Alþýðublaðið - 27.01.1962, Page 3
Styrkur til
náms vestra
AÐ TILHLUTAN Valdi-
mars BjörrH'on, fjármáiaráð
ráðherra Min;?estota ríkis, hef
Ur Ott0 Bremcr stofnuni/! á
kveðið að veita á þessu órj og
framveg'is árlega nokkra fjár
upphæð til The American
Scandinavan Foundation til
námsstyrkja fyrir háskóla-
menntaða mcnJ/ á Norður
löndum tjl framhaldsnárrj' við
æðri menntastofnanir í M'nne
sota, einkum Rík.sháskólann
eða Mayo—læknaskólan/i í
Rochester.
Fyrcti styrkurinn, að upp
íhæð $2.500, verður veittur fs
lenzkum námsmanni, og hef
ur T^lerzk-ameríska fé]agið
miUigöngu um veitingu hans.
Stvrkurinn eY til eins árs
(1962 63), en við Mayo stofn
unina eru möguleik.ar á fram
hpio'f.stvrk í tvö ár til viðbót
,ar. Umsækjendur skulu 'hafa
lokið -háskólaprófi í grein
'sinni. Nárari upplýsingar gef
ur ritari félaesins, prófessor
Hreinn Benediktsson, sími
10361, og afherdir hann einn
ig umsóknareyðulblöð.
(Frá ísl. ameríska félaginu).
A 66 KLUKKUSTUND
MTIL
Framhald af 1. síðu.
verða harðánægðir, þótt starf
hans verði ekki fullkomið
Eins og áður segir er eld-
flaugin tveggja þrepa. Fyrra
þrepið er Atlas-eldflaug, sem á
að flytja A g e n a - eldflaug og
geimfar'ð upp í 138 kílómetra
hæð yfir jörðu. Átta mínútum
eftir að þangað er komið á svo
Agena-eldflaugin að fara af
stað og flytja geimfarið til tungls
ins. Þegar þetta er skrifað, hafa
borizt uplýsingar um að Atlas-
fiaugin hafi gegnt hlutverki
sínu og Agena-flaugin sé komin
af ptað með geimfarið innan-
jboííls. Hefur ferðin 't'l þessa
gengið að óskum. Hins vegar
verður ekki hægt að segja um
það með fullri vissu, fyrr en
eftir 24 klukkustundir, hvort
eldflaugin hefur farið fyrirhug-
aða leið. Agena-eldflauginni er
ætlað að gefa geimfarinu 38.100
kílómetra ferð á klukkustund og |
sleppa því frá. Taka þá við ýms
ar flóknar aðferðíir, er munu ;
leiða til þess að geimfarið stefni ]
til tunglsins með 9600 kílómetra ,
hraða á klukkustund. Geimfarið
mun splundrast er það lendir á !
tunglinu, en áður en það gerist. I
hefur losnað frá því jarðskjálfta
mælir, sem menn vona að lendi j
á tungl'nu með aðeins 240 kíló-
metra ferð á klukkustund. Er
metra hraða á klukkustund. Er
þess vænzt að mælirinn lendi ó-
skaddaður og taki síðan til við
að senda skýrslur til jarðar um
hreyfingar á yfirborði tunglsins,
t. d. vegna jarðskjálfta eða á-
reks'ra loftsteina. Sendir mæl-
is:ns getur starfað í einn mán-
uð.
Fjórar athuganastöðvar munu
fylgjast með ferð ,.Ranger
three“. Eru tvær þeirr.i í ná-
grenni Jóliannesarborgar í Suð-
John
Glenn
ofursti
ur-Afríku, ein á Woomerang-
tilraunasvæðinu í Ástralíu og
ein við Goldstone í Kaliforníu.
Ranger three hélt af stað
klukkan nákvæmlega hálf átta
í gærkvöldi, eins og áður segir.
Um leið og vélar Atlas-flaugar
innar fóru af stað huldist hin
27 metra háa flaug í vatnsúða,
en vatn sprautast sjálfkrafa í
kælingarskyni á skotstað flaug-
arinnar. Hún hvarf í norðurátt,
sem risastór eldnál þpemur
mínútum síðar og fimm
’mínútum ef'ir að hún fór af
stac), Ilelði Atlas-eldfljaugin
gegnt sínu hlutverki og losnað
frá Agena-flauginni og geimfar-
ínu. — Gerðist þetta í 240 kíló-
metra hæð. — Jafnskjótt og
,,Ranger three“ er kominn út
fyrir aðdráttarafl jarðar mun
hann leggja út árar sínar, sem
svo eru kallaðar, en það eru ör-
litlir hlerar, sem þaktir eru svo-
kölluðum sólskífum eða sólspegl
um. Framleiða þær rafmagn fyr
ir áhrif sólarljóssins. „Ranger
three“ mun fcreyta legu sinni í
loftinu eftir þörfum til að geta
sem bezt notað sólarljósið. — í
ákveðinni fjarlægð frá tunglinu
mun „Ranger three“ líka snúa
sér þannig að sjónvarpsmynda-
vélarnar snúa að tunglinu. Og í
21 kílómetra hæð á fyrrnefndur
jarðskjálftamælir að losna, en
þá fara í gang litlar hemilflaug
ar sem festar eru við hann.
„Ranger three“ flytur hin
flóknustu vísindatæki og hafa
mörg þeirra ekki verið notuð
áður í geimflugi. í geimfarinu
eru 20 þúsund rafmagnshlutar.
Þar er rafmagnsheili, sem safn-
ar og notar síðar skipanir, sem
honum berast frá jörðu. Skipan-
ir þessar ráða stefnu geimfars-
ins og legu þess í himingeimin-
um. Fyrsta skipunin barst 30
mínútum eftir að ferð flaugar-
innar hófust og var hún um, að
loftnetin ættu að beinast til
jarðar. Önnur skipunin var um
að losa lof'netin í stefnu á
jörðu, sú þriðja var um skipt-
ingu frá rafhlöðum til sóiarorku
sú fjórða fjallaði um ræsingu
eldflaugahreyfla og sú fimmta
f.iallaði um að sjónvarpsmynda-
vélar taki nærmyndir af tungl-
inu á 13 sekundna fresti, sam-
tals 1800 myndir. Geimparið
mun því taka og senda fyrstu
nærmyndirnar af tunglinu. með
al annars. Það e.r 327 kííó að
byngd og er gull- og silfurhúðað.
Jarðskjálftamælirinn er 43,4
kíló að þyngd og er klæddur
með balsaviði.
HLERAÐ
Blaðið hefur hlerað
Að Almenna byggingarfélagið
hafi selt Áfengis- og tóbaks
verzlun ríkisins og fleiri
ríkissfofnunum húsið Borg-
artún 7 fyrir 25 milljónir.
CANAVERAL-HÖFÐA
26. jan. (NTB—AFP).
JOHN Glenn ofursti, sem á
að fara þrjá liringi um jörðu í
geimskipi sínu á morgun. sagði
í dag að allt væri gert, sem
mögulegt væri til að minnka
áhættu bá sem hann tekst á
hendur með ferð þessari. Samt
sem áður er auðvitað enn nokk
ur áhætta fyrir hendi, sagði
hann.
Það var málsvari Glenn of-
ursta er færði blaðamönnum
þessi orð hans. Lagði hann á-
herzlu á, að Glenn reiddi sig á,
að bæði hið opinbera og blaða
mennirnir skilji hættu þá, sem
Glenn setur sig í. Hann sé fús
til að fórna sér í þágu vísind-
anna ef þörf krefji. Málsvarinn
sagðl einnig að hættulegasti á-
fangi ferðarinnar myndi vera
sá, er kveikt verður á eldflauga
lireyflunum til að beina flaug-
inni til jarðar aftur. Fari þeir
. ekki í gang mun geimfarið
halda áfram ferð sinni um
jörðu í heilan sólarhring. Spurn
ingu þess efnis, hvort Glenn
hefði með sér eitur til að taka
inn rf nauðsyn krefði svaraði
málsvarinn svo, að hann hefði
það ekki með sér.
Glenn verður vakinn klukk-
an £ í nótt (ísl. tími) og mun þá
ganga undir rækilega læknis-
skoðun. Hann klæðist síðan
búningi sínum og verður kom
inn að Atlas-eldflauginni klukk
an 5. Fer hann þá í lyftu upp á
11. hæð í skotturninum og stíg
ur inn f geimfar sitt, „Friend-
ship ^even'b Vegur það 1 tonn
og Ukur hver ferð þess um
jörð>» 90 mínútur, en í allt á
ferð:n að standa fióra tíma og
fimmtíu mínútur. Veðurútlitið
er r>ú talið gott. Á ferðinni
j fer p’eimfarið hæst 240 kíló-
metra en lægst 160 kílómetra.
j Geimfarið mun hverfast frá
| austr5 tii vesturs og fara yfir
J Athnfshafið, Afríku, Indlands
haf, Ástralíu, Kyrrahaf, Banda
ríkin Ef nauðsyn krefur getur
GJefn ofursti sett hemilflaug
arnar í gang eftir fyrstu hring
ferð:n-> o<r verður hann þá yf
ír ve^hirströnd Bandaríkjanna,
6400 kílómetra frá þeim stað í
Atlantshafinu, sem hann
myndi lenda á. Er það 800 km.
undan ströndum Bermuda og
Florida. Ef allt gengur að ósk-
um mun í lok þriðju hringferð
arinnar, lítij fallhlíf opnast í
6300 metra hæð oa; í 3000 metra
liæð mun aðalfallhlífin opnast
og flytja geimfarið niður að
sjávarfletinum. Á hringferð-
unum mun Glenn ofursti taka
við stiórn geimfarsins um
stund, hann mun mæla blóð-
þrýsting sinn og standa í stöð
ugu talsambandi við loftskeyta
stöðvar á jörðu niðri. Verður
öllu því útvarpað jafnóðum um
alþjóðlegar útvarpsstöðvar. Þá
mun Glenn einnig snæða í geim
farinu.
Eins og áður segir tekur hver
hringferð 90 mínútur en það
býðir að hann mun upplifa í
hverri þeirra einn dag sem verð
ur fyrir honum 45 mínútna
langur, og eina nótt, sem verð
I ur jafnlöng. Þannig lifir hann
þrjá sólarhringa, sem hver fyr
ir sig er 90 mínútna langur.
Patrekshrepp-
ur vann
málið
í GÆR var kveðinn upp í
Hæstarétti dómur j málinu:
] oddviti Patrekshrepps gegn
Olíuverzlun íslands hf. Reis
málið vegna ágreinings um
það, hvort Olíuverzlunin ætti
að greiða útsvar á Patreksfirði
; árin 1954—1956. Patrekshrepp
i ur vann málið og var Olíuverzl
uninni gert að greiða útsvarið.
Árin 1954—1956 lagði Patr-
' ekshreppur útsvar á Olíuverzl
un íslands, samtals að upphæð
^ kr. 3482.00 en Olíuverzlunin
neitaði greiðslu. Hélt Olíu-
verzlunin því fram, að Hafnar
stræti 21 hf. ætti tæki þau, er
Oliuverzlunin notaði til starf-
rækslu sinnar á Pareksfirði. —
Hins vegar kom í ljós, að Hafn
arstræti 21 hf. er dótturfélag
Olíuverzlunar íslands og á
Olíuverzlunin 39.500,00 kr. af
40.000,00 kr. hlutafé í Hafnar-
stræti 21. Segir í hæstaréttar
dóminum, að með því að Olíu-
verzlunin leggi til og kosti þau
tæki, sem nauðsynleg eru til
starfrækslu Olíuverzlunar ís-
lands á Patreksfirði verði að
telja, að salan fari raunveru-
lega fram á vegum hennar,
enda sé hún þáttur í víðtækara
sölukerfi Olíuverzlunarinnar.
Segir í dóminum.að því verði að
telja Olíuverzlunina útsvars-
skylda í Patrekshreppi. Var
Olíuverzluninni gert að greiða
umrætt útsvar kr. 3482.00 á-
samt 10% ársvöxtum frá 11.
nóv 1957 til greiðsludags og
málskostnað í héraði og fyrir
hæstarétti, samtals kr. 3000.00.
Frh. á 11. síðu.
Alþýðublaðið — 27. jan. 1962 3