Alþýðublaðið - 05.10.1960, Page 14
Sfyrkur til náms
dvalar í Hollandi
HOLLENSKUR maður, dr.
J. E. Quintes Bosz, fyrrum
ræðismaður fslands og Ban-
merkur í Surabaya í Indónes-
íu, er lézt árið 1954, lét eftir
sig sjóð, sem ætlað er að styrkja
hoílenska, danska og íslenzka
menn tU náms eða rannsóknar
starfa í lífefnafræði, lyfjafræði
eða í næringarefnafræði hifa-
beftislanda, og veita verðlaun
fyrir vísindalegan árangur í
þessum fræðigreinum.
ísfenzkum aðilum hefur
ekki verið kunnugt um sjóð
þennan fyrr en nú í sumar. en I
þá kom hingað ifulltrúi sjóðs- !
•stjórnar, F. H. Westerling,:
fyrrum bankastjóri, frá Blar-
icum í Hollandi. Átti hann við
rseður við menntamálaráðu-
neyti'ð um sjóðinn og ýmis
frhmkvæmdaatriði í sambandi
við styrkveitingar úr honum,
til íslenzkra manna. í þeim við
ræðum tók einnig þátt dr. Ní-
els P. Dungal prófessor.
Dr. Quintus Bosz stofnaði
s-jóðinn til minningar um son
sinn, Harald Quintus Bosz, og
var stofnféð 100 þús. gyllini.
Úthluta má úr sjóðnum þrem-
ur styrkjum árlega hið mesta,
er samtals 5 þús. gyllinum, en
jþað- -jafngildir 50 000 íslenzk-
run krónum. Sjóðsstjórn ákveð
ur, hverjir styúki skuli hljóta
eu hún er skipuð fjórum holl-
enskum háskólamönnum auk
auk F.H Westerling, sem er
ri'í&ri^og gjaldkeri sjóðsstjórn
ar, Áðetur sjóðsins er í Ut-
rec.ht]í Hollandi.
F.H. Westerling kvað eng-
in fyrirmæli í stofnskrá sjóðs-
ins um, hvernig styrkir skyldu
skiptast milli landanna þriggja.
Hingað til hefðu styrkirnir all
ir runnið til Hollendinga, þar
sem tækifæri hefði ekki gefizt
til að ganga frá framkvæmda
atriðum við íslenzka og danska
aði'Ia,
Kvað hann nú ráðgert, að ís-
lendingar fengju í sinn hlut
alla úthlutunina næsta ár, —
Danir árið 1962, en síðan yrði
hverju sinni valið úr umsókn-
um frá öllum löndunum. Þar
sem stofnskráin kveður svo á,
að styrkir úr sjóðnum skuli
veittir mönnum, sem stunda
eða hafa stundað nám við holi-
enska, danska eða íslenzka liá-
skóla, er það skilyrði fyrir
styrk til íslenzks umsækjanda,
að hann hafi um eitthvert
skeið stundað nám við Há-
skóla íslands.
Umsóknum um styrk úr
minningarsjóði Harald Quintus
Bosz, skulu sendar mennta-
málaráðuneytinu fyrir 1, febr
úar næstk. Umsókn fylgi upp-
lýsingar um náms og starfsfer
il, staðfest afrit af prófskír-
teinum, meðmæli háskóla-
kennara, og ýtarleg greinar-
gerð um rannsóknarstörf, sem
umsækjandi kann að hafa
unnið. Æskilegt erð að um
sóknir séu ritaðar á ensku.
ong-
skemmfun
KETILL JENSSON hélt söng-
skemmtun í Gamla Bíói í gær-
kvöldi eftir fimm ára þögn. Á
efnisskránni voru ítölsk og ís-
lenzk lög og aríur. Ketlili er
sýnilega ekki kominn í sömu
æfingu og hann var í, áður en
hann gerði þetta hlé á söng-
ferli sínum, eftir söng sinn í
Cavalleria Rusticana í Þjóðleik
húsinu, en samt var skemmti-
legt að heyra rödd hans á ný,
og í þetta skipti gerðist það,
að röddin naut sín bezt í veik-
um söng. Kann þar að koma
((1 ofbeiting raddarinnar eftir
hið íanga hlé. Ketill gerði mörg
um lögunum mjög góð skil og
ber þar fyrst og fremst að geta
Fenestra Che Luci've,. sern
hann söng mjög^ vel. Þá var
Adio aUa Madre úr Cavalleria
Rusticana og vel flutt.
Við hljóðfærið var Skúli
Halldórsson tónskáld og lék
smekklega og músíkalskt, en
stundum full veikt fil að gefa
söngvaranum þann stuðning,
sem þurfti. G.G.
Vilja kennararnir
gefa skýringar ?
Kosningin í
Þrótti á
Siglufirði
Úrslitin í Alþýðusambands-
kosningunum í Þrótti á Siglu-
firði urðu þau, að listí komm-
únista hlaut 212 atkvæði og
alla fulltrúana kjörna, en listi
andstæðinga kommúnista hlaut
164 atkvæði. í kosningunum
vann starfsmaður félagsins af
futlum krafti fyrir lista komm-
únista. Vakti það kátínu, er
hann kom eitt sinn með mann
á kjörstað en ekki reyndist á
kjörskrá. Átti starfsmaðurinn
þó-að vera manna kunnugastur
kjörskránni. — K.ommúnistar
notuðu bíla óspart í kosning-
unum.
KENNARÁR við gagnfræða-
skólann í Kópavogi eru enn í
gær að fjargviðrast út af því, í
Þjóðviljanum, að Oddi Sigur-
jónssyni skuli hafa verið veitt
skólastjórastaðan við gagn-
fræðaskólann, en ekki Ingólfi
Þorkelssyni.
Vilja kennararnir ekki gefa
skýringar á því, hvers vegna
þeir vildu láta taka mann, sem
hefur aðeins 10 ára starfsaldur
sem kennari, fram yfir Odd,
sem hefur 23 ára starfsaldur
sem skólastjóri?
Og vilja þeir ekki líka gefa
skýringar á því, hvers vegna
þeir vildu láta taka mann, sem
hefur BA-próf frá háskólanum
hér, fram vfir Jón R. Hjálmars-
son, sem hefur embættispróf í
sagnfræði frá háskólanum í
Osló og hefur auk þess verið
skólastjóri í 6 ár?
Hvers vegna eru kennararnir
að láta hafa sig til að verja þá
dæmalausu hlutdrægni, sem
kom fram í stuðningi komm-
únista og framsóknarmanna í
Kópavogi við Ingólf Þorkelsson,
þegar á móti honum sóttu
menn, sem bæði höfðu miklu
lengri starfsaldur og miklu
meiri menntun?
Eftir að Jón R. Hjálmarsson
tók umsókn sína aftur, átti
menntamálaráðherra aðeins
milli Odds og Ingólfs að velja.
Það hefði verið hróplegt rang-
læti að taka ungan kennara
fram yfir reyndan skólastjóra.
Kommúnistar og framsókn-
armenn í Kópavogi verða að
sætta sig við, að slíkt ranglæti
sé ekki framið og kennararnir
ættu að hætta að láta hafa sig
til að halda því fram, að það
hefði átt að fremja.
ANDVÍGIR
SAMNINGUM
77 NEMENDUR Sjómannaskól-
ans undirrituðu í gærmorgun
eftirfarandi yfirlýsingu, sem
afhent var stjórnarráðinu síð-
degis í gær;
„Við undirritaðir nemendur
Sjómannaskólans teljum mjög
miður farið, að ríkisstjórnin
skuli hafa léð máls á samning-
um við Breta um landheigis-
málið.
Teljum við, að aldrei megi
koma til neinna samninga um
þetta mál við nokkra þjóð, og
allra sízt við brezku ríkissfjjórn
ina. vegna framkomu hennar
við íslendinga á undanförnum
árum í landhelgismálinu.
Mótmælum við því eírjdreg-;
ið, að hvikað sé í nokkrú frá
fyrri ákvörðunum um 12 mílna
fiskveiðilögse^u.
Reykjavík, 3. október 1960.“
(Undirskriftir.)
£4 5. okt. 1960 — Alþýðublaðið
miðvikuddgur
#mmí Fiugféiag
íslands.
Mi'Hilandaflug:
* Gullfaxi fer til
Oslóar, Khafn-
ar og Hamborg-
ar kl. 8.30 í dag.
kl. 23.55 i
kvöld. Flugvél-
in fer til Glasgow og Khafn-
ar kl. 8 í fyrramálið. Innan-
landsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar, Húsa-
víkur,víkur, ísafjarðar og
Vestmannaeyja. Á morgun
er áætlað að fljúga til Ak-
ureyrar (2 ferðir), Egils-
staða, Kópaskers, Patreks-
fjarðar, Vestmannaeyja og
Þórshafnar.
Loftleiðir.
Leifur Eiríksson er vænt-
anlegur kl. 23 frá Siíþvangri.
Fer til New York kl. 0.30.
Skipadeild SÍS.
Hvassafell fer í
dag frá Helsinki
til Gdynia. Arnar
fell er væntan-
legt til Rvíkur á
morgun frá Khöfn. Jökulfell
losar á Húnaflóahöfnum. Dís
arfell er í Borgarnesi. Litla--
fell er í olíuflutningum í
Faxaflóa. Helgafell er í On
ega. Hamrafell fór 2. þ. frá
Hamborg áleiðis til Batum.
Jöklar.
Langjökull lestar á Aust-
fjarðahöfnum. Vatnajökull
er á leið tH Leningrad.
Hafskip.
Laxá er í Riga.
Eimskip.
DöHtifoss er í Rvík. Fjall-
foss fór frá Gautaborg 3/10
til Antwerpen, Hull og Rvík
ur. Goðafoss fór frá Siglu-
firði í gær tif Norðfjarðar,
Seyðisfjarðar og Fáskrúðs-
fjarðar og þaðan til Aber-
deen, Bremen og Tönsberg.
GuHfoss fór frá Khöfn í gær
til Leith og Rvíkur. Lagar-
foss fór frá Vestm.eyjum í
gær til Keflavíkur og Rvík-
ur. Reykjafoss fór frá Hel-
sinki í gær til Ventspils og
Riga. Selfoss fór frá Bremen
í gær til Hamborgar. Trölla
foss fer frá Siglufirði í dag
til Akureyrar, Seyðisfjarðar
og Norðfjarðar. Tungufoss
fór frá Hull 2/10 t(.l Rvíkur.
Kvenfélag
Fríkirkjusafnaðarins
í Reykjavík h/bldur fund
fimmtudaginn 6. okt. kl. 8.30
i Iðnó uppi. Sýnd verður
kvikmynd.frá 60 ára afmælis
hófi safnaðarins. Bazar fé-
lagsins er ákveðinn miðviku
daginn 2 nóv. nk.
Farfuglar:
halda akemmti og kvik-'
myndafund að Freyjugötu
27, föstudaginn 7. okt.
8.30 sd.
Konur loftskeytamanna.
Fundur í Bylgjunni að
Bárugötu 11 kl. 8.30 annað
kvöld (fimmtudagskvöld). —■
Hafið með ykkur handa-
vinnu.
Borgfirðingafélagið.
Hin vinsælu s^ilakvöld fé- .
lagsins hsfjast nú aftur
fimmtudaginn 6. þ. m. kl. 21
a(/ondvíslega i Skátaheimi'l-
inu við Snorrabraut. Húsið
opnað kl. 20.15. Góð verð-
laun — dans.
Áheit á ungversku konuna,
sem brann hjá í fyrra, kr.
100,00 frá Elínu J. Þórðar-
dóttur.
Þegar búfé er. slátrað,
skal þess gætt, að ein skepnan
horfi eigi á slátrun annarrar
og að þær skepnur, sem til
slátrunar eru leiddar, sjái
ekki þær, sem þegar hefur
verið slátrað. Skal í slátur-
húsum vera sérstakur bana-
klefi. Reglugerð um slátrun
búfjár er númer 21 frá 13.
apríl 1957. — Sambar.d Dýra-
verndunarfél. íslands
Minnlngarkort
kirkjubyggingarsjóðs Lang
holtssóknar fást á eftirtöld-
um stöðum: Verzl. Anna
Gunnlaugsson, Laugavegi 37.
Langholtsvegi 20. Sólheimum
17. Vöggustofunni Hlíðar-
enda. Bókabúð KRON, Banka
stræti.
Styrktarfélag vangefinna: —
Minningarspjöld félagsina
fást á eftirtöldum stöðum
í Reykjavík; Bókabúð Æsk-
unnar, Bókabúð Braga Bryn;.
12.55 „Við vinn
una.“ 20.30 „í
Svartaskóla hjá
Indriða miðH“,
greinaflokkur
eftir Guðmund
Hannesson pró-
fessor. 1. kafli
(Anna Guð-
mundsd. ílyt-
ur) 21 Pianó-
tónleikar: Ignaz
Friedman leik-
ur verk eftir
Chopin. 21.30 Upplestur:
Baldvin Þ. Kristjánsson fiyti
ur kvæði' eftir Halldór Krist
jánsson frá Kirkjubóli. 21.40
Finnsk tónlist. 22.10 Kvöld-
sagan; „Trúnaðarmaður í
Havana“ 22.30 „Um sumar-
kvöld.“
LAUSN HEILABRJÓTS:
Talan 422.