Alþýðublaðið - 29.01.1961, Side 5
MENN í FRÉTTUM
Spánsksr
dansar i
LÍDO
Hift unga spánska dans
og söng Tríó hefur
skemmt um víða veröld,
alls staðar við mikla hrifn
mgu. í Englandi hafa þau
skemmt t.d. á Hótel Sav*
oy og Dorchester Hotel,
einnig á beztu Westend
næturklúbbum, auk þess
við margar ’sjónvarps-'út-
sendingar. Á öllum stöð-
um sem þau hafa skemmt
hafa þau verið beðin að
koma aftur.
Pepita er yngst, átján
ára gömul „stjarna“ —
Triosrns Flamenco söngv-
arí og dansari, hin stúlk-
an Pacquita og karlmað-
urinn JuaR syngja, dansa
og spila á gííar. Pepíta er
fædd í Sevilla, hjarta
Andalúsíu-héraðs, þaðan
sem Flamenco er upprunn
rnn.
Trio Caprichio Espanol
koma hingað frá Madrid á
Spáni og skemmta í Lido
aðeins stuttan tíma, því
þau eru búrn að ráða sig
allt þetta ár á ýmsa staði
í Evrópu, núna næst í
Antwerpen. Tríóið byrjar
að skemmta í Lido 2.
febrúar. Það er ekki að efa,
að unnendur spánskra
dansa, en þeir eru margir
hér, eiga eftir að njóta
komu Trio Caprishio E-
spanel í Lido.
Henrique
Malta GALVAO
Kjósið gegn verkfalli
Framh'ald af 1. síðu. *
nú og krafa um mikla kaup-
íhækkun mundi leiða til langs
verkfalls og óbærilegs fyrir
verkamenn. Jón Hjálmarsson,
fonmannsefni B-listans í Dags
ibrún, benti á það á fundinum,
að vænlegra yrði til árangurs
Ifýrir verkamenn, að knýja
fram verðlækkanir og ákvæð-
isvinnufyrirfcomuiag. Reynsla
imdanfarinna ára hefði kennt
verkamönnum það, að grunn-
Scaupshækkanir færðu verka-
mönnum ekki varaniegar
iijarabætur og því bæri að
reyna nýjar leiðir. En þetta
máttu komrnúnistar ekki heyra
nefnt. Er því augljóst, að fyr-
ir kommúnisum vakir annað
en það að færa verkamönn-
iiim kjarabætur. Markmiðið
hjá þeim er að steypa verka-
mönnum ú;t í pólitískt v:erk-
fall til þess að reyna með því
að eyðileggja efnahagsráðstaf-
anir ríkisstjórnarinnar og
fellla stjórnina. Verkamenn í
Dagsbrún hafa fengið nóg af
islíkum æfingum kommúnista.
i>eir kæra sig ekki um að vera
verkfæri í höndum kommún-
ástaflokksins og taka þátt í
pólitískum verkföllum í hvert
Isiiin sem þeir Brynjólfur
ÉBjarnason og Einar OXgeirsson
telja það nauðsynlegt. Þess
Vegna munu þeir snúa baki
við kommúnistum í Dgasbrún
Og fylkja sér um B-listann.
Snædrottn-
* // r
ing i
Bæjarbíó
BÆJARBÍÓ í Hafnarfirði hóf
sýningar um jólin á kvikmynd
inni Snædrottningin, s«n er
byggð á ævintýri H. C. An-
dersen. Myndin hefur verið
fjölsótt, og náð mifclum vin-
sældum. .
Ævintýrið um Snædrottning
una hefur n áð mikldm vin-
sældum meðal barna vfða um
heim, og er þess skemmst að
minnast að leikritið var sýnt
hér fyrir nokkrum árum vjð
mikla aðsókn. Kvikmynd
þessi er sovézk.
ALLT frá þeirri stundu, er
Henrique Carlos Malitá Gai-
vao höfuðsmaður gerðist
stai-fandi andstæðingur Sala-
zarstjórnarinnar í Porúgal
fyrir tíu árum hefur hann
haldið þvj fram, að það, sem
stjórnarandstöðuna í Portú-
gal vantaði helzt væri aug-
lýsing erlendis. Það má segja
að rán hans á skipinu „Santa
Maria“ hafi svo sannarlega
veitt stjórnarandstöðunni
þossa auglýsingu.
Jafnvel á meðan hann var
heima í Portúgal og sat í
fangelsi var hann óttalaus og
mælskur í andstöðu sinni.
Sumt af áfrýjunum hans og
mótmælum gegn ákærendum
hans og herdómstólunum,
sem ákærðu hann um aðgerð
ir gegn ríkisstjórninni, láku
út og voru prentuð í bækling
um neðanjarðarhreyfingarinn
ar.
Opinská ummæli hans fyrr
höfðu haft í för með sér, að
hann féll í ónáð, því að hann
'hafði lengi verið álitinn einn
af styrkustu stuðningsmönn-
um Salazar-stjórnarinnar. —
Hann var einn af leiðtogum
hreyfingarinnar, sem í maí
1926 ruddi brautina fyrir Sa-
lazar, og hann gegndi mörg-
um veigamiklum stöðum.
En 1947 var hann skipað-
ur eftirlismaður stjórnarinn
ar og skyldi gefa skýrslu um
efnahagsástandið í Angola.
Skýrsla hans um galla stjórn
ar Portúgala og lífskjörin í
nýlendunni — það var ekki
fyrr en 1951, að nýlendurnar
voru ílýstar „erlend lands-
svæði i heimalandinu“ — var
falin.
Þegar skýrslan var falin
og engar aðgerðir hafnar i
samræmL við hana, varð það
til þess, að Galvao, sem þá
var þingmaður, gaf skýrslu
um niðurstöður sínar á þing.
inu. Stjórnin neyddist til að j
taka til sinna ráða. En þar (
með var lokið hinum opin-
beru störfum hans, þó að
hann væri ekki handtekinn
fyrr en 1951 og loks dæmdur
í þriggja- ára fangelsi 1953
fyrir undirróðurssarfsemi.
Jafnvel þóthann væri hafð
ur í haldi eftir að hann hafði
afplánað fangelsisrefsingu
sína, tókst .honum samt ein-
hvern veginn að láta heyra ;
lil sín. Hlutar af skýrslu hans f
um Angola tóku að birtast í 1
blöðum erlendis. Árið 1958, á j
meðan hann var enn í gæzlu {
varðhaldi,. var honum stefnt j
fyrir rétt á ný ög borinn 13 |
sökum m. a. um undirróðurs j
starfsssni, æsingar til upp-'
reisnar og og riíð um stjórn-
ina.
Snemma á árinu 1959. er
hann hafði legið fimm mán-
uði á sjúkrahúsi, tókst hon-
um að flýja og féfck hæli sem
pólitlískur fláttamaður i
sendiráði Argentínu í Lissa-
bon. Hann kom að dyrum .
sendiráðsins órakaður, með
klossa á fótum og ávaxta-
körfu á höfðinu. Hann hefux
alltaf haft skemmtilega
kj-mnigáfu, og þegar hanni
var kominn inn í sendiráðið
og fengið hæli, stakk hann
upp á, að senda mætti ávaxta
körfuna út sem smáhuggun
handa öryggislögreglunni.
Hann er nú 65 ára að aldri.
Hann var innan við tvítugt,
er hann, fullur áhuga, tók til
starfa í hernum. Hann gegndl
störfum í Huila-héraði í An-
gola og var síðan skipaður
vfir-eftirlitsmaður með
landssvæðum utan heima-
landsins og kjörinn á þing
sem fulltrúi Angola. Hann
var talinn sérfræðingur í
málum Afriku. Og þó segír
hann, að það hafi verio
vegna þess, sem hann sá i
portúgölsku Afríku, að hann
snerist frá því að vera einn
öflugasti stuðningsmaður Sal
azars í að verða einn ákaf-
asti andstæðingur hans. Samt
hefur hann aldrei mælt með
því, að Portúgalir drægju sig
út úr Afríku. Hann hefur
haldið því fram í blöðum
portúgölsku andstöðunnar^
sem gefin eru út í Brazilíu,
að áhrif Portúgals þar. eins
og í öðrum nýlendum, verði
að halda áfram.
Helzta takmark stjórnar-
andstöðunnar í Portúgal helci
ur hann fram að verði a-5
velta stjórn Salazars, sena
hann heldur fram, að sé a&
kyrkja allt líf og hugsim
Portúgala.
SPILAKVÖLD
Á AKRANESI
FUJ á Akranesi hefur spila-
kvöld í kvöld, sunnudag, á
Hótel Akranesi kl. 8,30. Anna$
kvöldið í 5-kvölda keppninni.
Góft kvöldverftlaun og glæsileg
lokaverðlaun. Akurnesingar
eru hvattir til að fjölmenna.
FUJ í Hafnarfirði heldux
skemmtun í kvöld kl. 9. Dans
að verður frá 9—1, en auk
þess verður spilað Bingo cg
Verða veitt glæsileg verðlaun.
Alþýðublaðift — 29. jan. 1961 g