Alþýðublaðið - 29.01.1961, Page 3
Auka þarf
ossæzlu i
Selfossi, 24. jan.
FYRSTU sex mánuði ársin's
18G0 var aðeins starfandi einn
iögregluþjónn hér á Selfossi,
síðan hafa verið tveir, auk þess
einn cr starfað liefur um helg-
ar og þegar meira hefur verið
að gcra. Rifreiðaeftirlitsmaður-
inn hefur eins og áður unnið við
löggæzlusíörf í hjáverkum.
Auka þarf löggæzluna hér í
Árnessýslu, einkanlega yfir
sumarið, en þá skapast margs-
konar vandamál af hinni miklu
umferð er streymir um hérað-
ið. Má í því sambandi nefna að
athugun hefur leitt í ljós, að
það er ekki fiarri lagi að tvær
bifreiðar aki eftir Austurveg-
inum á hverri mín. að deginum
til yfir sumarið.
Nauðsynlegt mun á næstu
tímum að koma á föstum vökt-
um hér hjá lögreglunni, ekki
sízt vegna sjúkraflutninganna,
sem hér eru mikið og vaxandi
starf en eins og ársskýrslan
sýnir, þá eru farnar 47 ferðir
á árinu 1960 umfram það, sem
var árið á undan. Mjög oft harf
að fara ferðir þessar skyndilega
og getur riðið á mannslífum
að skjótt sé brugðið við.
Ekki hefur enn, þrátt fyrir
ítrekaðar beiðnir, tekist að fá
neitt framlag frá hinu opin-
bera til löggæzlu hér í Árnes-
sýslu, og má slíkt furðu gegna,
þegar litið er á, að hið optn-
bera mun veita styrki til ým-
issa bæja úti um landið, ef
þangað eru væntanlegir nokkrir
síldarbátar einhverntíma sum-
ars.
Hin mikla umferð hér yfir
sumarmánuðina er að miklu
leyti fólk víðsvegar að af land-
inu, sem er í sínum sumarleyf-
um og er ekki óalgengt, að í
sambandi við það komi ýmis-
legt það fyrir, sem lögreglan
þarf að sinna, svo sem bifreiða-
árekstrar, slys ýmiskonar og
svo almennt eftirlit.
Af framansögðu virðist ekki
óeðlilegt að hið opinbera legði
nú eitthvað af mörkum til að
hægt yrði að halda áfram þjón-
ustu þessari og heldur auka
hana heldur en hitt. Það sem
af er ianúar hefur að meðal-
tali verið farin ein ferð á dag
í sjúkraflutninga. í lengstu
ferðina fer allur dagurinn.
Úrdráttur úr daghók lögregl-
unnar í Árnessýslu árið 1960:
1 Kærðir fyrir ölvun á al-
mannafæri 78 menn.
2 Færðir voru í fangelsi sök-
um ölvunar 47 menn.
3 Kærðir sökum ölvunar við
akstur 16 menn.
4 Slasaðir vegna ölvunar 6
menn.
5 Á árinu lentu í árekstrum
96 bílar.
6 I umferðarslysum slösuðust
18 menn.
7 Kærur vegna þjófnaða og
innbrota: 25.
8 Umferðalagabrot og brot á
lögreglusamþykkt: 83.
9 Ýmiskonar kærur (aðrar en
áður taldar: 140
10 Farnir voru á árinu 170
sjúkraflutningar.
Af þeim sem kærðir voru fyr
ir ölvun á almannafæri voru 32
úr Árnessýslu.
Af þeim sem kærðir voru fyr-
ir ölvun við akstur voru 6 úr
Árnessýslu.
Af þeim bifreiðum er x á-
rekstrum lentu voru 49 úr Ár-
nessýslu.
Sjúkraflutningar hafa á ár-
inu orðið 47 ferðum fleiri en
árið áður.
í janúar 1961.
Jón I. Guðmundsson
lögregluþjónn.
STÖÐUGT fækkar
gömlu húsunuin í miðbæn
um. Að undanförnu hafa
verkamenn unnið að því
að rífa „Veltuna“ svo-
nefndu á gatnamótum
Austurstrætis og Aðal-
strætis. Alþýðublaðs-
myrtdin var tekin nýlega
og sýnir hún verkamenn
að störfúm í „beinagrind“
hússins.
MMMMUMVmMttMmMMHMMWWMWUWmMMHMMMI
Lúövík tók
kauphækk-
unina aftur!
Á kosningafundinum í
Dagsbrún sl. finuntudag
sagði Jón Hjálmarsson,
að það hefði sýnt sig, hver
sem ríkisstjórnin væri, er
með völd færr, að kaup-
hækkanir færðu verka-
mönnum ekki varanlegar
kjarabætur. Verðlag
hækkaði strax á eftir og
gerði kauphækkanirnar að
engu. Jón rifjaði síðan upp
það er gerðist í síðustu
kjaradeilu Dagsbrúnar
1958. Það sem gerðist var
eftirfarandi:
Lúðvík Jósepsson, senx
þá var ráðherra kommún-
ista í vinstri stjórninnr
tók þátt í samningavið-
ræðunum milli Dags-
brúnair og Vánnuveitenda
og lýsti því yfir við at-
vinnurekendur, að þeir
mundu fá að hækka verð-
ið á framleiðsluvörum sín
um ef þeir vildu
veita Dagsbrún kaup-
hækkun. ÞETTA VAR
BÓKAÐ HJÁ SÁTTA-
SEMJARA Lúðvík lézt
vera að útvega Dagsbrún
kauphækkun, en um leið
tók hann kauphækkunina
af þeim aftur með bak-
samningum við atvinnu-
rekendur. En á eftrr þakk-
aði Eðvarð Sigurðsson
Lúðvík fyrir „ómetanlega
aðstoð“ við lausn deilunn-
ar og skýrði frá því í
Þjóðviljanum. Eðvarð hef
ur aldrei getað fyrrrgefið
sjálfum sér, að hann
skyldi hlaupa þannig á sig
sig, að lýsa því yfir í Þjóð
viljanum, að Lúðvík
liefðr haft af verkamönn-
um árangur kauphækkun-
arinnar. Þess vegna slepp
ir Eðvarð sér í livert sinn
sem þetta er rifjað upp.
En þannig er sannleik-
urinn urn kauphækkunina
seni Dagsbrún fékk, þegar
kommúnrstar sátu í ríkis-
stjórn.
TfMINN SETUR
VERKBANN Á
VESTFIRÐI!
TÍMINN birtir á forSÍðu í gær
heila skáldsögu um verkbann
útvegsmanna 'á Vestfjörðum.
Segir blaðið, að sjómenn uni
þeSsu „verklbanni“ illa og
ASV telji það ólöglegt og muni
kæra fyrir Fé’lagsdómi og svo
framvegis. M. a. segir svc í
Tímanum (stafrétt):
„LÍÚ banaði þá útgerðar-
mönnum að hefja róðra og hót-
að] hörðu. Sagði LIÚ við út-
gerðarmenn að þeir hefðu
veitt urnboð sitt til að gera
heildarsanxning og það stæði,
þótt hinn aðilinn, sjómenn,
hefðu dregið sig til baka. Á
Vestfjörðum ríkir því verk-
bann útgerðarmanna.“
Sannleikurinn í þessu máli
er sá, að v'erkfall ASV stóð í
vikutíma, þangað til samband
ið dró sig út úr samningatil-
raunum og iheiimilaði róðra
upp á CTÖmlu samningana, með
þeim fyrirvara þó, að skipt
yrði úr öllu fiskverði. Því
höfnuðu útvegsmenn og ’heim
ilaði ASV þá róðra upp á
væntanlega samninga. Standa
málin þannig enn og er al-
mennt róið frá verstöðvum á
Vestfjörðum. Ekkert verkbann
hefur komið til greina. Það er
aðeins Tíma-þvættingur.
mmhmmmmwmmmhmmw
Árshátíð
Kven-
félagsins
ÁRSHÁTÍÐ Kvenfélags
Alþýðuflokksins í Reykj-
vík verður lxaldin n. k.
þriðjudag 31. janúar í
Alþýðuhúsinu við Hverfis
g. kl. 8,30. Til skemtunar
verður: Leikþáttur, sem
þær Emrlia Jónasdóttir og
Áróra Halldórsdóttir ann
ast, kvikmyndasýning og
dans. Allt Alþýðuflokks-
fólk er velkomið.
Athugasemd
AÐ GEFNU TILEFNI skal
þess getið, að fjölskyldur þær
er eiga nemendur í skólum í
Bandaríkjunum á vegum Am-
erican Field Service nú, munn
vera 12 alls. Hins vegar voru
það fimm af þessum fjölskyld-
um er buðu varnarliðsmönn-
um til sín.
tvMMtmuvvvummwwvuHmvvmnuuvwvvvwvvvvtv
Aðalfundur Fulltrúaráðs
Alþýðuflokksins í Reykjavík
AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs Alþýðuflokksins í Reykja-
vík verður haldinn í Iðnó (uppi) annað kvöild, mánudag,
kl. 8.30.
Umræðuefni: Verkfall bátasjómanna. Frummælandi: Jón
Sigurðsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur.
Fulltrúar eru beðnir að mæta vel og stundvíslega.
Alþýðublaðið
29. jan. 1961 3