Alþýðublaðið - 27.01.1962, Page 10
Ritstjóri: ÖRN EIÐSSON
Opiö hús í dag |
AFMÆLISHÁTÍÐAHÖLDIN í tilefni 50 ÁRA AFMÆLIS
íþróttasambands íslands hefjast í daff í Sjálfstæðishúsinu.
Þar tekur framkvæmdastjórn ÍSÍ á móti gestum kl. 15. Þar
verða flutt ávörp og kveðjur og gjafir afhentar. Erlendir
gestir og fulltrúar héraðssambanda eru annað hvort komn-
ir í bæinn eða koma í dag. — Á morgun kl. 14 er hátíðar-
sýaing | Þjóðleikhúsinu og almælisíhóf að Hótel Borg
annað kvöld.
MMHMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMttMMMMMMMMMi
Handbolti
um helgina
+ MEISTARAMÓT ÍSLANDS
i handknattleik heldur áfram
um helgina. í kvöld fara m. a.
fram 2 leikir í II. deild karla,
ÍA—Haukar og ÍBK og Þróttur.
Annað kvöld leika m. a. Valur
og FH í mfl. I. deild og ÍA—
Breiðablik í II. deild. Keppnin
hefst kl. 8,15 bæði kvöldin.
; Á móti í Auckland sigraði
Peter Snell í 880 yds. hlaupi
og fékk hinn frábæra tíma,|
1:47,1 mín. Annar í hlaupinu
yarð Bandaríkjamaðurinn
John Bork á 1:48,5 mín.
Danir sigruðu Júgóslavíu í
handknattleik kvenna í vik
unni með 12:7.
Belgíska liðið Standard Lié-
e sigraði Penarol frá Uruguay
í Liége í vikunni með 3:1.
—□—
‘ Norska handknatleikslands-
liðið, bæði karlar og konur,
éru nú á keppnisferðalagi. —
Norska karlaliðið sigraði þáð
hollenzka með 19:11, en tapaði
fyrir Vestur-Þjóðverjum með
10:12. Þýzku dömurnar sigruðu
þær norsku með 10:6.
Austur-Þjóðverjar sigruðu
Júgóslava í handknattleik með
25:12.
.MMMMMMMMMMMMMMtM
Lélegir leikir
að Hálogalandi
iHÁÐIR v'oru fjórjr lejkir í ís-
landsmótinu í handkr.attleik
á fimrntudagskvöldð, tveir í 2.
flokki karla og tveir í.meist-
ar.aflokki kvenna. Leikirnir
ýoru frekar daufir og varla brá
fyrir góðum handknattleik.
II. FLOKKUR KARLA
FH — ÍR 17:10 (6:5)
Fyrri hálfleikur var alljafn
eins og tölurnar bera með sér,
en j síðari hálffeik voru FH-
ingar ailsráðandi á vellinum.
Margir af liðsmönnum 2. fl.
MMttMtMMMttMMMtttttMttMMtMMMtMMtMMMMMtMW
frá í fyrra hafa nú gengið upp
og þeir sem nú fylla flokkana,
eru ekki eins snjallir, enda
með minni reynslu. í báðum lið
uf eru samt efnilegir piltar.
Valur — Ármann 14:9
Þessi leikur var súzt betri
en fyrri leikurinn, en Valur
sigraði Verðskuldað. — Hið
skemmtilega lið Ármanns frá
í fyrra hefur nokkuð splundr-
azt, þar sem .sumir þeir beztu
eru nú gengnir upp í mfl.
Frh. á 11. síðu.
Þorgerffur skorar fyrir KR í leiknum gegn VAL.
Hátíðahöld á Akur-
eyri á ÍSÍ-afmæli
Svartamarkaðs-
verð 2900 kr.!
ÁJHUGI vex stöðugt
fyrir leik Ingemars Johan-
sens og Bretans Bygraves,
sem fram fer í Gautaborg
2. febrúar. Nú þegar er
svartamarkaffsverff miða
komiff í 350 sænskar krón-
ur eða ca. 2900 ísl. krón-
nr. Áhorfendasvæffiff, þar
sem keppnin fer fram tek-
ur 6 þús. manns.
MMMMMMMMMMttttMMMt
AFMÆLIS ÍSÍ verffur minnzt
víffa um land, en á Akureyri
verða hátíffahöldin meff mestum
glæsibrag, eða sem hér segir:
í dag verður frjálsíþrótta-
keppni í íþróttahúsinu og keppt
í hástökki meff og án atrennu og
þrístökki án atrennu. — Þessi
keppni hefst kl. 4 e. h.
Einnig í dag fer fram sýn-
ingarkeppni á vegum Skautafé
lagsins, ef veður leyfir og hefst
hún væntanlega kl. 6 e. h. á
æfingasvæðinu við íþróttavöll-
inn.
Á morgun verður skíðakeppni
í Hlíðarfjalli. Bifreiðar frá Ferða
skrifstofunni leggja af stað kl.
9,30. Keppt verður í ýmsum
greinum skíðaíþróttarinnar.
Efitir hádegi á morgun verður
keppni í handknattleikjum í
fimleikasal MA og íþróttahúsinu
— Keppni hefst kl. 1,30. Keppt
verður í handknattleik karla og
kvenna og körfuknattleik..
Á morgun fer einnig fram
sund'keppni í Sundlauginni og
hefst hún kl. 5,30. Keppt verð-
ur í 50 m. bringusundi kvenna
og 50 m. bringusundi karla. ■ —
Einnig verður keppt í 50 m.
skriðsundi karla og kvenna og
4x50 m. skriðboðsundi karla og
4x50 m. boðsundi, bringusundi
karla. Þá verður 4x25 m. boð-
sund kvenna í bringusundi og
skriðsundi.
Annað kvöld verður svo af.
mælishóf að Bjargi fyrir íþrótta
fólk og hefst það kl. 8,30. Þar
verður m.a. úthlutað verðiaun-
um dagsins.
SKIÐAFERÐ TIL NOREGS
Ferðaskrifstofan Lönd
og Leiðir efnir til skíða
ferðar tU Noregs nú í
næsta mánuði. Verður far
ið frá Reykjavík með Flug
félagi Ísíands þ. 24. febr.
og dvalið í skíðahóteli í ná
grenni Oslóborgar þá vik
una, og skíðafólki gefinn
frjáls tími til æfinga við
hin ágætustu skilyrði
þar sem lyftur og annar
búnaður er eins og bezt
verður á kosið. Helgina
eftir er hið fræga Holmen
kollen mót, og verður far
ið þangað og dvalið við
keppnisstaðinn laugardag
og sunnudag 3—4 marz.
Gefst fólki tækifæri til
að sjá hina færustu skíða
menn, sem taka munu
þátt £ mótinu.
Á mánudeginum verð
ur farið til Oslóar og dval
ið þar til miðvikudags 7.
marz, þá verður flogið til
Reykjavíkur.
Er ekki að efa, að marga
fýsir til að koma til Nor-
egs um vetur, bæði til
skíðaiðkana svo og til
hressingar.
Tékkneska liðið Spartak er
nú á keppnisferðalagi £ Mal-
aya. Þeir töpuðu leik þar ný-
lega með 3:1 og kemur það
mjög á óvart.
FRÁ HOLMENKOLLENDEGINUM.
JO 27. jan. 1962 — Alþýðublaðið