Alþýðublaðið - 29.01.1961, Síða 9
Sigurðsson og tekst hon-
um vel að lýsa þessum góð-
lynda kaupmanni. Konu
hans Emelíu leikur Jóna
Burgess, og Maríu Lovísu
dóttir þeirra leikur Guð-
rún Sigurðardóttir. Leikur
þeirra mæðgnanna er
prýðilegur. Fangarnir, þeir
Jósef, Júlíus og Alfreð
eru leiknir af Pétri Ein-
arssyni, Karli Grönvold
og Þorvaldi Einarssyni.
Allir eru þeir góðir í hlut
verkum sínum, en þó er
óhætt að segja, að Pétur
í hlutverki Jósefs hafi átt
mesta hylli leikhúsgesta.
Henry Troihard kaupsýslu
mann leikur Einar Kristj-
ánsson, og Pál frænda
hans leikur Jón Sigurjóns
son. Báðir sóma þeir sér
vel í gerfum elskhugans og
nirfilsins. Önnur hlutverk
ar” á
eyri
eru leikin af Helgu Möller
og Arnari Jónssyni.
Leikstjórinn Benedikt
Arnason var kallaður fram
eftir leiksýninguna og hon
um þakkað hið mikla og
góða starf, sem hann hef-
ur unnið með þessum ungu
leikurum.
Leikstarfsemi Mennta-
skólans á Akureyri á sér
gamla sögu. Mun starfsem-
in hafa gengið slitrótt
framan af, og ýmsir merk
ir menn lagt þar hönd á
plóginn, og má í því sam-
bandi minnast á Ágúst
Kvaran, Davíð Stefánsson
og 'Vernharð Þorsteinsson.
Á árunum 1937—1938
setti Árni Jónsson, kenn-
ari, sem þá var nemandi
við skólann, tvo leiki á
svið. Andbýlingana og
Vermlendingar. Voru þess
ar leiksýningar haldnar
til styrktar skíðaskála
skólans, Útgarði.
Árið 1951 starfrækti
Jón Norðfjörð leikskóla
fyrir nemendur skólans
þeim að kostnaðarlausu,
en sama árið setti hann á
svið leikritið Spanskflug-
una. Fimmta nóvember
1955 var svo Leikfélag
Menntaskólans á Akureyri
formlega stofnað, og var
Framh. á 14. síðu
MYNDIR : Efst er mynd af
öllu starfsfólki leiksins. —
Myndin í miðjunni er af
hrnum óforbetraniegu
föngum, Jósef, Júlíus og
Alfreð. Neðst siást fang-
arnir hampa kaupmann-
inum góða.
Það var sl. þriðjudags-
kvöld, að Leikfélag
Menntaskólans á Akureyri
frumsýndi fyrrnefnt leik-
rit. Samkomuhúsið var full
skipað áhorfendum, sem
fögnuðu hinum ungu leik
endum með miklu lófa-
klappi.
Leikritið ,,Vængstýfð-
ir englar“ er eftir Frakk-
ann Albert Husson, og hef
ur vakið mikla kátínu
hvar sem það hefur verið
sýnt. Fyrir nokkrum árum
var það sýnt á Herranótt
Menntaskólans í Reykja-
vík, og einnig hefur verið
sýnd hér kvikmynd byggð
á leikritinu. Fjallar leik-
ritið um þrjá fanga, sem
hafa verið dæmdir til
vistar á fanganýlendu fyr
ir ýmis konar brot, sem
þeim þó tekst að sann-
færa áheyrendur um, að
þeir hafi framið í fullum
rétti.
Sjónleikurinn gerist
um jólaleytið, en þá eru
fangarnir að vinna við við
gerð á húsi kaupmannsins
á fanganýlendunni. Kaup
maður þessi er heiðarleik
inn uppmálaður, og getur
ekki ímyndað sér, að nokk
ur maður vilji eða geri
honum rangt til og þess
vegna er hann kominn í
miklar kröggur. Ýmislegt
fleira gengur á afturfótun-
um á þessu góða heimili,
en fangarnir taka til sinna
ráða og tekzt þeim að færa
allt til betri vegai'.
Kaupmanninn Felix Du-
iotal leikur Guðmundur
fallegur
iklega á
arkvöld-
írinn er
ljósi, og
• fram úr
vernd-
fylgist
im fer í
ta slær
og gef-
ú fer að
er tjald-
í sam-
emendur
Akur-
i á frum
tinu —
iar.“
Orðsending
frá Húsmæðráskóla Reykjavíkur
Þeir nemendur, sem fengið hafa loforð um skólavisfc'
á seinna dagnámskeiði skólans, mæti í skólanurn
föstudaginn 3. febr. kl. 2 sd. SKÓLASTJÓRI.
Erum fluttir á
Greffisgöfu 6
KR. ÞORVALDSSON
Heildverzlun
Heilsufiæli NLFÍ
HVERAGERÐI
vantar starfsstúlkur nú þegar.
Upplýsingar í síma 32, Hvera-
gerði eða 16371 í Reykjavík.
Tiikynning
Kli/pping trjágróðurs er hafin. Munið að láta grisja
gróðurinn meðan hann er í fullum dvala.
Pantið strax. — Fljót og vönduð vinna.
FINNURÁRNASON
garðyrkjumaður. — Sími 36778.
(Jtsala - (Jtsala
Karlmannaföt
Drengjaföt
Frakkar
Kr. 990,00
Kr. 1250,00
Kr. 1660,00
TUœðagerðiit)
liltÍMiM 1f KJÖRGARÐI
Alþýðublaðið — 29. jan. 1961 g)