjórnarkosn-
ingum.
Alls greiddu 1.835.000 manns
atkvæði. Af þeim hlutu borg-
aralegu flokkarnir 970.000 at-
kvæði, þar með talin smá-
bændaflokkurinn. Kommúnist-
ar fengu 408.000 atkvæði, Jafn-
aðarmen 394.000 atkvæði og
klofningsflokkur úr Jafnaðar-
mannaflokknum 63.000 at-
kvæði
Þingkosningar í
Danmörku 15. nóv.
Kaupmannahöfn, 4. okt,
DANSKA þingið kom saman
í dag og við það tækifæri upp-
lýsti Viggó Kampmann, forsæt-
isráðherra, að efnt yrði til al-
mennra þingkosninga í Dan-
mörku 15. nóvember næst kom-
andi.
Kampmpnn sagði, að Danir
ætluðu að standa við allar
skuldbindingar sínar gagnvart
Atlantshafsbandalaginu, eda
teldu þeir það tryggustu land-
vörn Dana. Hann kvað Dani
Á áttunda tímanum í gær-
kvöldi varð árekstur á gatna-
mótum Laugavegs og Skóla-
vörðustígs. Bifreiðin G-99, var
á leið niður Skólavörðustíg og
er ökumaður ætlaði að stöðva
bifreiðina við umferðáijós,
reyndust hemlar óvirkir. Bif-
reiðin rann út á Laugaveg og
lenti á bifreiðinni R-1737 og
dældaði hurð og aurbretti á R-
1737. Ökumaður G-99 mun
hafa ætlað að forða árekstri og
sveigði til vinstri og lenti á
grindverki á gangstéttarbrún-
inni og lagði það niður á nokk-
urra metra svæði og skemmdi
bifreið sína töluvert að fram-
an.
mundu beita sér fyrir því á yf-
irstandandi Allsherjarþingi, að
afvopnunarviðræður yrðu hafn-
ar að nýju.
Gleymir ekki
verðandi
kjósendum
FRAMB J ÓDENDUR í
Bandaríkjunum eru fræg-
ir af því að kyssa börn og
taka í hendur fólkSj þegar
þeir eru í framboðsferð-
um. Þeir sem nú eru í
framboði til forsetakjörs,
Nixon og Kennedy, gera
með minna móti að bama-
kyssingum og handsölum.
Samt fylgja þeir hinum
hefðbundnu háttum í fram
boðsferðum, þegar lessið
stendur þannig. Og hér á
myndinni er Kennedy að
taka í hönd á barni, sem
rétt var að honum, er
hann var á ferð nýlega í
Nevv York fylki.
SUÐUR-AFRIKA
LÝÐVELDI ?
‘MMmWWMMMHHUMMV
Jóhannesarborg, 4. okt. (NTB).
HINIR hvítu íbúar Suður-
Afríku munu á miðvikudag
greiða atkvæði um það, hvort
stofnað skuli lýðveldi eða hvort
Elisabet Englandsdrottning -—
skuli áfram vera þjóðhöfðingi
ríkisins. Stjórnarflokkarnir, —
undir forustu Vervoerd, for-
sætisráðherra, vill stofna lýð-
veldi, en stjórnarandstæðingar
eru því mótfallnir af ýmsum á-
stæðum.
Það eru aðeins hinar 1,8
milljónir hvítra kjósenda, lands
ins, sem ákveða þetta mál, en
14 milljónir innfæddra, Asíu-
manna og litaðra (kynblend-
inga) fá ekki að segja álit sitt
SCARBOROUGH, 4. okt. NTB.
Hugh Gaitskell, foringi brezka
Verkamannaflokksins, beið mik
inn ósigur á flokksþinginu í
Scarborugh í dag, Var þar sam
þykkt með yfh-gnæfandi meiri
hlr/ía, að æðsta vald um öll
málefnj Verkamannaflokksins
skyldi vera hjá flokksþinginu,
en ekki þingflokknum. Gaits-
kell Iagðist gegn þessari tillögu,
en var ofurliði borinn. Var
samþykkt að þingflokkurinn
skyldi stjórna daglegum rekstri
flokksins, en æðsta valdið hjá
flokksþinginu. Gaitskell er nu
sagður mjög vialtur í sessi sem
foringi flokksins.
Vinstri' armur Verkamanna-
flokksins vann annan stórsigur
fyrr í dag, er Mikardo var kjör-
inn í sjömanna póliiiska stljórn
flokksins. Mikardo er formaður
þess flokksbrots, er kallar sig
„sigur sósíalismans11 og eru nú
sex af sjö meðlimum þessarar
stjórnar úr vinstri arminum.
Auk Mi'kardo eru þar Green-
wood, Barbara Gastle, Tom Dri
berg, Richsrd Crossman, Har-
old Wilson og Callaghan, ■
Mikardo er einn ákafasti tals
maður einhliða afvopnunar
Breta.
Wedgwood Benn sagði sig úr
flobksstjórninni í dag í mói-
mælaskyni við að málamiðlun-
arti'llaga hans í kjarnorkumál-
um var felld.
Deilan um hvort Bretar eigi
að afsala sér vefnisvopnum eða
ekki er helzta mál þingsins~Óg
lítur út fyrir að ílokkurinn
klofni og Gaitskell verði að
segja af sér, en margt getur
enn gerzt.
í þessu máli frekar en öðrum.
Stjórnarflokkurinn heldur
því fram, að lýðveldisstofnunin
muni binda enda á hinn djúp-
stæða klofning Búa og manna
af enskum ættum.
Stjórnarandstaðan heldur því
fram, að lýðveldisstofnun þýði
alger yfirráð Búa og útilokun
enskumælandi manna.
Mac og K
ræddusf
enn
viö
New York, 4. okt.
MACMILLAN forsætisráð-
herra Breta og Kriistjov áttu
með sér annan fund sinn í Naw
York í dag. Ekki er vitað hvað
þeim fór á milli, en Macmillin
hefur frestað brottför sinni frá
Bandaríkjunum að sinni.
Almennri umræðu var hald-
ið áfram á Allsherjarþinginu í
dag. Fulltrúi Líbanon réðst
harkalega á Frakka fyrir af-
stöðu þeirra í Alsírmálinu.
Tító, forseti Júgóslavíu hélt
frá New York í dag á ítölsku
hafskipi. Hann kvaðst hafa orð- s
ið fyrir vonbrigðum með þetta
Allsherjarþing.
SKÁKMÓT
í KVÖLD hefst í Lido tafl-
mót á vegum Skáksambands
íslands og Taflfélags Reykja-
víkur. Þetta verður 5 manna
mót og þátttakendur verða
Bobby Fisher, Friðrik, Frey-
steinn, Ingi R. og Arinbjörn.
— 5. okt. 1960 3'
Alþýðublaðið