Alþýðublaðið - 24.02.1962, Síða 4
Guðmundsson:
11
BÚIZT er við fullskipuðum
fundi miðstjórnar rússneska
fkommúnistaflokksins 5. marz
næstk. og hafa þær fréttir
orðið mönnum tilefni til
vangaveltna um ástandið
meðal framámanna þess
flokks um þessar mundir. Eru
fleslir sammála um, að for-
usta flokksins eigi enn í harð
vítugri valdabaráttu, þó að
sennilegast sé talið, að í þetta
skipti verði eiít aðalmálið
endanleg ákvörðun um að
slíta sambandinn við Kína, —•
-enda fjölmargt, sem bendir
til þess, að slík ákvörðun geti
ekki verið iangt undan.
Það er hins vegar Ijóst, að
barátta Krústjovs fyrir algjör
um yfirráðum og barátta sam
starfsmanna hans gegn því að
láta hann ekki komast of
langt hefur skapað fremur ó-
stöðugt ástand meðal „topp“-
kommúnistanna í Kreml. 22.
flokksþingið styrkti ekki að-
^töðu Krústjovs, og rökræn
afleiðing þess er sú, að hann
verður að reyna að fylla for-
sætisnefndina af tryggum
stuðningsmönnum sínum, ella
gætu atvarleg mistök í ein-
hverju stefnumáli hans kost-
að hann stöðuna. Meirihlut-
inn í forsætisnefndinni verð-
ur hins vegar að reyna að
berjast gegn auknum völdum
hans, þar eð slík aukning hlyti
óhjákvæmilega að veikja
þeirra eigin völd.
Sérfræðingar í Rússlands-
málum telja yfirleitt ekki, að
um sé að ræða neinn „Kína-
fokk“ innan forsætisnefndar
rússneska kommúnistaflokks
ins, en þó megi vel vera, að
það mál verði notað til að
sverta Molotov og aðra and-
stæðinga Krústjovs. Það er að
sjálfsögðu mikill styrknr í
því fyrir Krústjov að geta
svert alla andstæðinga sína
sem stalínista, þó að ekkert
bendi til þess, að neinn af
helztu forustumönnunum nú
mundi vilja snúa aftur til að-
ferðanna, sem beitt var á
staiínstímanum.
Það er enginn efi á því
lengur, að mikil barátta hef-
ur staðið og stendur enn út
af brottrekstri Molotovs og
annarra meðlima „hins and-
flokkslega hóps.“ Robert
Conquest, sem mikið skrifar
um málefni Sovétríkjanna,
segir í grein nýlega, að við
könnun á skýrslum 22. flokks
þingsins til hinna ýmsu flokks
deilda í sovétlýðveldunum
komi algjört ósamkomulag
skýrt í Ijós. Bendir hann á, að
í sjö af lýðveldunnm, þar á
meðal einkalýðveldi Krústj-
ovs, Ukrainu, hafi ræður að-
alritaranna, skýrslur flokk-
anna og bréf frá fundum
verkamanna prentuð í blöð-
um á staðnum heimtað brott
rekstur andflokkslega hóps-
ins úr flokknum. í sex af lýð
veldunum hafi sú skoðun ekki
komið fram í þessum fyrr-
nefndu skjölum. I einu lýð-
veldi, Lithauen, hafi verið
nokkur óvissa, í ræðum hafi
verið krafizt brottvikningar,
en hins vegar ekki verið
minnzt á hana í ályklunum.
Sama segir hann, að hafi gerzt
í hinum stórum flokkum í
Leningrad og Moskva: í Len
ingrad voru birt bréf, sem
kröfðust brottrekstrar, en á-
lvktun flokksins minntist
ekki á shkt. í Moskva héldu
nokkur blöð því fram, að hér
Framhald á 14.
SPURT OG SPJALLAÐ,
þátlur Sigurðar Magnússonar,
verður annað kvöld; hörku-
rifrildi um nýstárlegt efni: Á
ríkið að hafa einkarétt á út-
varpi á íslandi? — Með
-einkaútvarpi tala Sveinn Ás-
jjeirsson og Njáll Símonar-
Æon, en á móti Guðmundur
Hagalín og Benedikt Grön-
-dal.
Iðgjald útvarpshlustenda
mun hækka innan skamms
•og verða 360 krónur að með-
töldum söluskatti. Útvarpið
kostar þá hvern borgandi
h^ustanda innan við 10 aura á
hverja klukkustund, sem út-
varpað er, og mun varla ódýr-
ari skemmtun og fræðsla fá-
anleg í landinu.
; iSi
' Bjarni Benedíktsson dóms-
málaráðherra hefur fallizt á
að flytja tvö sunnudagserindi
um Gamla sáttmála, áður en
langt líður.
Endurtekið efni kl. 4,15 á
morgun verður úr barnatím-
um á virkum dögum og munu
fullorðnir ekki síður hafa á-
nægju af. — Jórunn Vigar og
Þuríður Pálsdóttir kynni
vísnalög í barnatíma á þriðju-
dag kl. 6.
Einar Pálsson flytur hug-
leiðingu á þriðjudagskvöld. —
Sverrir Hermannsson talar
um daginn og veginn. — Á
fimmtudag talar Sigurður
Pétursson gerlafræðingur um
athyglisvert efni: Skelfiska-
tekju og skelfiskaeitrun. —
Róbert G, Snædal les smá-
sögu sína, Hefnd, sama kvöld.
Þeim fer fjölgandi, sem
hlusta á morgunhugleiðingar
Árna Kristjánssonar, tónlist-
arstjóra, um músik á sunnu-
dagsmorgnum. — Aðdáendur
rúmenska tónskáldsins Geor-
ge Enescu fá mrkla dagskrá
með verkum hans kl. 2—3 á
morgun.
Sveinn Einarsson fil. kand.
hefur starfað á dagskrárskrif-
stofu útvarpsins undanfarin
ár, þegar hann hefur ekki ver
ið við nám í Svíþjóð í leik-
lislarfræðum. Næsta laugar-
dag kemur hann í fyrsta sinn
fram sem leikstjóri í „Bruna
rústinni“ eftir August Strind-
berg, sem Sveinn hefur sjálf-
ur þýtt.
4 24. febr. 1962 — Alþýðúblaðið
MIMUIMMMMHUUMmiWIHUHMMMMMMMMMMtUUMl
Ritgerðasamkeppni skólabarna:
HJA okkur öllum þróast í
munninum bakteríutegund
sem breytir sykri eða sykruð
um fæð'utegundum í sýru.
Þessar bakteríur þrífast bezt
í óhreinindum á tönnunum
eða milli þeirra. Sýran, sem
þær mynda, vinnur auðveld
lega á glerungnum, og að sjálf
sögðu þeim mun hraðar, því
meiri sem s.ykurefnin eru, og
því lengur sem þau eru í
munninum. Hættast er öllum
skorum og ójöfnum á tönnun
um og snertiflötum þeirra þar
sem fæðuleifarnar ná helzt að
festast.
Skemmdin hefst með því,
að yfirborð glerungsins leys
ist upp og verður gljúpt, líkt
og krít. Um leið verður það
hrjúft, svo að óhreinindi fest
ast enn meir en fyrr, og flýtir
það fyrir áframhaldi skemmd
arinnar. Sýran étur sig svo
dýpra og dýpra inn í glerung
inn, unz hún nær inn í tann
ibeinið. Þegar Iglojvfungurinn
hefur þannig rofnað, eiga
aðrar bakteríur greiðan að
gang að tannbcininu fyrir inn
an. Tannbeinið heflur enga
vörn gegn bakteríum, og verð
ur offast hröð eyðilegging á
því. Ef ekki er gert við
skemmdina í tæka tíð, brjóta
bakteríurnar sér leið inn í
taug |innarinn^r; og vajda
þar verk og bólgu. Eftir taug
inni komast þær svo upp eft
ir rótinni og inn í kjálkabein
ið sjálft, Þá c.r oft ókleft að
bjarga tönninni, og verður að
fjarlægja hana.
í heilbrigðum munni eru
allar tennur til staðar, og
mynda þær óslitinn og reglu
legan boga. Þær liggja þá
þétt saman og veitá hver ann
arri stuðning, svo að síður er
hætta á, að matarleifar fest
ist milli þeirra og valdi þar
skemmdum. Ef ein tönn tap
ast, hlýzt þegar af því mikið
tjón. Tennurnar beggja meg
in við skarðið missa stuðning,
þær standa þá ekki lengur
Hér er listi yfir nokkur
þeirra verðlauna, sem veitt
verða fyrir góðar ritgerðir.
2 flugferðir innanlands
Börn eru bezta fólk
ísland í máli og myndum
Evrópukort
Vesturfarar
Ljóðasafn Guðm. Guðm. I.
þétt saman og matur festist
auðveldlegar en áður milli
þeirra. Ennfremur skekkjast
tennurnar, sem bíta móti
skarðinu, svo að öllum tönn
um þeim megin í munninum,
sem skarðið er, verður hætt
ara við tannskemmdum en
áður. Og enn versnar ástand
ið, e.f fleiri tennur tapast.
Gert jhefur vejrtð yið
skemmdina og fyllingar sett
ar í tönnina.
Framhald listans verður birt
með næstu greinum.
Gefendur
Flugfélag fslands h.f.
ísafoldarprentsmiðja h.f.
Helgafell
Lárus Blöntlfll
Bókaútgáfan Norðri
& II. ísafoldarprentsm. h.f.
Ævintýrið um Alb. Ssweitzer Setberg
Grafir og grónar rústir Bókaforl. Odds Björnssonar
Sleðaferð um Grænlandsjökul ísafoldarprentsm. h.f.
Stephan G. Stephansson Helgafell
Haldið græðslugreinunum grein verður birt laugardag
saman. Klippið þær úr blöð 3. marz.
unum. Geymið þær. Fyrsta
greinin birtist síðas'Iiðinn (Frá fræðslunefnd Tann
laugardag, 17. febrúar. Næsta læknafélags íslands.)